Morgunblaðið - 15.12.1992, Blaðsíða 4
iÍÖKGUNBLÁÐlÍ) ÞRIÐJUDÁGKR Í5. 'dIíÍSEMBER 1992
4
A
Afengi hækkar um
1,51% að meðaltali
VERÐ á áfengi þar á meðal bjór
hækkaði að meðaltali um 1,51%
um helgina. Þá hefur tóbak verið
hækkað að meðaltali um 6,3%.
Ef borið er saman verð á nokkrum
algengum tegundum sterkra og
léttra vína kemur í ljós að miðað við
1. desember 1991 hafa þær hækkað
um allt að 11,9%. Einstakar tegund-
Innbrot
tvöfaldast
FJÖLDI innbrota í Garðabæ og
Hafnarfirði hefur nær tvöfaldast
á þessu ári frá því síðasta.
Nú hafa borist yfir 450 kærur
um innbrot i bæjunum tveimur.
Lögreglan segir erfitt að koma auga
á skýringar aukningarinnar, helst
sé talið að rekja megi innbrotin til
verra efnahagslegs ástands.
ir léttra vína hafa þó lækkað. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Hagstof-
unni hækkaði framfærsluvísitalan
um 0,9% frá 1. nóvember 1991 til
1. nóvember 1992.
í frétt frá Áfengis- og tóbaks-
verslun ríkisins segir, að verð á víni
og sterkum drykkjum hafi verið
breytt til samræmis við þær breyt-
ingar, sem orðið hafa á gengi ís-
lensku krónunnar eftir 1. september
síðastliðinn. Það sama á við um ís-
lenskan bjór, þó með því fráviki að
3% ígíldi jöfnunargjalds er fellt nið-
ur, en jöfnunargjald á að falla niður
af öllum iðnaðarvörum um næstu
áramót. Einnig hafa nokkrir fram-
leiðendur lækkað vöru sína.
Verðbreyting á tóbaki er til sam-
ræmis við gengisbreytingu en auk
þess er magnskattur á tóbaki hækk-
aður um 2%. Tóbak er að mestu
keypt fýrir Bandaríkjadali en verð
dalsins var 56,78 krónur í janúar
en er nú 63,06 krónur. Meðalhækk-
un á tóbaki er því 6,3%.
V^íðbi^ yting á
áfengi m tóbaki
Verð
1-des. '9
Fitter sígai
225,
Fauna vindl
fsl. brenniviii, 70 cl
1.700,-
Smirnoff vodh I
2.210,-
Eldur is vodka
2.180,- 2.330,-
Pólskur vodka
1.980,-
St. Emilion rauðvín
1.090,- í
Piat Bea
1.020,-
Hocheimel
780,
Chablis B
590,-
Egils gull
790,
Lövenbrði
860,-
lækkaði Aifeekkun
y / (%)
VEÐUR
VEÐURHORFUR I DAG, 16. DESEMBER
YFIRUT: Milli Jan Mayen og Noregs er 953 mb djúp og víðáttumikil lægð sem
hrevfist suðvestur og síðar suður yfir Norður-Grænlandi er 1.030 mb hæð.
SPÁ: Norðan- og norðvestan stormur um mestallt land og sumstaðar rok um
morguninn. Um og uppúr hádegi fer heldur að lægja um landið austanvert
en áfram verður stormur eða rok vestan til á landinu. Snjókoma verður fyrir
norðan en él sunnan heiða. Búast má við miklum skafrenningi, einkum norðan-
lands, frost verður 3-8 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Minnkandi norðaustanátt. éljagangur á Norður-
og Austurlandi og norðantil á Vestfjörðum og einnig við suöurströndina en
nokkuð bjart veður vestanlands. Frost 5-10 stig.
HORFUR Á FIMMTUDAG: Hæg norðaustanátt með smáéljum á Norður- og
Austurlandi en annars úrkomulaust. Frost 6-12 stig.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.46, 16.30, 19.30,
22.30.Svars(mi Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
o & * A Sunnan, 4 vindstig. Vindðrin sýnir vindstefnu og fjaðrirnar vindstyrk,
Heiðskírt Léttskýjaö Hálfskýjað Skýjaö Alskýjaö heil fjöður er 2 vindstig..
