Morgunblaðið - 03.12.1992, Blaðsíða 51
seei HaaMaaaa .s HuoAauTMMia aiaAjawuonoM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1992
Mistilteinn og mótstöðuafl
Frá Geir Viðari Viihjálmssyni:
Norræn goðafræði segir frá því
að Loki fékk hinum blinda Ás Heði
ör úr mistilteini til þess að skjóta
að Baldri. Mistilteinn var samkvæmt
arfsögninni eina lífveran sem ekki
hafði svarið Baldri eið að griðum.
Þessari sígrænu sníkjuplöntu
fylgja enn í dag sérstakar siðvenjur,
einkum á svæðum engilsaxneskrar
menningar. Hún er þar liður í jóla-
haldi og skreytingum og er líklegast
hið upprunalega jólatré, því Fom-
keltar höfðu á henni mikla helgi við
nýárshátíðir. Þegar viss afstaða var
á tungli, var sendur út leiðangur til
leitar mistilteins, sem var síðan skor-
inn með viðhöfn. Með greinar hans
fóru menn síðan um byggðina og
tilkynntu komu nýs árs.
Helgi mistilteinsins geymdist í
kristnum helgisögnum einnig á þann
hátt, að úr viði hans var kross Krists
sagður gerður. Var hann því stund-
um áður fyrr kallaður jurt krossins,
Lignum Crusis, en hið latneska heiti
er Viscum album, dregið af seigfljót-
andi safa beijanna.
Aðal notagildi mistilteins í eldri
jurtalækningahefð er gegn krampa
og niðurfallssýki (epilepsí), í minna
mæli við hartabilun og háum blóð-
þrýstingi. Safí beijanna var sums
staðar hjájp í viðlögum á sár og
skrámur. Á 20. öldinni kom svo til
sögunnar Rudolph Steiner, höfundur
Anthroposófíunnar, sem 1920 setti
fram kenningu um gildi mistilteins
gegn krabbameini. Það leiddi svo til
framleiðslu anthrosófísks sérlyfs og
árangur af notkun þess leiddi til
ýmissa rannsókna. í ferskum safa
jurtarinnar fannst meðal margra
áhugaverðra virkefna prótínsameind
sem hamdi vöxt æxlafruma í tilrau-
naglasi, en hún var of óstöðug og
of stór til þess að geta haft slík áhrif
inni í líkamanum.
Lektín ML-I örvar hvít
blóðkorn
Nýlega bárust svo fréttir af rann-
sóknum við Max-Planck-rannsókna-
stofnunina í tilraunalæknisfræði í
Göttingen (DAAD-letter, Bonn, des.
1991), sem skýra virkni mistilteins
gegn afbrigðilegum frumum.
Dr. H.J. Gabius og samstarfsfólk
hans uppgötvuðu í safa úr mistilteini
mjög virkt prótín af flokki lektína,
ML-I. Það er byggt þannig, að það
binst sérstaklega vel við sykursam-
eindir í prótínum á yfirborði tveggja
gerða af hvítu blóðkomunum. Við
þetta hefja frumurnar sínar vama-
raðgerðir eins og um sýkingu væri
að ræða. Virknin í vamarkerfinu
eykst almennt, en þar sem ekki er
um neina sýkingu að ræða getur hún
beinst að hinum afbrigðilegu æxla-
frumum.
Þetta minnir á að til örvunar vam-
arstarfsemi líkamans hafa náttúru-
lækningar beitt margháttuðum ráð-
um. Endurbólusetningar með berkla-
bóluefni, ofnæmisvakar, háskammta
vítamín, snefilefni, seyði jurta og úr
vamarlíffærúm dýra, hóstarkirtli og
eitlum em meðal þess sem sagt er
að gagni.
í þessu dæmi mistilteinsins lofuðu
dýratilraunir góðu, og rannsóknir
með gjöf ML-I lektíns, samfara
geislameðferð eða æxlalyfjum hjá
bijóstkrabbasjúklingum, sýndu
greinileg merki um eflingu varnar-
starfseminnar. Því eru yfírgripsmeiri
rannsóknir á sjúklingahópum fyrir-
hugaðar. Svo sem verið hefur með
margar fomar heilsujurtir, hefur tek-
ist að finna hér líffræðiskýringu og
einangra sérstakt, virkt innihalds-
efni.
