Morgunblaðið - 10.12.1992, Blaðsíða 36
Gámaþjónusta
Norðurlands
Sveitarfé-
lögum gef-
in sorpílát
GÁMAÞJÓNUSTA Norðurlands
hélt nýlega upp á fimm ára af-
mæli sitt og gaf í tilefni af þess-
um tímamótum sveitarfélögum á
Eyjafjarðarsvæðinu ruslaílát til
notkunar utandyra, en með því
móti vill fyrirtækið leggja sitt
af mörkum til að bæta umhverfið
og að jafnframt sýna sveitarfé-
lögunum þakklætisvott fyrir gott
og ánægjulegt samstarf á undan-
förnum árum.
Gámaþjónusta Norðurlands hóf
starfsemi árið 1987 og hefur frá
þeim tíma lagt kapp á að þjóna
fyrirtækjum og stofnunum varðandi
sorplosun og umhverfishreinsun og
hefur fyrirtækið á þessum tíma afl-
að sér þekkingar og reynslu á þessu
sviði.
Starfsemi Gámaþjónustu Norð-
urlands felst í almennri og sér-
hæfðri sorphirðu, leigu, losun og
umhirðu sorpíláta og gáma. Fyrir-
tækið þjónar nú 8 sveitarfélögum á
Eyjaijarðarsvæðinu með gámaleigu
og losun og sér um sorphirðu hjá
5 sveitarfélögum, auk þess að þjóna
fjölda atvinnufyrirtækja á svæðinu.
Á þessum tímamótum í sögu fé-
lagsins kynnti það viðskiptavinum
sínum nýjan og öflugan pressubíl
fyrir húsasorp og gáma, en hann
er af svokallaðri framhleðslugerð.
Kýrin Rós 58 í Miðkoti á Dalvík.
Búnaðarsamband Eyjafjarðar
Morgunblaðið/Benjamín
Hafsteinn Pálsson veitir viðtöku bikar úr hendi Péturs Helgason-
ar formanns BSE en hann átti stigahæstu kú héraðsins.
Rós frá Miðkoti á Dalvík var val-
m besta kýr Ejrjafjarðarhéraðs
Ytri-Tjörnum.
I TILEFNI kúasýninga sem fram
eru á fjögurra ára fresti var efi
KEA nú nýverið.
Á fundinn komu allmargir
bændur úr héraðinu og hlýddu á
fróðleg erfindi þeirra Jóns Viðars
Jónmundssonar ráðunautar Bún-
aðarsambands íslands í nautgripa-
rækt og Guðmundar Steindórsson-
ar framkvæmdasijóra Búnaðar-
sambands Eyjafjarðar, BSE, sem
einnig sýndi litskyggnur af best
byggðu og neysluhæstu kúnum. Á
fundinum voru afhentar viður-
óru í Eyjafirði sl. vor og haldnar
t til bændaklúbbsfundar á Hótel
kenningar fyrir stigahæstu kýmar
í hverri nautgriparæktardeild á
svæði BSE. Við ákvörðun stiga-
gjafar var tekið tillit til bæða sýn-
ingardóms og afurðasemi kúnna.
Eftirtaldar kýr hlutu viðurkenn-
ingu, í Grýtubakkahreppi, Skrauta
frá Hléskógum, í Svalbarðsstrand-
arhreppi, Blesa.frá Gautsstöðum,
í Öngulsstaðahreppi, Drottning
frá Ytri-Tjörnum, í Saurbæjar-
hreppi, Gjörð frá Öxnafelli, í
Hrafnagilshreppi, Fekja frá Holts-
eli, á Akureyri, Lind frá Naustum
11, í Glæsibæjarhreppi, Bára frá
Dagverðareyri, í Öxnadalshreppi,
Skvetta frá Syðri-Bægisá, í
Skriðuhreppi Von frá Dagverðart-
ungu, í Amameshreppi Randa frá
Möðruvöllum 11, í Árskógshreppi,
Sokka frá Ytra-Kálfsskinni, á
Dalvík Rós frá Miðkoti og í Svarf-
aðardalshreppi Vetra frá Brekku.
Viðurkenningar þessar vom
áletraðir veggskildir gefnir af
Mjólkursamlagi KEA.
Rós 58 í Miðkoti á Dalvík
dæmdist besta kýr héraðsins og
veitti eigandi hennar Hafsteinn
Pálsson móttöku veglegum bikar
sem Búnaðarsamband Eyjafjarðar
gaf. Rós 58 er með 121 stig í
afurðaeinkunn og fyrir heildardóm
209 stig.
Undan henni hafa verið keyptir
inn á nautastöð tveir nautkálfar
til kynbóta og heit'a þeir Miðill og
Koti, Miðill hefur þegar verið tek-
in í notkun. Benjamín
Formaður STAK
Launahækkun sjúkra-
liða var aldrei í hættu
Elín Björk Unnarsdóttir og Sig-
urrós Pétursdóttir við fata-
hreinsunina, en litli snáðinn er
fjögurra mánaða gamall sonur
Elínar, Unnar Már.
F AT AHREIN SUNIN Slétt og
fellt í Sunnuhlíð á Akureyri hef-
ur nú tekið upp þá nýbreytni að
þvo umhverfisvænar bleiur. Það
er gert í samstarfi við umboðs-
verslunina Margnota bleiur á
Dalvík sem flytur inn Indi-blei-
una frá Kanada.
(Mj/ Hótel
kSóHarpa
Nýr gistivalkostur
áAkureyri
Auk hagstæðs gistiverðs, njóta
gestir okkar afsláttar á veitingahús-
unum Bautanum og Smiðjunni.