/ / / * / * * * * • X * 10° Hitastig
/ / / / / * / / * / ♦ * * * * V V V V Súid J
Rigning Slydda Snjókoma Skúrír Slydduél É1 = Þoka '
FÆRÐÁ VEGUM: (Kl. 17.30 í gær)
Sæmileg færö er é vegum í nágrenni Reykjavíkur og fært um Hellis-
heiði og Þrengsli en þar er töluveröur skafrennlngur. Þungfært er hins
vegar um Mosfellsheiði og víöa ( uppsveitum Borgarfjarðar og Árnes-
sýslu. Fært er meö suðurströndinni og austur á Firði og er fært um
Fjaröarheiði og Oddsskarð. Ófært er hins vegar um Breiðdalsheiði,
Vatnsskarð eystra og Möðrudaisöræfi. Töluverður skafrenningur er víða
á vegum ó Vesturlandi en þó er fært fyrir Hvalfjörð, um vegi á Snæfells-
nesi og um Heydal f Búðardal. Þar fyrir vestan eru vegir illfærir eða
ófærir. Það er fært frá Brjánslæk til Patreksfjarðar og þaðan til Bildu-
dals. Flestir vegir á norðanverðum Vestfjörðum og i Strandasýslu eru
ófærir. Ófært er um Holtavörðuheiði og má segja að vegir ó norðan-
verðu landinu séu víðast ilifærir eða ófærir vegna snjóa.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
ígrænnilínu 99-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 i gær að ísl. tíma
hhi veður
Akureyri +6 snjókoma
Reykjavlk +6 skýjað
Bergen 7 súld
Helsinki +2 «kýjað
Kaupmannahöfn 8 þokumóða
Narssaresuaq +22 helðakírt
Nuuk +16 léttskýjað
Osló 1 þoka
Stokkhólmur 1 slydda
Þórshöfn 3 skýjað
Algarve
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Frankfurt
Glasgow
llamli nm
HamDorg
London
Los Angeles
Lúxemborg
Madríd
Malaga
Mallorca
Montreal
New York
Oriando
Perís
Madelra
Róm
Vft*
Washlngton
Wlnnlpeg
16 léttakýjað
9 alskýjað
12 Mttakýjað
9 alakýjað
+2 þokumóða
6 þokumóða
alskýjað
skýjað
skýjað
9 skýjað
7 helðskírt
4 þokumóða
8 láttskýjað
16 akýjað
16 akýjað
f4 léttskýjað
vantar
10 þokumóða
6 alskýjað
16 skúr 6 síð. klst.
14 heiðskíit
4 rigning
vantar
+8 þokumóða
f DAG kl. 12.00
Heimild: Veöuratofa íslands
(Byggt á veöurspá kl. 16.15 í gær)
Lítið um óhöpp í
aftakaveðri sem
gekk yfir landið
AFTAKAVEÐUR var víða um land yfir helgina, þó helst um Norð-
austurland. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu íslands er
búist við miklu hvassviðri um allt land fram eftir degi í dag og
sums staðar er spáð aftakaveðri. Búist er við að dragi úr veðrinu
í kvöld og á morgun.
Bíll fauk inn í garð
Slæmt v.eður var á Norðaustur-
landi á sunnudag. Á Siglufirði var
mjög hvasst á sunnudagsmorgun.
Þar fauk bíll af bílastæði inn í
garð eigandans. Þá fuku þakplötur
af húsi í bænum. í gær var fólk
að grafa bíla sína upp úr snjónum.
Á sunnudagskvöld gekk veðrið
aðeins niður þó að enn hafi þar
verið slæmt veður í gærdag.
200 manns veðurtepptir
Frá ísafirði var svipaða sögu
að segja. Þar var enn ófært milli
Bolungarvíkur og ísafjarðar í
gær. Þá urðu um 200 manns veð-
urtepptir í Hnífsdal eftir dansleik
í félagsheimilinu þar aðfaranótt
sunnudags. Fólkið komst svo aftur
til ísafjarðar á sunnudagsmorgun,
þegar búið var að ryðja Eyrarhlíð,
sem liggur á milli ísafjarðar og
Hnífsdals.
Helga RE fékk á sig brot
Rækjutogarinn Nökkvi HU frá
Blönduósi fylgdi Helgu RE til
hafnar á Skagaströnd á sunnudag
eftir að Helga fékk á sig brotsjá
á miðunum. Trollið fór í skrúfuna
og siglingatækin urðu óvirk. Skip-
vetjum tókst að ná trollinu að
mestu úr skrúfunni þannig að
Helga gat siglt í land fyrir eigin
vélarafli. Vegna þess hve veðrið
var vont og siglingatækin óvirk
fýlgdi Nökkvi Helgu til hafnar og
gekk ferðin hægt en áfallalaust.
