Morgunblaðið - 10.12.1992, Blaðsíða 33
32
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1992
MORGUNBLAÐIÐ MMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1992
33
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannesseh,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið.
Þingræði og
þingræður
Enn einu sinni kemur sú staða
upp, skömmu fyrir þinghlé,
að óvissa ríkir um afgreiðslu mik-
ilvægra mála frá Alþingi. Langt
er liðið á desember, en enn eru
eftir önnur og þriðja umræða um
fjárlagafrumvarpið og önnur og
þriðja umræða um staðfestingar-
frumvarpið varðandi Evrópska
efnahagssvæðið. Það á einnig eft-
ir að afgreiða tekjuöflunarfrum-
vörp ríkisstjórnarinnar, lánsfjár-
lög, frumvarp til samkeppnislaga
og fleiri viðamikil mál.
Þótt þing fundaði dag og nótt,
fram til 19. desember, en þá ger-
ir starfsáætlun ráð fyrir þinghléi,
er vandséð hvemig takast á að
afgreiða öll þessi frumvörp. Samt
virðist þingmönnum ekki liggja á.
Af hveiju kemur þessi staða
upp aftur og aftur ár eftir ár?
Hluti skýringarinnar er eflaust
hversu seint stjórnarfrumvörp
koma fram, og skiptir þá engu
máli hvaða stjórn á í hlut. Það
er auðvitað óviðunandi fyrir Al-
þingi að þurfa að taka flókin mál
fyrir og afgreiða á skömmum
tíma. Þetta er hins vegar einungis
hluti skýringarinnar. Vandi Al-
þingis er mun djúpstæðari og ligg-
ur fyrst og fremst í starfsháttum
löggjafarstofnunarinnar.
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra sagði fyrr á árinu að þing-
störf einkenndust af málæði
ákveðinna þingmanna og það af
litlu viti. Jón Baldvin Hannibals-
son utanríksiráðherra segir í
Morgunblaðinu á þriðjudag, að-
spurður um hvort takist að af-
greiða EES fyrir jól: „Ég get ekk-
ert fullyrt um það hvað tekst og
hvað tekst ekki í þessari stofnun.
Það má alveg eins spyija um önn-
ur stórmál, frá fjárlagafrumvarpi
til efnahagsaðgerða. Tekst að
ljúka þeim? Það vill svo til, að
óbilgjörn stjórnarandstaða, sem
vill fyrst og fremst skáka í skjóli
þingskapaleysis hér, getur auðvit-
að talað fjandann ráðalausan, um
allt og ekkert daginn út og daginn
inn, í því skyni að tefja mál. Það
er ekkert nýtt - það hefur verið
daglegt brauð í þessari sam-
kundu.“
Þegar tveir helstu forystumenn
ríkisstjómarinnar láta, með
skömmu millibili, ummæli af
þessu tagi frá sér fara, er ástæða
til að staldra við. Nú situr þriðja
löggjafarþingið frá því Alþingi var
breytt í eina málstofu og ætti því
einhver reynsla að vera komin á
nýtt starfsfyrirkomulag og starfs-
reglur. Allt virðist hins vegar sitja
við það sama. Ekkert hefur breyst.
Enn eru mál afgrerdd á elleftu
stundu með flausturslegum vinnu-
brögðum og pólitískum hrossa-
kaupum.
Afgreiðsla samningsins um
Evrópska efnahagssvæðið er at-
hyglisverð að því leyti til að við
getum í þessu máli borið okkur
saman við starfshætti annarra
þjóðþinga, sem eru að afgreiða
nákvæmlega sama samninginn.
Hver er niðurstaða þess saman-
burðar? ísland er eina ríki Frí-
verslunarbandalags Evrópu, að
Liechtenstein undanskildu, sem
enn hefur ekki tekið afstöðu til
málsins! Jafnvel í Noregi, þar sem
andstaða við samninginn var, ef
eitthvað er, meiri en hér, tókst
Stórþinginu að ljúka málinu á
örfáum dögum.
