Morgunblaðið - 15.12.1992, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 15.12.1992, Blaðsíða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DBSEMBER 1992 Fischer ag Spasskí boðið til Islands Skák Margeir Pétursson SKÁKSAMBAND íslands hefur boðið Bobby Fischer og Boris Spasskí að koma til íslands í tilefni af því að tuttugu ár eru liðin frá því að þeir háðu ein- vígi aldarinnar í Reykjavík. Ekki er gert ráð fyrir að Spasski og Fischer tefli kapp- skákir í heimsókninni en vonast er til þess að þeir haldi blaða- mannafund og tefli sýningar- skákir fyrir áhorfendur ef þeir þiggja boðið. Haft hefur verið samband við Boris Spasskí þar sem hann dvelst nú í París og hefur hann mikinn áhuga á að koma hingað til lands með Fisc- her. Spasski nefndi möguleika á Islandsferð við hann eftir að einvígi þeirra lauk í Belgrad og tók Fischer vel í þá hugmynd. Enginn verðlaunasjóður verður settur á stofn vegna boðsins til Fischers og Spasskís, enda er ekki til heimsóknarinnar stofnað af hálfu Skáksambandsins til að fá þá til að tefla. SÍ á heldur enga möguleika á því að bjóða verðlaun í nokkrum námunda við þann 300 milljóna króna sjóð sem í boði var í haust og greiddur var út til kepp- enda í síðasta mánuði. Áhersla verður lögð á að rifja upp þá miklu stemmningu sem myndaðist í kringum heimsmeistaraeinvígið 1972. Skákstiganna beðið með óþreyju Senn eru væntanleg ný skákstig frá FIDE sem taka gildi frá fyrsta janúar næstkomandi. Hér á landi bíða margir skákáhugamenn þeirra með sérstakri eftirvænt- ingu, því það eina sem Hannes Hlífar Stefánsson skortir upp á stórmeistaratitilinn er að birtast með a.m.k. 2.500 stig á lista FIDE. Verði öll alþjóðleg mót sem Hann- es hefur tekið þátt í frá því 1. júní tekin með í reikninginn er xþess að vænta að hann vanti nokk- ur stig upp á þetta. Hannes tap- aði stigum á heimsmeistaramóti unglinga í Argentínu í október og kostar það hann líklega sex mán- aða bið eftir titlinum. Það er þó erfitt að áætla skákstigin fyrir- fram auk þess sem skýrslum um mót er stundum skilað of seint og þau koma þá ekki inn fyrr en á næsta lista. Eftir frábæran árangur sinn á EM landsliða á Jóhann Hjartarson mikla möguleika á því að slá eða jafna fyrra stigamet íslendings sem hann á sjálfur, 2.620 stig, frá 1. júlí 1988. Jóhann er eini íslend- ingurinn sem náð hefur að ijúfa 2.600 stiga múrinn. Þá fýsir marga að sjá það svart á hvítu hvort einvígi Fischers og Spasskís í haust verði reiknað til stiga. Samkvæmt venju ætti Fischer að koma aftur inn á list- ann með sín gömlu stig, 2.780. Stigatala hans birtist síðast á lista FIDE árið 1975. Verði einvígið reiknað tapar Fischer töluverðu, líklega 40-50 stigum, því hann varð að vinna Spasskí með meiri mun til að standa undir þessari háu tölu. Þar sem Fischer vill ekk- ert með FIDE hafa og stjómaði sjálfur flestu í sambandi við ein- vígið. er þó harla ólíklegt að af útreikningi verði. Alfræðibækur um skák Meira hefur líklega verið ritað um skák en allar aðrar keppnis- greinar til samans. Skýringin er líklega sú að eftir að ákveðnum styrkleika er náð verður ekki um frekari framfarir að ræða án mik- ils lesturs. Flestir stórmeistarar eiga hundruð og jafnvel þúsundir skákbóka í fórum sínum auk óg- rynnis af tímaritum. Það hafa líka verið gefnar út margar alfræði- og uppflettibækur um skák. Nýju rússnesku alfræðibókar- innar um skák, Shakhmatnyí, enzyklopeditsjeskí slovaij, var beðið með mikilli óþreyju, en hún var mörg ár í smíðum. Aðalrit- stjóri hennar var Anatólí Karpov fyrrum heimsmeistari, en bókin var ekki tilbúin fyrr en Kasparov hafði verið heimsmeistari í fimm ár. Ritið er 621 bls. að stærð, prentað með smáu letri í stóru broti. Fjöldi manna vann að henni enda fór undirbúningurinn allur fram á þeim tíma þegar ekkert tillit var tekið til markaðslögmáls- ins. Karpov segist strax