Morgunblaðið - 03.12.1992, Side 52
52
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1992
Stefán Bjömsson
- Afmæliskveðja
Góðkunningi minn Stefán
Björnsson fyrrverandi togaraskip-
stjóri er 90 ára í dag, 3. desember.
Mig langar til að minnast hans með
nokkrum orðum á þessum merku
tímamótum. Ef lýsa ætti manninum
held ég að best ætti við að segja
eins og sagt er um marga frændur
hans í föðurætt, að hann sé bæði
lítill og ljúfur. Hann er hið mesta
prúðmenni á ailan hátt, nærgætinn,
hógvær og hvers manns hugljúfi.
Hann er ekki margorður um ævifer-
il sinn. Mikill 'hamingjumaður hefur
hann jafnan verið og sem dæmi
má nefna að öll styrjaldarárin
1939-1945 var hann skipstjóri á
togara sem sigldi til Bretlands og
varð aldrei fyrir neinu óhappi.
Sé minnst nokkurra þátta úr ævi
hans mætti nefna eftirfarandi. Stef-
án er fæddur að Varmá í Mosfells-
sveit. Foreldrar hens voru Bjöm
Einar smiður og bóndi á Varmá
Þorláksson, sá er stofnaði Álafoss,
og kona hans, Anna Jónsdóttir frá
Eystri-Skógum undir Eyjafjöllum
af ættum Síðupresta, komin af eld-
prestinum Jóni Steingrímssyni á
Prestbakka á Síðu. Þeir vom
bræðrasynir Stefán og Jón Þorláks-
gon ráðherra. Afi þeirra var síra
Þorlákur prestur á Undirfelli. Þær
ættir eru um Húnaþing og Skaga-
§orð aðallega. Stefán ólst upp í
Drangshlíð hjá móðursystur sinni
Guðrúnu Jónsdóttur og manni
hennar Þorsteini Jónssyni bónda
þar. Það má gjarnan geta þess að
árið sem Stefán fæðist var fyrst
sett vél í fiskibát á Islandi. Það
gerði Ámi Gíslason fiskmatsmaður
á ísafirði. Árið 1920 fer Stefán í
Flensborgarskólann í Hafnarfírði
Qg er þar tvo vetur. Naumast var
seinni veturinn liðinn þegar Stefán
var orðinn sjómaður á skoskri skútu
í Firðinum. Skotar höfðu gert skút-
una út þar en svo selt hana íslend-
ingum sem gerðu hana út. Var þá
verið á fæmm. Aðeins tveim ámm
síðar var Stefán ráðinn á togarann
Ými frá Hafnarfírði og var þar eina
vertíð en fer svo á togarann Skalla-
grím frá Reykjavík. Hann fer svo
í Stýrimannaskólann 1926 og út-
skrifast þaðan 1927 og fer þá aftur
sem háseti á Skallagrím. 1930 er
Stefán ráðinn stýrimaður á bát frá
Akureyri og er næstu árin skip-
stjóri eða stýrimaður, ýmist fyrir
norðan eða sunnan, allt til 1939 er
hann var ráðinn stýrimaður á togar-
ann Ými er hann hafði verið á frá
Hafnarfírði, en nú hét skipið Þor-
fínnur og var frá Reykjavík. Þeir
sigldu með fískinn til Bretlands.
1940 réðst Stefán skipstjóri á tog-
arann Karlsefni, eign Geirs Thor-
steinssonar. Stefán sigldi þeim tog-
ara öll stríðsárin eftir það. Stefán
hefur alla tíð verið mikill heppnis-
maður og ekkert slys henti hann
eða skip hans öll þessi hræðilegu
ár. Það var einhvem tímann á þess-
um ámm að maður sagði við hann:
Þú átt áreiðanlega eftir að bjarga
mönnum, þú ert svo mikill gæfu-
maður. Það varð ekki sem betur
fór, sagði Stefán, því þá hefðu
eflaust einhveijir farist.
Á stríðsárunum var Atlantshafíð
eitt logandi helvíti og sama mátti
segja um enskar borgir. Þrátt fyrir
allar hættur og vetrarstorma héldu
sjómenn áfram siglingum og fómst
margir íslendingar í þeim darraðar-
dansi og mörgum sjómönnum var
bjargað af sökkvandi skipum, bæði
af kafbátum og ofansjávarskipum.
Stefán fann ekki til hræðslu og
svaf vel meðan togarinn klauf öldur
hafsins framhjá tundurduflum og
hvers konar vígvélum. Menn hans
vom rólegri þegar þeir höfðu slíkan
yfirmann og hugsuðu aðeins um
skyldu sína og ástvinina heima.
