Morgunblaðið - 03.12.1992, Page 41
MORGUNBLADIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1992
Fagna þú, sál mín. Allt er eitt i drottni,
eilíft og fagurt, - dauðinn sætur blundur.
Þótt jarðnesk dýrð og vegsemd visni’ og þrotni
veit ég, að geymast handar stærri undur,
þótt stórtré vor, í byljum jarðar brotni,
bíður vor allra’ um síðir Edenslundur.
(JJ. Smári)
Magnús Halldórsson.
Mig langar að minnast með
nokkrum orðum vina minna, Láru
B. Ólafsdóttur og Magnúsar Ólafs-
sonar frá Ketilsstöðum.
Það er táknrænt fyrir það hve
samrýnd þau voru, að ekki liðu
nema fimm dagar frá því að Lára
lést þar til maður hennar Magnús
yfirgaf líka þessa jarðvist, en Lára
lést 19. nóvember og Magnús þann
24. nóvember.
Fyrir ótal mörgum árum hitti ég
Láru fyrst, á heimili frænda hennar
Ólafs Gunnarssonar sálfræðings.
Ætluðum við að spila brids og var
það í fyrsta sinn sem ég spilaði það
spil, en allt gekk vel. Strax varð
ég heilluð af Láru, sem ég í huga
mér ávallt kallaði „hefðarfrúna",
því það var hún sannarlega. Lára
var falleg og tignarleg kona og það
var Magnús líka.
Seinna átti ég því láni að fagna
að kynnast þessum góðu hjónum
betur og var alveg sama, hvað
umræðuefnið var, bókmenntir eða
listir, þau voru heima í öllu.
Þar sem þessi góðu hjón voru,
var fullt af ljósi og kærleika. Það
var ávallt notalegt að heimsækja
þau á Ketilsstöðum og í Leirubakk-
ann eftir að þau flutti til Reykjavík-
ur.
Margt fallegt rifjast upp, faljegar
minningar, um góð hjón, sem ég
mun ávallt geyma.
Lára og Magnús eignuðust fimm
börn, sem ávallt reyndust foreldrum
sínum góð og umhyggjusöm. Þau
eru Ingibjörg, Ólafur Þór, Steinunn
og Katrín, ég sendi þeim ásamt
mökum þeirra, bamabörnum og
bamabamabömum, mínar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Myndina af þessum kæru hjónum
myn ég geyma, það em hjón með
faljegt bros, sem gáfu mér kærleika
og blíðu.
Hjartans þakkir til þeirra.
Hvíli þau í friði.
María Sigurðardóttir.
Ekki get ég sagt að ég hafi þekkt
þau hjón Magnús og Lám vel né
lengi. Margir þekktu þau mun bet-
ur. En samt er það svo skrýtið að
skammtímakynni eins og okkar
mást aldrei úr huganum. Eg kynnt-
ist þeim fyrst á fögmm sumardegi
árið 1978, en þá kom ég fyrst að
Ketilsstöðum, í þeim erindagerðum
að afhenda þeim hjónum nýjan bíl
sem þau höfðu keypt. Heyskapurinn
freistaði mín og bauð ég fram að-
stoð, sem var þegin með þökkum.
Kepptust síðan allir við að ná hey-
inu heim, en í hita leiksins ók ég
dráttarvélinni hálfri inn um hlöðu-
dyrnar, sem vom allhátt frá gólfi.
Þar sat hún föst. Það var með hálf-
um huga að ég gekk til Magnúsar
þar sem hann var úti á túni og
sagði honum skömmustulegur hvað
skeð hefði og beið eftir skömm-
unum. Magnús sýndi engin svip-
brigði, klóraði sér í kollinum, brosti
og sagði síðan hæglátlega: „Við
skulum þá fara og ná vélinni upp
aftur.“ Og það var gert. Þannig kom
Magnús mér fyrir sjónir, hægur,
góðlegur og yfirvegaður bóndi, sem
ekki skipti skapi, jafnvel þó dráttar-
vélin væri úr leik um háannatímann.