Ó.B.
Samkomum frestað
Á Egilsstöðum var veðrið einnig
mjög slæmt, en engin óhöpp urðu
vegna þess. Þá var öllum samkom-
um á Sauðárkróki frestað um helg-
ina. Þar hélt fólk sig einnig innan-
dyra og engin óhöpp urðu vegna
veðursins.
Undir Hafnarfjalli í Borgarfirði
voru um 11 bílar skildir eftir á
laugardagskvöld, þar sem fólk
komst ekki áfram. Lögreglan í
Borgarnesi aðstoðaði fólkið við að
komast leiðar sinnar.
Mikið slasaður eftir
slys á Skagaströnd
ÖKUMAÐUR slasaðist alvarlega þegar jeppabifreið sem hann var
á valt niður í fjöru af aðalgötunni á Skagaströnd í vondu veðri á
sunnudaginn. Hvassviðri og mikill skafrenningur var þegar slysið
átti sér stað.
Maðurinn var á ferð fyrir víkina
á stórum jeppa, en í kófinu missti
hann bílinn hálfan út af þannig
að hann hékk á vegabrúninni.
Bratt er niður í fjöru þar sem bíll-
inn var og u.þ.b. fimm metrar nið-
ur í stórgiýtið. Ökumaðurinn
hringdi strax eftir gröfu sem kom
á staðinn til að draga bílinn upp
á veginn. Bíllinn var bundinn í
gröfuna með sverum kaðli og síðan
dregið í. Þegar hann var kominn
hálfur upp á götuna fór eigandinn
inn í hann tií að stýra honum. Þá
vildi ekki betur til en svo að þegar
grafan ætlaði að draga bílinn
lengra inn á veginn, slitnaði kað-
allinn. Bíllinn fór fram af brúninni
og valt niður í fjöruna. Þar lenti
hann á hjólunum, talsvert mikið
skemmdur, en eigandinn kastaðist
út úr honum í veltunni og slasað-
ist alvarlega. Mun maðurinn vera
mjaðmagrindarbrotinn og eitthvað
meira slasaður.
Gröfumaðurinn hringdi strax á
aðstoð björgunarsveitamanna úr
slysavamadeildinni og komu þeir
skömmu síðar með börur og náðu
manninum upp úr fjörunni. Þá var
veðrið svo vont að þeir urðu að
skríða yfír götuna með börumar
til að koma slasaða manninum í
húsaskjól. Það dróst svo fram eft-
ir degi að sjúkrabíll kæmist frá
Blönduósi með lækni til að hlúa
að manninum og koma honum á
sjúkrahúsið á Blönduósi. Ástæðan
var sú að sjúkrabíllinn fauk útaf
veginum rétt ofan við Blönduós
og tókst ekki að koma lækninum
til Skagastrandar fyrr en í þriðju
eða fjórðu tilraun vegna veðurofs-
ans og hálkunnar. Flogið var með
manninn til Reykjavíkur í gær-
morgun og gert að meiðslum hans
þar.
Þessi atburður verður enn til
að magna þá óánægju sem er
meðal íbúa Skagastrandar að ekki
skuli vera búsettur læknir á staðn-
um. Þrátt fyrir ítrekaðar kröfur
um lækni í tengslum við heilsu-
gæsluna hefur það ekki fengið náð
fyrir augum ráðamanna heilbrigð-
ismála.
Ó.B.
Kristján
Jóhanns-
son á Að-
alstöðinni
AÐALSTÖÐIN hefur ákveð-
ið að flytja upptöku af
Grímudansleiknum eftir
Verdi í flutningi Chicago-
óperunnar með Kristjáni
Jóhannssyni í aðalhlutverki.
Óperan verður á dagskrá
Aðaistöðvarinnar á jóladag
klukkan 13. Að loknum
flutningnum verður viðtal
við Kristján Jóhannsson.
Sem kunnugt er af fréttum
hefur Kristján Jóhannsson
blotið lofsamlega dóma fyrir
frammistöðu sína í þessari
óperu. Til dæmis segir John
von Rhein aðaltónlistargagn-
rýnandi Chicago Tribune að
Kristján hafi með frammistöðu
sinni „svo sannarlega náð á
toppinn".
I frétt frá Aðalstöðinni um
þetta mál segir að það sé stöð-
inni mikill heiður að fá að leyfa
íslendingum að heyra í Krist-
jáni um jólin.