Morgunblaðið - 03.12.1992, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1992
Brids
Umsjón Arnór G. Ragnarsson
Bridsdeild
Barðstrendingafélagsins
Staðan í hraðsveitarkeppni deildar-
innar þegar f|ögur kvöld eru búin er
eftirfarandi:
SveitSigurðarísakssonar 2337
SveitÞórarinsÁmasonar 2276
SveitKristinsÓskarssonar 2261
SveitPétursSigurðssonar 2236
SveitÁmaMagnússonar 2172
Bestu skor á fjórða kvöldi:
SveitPétursSigurðssonar 609
SveitKristinsOskarssonar 592
SveitÞórarinsÁmasonar 577
SveitÁmaMagnússonar 566
Meðaiskor 540 stig.
Eitt kvöld er eftir af þessari keppni.
Morgunblaðið/Olafur Bemðdusson
Signrsveitin með fulltrúa Búnaðarbankans sem afhenti verðlaunin.
Norðurlandsmót vestra í
sveitakeppni
Skagaströnd.
NORÐURLANDSMÓT vestra í
sveitakeppni í brids fór fram á
Skagaströnd helgina 20.-21. nóv-
ember. Atta sveitir mættu til leiks
og urðu úrslitin þau að sveit Spari-
sjóðs Siglufjarðar sigraði með 156
stigum.
Sigursveitina skipa bræðurnir
Anton, Ásgrímur, Bogi og Jón Sig-
urbjömssynir ásamt tveimur sonum
Jóns, þeim Ólafí og Steinari. Hafa
þeir Sigurbjömssynir verið mjög
sigursælir á bridsmótum á undan-
fömum ámm og em því orðnir vel
þekktir í bridsinum á íslandi. Ólafur
o g Steinar em í unglingalandsliðinu
í brids þannig að þeir eiga að öllum
líkindum eftir að láta mikið að sér
kveða í framtíðinni.
í öðra sæti á mótinu með 129
stig var sveit Jóns Arnar Berndsen
frá Sauðárkróki og í þriðja sæti kom
sveit íslandsbanka á Siglufirði með
122 stig. Þessar þrjár efstu sveitir
öðlast með sigrinum rétt til að
keppa á íslandsmóti í sveitakeppni
sem haldið verður síðar í vetur í
Reykjavík.
I stuttu spjalli við fréttaritara
sagði Ásgrímur Sigurbjömsson að
sigurinn væri sennilega því að
þakka hve duglegir þeir væru að
sækja mót hingað og þangað um
landið. „Samæfingin og úthaldið
skipta gríðarlega miklu máli í svo
ströngu móti sem þessu þegar spil-
að er hvíldarlaust í 12-14 tíma á
dag. Svo lærir maður auðvitað allt-
af eitthvað nýtt þegar spilað er á
sterkum mótum og þá er um að
gera að nýta sér það.“
Mótsstjóri á mótinu var Björk
Jónsdóttir en hún er kona Jóns Sig-
urbjörnssonar og móðir þeirra Ólafs
og Steinars. Búnaðarbankinn á
Blönduósi og Skagaströnd gaf verð-
launin sem veitt vom á mótinu.
- ÓB.
Hólaprent og komm-
únistablöð á bóka-
uppboði Klausturhóla
KLAUSTURHÓLAR, Iistmunauppboð, efna til bókauppboðs
nk. laugardag kl. 14. Þar verða seldir margir flokkar bóka
og rita: Orðabækur, ljóð, æviminningar, ferða- og landfræði-
rit, bókmenntir og bókfræði, sagnfræði, þjóðsögur, æviskrár
og ættfræði, lögfræðirit, tru
taútgáfur, blöð og tímarit og
Það er mikið val gamalla og
fágætra bóka á þessu jólaupp-
boði Klausturhóla: íslensk sagna-
blöð 1-10 árg., undanfari Skírn-
is, einnig litli Skírnir fyrir árin
1827-1854, tvennar rímur
prentaðar í Hrappsey á Breiða-
firði árin 1777-1779, Landfræði-
saga íslands, 1.-4. bindi, eftir
Þorvald Thoroddsen, Sú gamla
Víjsna-book, pr. á Hólum árið
1748, Eftirmæli 18du aldar frá
hendi Magnúsar dómstjóra
Stephensens, pr. á Leirá árið
1806, bók Arngríms lærða: Spec-
imen Islandiæ historicum...