Það mun síðan hafa verið í nóv-
ember árið 1981 sem leiðir okkar
Magnúsar og Láru lágu aftur sam-
an. Þá kom ég ásamt syni þeirra
hjóna, Halldóri, að Ketilsstöðum en
við vomm á leið til rjúpna. Við sett-
umst í eldhúsið með þeim hjónum
og ketti sem hringsnerist um hús-
móður sína. Það var hellt upp á
könnuna og innan tíðar var keyrsian
og þreytan gleymd við smurðá
brauðið og kaffí, sem Lára bar á
borð fyrir okkur. Hún útbjó síðan
nesti fyrir okkur, til þess að hafa
með á heiðina. Við Halldór lögðum
síðan af stað og gengum og geng-
um. Ég var á nýjum gönguskóm
og varð fljótlega sárfættur, en hark-
aði af mér og gekk áfram ásamt
Halldóri. Þegar upp á fjall var kom-
ið, ákváðum við að fara í hvor í
sína áttina, en hittast að þrem tím-
um liðnum á hól nokkmm. I millitíð-
inni skall á niðaþoka, svo ekki sást
handa skil. Að lokum fundum við
þó hvor annan með því að skjóta
upp í loft og ganga á hljóðið. Eftir
að hafa snætt nestið frá Lám,
ákváðum við að freista þess að ná
til byggða. Við fórum auðvitað í
vitlausa átt, villtumst og lentum í
hinum verstu hrakningum.
Undirritaður var aðframkominn,
kaldur og með blæðandi fótasár
vegna skónna. Báðir fómm við þó
örþreyttir úr skóm og sokkum,
brettum upp buxnaskálmar og óð-
um nokkrar ár í klakaböndum. Efst
í huga var að leggjast niður og
sofna þegar kvöldaði og frost herti.
En þegar ég var að því kominn að
gefast upp á göngunni, var nóg að
hugsa heim að Ketilsstöðum. Hugs-
unin um að komast þangað, til
Magnúsar og Lám, setjast að kaffi
og brauði í eldhúsinu þeirra hvatti
mig áfram. Sársaukinn og þreytan
glejmidust við þessa tilhugsun. Síð-
ustu kílómetrana notaðist ég við
veiðibyssu mína sem staf, rekinn
áfram af Halldóri og hvattur til
dáða. Er við um miðja nótt náðum
á þjóðveginn, lagðist ég niður og
sofnaði. Halldór hélt áfram eftir
veginum og kom síðar á dráttarvél,
sem hann hafði fengið lánaða á
nægliggjandi bæ og ók mér að
Ketilsstöðum. Ég gleymi því aldrei
hve feginn ég var að sjá þau Magn-
ús og Lára. Þau ásamt Halldóri
hjálpuðu mér inn í bæinn. í eldhús-
inu setti Lára heitt vatn í bala,
klæddi mig úr sokkum og skóm.
Hún nuddaði á mér fæturna og
tókst á óskiljanlegan máta að koma
lífi í mína tilfinningalausu fætur.
Eftir fótameðferðina, kaffí og með-
læti var ég sem nýr maður. Kisa
gekk um gólf, malandi af ánægju
og mér leið stórkostlega vel. Slík
var hlýjan og umönnunin, sem
mætti mér hjá þeim Ketilsstaða-
hjónum, að ég tel að þau hafi jafn-
vel forðað mér frá varanlegu lík-
amstjóni. Bæði voru þau vel heima
um ótrúlegustu hluti og skemmti-
lega viðræðugóð en umfram allt,
uppfull af gestrisni og hlýju, sem
allof lítið er orðið um nú til dags,
en sem íslendingar voru þekktir
fyrir áður.
Ég vil þakka Magnúsi Halldórs-
syni og Lám Björg Olafsdóttur fyr-
ir einstök kynni og óska þeim Guðs
blessunar á nýju tilvemstigi.
Börnum, tengdabörnum, barna-
börnum, bamabarnabömum og öðr-
um ættingjum þeirra votta ég sam-
úð mína við fráfall þessara stórkost-
legu hjóna.
Siggi.
Guð hefir leyst sálu mína
frá þvi að fara ofan í gröf-
ina og líf mitt gleður sig
við ljósið.
(Job. 33:28.)
Amma og afí látin — með viku
millibili. Komin heim í ljóssins ríki
þar sem Guð og kærleikur hans er
allt í tölu. Þau höfðu bæði þurft
að þola margar raunir, en eins og
Job forðum daga höfðu þau aðeins
færst nær Guði við hveija raun.