Stefán var búsettur í Reykjavík
frá 1928 til 1949 að hann byggði
sér hús í Kópavogi og flutti þangað
með konu sína og hefur átt þar
heima síðan. Hann hætti á sjónum
1954 og gerðist þá verkstjóri hjá
fyrirtæki Geirs Thorsteinssonar
sem gerði út Karlsefni. Hann sigldi
þó stundum í afleysingum eftir það.
Eigendur Karlsefnis, Geir og Ragn-
ar sonur Geirs, vora mestu öðlings-
menn, segir Stefán, og öll skipti
við þá feðga eins og best varð á
kosið. 1972 missti Stefán heilsuna
og vann ekkert eftir það. Með tím-
anum tókst honum þó að komast
til 'athafna og síðustu árin sést lítt
á því að hann standi jafnöldram
sínum að baki. Hann ekur bíl sínum
enn án áfalla og sá sem þetta ritar
er alls óhræddur að fara með honum
í sund daglega í Kópavoginum.
Aldrei syndir hann minna en hund-
rað metra en stundum meira. Stef-
án er mikill bridsspilari enn og
sækir stundum til Reykjavíkur á
slík mót. Hann er ekki ánægður
nema vera einn af þrem efstu. Það
er meiri seiglan í kallinum.
Kona Stefáns var Magnea Vig-
fúsdóttir frá Eystri-Skógum og
varð þeim tveggja sona auðið. Syn-
ir þeirra era Björn bifvélavirki og
Rafn rafmagnsverkfræðingur í
Ameríku. Magnea Vigfúsdóttir and-
aðist 3. janúar 1984, fædd 17. ág-
úst 1903.
Stefán heldur upp á níræðisaf-
mælið hjá bróðurdóttur sinni Önnu
Margréti og manni hennar Páli
Auðunssyni í Lágengi 23 á Selfossi
laugardaginn 5. desember frá
klukkan 14 til 18.
Guðmundur Guðni Guðmundsson.
Kveðja á níræðisafmæli
Stefán Björnsson fyrrverandi
skipstjóri, Hamraborg 32 Kópa-
vogi, er fæddur 3. desember 1902
og hefur því nú að baki níu tugi
ára á farsælli ævi. Þeir eru margir
sem til hans hugsa á þessum tíma-
mótum með þakklæti fyrir góð
kynni og með góðar óskir honum
til handa. Er ég einn þeirra og nota
þetta tilefni til að færa honum árn-
aðaróskir og þakkir.
Stefán er fæddur að Varmá í
Mosfellsveit þar sem foreldrar hans
bjuggu. Að honum standa sterkar
ættir, norðlenskar og sunnlenskar,
þar sem hann er í karllegg af Ból-
staðarhlíðarætt og en í kvenlegg
er hann kominn af góðu fólki undir
Eyjafjöllum og af ætt Síðupresta.
Björn Einar Þorláksson, faðir
Stefáns, var hreppstjóri í Mosfells-
sveit, mikilhæfur hagleiks- og at-
hafnamaður, sem m.a. stofnaði Ull-
arverksmiðjuna að Álafossi. Björn
Einar var sonur séra Þorláks Stef-
ánssonar á Undirfelli í Vatnsdal en
meðal annarra sona hans voru Þor-
lákur Símon bóndi í Vesturhópshól-
um, faðir Jóns landsverkfræðings
og ráherra, séra Arnór Jóhannes á
Hesti í Borgarfírði og Þórarinn
Benedikt listmálari. Móðir Bjöms
var Sigurbjörg dóttir séra Jóns Pét-
urssonar prests að Höskuldsstöðum
og konu hans Elísabetar en hún var
dóttir séra Bjöms Jónssonar ætt-
föður Bólastaðarhlíðarættarinnar.
Móðir Stefáns var Anna Jóns-
dóttir frá Skógum undir Eyjafjöll-
um, dóttir Jóns bónda þar Hjörleifs-
sonar Jónssonar ríka. Móðir Önnu
var af ætt séra Jóns Steingrímsson-
ar eldklerks á Prestsbakka.
Stefán er yngstur þriggja sona
Bjöms og Önnu konu hans. Elstur
þeirra var faðir minn, Þorlákur í
Eyjarhólum í Mýrdal. Hann lést
1987 á áttugasta og áttunda aldurs-
ári. Jón var næstelstur þeirra
bræðra. Hann var lengi starfsmaður
Sambandsins en síðan í mörg ár
skrifstofustjóri hjá íslenskum aðal-
verktökum. Hann lést 1988, einnig
87 ára að aldri.
