Morgunblaðið - 03.12.1992, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1992 33
Morgunblaðið/Rúnar l>ór
Snjókoma frá morgni til kvölds
Snjó kyngdi niður frá morgni til kvölds á Akureyri í gær og höfðu myndast dágóðir skaflar víða. Ökumenn
þurftu að skafa snjó af bílum sínum, en umferðin gekk nokkurn veginn áfallalaust fyrir sig. Eitthvað varð
um smáárekstra í bænum og skammt norðan bæjarins, á móts við bæinn Mið-Samtún, skullu tveir bílar saman
og var einn maður fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar, en hann kvartaði um eymsl í btjóstkassa. Þá fengust
þær upplýsingar einnig hjá lögreglu að maður hefði dottið í hálkunni og meiðst í baki og var hann einnig fluttur
á sjúkrahús eftir fallið.
Mikið um gjaldþrotabeiðnir síðustu daga
A
HJA hf. gjaldþrota og beð-
ið um gjaldþrot Uppans
SÍÐUSTU tvo daga hafa verið
kveðnir upp hjá Héraðsdómi
Norðurlands eystra gjaidþrota-
úrskurðir yfir fimm einstakling-
um, þá hefur eitt fyrirtæki verið
úrskurðað gjaldþrota og fyrir
liggur beiðni um að annað verði
tekið til gjaldþrotameðferðar.
Lífeyrissjóðurinn Sameining á
Akureyri hefur óskað eftir því að
Uppinn hf. verði tekinn til gjald-
þrotaskipta og sagði Ásgeir Pétur
Ásgeirsson héraðsdómari að úr-
skurður yrði væntánlega kveðinn
upp fyrir helgi. Sameining fór fram
á að Uppinn yrði tekinn til gjald-
þrotaskipta í kjölfar árangurslausrar
aðfarar í síðustu viku, en félagið
skuldar starfsmannagjöld að upp-
hæð um 2,7 milljónir króna.
Uppinn hf. rak skemmtistaðinn
1929, Bíóbarinn og Uppann og voru
staðirnir innsiglaðir í síðustu viku.
Innsigli var rofið eftir að fram voru
lögð gögn um að stjómarformaður
félagsins hafði keypt rekstur
skemmtistaðanna og stofnað um
reksturinn nýtt félag, 1929 hf.
Fyrirtækið HJÁ hf. var úrskurðað
gjaldþrota á þriðjudag, en það rak
byggingavöruverslunina Bynor við
Glerárgötu auk trésmiðju og vom
starfsmenn þess átta. Bjöm Jósef
Amviðarson hefur verið skipaður
skiptastjóri í búinu.
Ásgeir Pétur Ásgeirsson héraðs-
dómari sagði að auk beiðna um að
þessi tvö fyrirtæki yrðu úrskurðuð
gjaldþrota hefði á síðustu tveimur
dögum verið óskað eftir að fimm
einstaklingar yrðu úrskurðaðir
gjaldþrota. „Það var nokkur lægð í
þessu eftir að nýju lögin tóku gildi
1. júlí síðastliðinn, en á síðustu
tveimur vikum má segja að gjald-
þrotabeiðnum hafí rignt hér inn,“
sagði Ásgeir Pétur.
Morgunblaðið/Hólmfriður
Skipverjar á Þorleifi EA á línuveiðum suðvestur af Grímsey.
Grímsey
Góð veiði hjá línubátum
Grímsey.
LÍNUBÁTAR hafa fiskað ágætlega að undanfðrnu við Grímsey,
en aftur á móti hafa aflabrögð verið afar léleg l\já færabátum.
Einn bátur héðan er á snurvoð og hefur fiskað frekar lítið upp á
síðkastið.
Skipveijar á Þörleifí EA, sem
er stærsti báturinn hér í Grímsey,
tæp 50 tonn að stærð, hafa verið
á línu siðustu vikur og aflað ágæt-
lega. Hafa þeir fengið hátt í 50
tonn frá því þeir skiptu yfír á lín-
una. Gylfí Gunnarsson er skipstjóri
á Þorleifí, en með honum róa þeir
Sigurður Rúnar Sigfússon og Al-
freð Garðarsson.
Veiðibann hófst hjá krókaleyfís-
bátunum á þriðjudag, 1. desember,
og verða þeir frá veiðum til loka
janúar, en veiðtímabilið bytjar ekki
aftur hjá þeim fyrr en 1. febrúar
næstkomandi. Kvótabátamir hafa
heimild til að tvöfalda afla sinn á
þessu tímabili, fiski menn 10 tonn
á tímabilinu er það skráð sem þeir
hafi veitt 5 tonn. Búast má við að
sjómenn notfæri sér þetta og rói á
meðan gefur.
Sjómenn á krókaleyfisbátunum
sem nú eru. í veiðibanni fá flestir
vinnu við að stokka upp línu, en
aðrir taka jólaleyfíð í fyrra fallinu
og ætla sér eflaust að sinna eigin-
konum sínum af alúð og aðstoða
við jólaundirbúning á heimilinu.