Þegar umræður á Alþingi eru
bomar saman við umræður á öðr-
um þjóðþingum vekur það annars
vegar athygli hversu langt mál
margir þingmenn telja sig þurfa
að flytja og hins vegar hversu
efnislitlar og ómarkvissar hinar
orðmörgu ræður eru. Sorglegustu
dæmin um starfhætti Alþingis eru
hinar sífelldu „þingskaparumræð-
ur“ sem í raun hafa gert hugtak-
ið „þingsköp" marklaust.
Það eru algeng viðbrögð þing-
manna, þegar þeir eru gagniýndir
fyrir málþóf, að með því sé verið
að vega að rótum þingræðisins.
Auðvitað á Alþingi að vera helsti
umræðuvettvangur þjóðarinnar
um þjóðmál. Það þýðir hins vegar
ekki að þingmenn eigi að tala eins
og þeim sýnist, enda er í þingsköp-
um margra þjóða að finna sérstök
ákvæði til að binda enda á mál-
þóf. Það er eitt meginhlutverk
stjómarandstöðu hvers tíma að
veita sitjandi ríkisstjórn málefna-
legt aðhald. Þegar þingmenn hins
vegar nota málfrelsi sitt beinlínis
til að koma í veg fyrir að mál, sem
meirihluti er fyrir á þingi, nái fram
að ganga, er verið að tefja fram-
gang þingræðis í landinu með
bolabrögðum.
í nefndum þingsins gefst þing-
mönnum tækifæri til að koma
sjónarmiðum sínum á framfæri
og reyna að ná fram breytingum
á frumvörpum. Takist það ekki
geta þeir gert grein fyrir sjónar-
miðum sínum úr ræðustól. Það
þarf hins vegar ekki að gera oftar
en einu sinni, né heldur í lengra
máli en nauðsynlegt er, skipti við-
komandi þingmaður ekki um
skoðun í millitíðinni.
Virðing Alþingis hefur oft borið
á góma á undanförnum árum og
hafa margir haft af því áhyggjur,
að hún fari þverrandi. Ef svo er
geta þingmenn engum nema sjálf-
um sér um kennt. Á meðan vinnu-
brögðin eru eins og raun ber vitni
er ekki von á öðru.
Sú breyting á starfskipulagi
þingsins að það starfaði í einni
málstofu átti ekki síst að einfalda
störf Alþingis og gera þau skil-
virkari. Það hefur ekki gengið
eftir og því er alvarlegt íhugunar-
efni hvort ekki sé tilefni til að
taka þingskaparlög til endurskoð-
unar til að tryggja framgang þing-
ræðis í landinu.
AF INNLENDUM
VETTVANGI
AGNES BRAGADÓTTIR
Sameinaðir verktakar á almennan hlutabréfamarkað
Miklar eignir en óvissa
ríkir um framtíðarafkomu
I fyrsta sinn mögnleiki á viðskiptum með hlutabréf Sameinaðra
ÓÁNÆGJA sú sem gaus upp á aðalfundi Sameinaðra verktaka í
septembermánuði í haust af hálfu þeirra sem sem vildu leysa upp
félagið og fá greiddan eignarhlut sinn, kann að réna til muna á
næstunni, jafnvel hverfa. Ástæður þessa eru þær að sljórn Samei-
naðra verktaka hf. hefur fengið Verðbréfamarkað íslandsbanka
hf. til að vinna fyrir sig verðmat á hlutabréfum í Sameinuðum
verktökum, til þess að skilyrði skapist fyrir viðskiptum hluthafa
með hlutabréf félagsins á almennum markaði. Að vísu er ekki sjálf-
gefið að óánægjan hverfi eins og dögg fyrir sólu, þar sem verðmat-
ið gerir ráð fyrir að raunhæft sé að miða við 7,2 falt gengi á hluta-
bréfunum, en nafnverð hlutafjár félagsins er 310 milljónir króna.
