Morgunblaðið - 10.12.1992, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1992
45
svæðinu til þess að þeir geti veitt
þær sjálfír og selt í búðir? Vilja
þeir kannski hefja sölu á veiðileyf-
um? Kannski er enginn eðlismunur
á því að selja veiðileyfi í Þingvalla-
vatn fyrir landi þjóðgarðar og að
selja veiðileyfí á rjúpur í þjóðgarð-
inum sjálfum.
Eitt af því sem stundum heyrist
er að ekki megi raska jafnvægi í
lífríkinu, orðið vistkerfí kemur
mjög oft fyrir og menn telja sig
vita að minnsta breyting í stofn-
stærð einnar dýrategundar hafi
I áhrif upp og niður allan fæðupýr-
amídann. Hvert hið endanlega og
guðdómlega jafnvægi svo er getur
enginn sagt til um. Ef ekki á að
hafa manninn inni í þeirri mynd
verðum við íslendingar að biðja
guð að hjálpa okkur.
Akstur og umgengni er nokkuð
sem margar sögur eru sagðar af
veiðimönnum til hnjóðs. Rjúpna-
skyttan er í hugum sumra einhver
sem böðlast á fjallatrukk eða fjór-
hjóli um viðkvæmar heiðalendur
og vinnur stjórtjón á umhverfínu.
A það skal minnt að ijúpna-
tíminn hefst um miðjan október,
skammdegið er að skella á, sá sem
I ætlar í einhver ævintýri á bílnum
sínUm áttar sig fljótt á því að tími
til veiða verður lítill. Ég játa það
I að ég þekki lítið til notkunar vél-
sleða við ijúpnaveiðar en mér hef-
ur alltaf fundist að lítið sé um ijúp-
j ur þar sem snjór er nógu mikill
fyrir sleða. Þó kann að vera að á
vissum landsvæðum sé þetta tilfell-
ið. Fjórhjól hafa mikið verið út-
hrópuð sem mikilvirk við ijúpna-
veiðar. Sumir virðast halda að ekki
sé um annað að ræða en að aka
yfír stokka og steina, gljúfur og
fjöll með mundaða byssuna og salla
niður ijúpur. Nú vil ég upplýsa
fólk um það að fjórhjólum er ekki
hægt að aka nema með báðar
hendur á stýrinu og augun á því
sem aka á um. Pjórhjól eru ekkert
annað en létt, lipur og hagkvæm
útgáfa af jeppa. Svo lengi sem
heimilt er að flytja menn og veiði-
j tæki með vélknúnum farartækjum
til og frá veiðistað er fjórhjólið
miklu umhverfísvænna en torfæru-
( bíll. Fjórhjólið er fyrir mér hreyfan-
leg birgðastöð þar sem ég geymi
nestið mitt og kaffibrúsann ásamt
sjúkrakassa og úlpu. Að auki er
notkun fjórhjóla svo langt frá því
að vera almenn að hlægilegt er
að tala um þau sem umhverfis-
vandamál. Einnig má benda á að
fjórhjólið sem slíkt er ekkert verr
innrætt en ökumaðurinn. Hver eru
þessi náttúruspjöll af völdum
fuglaveiða? Kannski tóm skot-
hylki? Flestir tína þau upp og setja
á þann stað sem þau voru á fyrir
notkun. Þau tómu' skothylki sem
týnast hverfa úr augsýn á nokkr-
um mánuðum. Þetta atriði er ákaf-
lega léttvægt í samanburði við t.d.
eina girðingu eða eitt bannskilti.
Afréttir, fólkvangar
og friðlönd-
Síðasta atriðið sem brýnt er að
ræða er afnot íslendinga af afrétt-
um, fólkvöngum, þjóðgörðum og
friðlöndum. Fyrst af öllu þarf ræki-
lega að koma í veg fyrir misskiln-
ing á báða bóga um það hvað má
og hvað ekki má. Bláfjallafólk-
vangur er til, má veiða ijúpur þar?
Friðland að fjallabaki er til, er
óhætt að veiða ijúpur þar, má ég
tína þar krækiber? Má ég tína
sveppi á Þingvöllum? Á hveijum
hvílir sönnunarbyrðin fyrir því
hvort ég er á afrétti eða heima-
landi einhvers hrepps?
Ég veit að ég mæli hér fyrir
munn fjölmargra íslenskra útivist-
armanna sem flestir eru löghlýðnir
og seinþreyttir til vandræða en ég
hef það á tilfinningunni að ef við
höldum áfram að þegja og látum
þröngva upp á okkur loðnum reglu-
gerðum og lögum, boðum og bönn-
um af firrtu öfgafólki verði ákaf-
lega leiðinlegt að búa á íslandi.
Ég hef fengið nóg af rangfærslum
og „af því bara“ rökum og skora
á menn og konur, sérfræðinga og
leikmenn að láta í sér heyra, dug-
lega, svo að stjómmálamenn lands-
ins skilji það að það eru ekki bara
öfgasinnaðir grænfriðungar sem
hafa áhuga á umhverfismálum.
Höfundur er deildarstjóri í
Hafnarfirði og veiðimaður.
Fyrirlestur um galdra
MATTHÍAS Viðar Sæmundsson,
bókmenntafræðingur, heldur
föstudaginn 11. desember fyrir-
lestur í Nýlistasafninu við Vatns-
stíg, um galdra og galdrastafi.