Björn faðir þeirra bræðra lést
árið 1904 langt um aldur fram.
Móðir þeirra fluttist þá austur und-
ir Eyjafjöll og ólust þeir bræður upp
hjá ættmennum sínum eystra. Stef-
án átti heima í Drangshlíð til tví-
tugs. Auk bústarfa stundaði hann
sjósókn eins og ungra manna háttur
var þar í sveit. Réri hann m.a. tvær
vertíðir frá Vestmannaeyjum. Tví-
tugur að aldri settist hann í Flens-
borgarskóla og var þar í tvö ár.
Eftir námið í Flensborgarskóla
hóf hann að sækja sjó á toguram
fyrst á Ými og síðan á Skallagrími
til 1932. Með sjósókninni gaf hann
sér tíma til að afla sér menntunar
á því starfssviði, sem hann hafði
kosið sér og varð snarasti þáttur í
lífsstarfí hans. Hann settist í Stýri-
mannaskólann og lauk þaðan meira
fiskimannaprófí 1927. Eftirþað varð
hann stýrimaður og skipstjóri á bát-
um frá Akureyri í tvö ár og síðan
stýrimaður á toguram fram að stríði.
Með stríðinu hófst sérstakur kafli
í lífí Stefáns. Á árinu 1939 réðist
hann sem stýrimaður til Þorgeirs
Pálssonar útgerðarmanns, sem
gerði togara út til siglinga með físk
til Englands. Fiskur til útflutnings-
ins var keyptur af togurum hér við
land og voru þá greiddar 8 krónur
fyrir kílóið. í framhaldi af þessum
siglingum réðist Stefán á togarann
Karlsefni, sem var í eigu Geirs
Thorsteinssonar útgerðarmanns.
Starfaði hann óslitið hjá því fyrir-
tæki í 32 ár, fyrst sem stýrimaður
og skipstjóri og síðar sem verk-
stjóri í landi. Oll stríðsárin sigldi
Stefán skipi sínu með físk til Eng-
lands án þess að nokkuð henti skip
hans eða skipshöfn og var æðru-
leysi hans í þessu starfí við brugðið.
Stefán hætti reglulegri sjósókn
fljótlega eftir stríð en varð þá verk-
stjóri í landi. Hann sigldi þó sem
skipstjóri með afla til sölu á mörk-
uðum erlendis allt til 1972 er hann
sótti síðasta skip útgerðarinnar til
Þýskalands. Á sjötugsafmæli sínu
það ár fékk Stefán áfall, sem leiddi
til þess að hann hætti störfum.
Hann náði þó aftur góðri heilsu eins
og sjá má af því að nú tuttugu
áram síðar stundar hann sund nærri
daglega, ekur bifreið sinni hvert á
land sem er og spilar bridge helst
ekki sjaldnar en tvisvar í viku.
Stefán kvæntist Magneu Vigfús-
dóttur árið 1928. Hún var frá
Eystri-Skógum undir Eyjaíjöllum.
Var hún samhentur föranautur hans
til dánardags 1984. Þau eiga tvo
syni. Bjöm er búsettur á Neskaup-
stað og Rafn, sem starfað hefur í
Los Angeles allt frá því að hann
lauk þar verkfræðinámi. Stefán og
Magnea áttu fyrst heima í Reykja-
vík en urðu síðan meðal frambyggja
Kópavogs þar sem þau reistu sér
hús á Borgarholtsbraut 44.
Heimili Magneu og Stefáns var
fastur viðkomu- og gististaður okk-
ar systkinanna þegar við komum
úr sveitinni til höfuðborgarinnar á
bernsku- og unglingsáranum. í
hugum okkar var „Stefán og
Magnea" nánast hugtak, ímynd
hlýju, vináttu og hjálpsemi. Heim-
sóknir til þeirra á þessum áram era
minnisstæðar. Fas Magneu ein-
kenndi sérstæð ró og mild glað-
værð, sem skapaði óþvingað og
frjálslegt andrúmsloft umhverfis
hana. Sjómaðurinn Stefán hafði og
hefur enn yfirbragð „sjentilmanns-
ins“, sem með yfírlætislausri og
eiginlegri kurteisi varð ósjálfrátt
vinur þess sem honum kynntist.