Samkvæmt þessu mati væru öll hlutabréf félagsins metin á rúma
2,2 milljarða króna en það samsvarar því að verðmætin séu um 80%
af hreinni eign félagsins, og 85% af bókfærðu eigin fé félagsins
þann 30. september síðastliðinn. Vel má vera að þeir sem vildu Ieysa
félagið upp í haust, telji að hér séu verðmæti bréfanna of lágt
metin og að þeirra hagur hefði verið betur tryggður með upp-
lausn. En þegar grannt er skoðað, er líklegt að þeir hafi ekki svo
ýkja mikið til síns máls, þar sem það tæki umtalsverðan tíma að
leysa upp félag af þeirri stærðargráðu sem Sameinaðir verktakar
eru og koma eignum þess í verð.
Hér er vissulega um markverð
tímamót að ræða, því hér
skapast í fyrsta sinn í sögu Samei-
naðra verktaka möguleiki á að eiga
viðskipti með hlutabréf, því hingað
til hafa ársreikningar Sameinaðra
verktaka ekki verið öllum aðgengi-
legir. Þó svo að Sameinaðir verk-
takar hafí hlutafélagalögum sam-
kvæmt verið almenningshlutafélag,
frá því að hluthafatala félagsins fór
yfir 200, þá hefur svo ekki verið í
reynd, því upplýsingar um stöðu
félagsins hafa ekki verið opinberar
og kaupendur og seljendur hafa þar
af leiðandi ekki getað myndað sér
skoðun á verði. Vegna kröfunnar
um ákveðna upplýsingagjöf, hefur
markaðurinn ekki getað annast
neina milligöngu um kaup og sölu,
þar sem sú krafa hefur ekki verið
uppfyllt fyrr en nú með ofangreindu
verðmati.
Líklegast er að stjórn félagsins
hafi nú stigið þetta skref, og óskað
eftir verðmatinu, til þess að þeir
sem vilja kaupa eða selja hlut í
Sameinuðum verktökum, hafi að
minnsta kosti slíkt verðmat til hlið-
sjónar og jafnvel leiðbeiningar, þeg-
ar bréfín fara að koma á markað.
En það verður auðvitað markaður-
inn sjálfur, framboð og eftirspurn,
sem mun mynda hið raunverulega
markaðsverð á hlutabréfum í Sam-
einuðum, hvenær sem það svo verð-
ur. Nú liggur allavega ljóst fyrir
að hægt er að fara að skrá inn hjá
verðbréfafyrirtækjunum kaup- og
sölutilboð og opna þannig tilboðs-
markað.
Skýrsla sú sem Verðbréfamark-
aður Islandsbanka hefur unnið fyrir
stjóm Sameinaðra verktaka um
verðmatið er mjög ítarleg. Hún er
undirrituð af þeim Ásgeir Þórðar-
syni og Svanbirni Thoroddsen. Hér
á eftir verður drepið á því helsta
úr skýrslunni.
