Morgunblaðið - 10.12.1992, Side 64
ffgtmMfifctfr
MORGVNBLAÐIÐ, AÐALSTRÆTI 6, 101 ltEYKJA VlK
SlMBRÉF
StMl 691100, su
691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1992
VERÐ I LAUSASOLU 110 KR.
Nafnvextir 2,7%
hærri en vextir
verðtryggðra lána
RAUNVEXTIR á óverðtryggðum skuldabréfum hafa á árinu verið
að meðaltali 2,7% hærri en á verðtryggðum skuldabréfum. Nafnvext-
ir hafa verið að meðaltali 12,3% umfram framfærsluvísitölu á árinu
en vextir verðtryggðra bréfa hafa verið 9,6%, samkvæmt upplýsing-
um Seðlabankans. Bankarnir eru nú að undirbúa vaxtaákvarðanir í
kjölfar nýrrar verðbólguspár Seðlabankans en þar er gert ráð fyrir
að verðbólgan vaxi mjög í febrúar.
Ólafur K. Ólafs, viðskiptafræð-
ingur í peningamáladeild Seðla-
bankans, segir að það misræmi sem
skapast hafi á vöxtum af verð-
tryggðum lánum og óverðtryggðum
hafí orðið til vegna þess að vextim-
ir hafí verið lítið breyttir frá því í
vor þó verðbólgan hafí verið sáralít-
il. Ragnar Ónundarson, fram-
kvæmdastjóri hjá íslandsbanka,
segir óheppilegt að miða við fram-
færsluvísitölu í slíkum samanburði.
Allar vaxtaákvarðanir séu miðaðar
við lánskjaravísitölu og því eðlilegra
að miða við hana. Hann segir að
frá því í maí að síðustu kjarasamn-
ingar voru gerðir hafí íslandsbanki
haft mjög stíft samræmi milli
ávöxtunar af verðtryggðum og
óverðtryggðum lánum. Aldrei hafí
munað meiru en 1% þar á. Ólafur
>segir að Seðlabankinn hafí miðað
við framfærsluvísitölu frá því breyt-
ingar voru gerðar á lánskjaravísi-
tölunni. Hins vegar sé munur á
vaxtakjörum jafn mikill þó miðað
sé við lánskjaravísitölu. Þannig hafí
nafnvextirnar á þann mælikvarða
verið 10% í fyrra en 11,9% í ár en
verðtryggðu vextirnir verið 9,1% í
fyrra en 9,2% í ár.
Ragnar Önundarson segir að til-
efni sé orðið til vaxtahækkana.
Útlit sé fyrir 3,6% verðbólgu næstu
sex mánuði og verðbólgan verði
5-6% í febrúar til apríl. Hann segist
reikna með að íslandsbanki hækki
vexti á næsta vaxtabreytingadegi,
sem er á morgun. Hann sagðist þó
telja Iíklegt að litið yrði fram hjá
vaxtatoppinum eftir áramót og
vaxtaákvarðanir frekar miðaðar við
spár um verðbólguna næstu sex
mánuði. Landsbankinn og Búnaðar-
bankinn munu hins vegar ætla að
bíða með ákvarðanir sínar.
Morgunblaðið/Sverrir
Katrín Harðardóttir, dýralæknir, bólusetur tíkina Freyju með
aðstoð eiganda hennar, Ivars Jóhannssonar.
Biðröð eftir bólusetningu
BÓLUEFNI gegn smáveirusótt, sem greindist í tveimur hundum
hér á landi fyrir skömmu, hefur nú borist dýralæknum um allt
land. Mikið ádag var á starfsfólki Dýraspítalans í Víðidal í gær.
Aðeins bárust þúsund skammtar af bóluefninu til landsins, en
von mun vera á meira bóluefni næstu daga.
Steinn Steinsson, dýralæknir á
Dýraspítalanum, kvaðst mæla
með að allir hundar á landinu
verði bólusettir gegn veikinni.
„Því miður höfum við orðið að
vísa fólki frá í dag, en það geng-
ur yfir og allir komast að um
síðir," sagði hann.
Hundaeigendum er ráðlagt að
láta hunda sína vera sem mest
inni til að forðast smit — einnig
eftir að þeir hafi fengið sprautu
— því það tekur dýrið um þrjár
vikur að mynda mótefni gegn
veirunni. Unnt er að fá bólusetn-
ingu hjá dýralæknum eða á Dýra-
Kostar aðgerðin 1.800 krónur.
Bréf í Sameinuðum verk-
tökum á almennan markað
Eigið fé félagsins tæpir 2,5 milljarðar. Miðað verður við 7,2-falt gengi á hlutabréfunum
Sovéska sendiráðið
Símtöl vam-
arliðsins
voru hleruð
ATHUGUN á árunum 1969-1970
leiddi í ljós að í sovéska sendiráð-
inu voru í notkun tæki til að hlusta
á simtöl, m.a. frá varnarliðinu á
Keflavíkurflugvelli. Kemur þetta
fram í riti Péturs J. Thorsteins-
sonar sendiherra, „Utanríkisþjón-
usta Islands og utanríkismál".
í kafla um starfsemi sendiráðs
Sovétríkjanna 1956-1975 segir að
þessi athugun hafi verið gerð með
aðstoð erlendra sérfræðinga. Eftir
að í ljós kom að Sovétmenn hleruðu
hér samtöl voru gerðar tæknilegar
ráðstafanir til að koma í veg fyrir
möguleika á slíkum hlerunum. í bók-
inni segir einnig að sovéska sendiráð-
ið hafí sótt fast að fá leyfí fyrir stutt-
bylgjuradíóstöð til fjarskipta við ut-
anríkisráðuneytið í Moskvu. Hins
vegar hafí verið ákveðið að veita
ekki slíkt leyfí og það tilkynnt sov-
éska sendiráðinu í október 1972.