Matthías mun einkum fjalla um
efni nýútkominnar bókar, Galdrar
á íslandi, sem geymir, auk viðamik-
illar ritgerðar Matthíasar Viðars um
kukl og heiðna þjóðmenningu,
merkasta galdrahandrit sem varð-
veist hefur, íslenskt kennslurit í
galdri frá 17. öld, sjálfri galdraöld-
inni.
j Matthías mun koma víða við og
er óhætt að hvetja fólk til að mæta,
hvort sem áhuginn beinist að kukli,
| heiðnum sið eða sögu þjóðarinnar.
Þessi fyrirlestur er sá þriðji í
fyrirlestraröð sem Nýlistasafnið
| stendur fyrir í vetur, en áður hafa
þeir Hannes Lárusson, Hannes
Hólmsteinn Gissurarson sótt safnið
heim. Fyrirlestur Matthíasar Viðars
Sæmundssonar er öllum opinn.
♦ ♦ ♦----
Loðin rotta
á Selfossi
REYKVÍSKI dans- og söngva-
flokkurinn Loðin rotta leikur í
Gjánni á Selfossi föstudags- og
laugardagskvöld 11. og 12. des-
ember.
Hljómsveitinni til aðstoðar eru
fjórar dansmeyjar, ljósavinnuflokk-
ur, búningahönnuðir og hljóðmeist-
arar.
I
I
i
ítölsk leðurstígvél
Teg. 5907
Litir: Ljósbrúnt, dökkblátt, svart
m/vínrauðu.
Stærðir: 36-4T/z (hálf númer).
Verð aðeins kr. 9.950,-
Staðgreiðsluafsláttur-Póstsendumsamdægurs. B (j^
sk/bi MÍLANÖ
KRINGLUNNI8-12 S. 689345
LAUGAVEGI 61-63, SlMI 10665
Púlsinn
16 ára afmæli Geimsteins hf.
AFMÆLIS- og útgáfutónleikar
verða fimmtudaginn 10. desem-
ber á Púlsinum í tilefni 16 ára
afmælis útgáfufyrirtækisins
Geimsteins hf. og útkomu geisla-
disks Rúnars Júlíussonar sem
ber heitið Rúnar & Otis. Sér-
stakur gestur kvöldsins verður
Bubbi Morthens.
Tónleikamir verða sendir út í
beinni útsendingu á Bylgjunni milli
kl. 22 og 24 í tónlistarþættinum
íslenskt í öndvegi — Púlsinn á
Bylgjunni í boði Opus Allt við-
skiptahugbúnaðar og íslenskrar
forritaþróunar hf.
Það má með sanni segja að
Rúnar Júlíusson eigi langan og
ævintýralegan feril í rokkinu sem
hófst með stofnun Hljóma, vinsæl-
ustu hljómsveit sjöunda áratugar-
ins og síðar Trúbrots. Þá hefur
Rúnar staðið fyrir útgáfustarfsemi
í 16 ár sem hófst með stofnun
Geimsteins-hf. auk þess að reka
eigin hljómsveit að ógleymdum
þætti hans í Lonlí blúbojs. Þegar
sumir héldu að nú væri Rúnar loks-
ins búinn að fá nóg af rokkinu kom
hann öllum á óvart með samstarfí
sínu við Bubba Morthens sem leiddi
til stofnunar rokksveitarinnar
GCD. Nú er Rúnar kominn með
nýjan geisladisk á markaðinn sem
heitir Rúnar & Otis en hún er af-
Ekki er vitað til að teljandi tjón
hafí hlotist af veðrinu sem var víða
um land. Innanlandsflug lá niðri
fram yfir klukkan 16 en eftir það
tókst Flugleiðum að komast til
allra áfangastaða annarra en ísa-
fjarðar.
Víða á vegum sunnanlands og
rakstur samstarfs hans og Larry
Otis, gítarleikara frá Bandaríkjun-
um.
Otis leikur með hljómsveit Rún-
ars Júlíussonar á þessum tónleik-
um en auk þerra félaga leika í
hljómsveitinni Tryggvi Hiibner,
gítar, Jón Ingólfsson, trommur, og
Hjörleifur Ingólfsson á bassa.
vestan gekk umferð erfíðlega með-
an veðurhæðin var hvað mest enda
fylgdi rigning og hætt við að bflar
fykju úr af hálum vegunum sem
veittu lítið grip. Hvassviðrið varð
hvað mest á Snæfellsnesi eftir því
sem næst verður komist en ekki
hlutust af teljandi vandræði.
Flutningabíll fauk á hliðina
FLUTNINGABÍLL fauk á hliðina á veginum undir Hafnarfjalli í
sunnan hvassviðri sem gekk yfir landið fyrrihluta dags á þriðju-
dag. Hvorki ökumann né farþega sakaði. Bíllinn, sem var tómur,
skemmdist nokkuð og var honum, að sögn lögreglu í Borgarnesi,
lyft á réttan kjöl eftir hádegi þegar veður lægði.
► Húsgögn
Meöal flnnars eiyin framleiOsla.
Glugoatjaldðefni
og húSQflgnaáhiæOi.
Ljósabönaðuí
Gtiljðs og inniljös.
Lítiö viö og
gleöjið augað !
Hönnun í hávegum...
FAXAFENI 7 108 REYKJAVÍK SÍMI 91 687733