í inngangi segir að tekjur Sam-
einaðra verktaka hf. sem eingöngu
séu eignatekjur skiptist í þijá hluta:
húsaleigutekjur, arðs- og vaxtatekj-
ur og hlutdeild í hagnaði íslenskra
aðalverktaka, sem hefur frá upp-
hafi verið langmikilvægasti tekju-
liður Sameinaðra verktaka. Orðrétt
segir: „Pjárhagslegur styrkur Sam-
einaðra verktaka byggir raunar á
þeim tekjum sem eignarhlutur [fyr-
irtækisins] í Islenskum aðalverk-
tökum hefur skilað. Mikil óvissa
ríkir um afkomu íslenskra aðal-
verktaka í framtíðinni, en ljóst er
að fyrirtækið mun ekki hafa jafnhá-
ar tekjur af framkvæmdum fyrir
er rekið sem eignarhaldsfyrirtæki
og felst starfsemin í eignaumsýslu
og rekstri fasteignarinnar að
Höfðabakka 9, en þar á félagið 75%
hlut. Aðrar eignir, eru samkvæmt
skýrslu VÍB 32% eignarhlutur í ís-
lenskum aðalverktökum og inneign
hjá sama félagi að upphæð um
1.350 milljónir króna. Eins og menn
rekur líklega minni til, er sú inneign
tilkomin vegna breytinga á eignar-
aðild að íslenskum aðalverktökum,
sem Sameinaðir áttu helming í,
áður en ríkissjóður varð meirihluta-
eigandi með samningum við Sam-
einaða og Regin. Inneignin er verð-
tryggð og ber 7% vexti og kemur
til greiðslu eigi síðar en 1. ágúst
1995. Þá eiga Sameinaðir hlutabréf
í Eimskipum, Eignarhaldsfélögum
Iðnaðar- og Verslunarbanka og
Fjárfestingarfélagi íslands. Hluta-
bréfin eru bókfærð á nafnverði sem
er um 132 milljónir króna, en mark-
aðsverð þeirra þann 30. september
sl. var áætlað um 263 milljónir
króna. Sjóðir félagsins, sem voru
verkum fyrir Bandaríkjaher á
Keflavíkurflugvelli, þótt Áðalverk-
takar hafi fjárhagslegan styrk til
þess.
32% eignarhlutur Sameinaðra í
Aðalverktökum er bókfærður á 489
milljónir króna, en skýrsluhöfundar
telja að eignarhluturinn sé vanmét-
inn um 175 milljónir króna, vegna
þess að vinnuvélar og stór tæki
hafi verið vanmetin í ársreikningi
íslenskra aðalverktaka.
Steinsteypan við Höfðabakka
Sameinaðir verktakar eiga 75%
húseignarinnar að Höfðabakka 9,
sem er tæplega 25 þúsund fermetr-
ar. Þar eiga Sameinaðir því um
18.750 fermetra í steinsteypu. Hús-
eignin er að mestu í útleigu, en
samkvæmt skýrslunni standa leigu-
tekjur ekki undir viðhaldskostnaði,
afskriftum og eignarsköttum. Mikið
framboð sé af atvinnuhúsnæði um
þessar mundir en eftirspum lítil.
Eignarhluturinn var bókfærður 30.
september sl. á 552 milljónir króna,
en fasteignamat eignarhlutans var
í ársbyijun 563 milljónir króna, sem
Morgunblaðið/Sverrir
Sameinaðir verktakar eiga 75% húseignarinnar að Höfðabakka 9, sem er tæplega 25 þúsund fermetr-
ar. Þar eiga Sameinaðir því um 18.750 fermetra í steinsteypu. Húseignin er að mestu í útleigu, en
samkvæmt skýrslu VÍB standa leigutekjur ekki undir viðhaldskostnaði, afskriftum og eignarsköttum.
Bandaríkjaher á Kelfavíkurflugvelli
eins og hingað til. Sú staðreynd að
ríkissjóður á nú meirihluta í íslensk-
um aðalverktökum skapar jafn-
framt þá hættu að fjármunum fyrir-
tækisins verði beitt með önnur
markmið í huga en það að hámarka
hagnað og arðsemi hluthafa ... Það
virðist ljóst að afkoma Sameinaðra
verktaka á næstu árum verður ekki
jafngóð og undanfarinna ára. Því
er ekki hægt að byggja verðmat á
tekjum undanfarinna ára. Ennfrem-
ur er ógerningur á þessu stigi að
áætla tekjur og afkomu næstu ára.
Þannig byggir verðmat þetta frem-
ur á núverandi efnahag Sameinaðra
verktaka en rekstri fyrirtækisins."
Fram kemur að ekki liggur fyrir
árshlutauppgjör íslenskra aðalverk-
taka og hefur því ekki verið tekið
tillit til hlutdeildar Sameinaðra
verktaka í afkomu íslenskra aðal-
verktaka á árinu.
