Morgunblaðið - 03.12.1992, Page 24
\
g - seet aaaMaaaa .8 huoauutmmn aiQAiaviuoaoM
24 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1992
Sjúkraliðar héldu aðgerðum sínum áfram í gær
Gefumst ekki upp
- segir Ragna Ágústsdóttir sjúkraliði
MIKILL baráttuhugnr er meðal sjúkraliða í þeim aðgerðum sem
þeir standa nú fyrir til að knýja á um samninga. „Við munum
ekki gefest upp fyrr en búið er að semja við okkur,“ segir Ragna
Ágústsdóttir sjúkraliði er Morgunblaðið ræddi við hana og þær
Júlíönnu Þóroddsdóttur og Elínborgu Jónmundsdóttur á skrifstof-
um BSRB í gærdag skömmu áður en sjúkraliðar gengu þaðan fylktu
liði niður í Ráðhús Reykjavíkur og síðan á þingpalla Alþingis. í
ráðhúsinu ávörpuðu sjúkraliðarnir Markús Örn Antonsson borgar-
stjóra og Magnús L. Sveinsson forseta borgarstjórnar.
Þær stöllur voru sammála um
að þær væru búnar að fá nóg af
því sem þær sögðu vera „endalaus
svik af hálfu ríkisvaldsins" í samn-
ingaviðræðunum við þær undan-
fama 15 mánuði. „Tekjur okkar
eru fyrir neðan allar hellur,“ segir
Elínborg og nefnir sem dæmi að
hún eigi að baki 20 ára starfsferil
sem sjúkraliði, og sémám, og fái
Erfiðleikar í heimahjúkrun
Eng’in minnihátt-
ar þjónusta veitt
- segir forsljóri heilsugæslunnar í Reykjavík
AÐGERÐIR sjúkraliða hafa skapað erfiðleika í heimahjúkrun hjá
heilsuverndarstöð Reykjavíkur. Að sögn Ingimars Sigurðssonar
forsljóra heilsugæslunnar í Reykjavík er öll minniháttar þjónusta
ekki veitt svo sem böð, eftirlit og minniháttar Aðeins því bráðnauð-
synlegasta er sinnt. „Við rekum þessa starfsemi okkar nú frá degi
til dags og höfum kallað út aukafólk,“ segir Ingimar. „Við ráðum
við ástandið eins og er en af aðgerðir standa fram að eða yfir
næstu helgi lendum við í vandræðum."
nú ríflega 60 þúsund krónur í
mánaðarkaup. Það sé með naum-
indum að henni takist að láta enda
ná saman á því kaupi, en hún er
einstæð móðir.
Aðspurðar um hvernig þær
bregðist við fréttum um erfiðleika
sjúklinga á spítölum í framhaldi
af aðgerðum þeirra segir Júlíanna
að vissulega hafi verið erfitt að
þurfa að grípa til aðgerða sem
bitna jafn harkalega á sjúklingum.
Og Ragna bætir við: „Okkur þykir
sárt að þurfa að gera þetta vegna
sjúklinga okkar en það er búið að
nota sjúklingana sem svipu á okk-
ur í þessum kjaraviðræðum nú og
við áttum ekki annara kosta völ.“
Allar voru þær sammála um að
ummæli fjármálaráðherra um að
þær yrðu hýrudregnar vegna að-
gerða sinna hefðu þjappað þeim
saman í baráttunni. „Ætli fjár-
málaráðherra hafi hugmynd um
hvað kjarabarátta er?“ segir Júl-
íanna. Þær Elínborg og Ragna
segja að samstaðan í hópnum sé
ekki hvað síst jafn góð og raun
beri vitni sökum þess að sjúkralið-
um hafi stöðugt verið fækkað á
spítulum á undanförnum árum og
segja má að auk kjarabaráttu sé
þessi stétt einnig að beijast fyrir
lífí sínu.
Morgunblaðið/Kristinn
Ragna Ágústsdóttir, Júlíanna Þóroddsdóttir og Elínborg Jón-
mundsdóttir sjúkraliðar segja að þær muni ekki gefast upp.
Morgunblaðið/Jón Stefánsson
Nærri 300 sjúkraliðar gengu niður Laugaveg í gærdag með kröfu-
spjöld.
Sjálfboðaliðar bjóða
aðstoð en lítið hægt
að nýta hana ennþá
- segir hjúkrunarforstj óri Borgarspítalans
NOKKUÐ hefur verið um að aðstandendur sjúklinga og sjálfboða-
liðar hafi boðið spítulum aðstoð sína vegna aðgerða sjúkraliða.
