Morgunblaðið - 10.12.1992, Qupperneq 1
88 SIÐUR B/C
283. tbl. 80. árg. FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Skilnaður Karls og Díönu mesta áfall bresku konungsfjölskyldunnar í meira en hálfa öld
Mikil óvissa
umframtíð
ríkisarfans
London. The Daily Telegraph.
KARL príns og ríkisarfi í Bretlandi og Díana, prinsessa af Wales,
eru skilin að borði og sæng og hafa þar með bundið enda á 11 ára
hjónaband og það, sem einu sinni var kallað „konunglegt ævintýri“.
Lögskilnaður er þó ekki á döfinni, segir í yfirlýsingu Buckingham-
hallar, og stjórnarskrárbundin staða þeirra er óbreytt. John Major
forsætisráðherra sem las yfirlýsinguna í breska þinginu í gær sagði
að Díana gæti því orðið drottning taki Karl við ríkiserfðum. Þing-
menn Iýstu strax vantrú sinni á að sú gæti orðið raunin. Sumir sögð-
ust ekki geta ímyndað sér krýningu þar sem kóngur og drottning
hyrfu á braut hvort í sínum vagni.
Bandarískír hermenn leggja undir sig Mogadishu
verður um kyrrt í Kensington-höll.
Talsmenn konungsfjölskyldunnar
lögðu á það áherslu í gær að þrátt
fyrir fréttir fjölmiðla af ástarsam-
böndum beggja utan hjónabands
hefði enginn þriðji aðili ráðið ákvörð-
unum þeirra.
Sjá fréttir á bls. 30.
Reuter
Karl og Díana á krossgötum
Karl reyndi að brosa en líklega var honum ekki frekar en Díönu hlátur í hug þegar skýrt var frá því í gær, að þau
væru skilin að borði og sæng. Þau gegndu þó sínum opinberu skyldustörfum eins og ekkert hefði í skorist en hvort
í sínu lagi.
Sómalir fögnuðu
„innrásarliðinu“
nætti og stóð í sex klukkustundir
en að því búnu komu fyrstu flutn-
ingaflugvélamar með bandaríska
og franska hermenn. Er þessi hem-
aðaraðgerð rúmlega 35.000 her-
manna á vegum Sameinuðu þjóð-
anna einstæð að því leyti, að þetta
er í fyrsta sinn, sem gripið er til
hervalds af mannúðarástæðum.
„Það em ekki allir jafn hrifnir
af komu Bandaríkjamannanna,“
sagði einn fulltrúi hjálparstofnana
í Sómalíu í gær en í fyrrinótt urðu
13 hjálparstarfsmenn í bænum
Kismayu í suðurhluta landsins að
flýja burt undán óaldarflokkunum,
sem notuðu kannski síðasta tæki-
færið til að fara með mpli og ránum
um bæinn. í Mogadishu virtust þeir
hins vegar horfnir af yfirborði jarð-
ar og var ástandið þar eins og fyrir-
varalaust hefði verið efnt til þjóðhá-
tíðar. Komu þúsundir manna, sem
hingað til hafa ekki vogað sér úr
einu hverfinu í annað, til að fagna
„innrásarliðinu".
Fjölþjóðaherinn, sem er skipaður
hermönnum frá ýmsum löndum en
aðallega Bandaríkjunum, mun á
næstu dögum fara til annarra hluta
landsins en áætlað er, að 300.000
manns hafí soltið í hel í Sómalíu á
síðustu tveimur ámm og hungur-
vofan ógni enn um einni milljón
manna.
Sjá „Landganga ...“ á bls. 31.
)Iogadishu. Reuter.
„EG þarf ekki á þessari byssu að halda lengur, ég vona að ofbeldið
í landinu sé nú liðin tíð,“ sagði Sómali nokkur í gær eftir að hundr-
uð bandarískra landgönguliða höfðu gengið á land við Mogadishu,
höfuðborg Sómalíu.
Óaldarflokkar í borginni, sem
komið hafa í veg fyrir matvælaað-
stoð við sveltandi fólk, höfðu hægt
um sig en borgarbúar flykktust út
á götur til að fagna hermönnunum
og meðal þeirra ríkti hátíðar-
stemmning.