Starfsemi Sameinaðra
verktaka
Fyrirtækið Sameinaðir verktakar
digrir, hafa að mestu þegar verið
greiddir hluthöfum með niðurfærslu
hlutafjár, þannig að einungis
standa eftir á bankabókum félags-
ins 32,5 milljónir króna. Heildar-
eignir Sameinaðra verktaka voru
samkvæmt árshlutareikningi 30.
september 1992 2,6 milljarðar
króna og eigið fé var tæpir 2,5
milljarðar króna.
Óvissan liggur í eignarhluta
í Aðalverktökum
Skýrsluhöfundar benda réttilega
á að stærsti óvissuþátturinn í eign-
um Sameinaðra verktaka er eignar-
hlutinn í íslenskum aðalverktökum,
þar sem ekki sé hægt að reikna
með sama góða hagnaði af starf-
semi Aðalverktaka í framtíðinni og
verið hefur undanfarin ár. Ljóst sé
að tekjur Aðalverktaka muni drag-
ast saman á þessu ári og enn frek-
ar á næstu misserum. Ekki sé hægt
að segja til um hvort fyrirtækinu
takist að hasla sér völl á öðrum
starfsvettvangi, til þess að svara
þeim samdrætti sem orðið hefur í
jafngildir því að fermetrinn er met-
inn á um 30.500 krónúr, sem
skýrsluhöfundar telja raunhæft mat
á verðgildi eignarinnar. Þeir benda
jafnframt á eftirfarandi: „Vegna
stærðar eignarinnar að Höfðabakka
9, sem er alls 25.000 fermetrar,
myndi sala hennar vera erfið og
líklegt að hún hefði áhrif til lækkun-
ar á markaðsverði."
Þeir sem kaupi fái umbun
Um helmingur eigna Samei-
naðra er samkvæmt árshlutareikn-
ingi Endurskoðunar peningaleg in-
neign hjá íslenskum aðalverktök-
um, og telja skýrsluhöfundar það
vera einn helsta styrkleika félags-
ins. Óvissan ríki um afkomu Aðal-
verktaka, eins og að framan grein-
ir, og þar með arðsemi eignarhlut-
ans í því félagi. Ennfremur sé af-
koma vegna Höfðabakka 9 léleg
og markaðsverð fasteigna nú lágt.
Þeir telja í ljósi þessara aðtriða
eðlilegt að þeir sem kaupi hlutabréf
í Sameinuðum fái umbun fyrir að
kaup nú og verð hlutabréfa verði
því lægra en sem nemi hreinni eign
félagsins. Þeir meta það svo að
raunhæft sé að miða við að verð-
mæti hlutabréfa í Sameinuðum
verktökum samsvari um 80% af
hreinni eign félagsins eins og þeir
hafi metið hana. Þetta jafngildi
85% af bókfærðu eigin fé þann 30.
september 1992. Þannig telja þeir
raunhæft að gengi hlutabréfa í
Sameinuðum verktökum hf. sé um
7,2-falt nafnverð.
Þessa skoðun sína styðja
skýrsluhöfundar með eftirfarandi
rökum: „Ef gert er ráð fyrir því
að rekstur íslenskra aðalverktaka
Skili Sameinuðum verktökum eng-
um hagnaði næstu 3 árin, en viðun-
andi hagnaði eftir þann tíma, er
áætlað að árlegur hagnaður Samei-
naðra verktaka af öðrum eignum
verði um 48,5 milljónir króna eftir
skatta. Með því að gera 10% arðse-
miskröfu til hlutabréfa í Sameinuð-
um verktökum miðað við þessar
forsendur samsvarar það því að
verðmæti fyrirtækisins sé um 80%
af hreinni eign, eins og við höfum
metið hana.“
Höfundar nefna einnig til
samanburðar að markaðsverð
hlutabréfa í þeim eignarhaldsfélög-
um sem skráð séu á innlendum
hlutabréfamarkaði (Eignarhaldsfé-
lög Alþýðu-, Iðnaðar-, og Versl-
unarbanka) hafi í lok nóvember í
ár verið að meðaltali um 84% af
bókfærðu eigin fé þessara félaga.