Festa í svipnum og yfirvegun bera
hins vegar vott um þá eiginleika
sem gerðu hann að farsælum stjóm-
anda á sjó og landi. Síðar þegar
við vorum vaxin úr grasi fengu
makar okkar og böm að kynnast
þessu viðmóti þeirra hjóna og bund-
ust þeim sömu vináttuböndum og
við höfðum áður gert.
Stefán er víðlesinn og fróður á
margvíslegum sviðum. Hann fylgist
af áhuga með stjómmálum og öðr-
um hræringum hér á landi sem er-
lendis og er ekki komið að tómum
kofunum í viðræðum við hann enn
í dag. Hann er mikill áhugamaður
um bridge og spilar reglulega og
mikið með góðum árangri þrátt
fyrir háan aldur. Jákvætt viðhorf
hans til lífsins hefur orðið honum
og þeim sem hann þekkja lyftistöng
í lífsbaráttunni og á hann þakkir
margra fyrir góða og gefandi við-
kynningu.
Við systkinin, makar okkar og
börn, þökkum honum viðkynning-
una á þessum tímamótum og óskum
honum farsældar.
Indriði H. Þorláksson.
ðkeypis Iflgfræðiaðstoö
á hverju fimmtudagskvöldi milli
kl. 19.30 og 22.00 í síma 11012.
ORATOR, élag laganema. I
REKSTRAR- OG VIÐSKIPTANÁM
Endurmennfunarstofnunar Háskóla íslands,
- þriggja missera nám með starfi hefst á vormisseri 1993 -
Frá því að Endurmenntunarstofnun Háskóla íslands hóf starfsemi árið
1983, hefur stöðugt betur komið í Ijós þörfin fyrir heildstætt nám í rekstri
fyrirtækja og stofnana, sem hægt væri að stunda með starfi. Nám á há-
skólastigi, þar sem gerðar væru miklar kröfur, bæði til nemenda og kenn-
ara.
Endurmenntunarstofnun hefur frá áramótum 1990 boðið upp á þriggja
missera nám fyrir aðra en viðskipta- og hagfræðinga. Sex hópar hafa
hafið námið og fjórir hópar lokið námi. í þessu námi eru tekin fyrir helstu
undirstöðuatriði hagfræða og rekstrar og þess freistað að gera þeim
betri skil en hægt er á styttri námskeiðum. Forgang hafa þeir, sem lokið
hafa háskólanámi, en einnig er tekið inn fólk með stúdentspróf eða sam-
bærilega menntun, sem hefur töluverða reynslu í rekstri og stjórnun.
Stjórn námsins skipa þrír háskólakennarar, þeir Logi Jónsson, dósent,
fulltrúi Endurmenntunarstofnunar HÍ, Stefán Svavarsson, dósent, fulltrúi
viðskipta- og hagfræðideildar Hí, og Pétur Maack, prófessor, fulltrúi verk-
fræðideildar HÍ.
Helstu þættir námsins eru: Rekstrarhagfræði, reikningshald og skattskil,
fjármálastjórn, stjórnun og skipulag, starfsmannastjórnun, upplýsinga-
tækni í rekstri og stjórnun, framleiðslustjórnun, markaðs- og sölufræði,
réttarreglur og viðskiptaréttur, þjóðhagfræði og haglýsing og stefnumótun.
Kennarar m.a.:
Bjarni Þór Óskarsson, hdl. og adjúnkt viðskiptadeild HÍ.
Gísli S. Arason, rekstrarráðgjafi og lektor Hl.
Guðmundur Ólafsson, hagfræðingur, stundakennari HÍ.
Magnús Pálsson, viðskiptafræðingur og rekstrarráðgjafi.
Páll Jensson, prófessor, verkfræðideild HÍ.
Stefán Svavarsson, dósent, viðskiptadeild HÍ.
Þórður S. Óskarsson, vinnusálfræðingur Sinnu hf.
Næsti hópur hefur nám í febrúar 1993.
Kennslutími er 120 klst. á hverju misseri auk heimavinnu. Þetta samsvarar um
18 eininga námi á háskólastigi. Kennd er ein námsgrein í einu og henni lokið
með prófi eða verkefni áður en sú næsta hefst. í lok námsins fá þátttakendur
prófskírteini er vottar þátttöku og frammistöðu þeirra í náminu.
Verð fyrir hvert misseri er kr. 68.500,-.
Allar nánari upplýsingar um nám þetta, ásamt umsóknareyðublöðum (sem sendist
inn fyrir 10. desember 1992) er hægt að fá hjá:
Endurmenntunarstofnun Háskóla íslands,
Tæknigarði, Dunhaga 5, 107 Reykjavík, símar 694923, 694924 og 694925.