Morgunblaðið - 03.12.1992, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1992
Á ljóslausum reiðhjól-
um í svarta myrkri
eftir Valgarð
Valgarðsson
Þegar að skyggja tekur og vetur
konungur gengur í garð, hér á landi,
vilja ýmis vandamál skjóta upp koll-
inum, sem birtast oft í margskonar
myndum. Eitt þessara „vandamála“
sem ég ætla hér að gera að umtals-
efni eru vegfarendur sem ferðast
um á ljóslausum reiðhjólum í svarta
myrkri og eru stórhættulegir í um-
ferðinni, sjálfum sér og öðrum.
Hvaða ökumaður er stórhættulegir
i umferðinni, sjálfum sér og öðrum?
Hvaða ökumaður kannast ekki við
að hafa verið nærri búinn að aka
niður vegfaranda á reiðhjóli við
fyrrgreindar aðstæður? Trúlega of
margir. Fyrir utan öll þau slys sem
hefði sennilega mátt koma í veg
fyrir ef þetta einfalda en mikilvæga
öryggistæki, ljósið, hefði verið til
staðar á reiðhjólunum.
í gegnum tíðina hefur verið talað
um að bömin eigi að leggja hjólun-
um yfír háveturinn, þ.e. setia bau
„Því miður er það of
algengt að bæði börn
og fullorðnir séu úti í
umferðinni á ljóslaus-
um hjólum í myrkri og
slæmu skyggni. Slíkur
ferðamáti er fyrir það
fyrsta stórhættulegur
og þar fyrir utan
stranglega bannaður.“
í geymslu meðan svartasta skamm-
degið er og allra veðra er von. For-
ráðamenn í nokkrum grunnskólum
í Hafnarfírði og Garðabæ hafa all-
oft haft samband við mig vegna
þessa og þá sagst eiga í vandræðum
með þessi mál. Þar sem böm jafn-
vel undir 12 ára aldri komi á hjólum
sínum í skólann ljóslausum og illa
búnum. Því miður er það of algengt
að bæði böm og fullorðnir séu úti
MI Lóninu á Loftleiðum
verður framreitt glæsilegt
jólahlaðborð á aðventunni,
frá 27. nóvember -
22. desember.
I A ffl K Matreiðslumeistarar
B_I I /■ JlB hótelsins sjá til þess að
/ ■ 11 hlaðborðið svigni undan
■ ■ 111 If ljúffengum réttum -
w^ /"V w^ wv bæði í hádeginu og á
■ ■■■■■■ kvöldin; hvítlauksrist-
#B aður smáhumar, síld,
■ ■■■■■ ■■ hunangsreyktur lax,
ÆLW vr Mll/ Svartaskógar paté,
í HÍDEGIM 1.395 KR. Á MAM grísasteik, reyksteikt
ÁKVÖLDIN 1.980 KR.ÍMA1 lambalæri, hreindýra-
buff, ris á l'amande, kanelkrydduð epli,
íslenskir ostar og ótal margt fleira.
Allir jólahlaðborðsgestir eru sjálfkrafa þátt-
takendur í glæsilegu ferðahappdrætti. Dregið
verður 23. desember um flugfar fyrir tvo með
Flugleiðum til London. Það fer vel um þig í
Lóninu og starfsfólk okkar leggur sig fram um
að gera þér borðhaldið sem ánægjulegast.
Borðapantanir í síma 22321.
FLUGLEIDIR
Þegar jólin líggja í loftinu
í umferðinni á ljóslausum hjólum í
myrkri og slæmu skyggni. Slíkur
ferðamáti er fyrir það fyrsta stór-.
hættulegur og þar fyrir utan
stranglega bannaður. Það vill hins-
vegar nokkuð oft gleymast að reið-
hjólin eru ökutæki. Þegar ferðast
er á þeim úti í umferðinni þá gilda
sömu reglur með þau og önnur far-
artæki, t.d. bíla og bifhjól, að sé
ekið um í myrkri þá verða menn
að hafa tilskilinn öryggisbúnað. Hér
er á ferðinni mál sem oft og tíðum
hefur reynst erfítt að stemma stigu
við. Með góðri samvinnu og skiln-
ingi lögreglu, skólafólks og ekki
hvað síst foreldrum mætti vinna
bug á þessari meinsemd í íslenskri
„umferðarmenningu". Ef fyrr-
greindir aðilar tækju sameiginlega
á þessu verkefni, sem er mjög verð-
ugt, þá mætti mjög trúlega koma
í veg fyrir mörg umferðarslys. Það
hlýtur alltaf að verða takmark okk-
ar allra að fækka slíkum voða at-
burðum sem dynja á okkur alla
daga.