Sama hlutfall fyrir 10 stærstu fyr-
irtækin á innlendum hlutabréfa-
markaði hafi í lok nóvember verið
94%.
Raunar er erfitt að segja til um
það nú, hvort líklegt sé að markað-
ur myndist með bréfin, þ.e.a.s.
hvort kaupendur séu að bréfum
þeirra sem vilja selja, en hitt liggur
þó fyrir að í fyrsta sinn er mögu-
legt að eiga í slíkum viðskiptum.
Raunar virðast slík viðskipti og
hvort þau verða að einhveiju ráði,
mikið undir framtíð íslenskra aðal-
verktaka komin. Takist Aðalverk-
tökum að hasla sér völl á nýjum
sviðum og koma sér út úr þeim
hremmingum sem félagið er nú í,
gætu veruleg verðmæti falist í
framtíðareign í Sameinuðum, en
við þetta verða menn á þessu stigi
að minnsta kosti að setja stórt
spurningarmerki. Á hinn bóginn
ætti þessi 1.350 milljóna króna
peningainneign Sameinaðra í Aðal-
verktökum að geta virkað aðlað-
andi fyrir fjárfesta, svo fremi sem
þeir hefðu einhveija tryggingu fyr-
ir því að þeir fjármunir yrðu vel
ávaxtaðir.
Skattlagning -
I lok skýrslu sinnar segja þeir
Þórður og Svanbjöm: „Sameinaðir
verktakar hafa nú þegar nýtt sér
þær heimildir sem félagið er talið
hafa til útgáfu jöfnunarhlutabréfa.
Því má gera ráð fyrir að til fullrar
skattlagningar komi af söluhagnaði
hlutabréfa i Samöinuðum verktök-
um. Þannig yrði skattur af hluta-
bréfí að nafnverði 1.000 krónur,
sem selt yrði á genginu 7,2 um
2.470 krónur og seljandi héldi því
eftir um 4.730 krónum."
í ljósi þessa er líklegt að margir
þeir sem á annað borð hyggja á
sölu eignarhlutar síns, haldi að sér
höndum, að minnsta kosti fram
yfir áramót, þvi einstaklingar munu
þurfa þegar á næsta ári að greiða
skatt af hlutabréfasölu sinni, ef hún
fer fram á árinu 1992. Bíði þeir
með sölu bréfanna fram yfír ára-
mót, þurfa þeir ekki að greiða skatt-
inn af söluhagnaðinum fyrr en á
árinu 1994. Oðru máli kann að
gegna um félög og fyrirtæki sem
eiga eignarhlut í Sameinuðum verk-
tökum og vilja selja sinn hlut. Sé
um það að ræða að viðkomandi
fyrirtæki og/eða félög eigi uppsafn-
að tap, þá jafnast það út í bókhald-
inu á móti söluhagnaðinum, og
þessir aðilar losna við að greiða
skatt af söluhagnaði. Því kynnu
slíkir aðilar þegar að vilja selja, eða
að minnsta kosti að þreifa fyrir sér
hjá verðbréfafyrirtækjum og fela
þeim að skrá fyrir sig sölu- og
kauptilboð.
Salan á Gylli frá Flateyri
Fyrirtækið betur í
stakk búið til að tak-
ast á við verkefni sín
- segir Einar Oddur Kristjánsson framkvæmdastjóri Hjálms hf.
EINAR Oddur Kristjánsson framkvæmdastjóri Hjálms hf. á Flat-
eyri segir að stjórnendur fyrirtækisins hafi undanfarin misseri
verið að huga að ýmsum leiðum til að minnka skuldir fyrirtækisins
og endurfjármagna það. Niðurstaðan hafi orðið að selja togara
fyrirtækisins, Gylli IS 261, með hluta aflaheimilda og kaupa línubát-
inn Val. í gær var gengið frá kaupunum á Val. Einar Oddur segir
að eftir þessa breytingu væri Hjálmur hf. traust og skuldlítið fyrir-
tæki sem væri mun betur í stakk búið til að takast á við verkefni
sín en áður. Hann segir hráefnisöflun þess trygga og næg vinna
yrði áfram fyrir Flateyringa.
