Morgunblaðið - 10.12.1992, Side 61
seer aasMaaaaíi
MORGUNBLAÐIÐ
WTTOMI aiGAjaviuoflOM
fPflC/ ff fff FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER T99Z
oa
61
KNATTSPYRNA
m M A
Saga IA á myndbandi
Skagamenn hafa gefið út mynd-
band sem nefnist Á sigurslóð
þar sem rekin er saga knattspym-
unnar á Akranesi síðustu fjóra ára-
tugi. Skagamenn urðu fyrst meist-
arar 1951, fyrst félaga utan
Reykjavíkur, og síðan þá hefur
knattspyrnulið bæjarins þrettán
sinnum orðið meistari, síðast í sum-
ar, þannig að frá mörgu er að segja.
Þetta er í fyrsta sinn sem íþróttafé-
lag gefur út sögu sína á myndbandi.
Að sögn forráðamanna Knatt-
spymufélags ÍA var ætlunin að
gera myndband um síðustu tvö árin
en síðar kom í ljós að betra væri
að segja söguna í heild og fylgja
liði félagsins frá árinu 1951 til
dagsins í dag. Rætt er við nokkra
af þekktustu leikmönnum félagins
og rifja þeir upp eftirminnileg atvik
liðinna ára. Einnig em sýnd brot
GOLF
Faldo og
Price vikíð
úr keppni
DAVID Frost frá Suður Afríku
sigraði á Sun City golfmótinu
■ Suður Afríku um síðustu
helgi og fékk fyrir vikið eina
rnilljón dqllara, eða tæpar 63
milljónir ÍSK. Þetta er í þriðja
sinn sem Frost sigrar í þessu
móti og hefur enginn leikið
Það eftir. Tfu kylfingum er
boðið til mótsins en að þessu
sinnyoru þeir aðeins átta
síðasta hringinn.
Það bar helst til tíðinda í Sun
City að tveimur af fremstu
kylfingum heims var vísað úr
keppni eftir þriðja hringinn og er
það í fyrstu sinn í ellefu ára sögu
keppninnar að kylfíngi er vikið úr
keppni. Nick Faldó frá Bretlandi,
sem er efstur á heimsafrekalistan-
um, var vísað úr keppni vegna þess
að hann skrifaði undir kortið sitt
með röngu skori. Faldo lék síðustu
holuna á fimm höggum en Bem-
hard Langer, sem lék með honum,
skrifaði fjögur högg á holuna og
Palda skrifaði undir.
Þegar Faldo sá mistökin lét hann
strax vita og menn fóm að velta
því fyrir sér hvemig taka ætti á
málinu en Faldo benti forráða-
mönnum mótsins á að það væri
aðeins ein rétt leið. „Það var ekki
um neitt annað að gera en láta
dæma sig úr keppni," sagði Faldo.
Nick Price, frá Zimbabwe, var'
nieð forystu ásamt David Frost
eftir þijá hringi. Á 11. braut var
auglýsingaspjald fyrir honum og
kylfusveinn hans færði það. Sam-
kvæmt staðarreglum er slíkt bann-
að. Frost lék með honum og benti
honum strax á að hann gæti feng-
'ð lausn og fært boltann þannig
að spjaldið væri ekki í veginum.
Price hlustaði ekki á hann, sló og
fékk dæmd á sig tvö vítahögg fyr-
>r vikið. Frost skrifaði fyrst fimm
é skorkortið og skrifaði Price undir
það. Dómari sagði Frost að skrifa
sjö högg og gerði hann það en þá
þurrkaði Price undirskrift sína út
°g skilaði kortinu án undirskriftar.
Fyrir það var honum vikið úr
keppni.
„Eftir að ég hafði kælt mig að-
e>ns sá ég að rétt væri að halda
dfram keppni og viðurkenna þessi
tvö vítahögg, en dómarinn vildi
ekki leyfa mér það, sagði að ég
væri búinn að skila kortinu og það
. væri ekki aftur snúið. Það hefur
ulltaf verið skemmtilegur andi í
þessu móti og gaman að taka þátt
! því, en dómarinn hagaði sér eins
°g gamall og úrillur skólastjóri,"
sagði Price.
lorgunblaðið/K
Gunnar Sigurðsson afhendir fýrstu þijár myndbandsspólumar. Frá vinstri
Gísli Gíslason, Ellert B. Schram, Eggert Magnússon og Gunnar.
úr mörgum leikjum frá þessum
tíma.
Gunnar Sigurðsson formaður
Knattspymufélags ÍA afhenti Ell-
erti B. Schram, forseta ÍSÍ, Gísla
Gíslasyni, bæjarstjóra á Akranesi
og Eggerti Magnússyni, formanni
KSÍ, fyrstu þijár myndbandsspól-
umar á mánudaginn. Við það tæki-
færi sagði hann að útgáfan kostaði
hátt á aðra milljón króna og væri
von þeirra að útgáfan yrði ekki
baggi á félaginu. Myndbandið kost-
ar 2.900 krónur og verður gengið
með það í hús á Akranesi og selt
á bensínstöðvum Olís í Reykjavík.
Lítill strákur kr. 850. Lítill trúður kr. 980.
Lítill Hans kr. 980. Lítil Gréta kr. 1.280.
NÝTT GREIÐSLUKORTATÍMABIL
DÚKKUSKÁPURINN
Kringlunni (milli Kókó og Body Shop).
r
JILL
Hönnun: King, Mironda, Arnoidi
GIBIGIANA
Hönnun: Achille Costiglioni
PIERROT
Hönnun: Afro e Tobio Storpo
l
ARIETTA
Hönnun: Tobio Storpo
MISS SISSI
Hönnun: Philippe Strock
FRISBI
Hönnun- Ashille (osliglioni
Verslun okkar
ALESSI
í Kringlunni
opin um helgina
Borgartúni 29, sími 620640.
J
-—'
Með aðstoð niu stúlkna og leiðbeinanda þeirra
kennir Barbie allt það nýjasta í dansi í dag.
Frábært danskennslumyndband með íslensku tali
fyrir stelpur á öllum aldri.
Skemmtileg jólagjöf I
------
----- PÓSTKRÖFUSÍMI:600943 ,S-K-Í-F-A-N
KRINGIAN SÍMI:600930 - STÓRVERSLUN LAUGAVEGI 26 SÍMI: 600926
LAUGAVEGI96 SÍMI: 600934 -EtÐISIORGSÍMI: 612160