Morgunblaðið - 15.12.1992, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1992
19
GraA.íSMTTOHOM
Hýþjónusta
Póstur og sími hefur opnað Símatorgið, nýja þjónustu þar sem fyriitæki og einstaklingar
geta fengið úthlutað símanúmerum til að veita upplýsingaþjónustu á sjálfvirkum
svörunarbúnaði.
Það kostar meira að hringja í símatorgsnúmer en í venjuleg símanúmer og kostar
hver mínúta í
1. flokki með númer 99 50 XX kr. 12.50
2. flokki með númer 99 51 XX kr. 16.65
3. flokki með númer 99 56 XX kr. 24.95
4. flokki með númer 99 1X XX kr. 39.90
5. flokki með númer 99 2X XX kr. 66.50
Notendur í nýju stafrænu símastöðvunum okkar geta valið um alla flokkana, en aðrir
notendur geta valið númer í 1. og 2. flokki. Þetta er gert vegna þess að einungis
notendur í stafrænum stöðvum geta fengið stundurliðun á símareikningi sínum og
fylgst þannig með notkun sinni á þjónustu Símatorgsins. (Stafrænir notendur geta líka,
ef þeir vilja, látið læsa símanum fýrir símatorgsnúmerum, en þá geta þeir ekki sótt
þangað upplýsingar, þegar á liggur.)
Nú þegar eru margir aðilar farnir að veita þjónustu í gegn um Símatorgið og þar má
nú m.a. finna upplýsingar um veður, íþróttaúrslit, getraunir, sjónvarpsdagskrá og margt
fleira. Þeir sem eiga tölvu og upphringimótald, geta komist í samband við
tölvuupplýsingaveitur í gegn um Símatorgið.
Kynntu þér þessa nýju þjónustu á næsta afgreiðslustað Pósts og síma.
POSTUR OG SÍMI