Lektínefni eru algeng í jurtum.
Efalaust á eftir að finna mörg fleiri
gagnleg efni á meðal þeirra, en þau
eru lika mjög algengir 'ofnæmisvald-
ar. Ýmis afbrigði fæðuóþóls má því,
ef að líkum lætur, rekja til lektina í
matjurtum.
GEIR VIÐAR
VILHJÁLMSSON, MA,
Bergstaðastræti llb, Reykjavík.
LEIÐRÉTTINGAR
Egill skipað-
ur saksóknari
ÞAU mistök urðu, þar sem
komma féll niður í frétt í blaðinu
í gær, að Egill Stephensen sak-
sóknari var sagður hafa verið
skipaður fulltrúi við embættið.
Rétt er fréttin svohljóðandi:
„Forseti íslands hefur hinn 24. nóv-
ember 1992, samkvæmt tillögu
dómsmálaráðherra, skipað Egil
Stephensen, fulltrúa, saksóknara
við embætti ríkissaksóknara frá 1.
desember 1992 að telja.“
Hlutaðeigandi eru beðnir velvirð-
ingar á þessum mistökum.
1994
í grein eftir Sigrúnu Davíðsdótt-
ur í Morgunblaðinu á laugardag var
vitnað í Sigurbjörgu Gísladóttur og
sagt að ósóneyðandi efnið halon
hafi verið bannað frá árinu 1992.
Þar var um misritun að ræða. Efn-
ið hefur verið bannað frá árinu
1994. Er beðist velvirðingar á
þessu.
Lokað um nætur
í frétt í Morgunblaðinu um leið-
beiningarstöð heimilanna slæddist
meinleg villa inn í fyrirsögn. Þar
stóð að leiðbeiningarstöðin væri
opin allan sólarhringinn, en auðvit-
að er þetta rangt eða eins og starfs-
konur leiðbeingarstöðvarinnar
segja: „Nóttina eigum við sjálfar."
Foreldrar!
Geymið öll hættuleg efni þar sem börnin ná ekki til.
51
Bilamarkdðurinn, Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut,
Kópavogi, sími
671800
OPIÐ SUMNUD.
KL. 14 - 18.
Volvo F613 13 tonna '78 diesel, ný innfluttur, 37m3
kassi, vörulyfta að aftan o.fl. Gangverk og útlit gott.
Tilvalinn til hesta- og heyflutninga.
V. 1100 þús. Skipti möguleg.
Haustbeit
Sunnudaginn 6. desember veróur rekió saman í
haustbeitarlöndum okkar.
Flutningabílar verða sem hér segir:
í Arnarholti milli kl. 10 og 12.
í Saltvík milli kl. 1 2 og 13.
I Geldinganesi milli kl. 1 3 og 15.
Sinni smölun verður sunnudaginn 20. desember
og verður nónar auglýst síðar.
Hestamannafélagió Fákur.
r
Gubmundur Andrésson
Gullsmíbaverslun,
Laugavegi 50
20% afinælisafsláttur af öllum
vörum næstu 3 daga,
fimmtudag,
föstudag,
laugardag.
HVERS VEGNA
AUGLÝSA AÐRIR
ALDREIVERÐIÐ
ADYNUM ?
100 % aukning á dýnusölu Húsgagnahallar-
innar hefur kallað á viðbrögð keppinauta -en
þeir eiga fá svör því við höfum góðar dýnur,
íslenskar, evrópskar og amerískar á verði
sem enginn keppir við.
Við bjóðum þér úrvalsdýnur með 15 ára
ábyrgð á flestum gerðum og afgreiðslu strax
og lægsta verðið og skiptirétt fyrir þig þar til
þú hefur fundið dýnu sem þú ert ánægð(ur) með.
Rétt dýna heldur Röng dýna spennir
hryggnum beinum. hrygginn.
Við erum fagfólk í dýnumálum.
Húsgagnahöllin
BÍLDSHÖFÐA 20 - 112 REYKJAVÍK - SÍMI 91-681199