Fastagestum, fyrirtækjum oghóp-
um er veittur sérafsláttur.
HótelHarpa
Góð gisting á hóflegu verði
í hjarta bæjarins.
Sfrni 96-11400
Ath.aðHótelHarpaerekkiísímaskránni.
JAKOBÍNA Björnsdóttir formað-
ur Starfsmannafélags Akureyrar-
bæjar, STAK vildi koma á fram-
færi vegna fréttar í blaðinu í gær
um nýgerðan _ kjarasamning
Sjúkraliðafélags íslands, að þeir
sjúkraliðar sem eru í stéttarfélög-
um innan samflots bæjarstarfs-
manna haldi þeim launahækkun-
um sem þeir fengu síðastliðið vor.
Sú hækkun hafi aldrei verið í
Innflutningur á Indi-bleium
hófst fyrir rúmu ári og hefur bleian
fengið góðar viðtökur og reynst
vel. Margar mæður nota umhverf-
isvænar bleiur með það í huga að
spara sér útgjöld, minnka sorp-
magn og hægja á eyðingu skóg-
anna, að sögn Elínar. Hún segir
bómullarbleiuna endast með bam-
inu og jafnvel á fleiri en eitt bam,
en pappírsbleia sem notuð er í tvær
til þijár klukkustundir eyðist á 500
áram í náttúranni.
Sigurrós Pétursdóttir hjá Sléttu
og felldu sagði að fyrirtækið vildi
efla umhverfisvernd með því að
stuðla að aukinni notkun á um-
hverfisvænum bleium og verði
notkun þeirra almenn sagði hún
koma til gréina að sækja óhreinar
bleiur heim og skila þeim síðan
hreinum, en sá háttur er hafður á
víða erlendis.
í framtíðinni er auk þess stefnt
að því að koma á fót skiptimarkaði
og útleigu á bleium hjá fatahreins-
uninni.
Þvottahúsið við Vesturgötu 12 í
Reykjavík hefur ákveðið að taka
upp hliðstæða þjónustu.
hættu í þeirri vinnudejldu sem félag-
ar í Sjúkraliðafélagi Íslandi hafi átt
í. Félagsmenn í stéttarfélögum innan
samflots bæjarstarfsmanna hafi ver-
ið búnir að fá umrædda hækkun, en
í frétt blaðsins frá í gær kom fram
að gert væri ráð fyrir að sjúkraliðar
á landsbyggðinni sem era í starfs-
mannafélögum haldi hækkun frá því
í vor og starfsfélagar þeirra á lands-
byggðinni í Sjúkraliðafélaginu fái
sömu hækkun frá sama tíma. „Sú
launahækkun var aldrei í hættu,
enda um hana samið af allt öðru
stéttarfélagi," sagði Jakobína.
Hún sagði að sjúkraliðar á Akur-
eyri og víða annars staðar á lands-
byggðinni hafi valið að vera í stéttar-
félagi í sinni heimabyggð og sé það
von stéttarfélaganna að Sjúkraliða-
félag íslands virði þá ákvörðun fagfé-
laga sinna að velja sér stéttarfélag
í heimabyggðum sínum. Þetta ætti
einnig við um önnur starfsgreinafé-
lög sem hafa aðsetur í Reykjavík.
Nefni hún að til að mynda væra rönt-
gentæknar, slökkviliðsmenn, tón-
listaskólakennarar, ljósmæður og
fleiri starfsgreinar innan raða Starfs-
mannafélags Akureyrarbæjar.
-----------» ♦ ♦-----
100 manns með
magakveisu
KVEF var áberandi kvilli meðal
íbúa á Eyjafjarðarsvæðinu í ný-
liðnum mánuði, en 614 manns
voru skráðir ýmist með kvef,
hálsbólgu eða bronkítis sam-
kvæmt skýrslu um smitsjúkdóma
sem fyllt var út af læknum á
Heilsugæslustöðinni á Akureyri.
Þá vora líka yfir eitt hundrað
manns skráðir með magakveisu í
síðasta mánuði, 11 fengu lungna-
bólgu, 26 streptókokkahálsbólgu og
9 vora skráðir með hlaupabólu sam-
kvæmt skýrslunni.
Bómullarbleiur þvegn-
ar hjá Sléttu og felldu
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Happdrættisvinningar afhentir
Verðlaunahafar í happdrætti Ferðakaupstefnu Vestur-Norðurlanda, sem
haldin var á Akureyri í september, fengu verðlaun sín afhent nú fyrir
skömmu. Frá vinstri á myndinni er Inga Sólnes, framkvæmdastjóri Ferða-
kaupstefnunnar, Helgi Jón Jóhannesson, sem hlaut nýútkomna landabréfa-
bók um Grænland, Björn Jónsson, sem tók við verðlaunum fyrir Halldóra
Steindórsdóttur, en hún fékk helgarferð fyrir tvo til Reykjavíkur, Elmar
Sveinsson, sem fékk listaverkabækur um færeyska listmálarann Mikines
og færeyska list, og Anna Fr. Blöndal, sem fékk handprjónaða færeyska
lopapeysu.
Embla vígð í Kiwanishreyfinguna
Kiwanisklúbburinn Embla á Akureyri var fyrir skömmu vígður
formlega inn í Kiwanishreyfinguna við afhöfn á Hótel KEA. Móður-
klúbbur Emblu er Kiwanisklúbburinn Súlur í Ólafsfirði. Embla er
ijórði kvennaklúbburinn í umdæminu Ísland-Færeyjar, fyrir eru
Harpa, Reykjavík, Rósan, Færeyjum og Góa í Kópavogi.
»