Tvisvar sinnum misstu þau nánast
allt sitt þegar heimili þeirra brann
til gmnna, lítið tryggt. Þau misstu
heilsuna bæði tvö og amma hafði
fyrir löngu misst sjónina. En þau
mögluðu ekki og voru full af friði,
kærleika og hlýju. Þau vom bæði
lifandi dæmi um það hvemig mann-
lífsraunir geta slípað og fegrað ein-
staklinginn þar til hann verður eins
og gimsteinn eða dýrmæt perla.
Þannig báru þau vitni um að það
sem Guð gefur er æðra öllum mann-
legum skilningi.
Þegar einhver svo nákominn
deyr, kemur sorgin í kjölfarið. Ég
finn glöggt í sálu minni að ég syrgi
afa og ömmu. Af hveiju? „Er ekki
fremur ástæða til að gleðjast þegar
fólk á tíræðisaldri deyr?“ spyr rödd
skynseminnar. En hjartað syrgir.
Það syrgir vegna þess að það hefur
elskað og elsku notið. Það syrgir
og tregar allar þær gleðistundir sem
amma og afi veittu svo ríkulega af.
Þegar dýpra er skyggnst má þó sjá
að í sorginni og tárunum sem
streyma er sálin að tjá þakklæti
sitt og gleði yfír því að hafa notið
þeirra forréttinda að hafa átt þau
fyrir afa og ömmu. Og minningarn-
ar streyma fram, ein af annarri.
Ég man fyrst eftir ömmu og afa
á Ketilsstöðum þegar ég var vetur-
langt hjá þeim fimm ára gömul.
Það varð mér ógleymanlegur vetur,
og æ síðan var á milli okkar eins
og leynilegur þráður kærleika og
hlýju. Það var sama hvað langt leið
á milli vinafunda. Þennan umrædda
vetur lærði ég margt og upplifði í
fyrsta sinn, t.d. blessunina sem
fylgir reglulegum kirkjuferðum. Afí
söng í kirkjukór Hvammskirkju og
við sóttum því hveija messu. Virð-
ing þeirra fyrir kirkjunni og sá heil-
agleiki sem einkenndi allt það sem
fram fór, gerði það að verkum að
ég sannfærðist um að sannarlega
/HIKLIG4RDUR
VIÐ SUND
SJÁ NÆSTU SÍÐU
Cheerios leikurinn • Cheerios leikurinn • Cheerios leikurinn
c
.£
V.
3
rS
«0
.2
0)
s
c
.2
3
á
<0
.2
3
Q)
8
X
<Ð
CO
E
13
C
3
Q.
O
<D
E
«o
TD
c
<13
</>
03
O
S
o
</)
c
<D
c
c
0
JZL
4—*
'3
O
ö)
C i-
CD Cl)
V)
a 1
CD 0
X
*_
’c
c
lo
E
'D
C
to E
*==
cl cn
o
SD
'0
*+-
c
0
c
0
'ö)
’>
ö)
SLU
C/3
0
k-
'0
o
r—
i
00
I
0
v_
s0
i
oo
03
03
0
s3
v-
JD
0
M—
0ó
CNI
3
03
0
~D
0
03
C
'td
c
0
</>
c
c
</)
0
«o
c/)
0)
’a
_cd
<n
s0
£
</)
s0
c
0
■o
"íö
o
M
1
I
I
I
I
I.
I
ð
>
(0
■ ■■%
>
1 I
2 I
'tö
o
U)
Ifí H.
0|
0) £
® w
JC 'O
O a
t
I i
i ‘
S I
* I
Það er leikur
að borða Cheeriosí
Safnið flipum og fáið bol!
Þú getur eignast fallegan Cheerios bol
með því að taka þátt í létta Cheerios leiknum.
Leikurinn gengur þannig fyrir sig að þú
klippir 6 flipa af nýju Cheerios-, Honey IMut-
eða Cocoa Puffs pökkunum,
fyllir út meðfylgjandi þátttökuseðil og sendir
til okkar, ásamt flipunum, fyrir 28. febrúar 1993.
Þá færðu fallegan Cheerios bol sendan heim.
Þú getur líka komið með flipana í Vatnagarða 20
(Nathan & Olsen) og náð þér í bol.
Njóttu vel og góða skemmtun !
Cheeríos á íslandi
- hríng eftir hríng !
Cheerios leikurinn • Cheerios leikurinn • Cheerios leikurinn
i
Cheerios leikurinn • Cheerios leikurinn