Sigríður Snæbjörnsdóttir þjúkrunarforstjóri Borgarspítaians segir
að lítið sé hægt að nýta sér starfskrafta þessa fólks nema ef vera
skyldi aðstandenda sjúklinga á öldrunar- og langlegudeildum.
„Starfsemin hjá okkur hefur gengið betur en við þorðum að vona
og segja má að ástandið á spítalnum sé í jafnvægi,“ segir Sigríð-
ur. Rakel Valdimarsdóttir hjúkrunarforstjóri Landakots segir að
ástandið þar sé í lagi ennþá en haldi aðgerðirnar áfram í dag mun
spítalinn hætta að kalla inn sjúklinga. Bergdís Krisljánsdóttir hjúkr-
unarframkvæmdastjóri á Landspítalanum segir að starfsemin þar
hafi gengið ágætlega miðað við aðstæður.
Samkvæmt upplýsingum frá
Ingimar koma þessar aðgerðir
sjúkraliða ekki eins illa við heima-
hjúkrun heilsugæslustöðvanna þar
sem þar eru fáir sjúkraliðar starf-
andi. Á heilsuvemdarstöðinni hins-
vegar eru ríflega 14 stöðugildi sem
sjúkraliðar manna og nema þau
um helming þeirra stöðugilda sem
heimahjúkmnin telur. „Það er því
ljóst að aðgerðir sjúkraliða hafa í
för með sér töluverða röskun fyrir
okkur,“ segir Ingimar.
ATLANTSFLUG hefur fengið
staðfestingu frá þeim erlendu
aðilum sem eiga aðra Boeing-
Með stol-
in skíðin
í geymslu
SKÍÐUM var stolið frá
manni í Bláfjöllum á þriðju-
dagskvöld. Hann sá þau hins
vegar í bifreið á svæðinu og
kallaði á Iögreglu, sem end-
urheimti skíðin.
Þegar lögreglan spurði öku-
mann bifreiðarinnar hverju
það sætti, að hann væri með
stolin skíði í bifreiðinni svaraði
hann því til, að kunningi hans
hefði stolið þeim, en hann
væri aðeins að geyma þau.
Lögreglunni þótti sú skýring
ósennileg, þar sem enginn sást
kunninginn. Maðurinn var
færður á lögreglustöðina og
þar voru númerin klippt af bif-
reiðinni, enda var hún öll úr
lagi gengin.
Ingimar segir að hjúkmnar-
fræðingar hafi tekið á sig hið
aukna álag sem fylgt hefur vinnu-
stöðvun sjúkraliða. „Þetta hefur
gengið þar sem fólk hefur sýnt
þessu ástandi skilning,“ segir Ingi-
mar. „Og það er í lagi að bíða með
þessa minniháttar þjónustu ein-
hveija daga en ekki lengur en fram
að helgi. Verði ekki komin lausn
í þessari deilu fyrir helgina þurfum
við að endurskipuleggja okkar
starf á ný.“
vélina sem Atlantsflug hefur
haft á Ieigu, að þeir séu tilbúnir
að leggja fram 500 þúsund
Bandaríkjadali, liðlega 30 miHj-
ónir ÍSK, sem hlutafé í félagið.
Halldór Sigurðsson sljóraarfor-
maður Atlantsflugs segir að í
dag verði fullreynt hvort 25-30
innlendir aðilar, sem félagið var
í sambandi við sl. sumar vegna
fyrirhugaðrar hlutafjáraukn-
ingar, séu enn tilbúnir að leggja
fram fé, en á sínum tima hefði
verið rætt um 25-30 milljónir kr.
Halldór sagði að verið væri að
skoða markaðsstöðu félagsins og
hvort innlendi hluthafahópurinn
hefði áhuga á því að koma inn í
félagið. Boðað hefur verið til fund-
ar með þessum aðilum í dag og
sagði Halldór að það réðist af
framhaldi þess fundar hvort farið
yrði út í almenna hlutafjársöfnun
innanlands. Ef áhugi væri ennþá
fyrir hendi yrði farið af stað með
hlutafjársöfnun á opnum markaði.
Leiði þessar forkannanir hins veg-
ar í ljós neikvæða niðurstöðu verð-
ur fyrirtækinu lokað.
„Þótt við teljum okkur vera að
fara inn í mjög hagstætt umhverfi
fyrir flugrekanda getum við ekki
staðfest við neinn í dag að við
höfum sömu markaðsstöðu og
síðastliðið sumar,“ sagði Halldór.