í upphafi hafa lagt þunga áherslu á að allri pólitík yrði varpað lönd og leið. Kaflinn um Viktor Kortsnoj er þó óeðlilega stuttur, en Karpov telur sér það þó mjög til tekna að hafa komið honum inn framhjá kerfi ritskoðunar. Aðrir stórmeistarar sem voru landflótta frá Sovétríkjunum eru líka með og bendir því fátt til annars en að hér sé á ferð lang- viðamesta og vandaðasta ritið á sínu sviði sem gefið hefur verið út. Á því eru þó gallar. Svo virðist sem ofan í myndir hafi verið farið með blýanti til að skerpa andlits- Það fór vel á með Fischer og Spasskí eftir einvígið í haust. drætti manna, líklega í þeim til- gangi að vega upp á móti lélegri myndprentunartækni. Þetta tekst þó ekki betur en svo að sumir eru illþekkjanlegir. Þar sem ritið er á rússnesku og með kyrillíska stafrófinu er lang- mest áhersla lögð á umfjöllun um skákmenn frá fyrrum Sovétríkjun- um. Birtar eru skákir og myndir af öllum stórmeisturum þeirra. Einnig eru kaflar um alla stór- meistara í heimi, en flestra er- lendra alþjóðlegra meistara aðeins getið í upptalningu. Skáksögu íslands eru gerð góð skil, því Guðmundur Arnlaugsson skrifar stuttan en hnitmiðaðan kafla í ritið. í hróplegri mótsögn við þetta vandaða rússneska rit er The Batsford Chess Encyclopedia eftir kanadíska stærðfræðinginn Nathan Divinsky. Það er 247 bls. að stærð með auðlesanlegu letri. Það sæmir varla stærstu skákbó- kaútgefendum heims, BT Batsford í London, og Raymond Keene stór- meistara, ráðgjafa þeirra, að leggja nafn sitt við það. Að vísu er fjallað um skákmenn og efni tengt skák og því raðað upp í staf- rófsröð, en að kalla þetta alfræði- rit um skák er hreint öfugmæli. Persónulegt mat og sleggjudómar höfundarins ráða alfarið ferðinni og áherslur eru handahófskennd- ar. Sérkaflar eru þó um alla stór- meistara. íslenskrar skáksögu er að litlu getið, en eitt af því fáa sem telja má ritinu til tekna er kafli um Daniel Willard Fiske, ís- landsvininn mikla. Sem dæmi um vinnubrögð höf- undarins skal hér birtur útdráttur úr kaflanum um Alexander Aljek- ín, fyrrum heimsmeistara, en á honum hefur höfundurinn greini- lega andúð og reynir ekki að dylja það: „Það er athyglisvert að á bak við þetta glæsilega yfirborð var sumt ekki alveg eins og skyldi. í fyrsta lagi er hæpið hvort hann hafi nokkru sinni lokið námi frá Sorbonne. Margir hæfileikamenn eiga í erfiðleikum með hina mjóu línu á milli „ég hefði getað“ og „ég gerði“ (sjáið t.d. Zukertort). Jafnvel þótt doktorsgráða Aljekíns sé að hluta ímyndun, gerði hún engum mein því hann lagði aldrei stund á lögfræðistörf. í öðru lagi virðist sem hann hafi sýnt mikið kaldlyndi er hann yfirgaf aðra eiginkonu sína, eftir að hafa notfært sér stöðu hennar til að komast burt frá Sovétríkjun- um.“ Willem van Herpem þýddi Passíusálmana á hollensku Hallgrímur sýndi mér kross- inn, þjáningamar og lausnina „HEFURÐU heyrt söguna um Ungveijann sem þýddi Hall- grím,“ spyr hollenskur áhuga- maður um Island, Willem van Herpem. „Hún er næstum eins og mín. Hann flýði kommúnista tvisvar, ég komst tvisvar frá nasistum. Hann varð prestur eins og ég og síðar biskup. Minningarnar hvíldu á honum og hann varð þunglyndur eins og ég hef verið. Hann lærði íslensku og las Passiusálma Hallgrims Péturssonar eins og ég. Þegar hann lauk við að þýða sálmana létti fargi af hon- um. Ég var skyndilega fijáls undan myrkri áþján þegar síð- asti sálmur Hallgrims var kom- inn á hollensku. Þetta íslenska skáld sýndi mér krossinn, þján- ingarnar og lausnina.