Landgangan hófst rétt eftir mið-
Reuter
Yið öllu búnir
Bandarísku landgönguliðamir vom við öllu búnir þegar þeir tóku land á
ströndinni við Mogadishu en mótspyman var engin. Ribbaldamir, sem
ráðið hafa lögum og lofum í borginni, tóku þann kost að láta sig hverfa.
Bolséviki
boðinn út
Moskvu. Reuter.
„ÞETTA er frábært vöru-
merki,“ sagði borgarbúi í
Moskvu í gær þegar hann
beið í biðröð eftir að kaupa
hlut í fyrsta rússneska fyrir-
tækinu, sem er einkavætt,
sælgætis- og kökuverksmiðj-
unni „Bolséviki“.
„Bolséviki", sem heitir eftir
byltingarmönnunum frá 1917,
lýtur þeim örlögum að verða
fyrst fyrir valinu í einkavæð-
ingaráætlun ríkisstjórnarinnar.
Hafa starfsmennimir tryggt
sér 56% hlutafjár en í gær átti
að bjóða út hin 44%. Eitt
Moskvublaðanna sagði í gær,
að „Bolséviki" ætti eignir um-
fram skuldir samkvæmt rúss-
neskum bókhaldsaðferðum,
sem „eru að vísu dálítið öðm-
vísi en annars staðar".
Jeltsín bíð-
ur ósigur
Moskvu. Frá Vladímír Todres, fréttaritara
Morgunblaðsins.
RÚSSNESKA fulltrúaþingið
hafnaði í gær Jegor Gajdar sem
forsætisráðherra og eru úrslitin
mikið áfall fyrir Borís Jeltsín
forseta og stjóm hans.
Gajdar, sem hefur verið starfandi
forsætisráðherra, er helsti höfundur
efnahagsmálstefnu stjómarinnar en
harðlínumenn á þingi saka hann um
að vera of hallan undir Vesturlönd.
Óttast er, að þessi úrslit geti orðið
til að hægja á efnahagsumbótunum.
Það var um miðjan dag í gær, að
Major, forsætisráðherra Bretlands,
kvaddi sér hljóðs á þingi og skýrði
frá tíðindunum um skilnað þeirra
Karls og Díönu og staðfesti með því
sögurnar, sem gengið hafa allt þetta
ár um sambúðarerfiðleika þeirra.
Hann lagði hins vegar áherslu á, að
réttur Karls til ríkiserfðanna væri
óbreyttur en orðrómur er enn um,
að hann ætli sér síðar að afsala sér
þeim í hendur Vilhjálmi, syni sínum,
en hann er nú 10 ára. Major kvaðst
harma hvernig komið væri og leið-
togar stjórnarandstöðunnar tóku
undir það.
Erfitt ár
Skilnaður þeirra Karls og Díönu
er smiðshöggið á það, sem Elísabet
drottning hefur kallað „annus horri-
bilis“, „skelfingarárið" í sögu bresku
konungsfjölskyldunnar, en þetta er
mesta áfall, sem hún hefur orðið
fyrir síðan Játvarður VIII afsalaði
sér konungdómi 1936 til að geta
kvænst fráskilinni bandarískri konu.
Hjónabönd allra þriggja barna
drottningar hafa farið út um þúfur
og er skemmst að minnast skilnaðar
Andrésar og Söru Ferguson fyrr á
árinu. Anna prinsessa fékk lögskiln-
að í apríl en hún ætlar að giftast
öðru sinni á laugardag.
Aðalheimili Karls Bretaprins, sem
er 44 ára gamall, verður nú í High-
grove, sveitasetri hans í Gloucesters-
hire, en Díana prinsessa, 31 árs,
Stórslys
í Bólivíu
La Paz. Reuter.
AÐ minnsta kosti 210 manns
fórust og hundruða er saknað
eftir að skriða féll á vinnubúð-
ir gullnámamanna í Norður-
Bólivíu í gær.
Hefur Jaime Paz Zamora, for-
seti Bólivíu, lýst yfir neyðar-
ástandi á svæðinu en þetta er
mesta slys í sögu landsins. Ollu
miklar rigningar skriðunni, sem
hreif með sér 90% búðanna, og
var búið að finna lík 210 manna
í gær. Er óttast, að tala látinna
geti verið helmingi hærri.