Amsterdam 1643, skrautbundið
eintak, margar gamlar lög-
fræðibækur, guðsorðabækur frá
ít, gamlar og nýjar fornri-
ýmislegt fleira.
Hólum og Viðey, Nookrir
margfoodir söguþættir, Hólum
1756, margvíslegar ætt-
fræðibækur, gamalt blað, Verka-
lýðsblaðið, sem Kommúnista-
flokkur íslands, deild úr Alþjóða-
sambandi kommúnista, gaf út
1930-1936. Og að lokum má
nefna Rit þess Konunglega ís-
lenska lærdómslistafélags,
1.-15. árgangur, Kaupmanna-
höfn 1780-1794.
Bækur þessar og rit önnur
verða til sýnis á Laugavegi 25,
föstudaginn 4. desember kl.
14-18, en uppboðið hefst á sama
stað kl. 14 á laugardag.
(Fréttatilkynning)
J
RAÐA UGL YSINGAR
Hársnyrtifólk
Hár gallerí óskar eftir duglegu, hressu og
áhugasömu fólki til starfa.
Upplýsingar í síma 689679.
Laus störf hjá
Fiskistofu
Frá 1. janúar 1993 mun Fiskistofa annast
framkvæmd laga um meðferð sjávarafurða
og eftirlit með framleiðslu þeirra. í því felst
útgáfa vinnsluleyfa til þeirra sem meðhöndla
sjávarafurðir, löggilding sérstakra skoðunar-
stofa og eftirlit með starfsemi þeirra. Til að
vinna að þessum verkefnum óskar Fiskistofa
að ráða dugmikið fólk til starfa á gæðastjórn-
unarsviði. Um er að ræða:
Forstöðumann gæðastjórnunarsviðs, deild-
arstjóra og sérfræðing á sviði eftirlits með
matvælum, hreinlæti og búnaði.
Laun skv. launakjörum starfsmanna ríkisins.
Umsóknir sendist til Fiskistofu, Ingólfsstræti
1, 150 Reykjavík, fyrir 10. desember 1992.
Frekari upplýsingar veittar í síma 697900
milli kl. 16.00 og 17.00.
Fiskistofustjóri.
TIL SÖLU
Til sölu
málverkið Selsvör eftir Finn Jónsson.
Stærð 1,15 m x 0,8 m.
Upplýsingar í síma 96-22505.
Uppboð
Hjá dýraeftirlitsmanni Mosfellsbæjar er í
óskilum bleikálótt ómörkuð hryssa, talin 5
vetra. Verður hryssan boðin upp og seld á
opinberu uppboði sem haldið verður í Leir-
vogstungu, Mosfellsbæ, laugardaginn 5.
desember kl. 11.00., verði hennar ekki vitjað
fyrir þann tíma.
Upplýsingar gefur Daði Runólfsson í síma
666688 og bílasíma 002-2022.
Auglýsing
um innflutning á landbúnaðarafurðum
Að gefnu tilefni vill landbúnaðarráðuneytið
taka fram að innflutningur landbúnaðaraf-
urða takmarkast af lögum nr. 46/1985 um
framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum.
Innflutningur landbúnaðarvara í tollskrár-
númerum 1-24, sem lotið hefur takmörkun-
um skv. auglýsingu nr. 313/1990 um innflutn-
ings- og gjaldeyrisleyfi er háður leyfi stjórn-
valda og því óheimill nema að fyrir liggi heim-
ild landbúnaðarráðuneytisins.