Foreldrar þurfa að fylgjast vel
ITALSKIR
GÓLFLAMPAR
— m mw
m/halogenperu og Ijósdeyfi.
Verðfrákr. 1 2.900.
2 Opið um helgina
1 laugardag kl. 10-16,
sunnudag kl. 13-17.
RAFMAGNi^
SKIPHOLTI 31, SÍMI 680038.
Valgarður Valgarðsson
með reiðhjólum barna sinna, sjá til
þess að þau séu í löglegu ástandi,
brýna fyrir þeim aðgæslu í umferð-
inni og góða umhirðu. Þegar nýtt
reiðhjól er keypt er mikilvægt að
kaupa hjól sem hentar hveijum og
einum. Þá verður að taka tillit til
aldurs og þroska barnsins þegar
stærð hjólsins og gírafyöldi er
ákveðinn. Það er algengt að 9-10
ára böm séu á 10 og allt upp í 21
gíra hjólum. Þau koma þessum hjól-
3M
Öryggisfilma
um á miklu meiri ferð en þau ráða
stundum við, og hættan þvi augljós.
Samkvæmt skýrslum lækna á
Borgarspítalanum komu 394 ein-
staklingar á slysadeild spítalans
1989, sem meiðst höfðu á reiðhjóli.
Af þeim vom 85% innan 14 ára
aldurs, flest í aldurshópnum 5-9 ára
eða 176, 114 í aldurshópnum 10-14
ára og 41 á milli 0 og 4 ára. í flest-
um tilfellum var um minniháttar
meiðsli að ræða, en þó vom nokkr-
ir sem hlutu slæm meiðsl, t.d. alvar-
lega höfuðáverka og breinbrot af
ýmsu tagi. Verstu slysin urðu er
reiðhjólamenn lentu í árekstri við
bifreiðar. Það hefur sýnt sig og
sannað að notkun reiðhjólahjálma
hefur dregið úr alvarlegum óhöpp-
um og ljóst að allur slíkur öryggis-
búnaður er af hinu góða og það sem
koma skal.
Eitt af því sem nauðsynlega
þyrfti að fara að huga að og það í
alvöru em byggingar reiðhjóla-
brauta, líkt og þekkist víða erlend-
is. Með tilkomu slíkra brauta myndi
öryggi reiðhjólafólks aukast til
muna. Og sé okkur almennt annt
um líf og limi bama okkar og þeirra
sem stunda hjólreiðar þá ættu slík-
ar brautir að vera jafn sjálfsagðar
og önnur gatnagerð sem fram-
kvæmd er hér á landi. Reiðhjól em
ágætir fararskjótar og heilsusam-
legir, en eflaust fleiri mundu njóta
ef aðstæður væri betri. Hlúum vel
að því sem skiptir okkur öll mestu
máli, mannslífunum. Skref í þá átt
væri að sameinast öll í því jákvæða
verkefni að fara gætilega í umferð-
inni, sýna ávallt ýtmstu varúð og
nærgætni með hvaða hætti sem við
ferðumst. Við megum aldrei sofna
á verðinum.
Höfundur hefur umsjón með allri
umferðarfræðslu í Hafnarfirði,
Garðabæ og Bessastaðahreppi.
JOLATLBOÐ
Husqvarna
Huskylock
Loksaumavélin (over lock)
Gerð 360 D
Verð stgr.
kr. 33.820.-
Avöujsteinn>,
Faxafen 14, Sími 679505
UmboSsmenn um allt land
I
i
8
L.
►
>
|