Einar sagði að stóru útgerðarfyr-
irtækin í landinu hefðu verið að
styrkja stöðu sína með því að fara
út á hlutabréfamarkaðinn. Staða
minni og lokuðu fyrirtækjanna, eins
og Hjálms hf., hafí aftur á móti
verið að versna. „Við höfum átt
ýmissa kosta völ til að bæta stöðu
okkar og höfum undanfarin misseri
verið að fara yfir möguleikana.
Þetta varð niðurstaðan. Við seldum
Gylli og keyptum stóran yfírbyggð-
an línubát í staðinn," sagði Einar
Oddur. Hann lagði á það áherslu
að með þessu væru stjórnendur fyr-
irtækisins sjálfír að grípa inn í at-
burðarásina á meðan þeir hefðu
vald á henni, þeir hefðu ekki verið
beittir utanaðkomandi þrýstingi af
neinu tagi.
Hann sagði að eftir þessi við-
skipti væri fyrirtækið mun betur í
stakk búið til að takast á við verk-
efni sín en áður. Eftir stæði traust
fyrirtæki sem skuldaði lítið. Og það
hefði trausta hráefnisöflun. „Ég
treysti því að næg vinna verði áfram
fyrir fólkið á staðnum. Það er aðal-
atriðið þegar til lengri tíma er lit-
ið,“ sagði Einar. Hann sagði að
engar uppsagnir væru ráðgerðar í
fiskvinnslunni. Hins vegar hefði
mikið verið af aðkomuverkafólki á
Flateyri á undanförnum árum og
væri hugsanlegt að því fækkaði eitt-
hvað.
Einar Oddur sagði að nú breytti
Með 2.200
tonna þorsk-
ígildi eftir
kaupin á Gylli
BIRTINGUR hf., sameigínlegt
hlutafélag Síldarvinnslunnar í Nes-
kaupstað og Seyðfirðinga hefur
nú til umráða botnfiskkvóta, sem
svarar til 2.200 þorskígilda. Hluta-
félagið hefur fest kaup á Togaran-
um Gylli frá Hjálrni hf. á Flateyri
með 1.140 þorsígildistonnum. Fyr-
ir átti Birtingur rúmlega 1.000
þorskígildi, sem haldið var eftir
er fyrirtækið seldi togara sinn
Birting án kvóta til Suður-Afríku.
Hlutafélagið Birtingur var stofnað
á þessu ári um útgerð togarans Birt-
ings, sem áður var í eigu Síldarvinnsl-
unnar, og er hlutafé þess um 250
milljónir króna. Birtingur er sjálf-
stætt hlutafélag og eiga Síldarvinnsl-
an í Neskaupstað og Dvergasteinn á
Seyðisfirði kauprétt á helmingi afla
togara þess hvort um sig. Birtingur
mun gera hinn nýja togara út og
verður áhöfn á honum að mestu sú
sama og var á Birtingi. Skipstjóri
verður Birgir Sigurðsson, Jón Einar
Jóhannsson, fyrsti stýrimaður og
fyrsti vélstjóri Þór Hauksson. Finn-
bogi Jónsson, einn forráðamanna
Birtings, vildi hvorki gefa upp kaup-
verð á skipinu né á hve háu verði
meðfylgjandi kvóti þess væri reiknað-
ur inn í kaupin.
fyrirtækið um útgerðarhætti, hætti
með togaraútgerð og sneri sér alfar-
ið að línuútgerð. Það væri ekki
meiri breyting en oft áður hefði átt
sér stað á Flateyri. Sterkt fyrirtæki
gæti síðan keypt skip, veiðiheimildir
eða físk eftir því sem hagkvæmt
þætti.