Landbúnaðarráðuneytið,
1. desember 1992.
Greiðsluáskorun
Bæjarsjóður Eskifjarðar skorar hér með á
gjaldendur sem hafa ekki staðið skil á eftir-
töldum gjöldum, að greiða þau nú þegar og
ekki síðar en innan 15 daga frá dagsetningu
áskorunar þessarar. Gjöldin eru: Fasteigna-
skattur, vatnsskattur, holræsagjald og lóðar-
leiga ársins 1992 auk fyrri ára.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara
fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna að
liðnum 15 dögum frá dagsetningu áskorunar
þessarar.
Eskifirði, 3. desember 1992,
bæjarstjórinn á Eskifirði.
FUNDIR - MANNFAGNAÐUR
Atvinnuleysi og innri maður!
Opinn fundur
verður haldinn í safnaðarheimili Fríkirkjunn-
ar á Laufásvegi 13, 1. hæð, laugardaginn
5. desember kl. 13.30.
Fundarefni:
Áhrif atvinnuleysis á einstaklinga og við-
brögð við þvf.
Frummælendur verða:
Cecil Haraldsson, safnaðarprestur,
Unnur Konráðsdóttir, ritari Landssamtaka
atvinnulausra,
Gunnar Klængur Gunnarsson, félagsráð-
gjafi.
A eftir framsöguerindum verða frjálsar um-
ræður.
Öllum frjáls aðgangur á meðan húsrúm leyf-
ir. Kaffiveitingar.
Fríkirkjan í Reykjavík.
Vesturbær
- 2ja herbergja
2ja herbergja íbúð óskast til leigu í Vesturbæ
Reykjavíkur frá og með áramótum. Skilvísum
greiðslum og reglusemi heitið.
Upplýsingar í síma 77929 eftir kl. 19.00.
SJÁLFSTJEDISFLOKKURINN
F í I. A (', S S T A R F
Árlegt jólateiti
Okkar árlega jólateiti verður haldið laugar-
daginn 5. desember nk. miili kl. 16.00 og
18.00 í Valhöll, kjallara.
Geir H. Haarde þingmaður flytur ávarp.
Hófið er fyrir trúnaðarmenn flokksins og
gesti þeirra.
FÉLAÖSÚF
I.O.O.F. 11 = 17412038’A =
B.K.
I.O.O.F. 5 = 1741238Va= M.A.
St.St. 5992120319 X
Góðtemplarahúsið,
Hafnarfirði
Félagsvist í kvöld, fimmtudaginn
3. desember. Byrjum að spila
kl. 20.30 stundvíslega.
Allir velkomnir.
§Hjálpræðis-
herinn
Ö Kirkjuslræti 2
I kvöld kl. 20.30 almenn sam-
koma. Kaft. Thor Narve Kvist
stjórnar og talar. Velkomin(n)!
Flóamarkaðsbúðin í Garðastræti
2 er opin í dag frá kl. 13-18.
Fataúthlutun verður á Hjálpræð-
ishernum í Kirkjustræti 2 á
þriðjudegi og miðvikudegi 8. og
9. des. milli kl. 10 og 17.
Aðeins þessa tvo daga.
f kvöld kl. 20.30 er almenn sam-
koma í Þríbúðum. Mikill söngur.
Samhjálparvinir gefa vitnisburði.
Ræðumaður Þórir Haraldsson.
Kaffi að lokinni samkomu.
Munið opið jólahús nk. laugar-
dag. Allir velkomnir.
Samhjálp.
\ ,--, / I
KFUM
AD KFUM, Holtavegi
Fundur i kvöld kl. 20.30 ( umsjá
Ný UNGar Guölaugur Gunnars-
son, kristniboði hefur hugleið-
ingu.
Allir karlar velkomnir.
i