Jólatré
ódýrust í
Reykjavík
Á höfuðborgarsvæðinu er
meðalstór normansþinur, 126 -
150 sm, ódýrastur hjá Skátafé-
lagi Vogabúa í Grafarvogi á
kr. 1.940 og dýrastur 2.700 kr.
í Söluskála Landgræðslusjóðs
samkvæmt könnun blaðsins.
Næstu stærð fyrir ofan er
hægt að fá á bilinu 2.640 til 3.400
kr. Verðmunur er tæpar 800 kr.
í báðum tilvikum.
Sjá blaðsíðu 38: Verðkönnun
vikunnar.
VERÐMAT Verðbréfamarkaðar íslandsbanka hf. á hlutabréfum í Sam-
einuðum verktökum gerir ráð fyrir að raunhæft sé að miða við 7,2-
falt gengi á bréfunum, en nafnverð hlutafjár félagsins er 310 milljón-
ir króna. Samkvæmt þessu mati væru öll bréfin metin á rúma 2,2
milljarða króna, sem samsvarar um 80% af hreinni eign félagsins, eða
85% af bókfærðu eigin fé þann 30. september sl. Þetta mat var unnið
fyrir stjórn' Sameinaðra verktaka hf. sem undanfari þess að viðskipti
með hlutabréf félagsins á almennum hlutabréfamarkaði geti hafist.
Rúmlega 200 hluthöfum Sameinaðra verktaka hafa nú verið send gögn
þau sem lögð eru til grundvallar þessu mati, en það er skýrsla VIB
um mat á verðmæti hlutabréfanna,
fyrir fyrstu níu manuði þessa árs.
í uppgjöri Endurskoðunar hf. sem
undirritað er af Ólafi Nilssyni, kemur
fram að þar sem reikningsskil ís-
lenskra aðalverktaka sf. og Dverg-
hamra sf. 30. september 1992 liggi
ekki fyrir, séu eignarhlutar félagsins
bókfærðir á því verði sem svari til
hlutdeildar félagsins í bókfærðu eigin
fé þeirra félaga í árslok 1991.
I bréfí stjómar félagsins sem fylg-
ásamt uppgjöri Endurskoðunar hf.
ir ofangreindum gögnum og undirrit-
að er af Jóni Halldórssyni, stjómar-
formanni Sameinaðra verktaka hf.
segir m.a. „Ljóst er að staða félags-
ins er sterk, hagnaður félagsins nam
kr. 28.439.810 (fyrstu níu mánuði
ársins, innsk. blm.) og eigið fé félags-
ins kr. 2.475.927.931. Hagnaður fé-
lagsins hefur undanfarin ár að meg-
inhluta byggst á tekjum frá íslensk-
um aðalverktökum sf., en þar gætir
nú mikillar óvissu um framtíðina.
Vaxtatekjur lækka talsvert á milli
ára vegna lækkunar á bankainnstæð-
um og kemur þar til útgreiðsla til
hluthafa í janúar sl. (900 milljónir
króna, innskot blm.).“
Síðar segir: „Samkvæmt ákvæð-
um hlutafélagalaga má ekki leggja
hömlur á viðskipti með almenn hluta-
bréf milli íslenskra aðila í hlutafélög-
um þar sem hluthafar eru 200 eða
fleiri. Hluthafar í Sameinuðum verk-
tökum hf. eru nú orðnir yfír 200
talsins og verður ákvæðum sam-
þykkta félagsins um forkaupsrétt því
ekki beitt meðan svo er.
Eðlilegasti vettvangur fyrir við-
skipti með hlutabréfin er hinn svo-
neftidi Opni tilboðsmarkaður, OTM.“
Sjá ennfremur Af innlendum
vettvangi á miðopnu.
Fimmti eldsvoðinn á árinu vegna sjónvarpsviðtækis
Mæðginin
björgnðust
naumlega
Morgunblaðið/Emilla
Helga Guðrún og Sveinn Kristjánsson, nágranni hennar, við sjón-
varpstækið og það sem eftir er af myndbandstækinu.
HELGA Guðrún Hlynsdóttir
bjargaðist í fyrrinótt ásamt
syni sínum þegar eldur kom
upp í myndlykli í íbúð henn-
ar og eitraður reykur barst
um íbúðina. Ekki mátti tæp-
ara standa, þvf Helga og
sonur hennar voru í fasta
svefni þegar lögreglu bar
að.
Þetta er fimmti eldsvoðinn
á árinu frá sjónvarpsviðtækj-
um. Eldsvoðar af völdum sjón-
varpsviðtækja eru mun tíðari
hér á landi en t.a.m. í Dan-
mörku. í meðaltalssamanburði
sem gerður hefur verið á milli
Norðurlandanna á eldsvoðum
út frá rafmagni, kemur fram
að miðað við eina milljón við-
tækja verða að meðaltali fjórir
eldsvoðar út frá sjónvarps-
tækjum í Danmörku en sautján
á íslandi.
Leifar myndlykilsins úr
brunanum eru nú til rannsókn-
ar hjá Rafmagnseftirliti ríkis-
ins.
Sjá fréttir á bls. 26.