„Við gerum okkur grein fyrir því
að menn hafa ákveðnar tilfínningar
til skipa. Gyllir hefur verið einstak-
lega farsælt skip og gegnt þýðingar-
miklu hlutverki í atvinnulífí staðar-
ins. Því fylgja ákveðin sárindi að
selja það í burtu,“ sagði Einar Odd-
ur. Þá sagði hann að vissulega hefði
verið óheppilegt að geta ekki skýrt
heimafólki frá málinu áður en það
komst í hámæli. Hins vegar hefði
verið óhugsaridi annað en að vinna
að þessum viðskiptum í kyrrþey.
Éinar Oddur sagði að kaupcndur
og seljendur Gyllis og Vals hefðu
orðið ásáttir um að gefa ekki upp
kaup- og söluverð skipanna og afla-
heimilda.
Eiim af fyrstu tognrun-
um kom til Flateyrar
GYLLIR ÍS 261 var smíðaður í Nor-
egi og kom nýr til Flateyrar 1976.
Þá hafði í hartnær tvo áratugi ein-
göngu verið byggt á bátaútgerð á
Flateyri.
Flateyringar komu sneriima við
sögu togaraútgerðar á Íslandi. Þeir
áttu þátt í að kaupa Frey 1908 en
hann var einn af fyrstu togurum Ís-
lendinga, að sögn Ásgeirs Jakobsson-
ar rithöfundar. Freyr var gerður út
frá Flateyri en lagði upp á Bíldudal.
Hann komst fljótlega í eigu Milljóna-
félagsins. Ásgeir segir að Flateyring-
ar hafi verið mikilir togaramenn í
upphafí aldarinnar og hafí síðar kom-
ið nokkrum sinnum við sögu togaraút-
gerðarinnar en bátaútgerðin þó geng-
ið betur.
Á kreppuárunum var togarinn
Hafsteinn gerður út frá Flateyri um
tíma. Á árunum milli 1950 og 1960
voru togaramir Guðmundur Júní og
Gyllir gerðir út frá staðnum. Frá
1959 og til ársins 1976, að nýr Gyll-
ir kom til Flateyrar, var eingöngu
stunduð bátaútgerð á Flateyri.
Útgerðarfélag Flateyrar hf., sem
var dótturfélag Hjálms hf., lét smíða
Gylli í Noregi. Útgerðarfélagið hefur
nú verið sameinað móðurfyrirtækinu
og er Hjálmur hf. því eigandi skipsins
Formaður verkalýðsfélagsins Skjaldar
Gæti fækkað um 30-
50 manns á staðnum
STJÓRN verkalýðsfélagsins Skjaldar á Flateyri hefur ekki tekið
afstöðu til sölu togarans Gyllis frá staðnum, meðal annars vegna
þess að formaður félagsins er úti á sjó, en hann er skipverji á
Gylli. Guðmundur Sigurðsson varaformaður félagsins segir að ekki
þurfi að hafa um það mörg orð hvaða áhrif salan hefði á atvinnu-
líf staðarins því með skipinu færu 40% aflaheimilda í botnfiski.
Guðmundur sagði að málið yrði Guðmundur sagði að það hefði
skoðað fyrir eða um helgina og verið lágmarks kurteisi hjá stjórn-
bjóst hann við að það yrði gert í
samvinnu við hreppsnefndina.
Hann sagði að við sölu togarans
fækkaði sjómönnum og fískverka-
fólki. Taldi hann að þetta gæti
haft í för með sér að það fækkaði
um 30-50 manns á Flateyri. Einn
línubátur breytti litlu þar um.
endum fyrirtækisins að kynna
áform sín fyrir áhöfninni á togar-
anum. Það hefði ekki verið gert
og sjómennirnir heyrt um sölu
skipsins í útvarpi þegar skipið var
að leggjast að bryggju í fyrra-
kvöld.