HSH
(MsJÍ Hótel
MHarpa
Nýr gistivalkostur
áAkureyri
Auk hagstæðs gisti verðs, njóta
gestir okkar afsláttar á veitingahús-
unum Bautanum og Smiðjunni.
Fastagestum, fyrirtækjum og hóp-
um er veittur sérafsláttur.
Hótel Harpa
Góð gisting á hóflegu verði
í hjarta bæjarins.
Sími 96-11400
Ath. að Hótel Harpa erekki i simaskránni.
Talkennarar og talmeinafræðingar
Endurhæfing í Krist-
nesi verði ekki aflögð
FÉLAG talkennara og talmeinafræðinga hefur sent frá sér álykt-
un þar sem fyrirhuguðum niðurskurði til Kristnesspítala er mót-
mælt.
„Endurhæfingadeild Kristnes-
spítala er sú eina sinnar tegundar
sem starfar á landsbyggðinni. Fé-
lagið telur það óheillavænlega þró-
un ef leggja á hana niður, enda
enginn sparnaður að senda sjúkl-
inga annað. Það hefur ómetanlegt
gildi fyrir árangur endurhæfingar
að sjúklingur fái að dveljast sem
næst fjölskyldu sinni og atvinnu.
Deildin hefur sinnt brýnum þörfum
fatlaðra einstaklinga með náinni
samvinnu fagfólks, þar sem tal-
meinafræðingur er mikilvægur
fyrir meðferð margra sjúklinga.
Því leggur félagið áherslu á að
fundin verði leið til að vinna að*
frekari uppbyggingu endurhæf-
ingadeildarinnar.
Einnig vill félagið benda á að
verði öldrunardeildin á Krist-
nesspítala lögð niður skapast neyð-
arástand í öldrunarmálum á Akur-
eyri og nágrenni," segir í ályktun
Félags talkennara og talmeina-
fræðinga.
Þorvaldur Gylfason
ræðir um efnahagsmál
FÉLAG viðskipta- og hagfræðinga á Norðurlandi, Rannsóknastofn-'**
un Háskólans og Kaupþing Norðurlands hf. hafa ákveðið að efna
til nokkurra funda um efnahags- og atvinnumál. Fyrsti fundurinn
verður á morgun, föstudaginn 4. desember, þar sem dr. Þorvaldur
Gylfason ræðir um horfur í efnahagsmálum Islendinga. Fundurinn
hefst kl. 12.10.
Þorvaldur mun á fundinum ræða
um stöðu efnahagsmála, áhrif síð-
ustu efnahagsráðstafana ríkis-
stjórnarinnar og hver stefnir. Einn-
ig mun hann bera saman stöðu
okkar íslendinga í samanburði við
stöðu Færeyinga og ræða þær leið-
ir sem við eigum til þess að bæta
efnahagsástandið.
Þorvaldur hefur víðtæka þekk-
ingu og reynslu á sviði þjóðhag-
fræði og hefur ákveðnar skoðanir
um stjórnun efnahagsmála. Hann
hefur haldið fyrirlestra og skrifað
fjölda greina um það efni í blöð
og tímarit, innlend og erlend.
Þorvaldur lauk B.A. Econ. prófi
í hagfræði frá Háskólanum í
Manchester í Englandi árið 1973
og varði doktorsritgerð í þjóðhag-
fræði þrem árum síðar við Prince-
ton University í Bandaríkjunum.
Hann hefur frá árinu 1983 gegnt
stöðu prófessors við þjóðhagfræði
í Háskóla íslands.
Fundurinn verður haldinn á
Hótel KEA og hefst kl. 12.10, og
er hann öllum opinn sem taka vilja
þátt í umræðum um efnahagsmál.
Þátttöku ber að tilkynna til Kaup-
þings Norðurlands á Akureyri.
(Fréttatilkynning)
Nýdönsk á
Akureyri
HLJ ÓMS VEITIN Nýdönsk
leikur fyrir gesti Sjallans á
Akureyri um þessa helgi,
dagana 4. og 5. desember.
Nýja hljómplata þeirra,
Himnasending, hefur selst vel
og munu Nýdanskir að sjálf-
sögðu leika lög af henni.
(Fréttatílkynning)
Útvegsmenn Horðurlandi
Utvegsmannafélag Norðurlands boóar
til fundar á Hótel KEA sunnudaginn
6. des. nk. kl. 16.00.
Sjávarútvegsráðherra,
Þorsteinn Pálsson, kemur á fundinn.
Stjórnin.
Jólafundur
Norðurlandsdeildir Tæknifræðingafélags Islands
og Verkfræðingafélags íslands halda
sameiginlegan jólafund föstudaginn 4. des.
á Hótel Hörpu, Akureyri, kl. 20.00.
Jólahlaðborg (julefrokost).
Ræóumenn.
1. Framkvæmdastjóri Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar.
2. Formaður Tæknifræðingafélags íslands.
Þátttaka tilkynnist í símum:
96-11761, 96-24411, Eiríkur.
96-27375, 96-27072, Kristinn.
96-25763, 96-22543, Þorsteinn/Pétur.