Sigríður Snæbjörnsdóttir segir
að spítalanum hafi tekist vel að
ráða fram úr þeim vanda sem við
er að glíma en þá beri að geta
þess sérstaklega að starfsfólk hafí
lagt sig sérstaklega vel fram um
að láta hlutina ganga upp. „Starf-
semin á flestum deildum er í viðun-
andi horfí ef frá er talin skurðdeild-
in sem rekin hefur verið á hálfum
dampi í gær og í dag,“ segir Sigríð-
ur. „Bráðaþjónustan hefur gengið
Mælistöð til að líta eftir loft-
mengun var keypt fyrir þremur
árum og tekin í notkun sumarið
1990. Síðan þá hefur verið fylgst
með magni lofttegundanna nitur-
mónoxíðs, niturdíoxíðs og kol-
mónoxíðs auk svifryks. Tæki til að
mæla brennisteinsdíoxíð bættist við
fyrir rúmu ári, en öll þessi efni
nema svifryk myndast í útblæstri
bifreiða og eru talin helsta orsök
loftmengunar hér. Mælistöðin skrá-
ir líka veðurfarsupplýsingar til að
vinna úr öðrum gögnum, sem skráð
mjög vel miðað við aðstæður og á
heildina litið er ekki annað hægt
en að vera ánægð með árangur-
inn.“
Aðspurð um framboð sjálfboða-
liða til starfa segir Sigríður að
aðstandendur hafí haft samband
og þar að auki hafí tvær manneskj-
ur sem ekki eiga ættingja á spítal-
anum haft samband og boðið lið-
sinni sitt. „Það er mjög ánægjulegt
að fólk skuli hugsa svona hlýtt til
eru af tölvu allan sólarhringinn.
Mælistöðin er til skiptis við Safa-
mýri og á ýmsum stöðum öðrum
þar sem mengun virðist meiri. Loft
í Safamýri er greint þijá mánuði í
senn, það hentar vel þar sem stað-
urinn er miðsvæðis í borginni og á
opnu svæði fjarri staðbundnum
uppsprettum mengunarefna. En
inn á milli er stöðin færð annað
og skilin þar eftir einn mánuð, í
Fossvogsdal, að Miklatorgi, Hofs-
vallagötu, Kringlunni og Hlemmi.
Lítil mengun mældist árið 1991,
okkar," segir Sigríður.
Rakel Valdimarsdóttir segir að
leysist deilan ekki í dag, fímmtu-
dag, séu allar líkur á að Landakot
þurfí að draga töluvert úr starf-
semi sinni og hætta að kalla inn
sjúklinga. „Haldi aðgerðir sjúkral-
iða áfram lítur ekki vel út með
framhaldið og verða hjúkrunar-
deildar þá verst settar,“ segir Rak-
el.
Bergdís Kristjánsdóttir segir að
þótt starfsemin hafí gengið ágæt-
lega megi nefna að spítalinn hafí
hætt innköllunum sjúklinga fyrir
utan þá sem eru í forgangsröð og
dregið hafí úr starfsemi deilda eins
og aðgerðum á skurðstofu. Síðan
sé spurning hvemig helgin komi
út en þá er Landspítalinn með
slysavakt. „Ástandið verður erfítt
um helgina ef ekki verður komin
lausn í deilunni," segir Bergdís.
„En þetta hefur gengið ágætlega
hjá okkur hingað til með mikilli
vinnu starfsfólks."
best var loftið um sumarið en verst
þegar froststillur vom um veturinn
og vindur feykti ekki mengun um.
Katrín Fjeldsted formaður heil-
brigðisnefndar segir ástand hafa
reynst svipað í ár. í skýrslu sem
Lúðvík E. Gústafsson færði segir
að ekki sé þó hægt að fullyrða að
loftmengun sé hvergi vandamál í
Reykjavík þrátt fyrir þessar fyrstu
niðurstöður. Eftir eigi að meta loft-
mengun víða í borginni og athuga
magn fleiri efna, ósons til dæmis.
En mælingarnar bendi til að á
sumrin sé andrúmsloft borgarinnar
gott ef frá sé talin iðnaðarmengun
frá Evrópu ogjarðvegsagnir í mold-
roki.
Framtíð Atlantsfiugs ræðst í dag
Rætt við hugsanlega
innlenda hluthafa
Lítil loftmengun í Reykjavík
ANDRÚMSLOFT í Reykjavík virðist heldur gott, loftmengun hefur
ekki reynst mikil þá mánuði sem mælingar hafa staðið. Þetta kem-
ur fram í skýrslu heilbrigðiseftirlits yfir mælingaraar sem heil-
brigðisnefnd Reykjavíkurborgar hefur staðið að.