“ Hollendingurinn Willem van Herpem Iauk í fyrra fjögurra ára starfi að þýðingu Passíusálma Hallgríms Péturssonar af íslensku á hollensku. Hann gerir ráð fyrir að sjö þeirra verði gefnir út í bænum Leiden á næsta ári ásamt ævisögu Hallgríms sem hann hef- ur skrifað eftir ýmsum íslenskum bókum um skáldið. En ísland er van Herpem áfram hugleikið, næst langar hann að kynna sér sögu siðaskiptanna hérlendis. Sigurbjörn Einarsson biskup sagði van Herpem frá ungverska biskupnum Lajos Ordass sem einnig hefur þýtt Passíusálmana á sitt móðurmál. Sálmarnir hafa raunar verið þýddir á fleiri tungu- mál, ensku, þýsku, norsku, dönsku, sænsku og meira að segja kinversku. En kommúnistar héldu Ordass lengi í fangelsi og þar lærði hann íslensku. Mennimir tveir hafa ekki hist, örlög þeirra spunnust í ólíkum löndum, en báðir sáu ljós í orðum sálmaskáldsins. Blaða- maður Morgunblaðsins hitti van Herpem þegar hann var staddur á íslandi í haust, en hann kom einnig til landsins um siðustu helgi, m.a. til að vera viðstaddur vígslu orgelsins í Hallgrímskirkju. Hann er fæddur í Rotterdam, en gekk í skóla í Utrecht og Leid- en. „í stríðinu, þegar ég var átján ára, tóku Þjóðveijar mig og sendu í vinnubúðir í Bremen. Þar var vistin hörð,“ segir van Herpem og starir gegnum vegginn bak við blaðamann. „Kuldinn og svengdin hefðu nægt til þess að við ákváð- um tveir að flýja. 3. mars 1945 fylgdum við ekki vinnuhópnum. Við gengum að næturlagi og föld- um okkur meðan bjart var. Bænd- ur gáfu okkur mat og eftir viku náðum við til Hollands." Þjóðverjar náðu mér áftur „En _ Þjóðverjarnir náðu mér aftur. Ég var handtekinn og flutt- ur í fangelsi. Við gátum ekki sest niður í klefanum, hann var troðinn af föngum. Nálægt miðnætti komu hermenn og öskruðu: Þú, þú, þú... Svo fóru þeir út með mennina og við heyrðum skothríð- ina. Á hveiju kvöldi hugsaði ég, nú er komið að mér. En eftir tíu daga og nætur lauk stríðinu." Van Herpem fór í háskóla og varð prestur 1954. Síðan vann hann víða í Hollandi, vildi helst vera í smábæjum vegna þess hann langaði að læra og kyrrðin gaf tóm til þess. Guðfræði, heimspeki og bókmenntir urðu honum rann- sóknarefni, en það ánægjulegasta í starfinu þótti honum að predika og geta stundum hjálpað fólki í erfíðleikum. Fyrir 24 árum veiktist van Herpem alvarlega. „Á hverri nóttu hafði skothríðin úr fangelsinu haldið fyrir mér vöku,“ segir hann. „Skyndilega varð það mér um megn. Ég neyddist til að Willem van Herpem hætta prestþjónustu árið 1978 vegna veikinda, ég var þunglynd- ur og hafði engu hlutverki að gegna lengur. Tveimur árum seinna las ég í blaði að á íslandi hefði kona verið kosin forseti fyrst kynsystra sinna í heiminum. En ég gat ekki borið fram nafnið hennar." Lærði íslensku af lingvafóni Þá fylltist hann forvitrii um landið og fór að leita að einhveiju um það. En hann fann ekkert í Hollandi, þýsk handbók um ísland fyrir ferðamenn var fyrsta skref- ið, svo kom fleira, hann tók ling- vafónnámskeið og kveðst hafa lært íslensku fjóra tíma á dag í fimm mánuði. Fárviðri eftir Jan Terlouw er fyrsta bókin sem van Herpem las á íslensku, en því fleiri sem þær urðu, því meiri varð áhuginn á landinu. Síðan segist hann hafa lesið talsvert af íslenskum nútíma- sögum og flutt fjóra fyrirlestra um þær í belgíska sjónvarpinu 1983. Van Herpem kom fyrst til ís- lands fyrir tíu árum, þá bjó hann hjá Fransiskanisystrum í Reykja- vík í þijár vikur. Þremur árum seinna kom hann aftur og segir að upp frá því hafi Hallgrímur Pétursson verið honum hjartfólg- inn. Hann hafí heimsótt fæðingar- stað skáldsins og þá staði sem hann bjó á og reynt að þræða ævi þess með lestri fjölda bóka. Síðan kveðst van Herpem hafa tekið til við lestur Passíusálmanna og setið nærri hvern dag í fjögur ár við þýðingu þeirra yfir á hol- lensku. „Verkinu lauk ég á síðasta ári,“ segir hann. „Það var mikil blessun fyrir mann með höfuð þjakað af stríði. Hallgrímur er að mínu mati mikilvægasta skáld á ís- lenska tungu. Sálmar hans hafa mátt til að lyfta huga og hjarta upp úr djúpri örvæntingu. Þegar ég lauk við þýðinguna var ég skyndilega fijáls. Eftir öll þessi ár.“ Þ.Þ. « i € 4jj i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.