Morgunblaðið - 15.12.1992, Blaðsíða 41
Hvanneyri SI með tvö skip í togi
Togarinn Þorsteinn EA-610
sökk suðvestur af Færevjum
Togarinn Þorsteinn EA-
610, sökk á um 600
faðma dýpi suðvestur af
Færeyjmn þegar verið
var að toga skipið til
Belfast, en þar átti að
nota það í brotajárn.
Myndin er tekin 1989
þegar hann var færður
til í Akureyrarhöfn.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Bókakynning
í Glerárskóla
Lesið verður upp úr nýjum bókum
í bókasafni Glerárskóla annað kvöld,
miðvikudagskvöldið 16. nóvember,
og verður byrjað kl. 20.30. Kynntar
verða nýjar barna- og unglingabæk-
ur og verða það nemendur úr efri
bekkjum skólans sem sjá um lestur-
inn. Auk þess sem lesið verður úr
ný útkomnum bókum verður bóka-
sýning þar sem sýndar verða
barnabækur og fræðirit ýmiss konar
fyrir böm. Bókasafn skólans og
nemendaráð standa fyrir þessari
bókakynningu í sameiningu og eru
allir velkomnir.
(FréttatUkynning)
Ljós voru á báðum skipunum, en
þarna um miðnættið tóku menn
eftir að aðeins logaði á einu ljósi
og eitt skip sást í radarnum," sagði
Jóhannes.
Vírinn slitnaði við það að skipið
sökk og biðum menn fram í birtingu
á laugardagsmorgun til að ná Þor-
láki Helga og gekk vel að ná honum
aftur. Eftir atvikið var farið til
Færeyja og stjómvöldum þar til-
kynnt um það sem og stjórnvöldum
á jslandi. Skipið sökk á svæðinu
við 61. gráðu norðlægrar breiddar
og 9.-10. gráðu vestlægrar lengdar.
Hvanneyri verður siglt frá Færeyj-
um í dag, þriðjudag, áleiðis til Bel-
fast með Þorlák Helga.
Jóhannes sagði að engin olía
hefði verið í skipinu og því fylgdi
engin mengum þó skipið hefði sokk-
ið. fy'ón væri heldur ekkert þar sem
verið var að fara með skipið í brota-
járn, sem lítið fæst greitt fyrir.
Þorsteinn EA lenti í ís á Reykja-
fjarðarál í apríl árið 1988 og
skemmdist þá mjög mikið, m.a. var
bolur skipsins illa farinn og kom
gat á skut þess stjórnborðsmegin,
skuthom varð ónýtt að hluta og
skemmdir urðu í vélarrúmi. Þor-
steinn EA hefur frá því þetta gerð-
ist legið við bryggju á Akureyri,
en hann var úreldur upp í nýjan
frystitogara Samheija, Þorstein
Baldvinsson EA, sem nýlega kom
til heimahafnar í fyrsta sinn.
Morgunblaöið/Rúnar Þór
Ekki viðrar vel til útivinnu þessa dagana. Menn láta sig þó hafa það
vel klæddir eins og þessi maður sem í gær var við vinnu við Verk-
menntaskólann.
TOGARINN Þorsteinn EA-610
sökk á um 600 faðma dýpi suð-
vestur af Færeyjum um miðnætti
síðastliðið föstudagskvöld.
Hvanneyri SI frá Siglufirði var
með Þorstein og Þorlák Helga I
togi er atvikið átti sér stað, en
verið var að flytja skipin í brota-
járn til Belfast á Norður-írlandi.
Leiðangurinn hafði hreppt
vonskuveður á leið sinni og er
talið að Þorsteinn EA hafi ekki
þolað veðrið, en hann skemmdist
mikið er hann lenti í ís fyrir
tæpum fimm árum. Þorsteinn og
Þorlákur Helgi voru í eigu Sam-
herja hf. á Akureyri.
Jóhannes Lárusson fram-
kvæmdastjóri Dráttarskipa sagði
að vel hefði verið frá málum geng-
ið áður en lagt var af stað út og
voru skipin bundin með-stálvír um
600-700 metra löngum við Hvann-
eyrina. Ferð skipanna út hafði ver-
ið frestað sökum veðurs í um 10
daga, en útilitið verið sæmilegt þeg-
ar haldið var að stað, veður hafi
hins vegar breyst og skipin hreppt
leiðindaveður, en þau gengu á 4
mílum á klukkustund um tíma.
„Ég var í sambandi við Hvann-
eyrina um tveimum tímum áður en
skipið sökk og þá fannst mönnum
sem farið væri að ganga betur,
veðrið væri að lagast og ganghrað-
inn var kominn upp í 5,4 mílur.
Ferðafólk
hríðarteppt
í versta veðri
Björk, Mývatnssveit.
HER í Mývatnssveit var hið
versta veður á sunnudag,
blindbylur og ekkert ferða-
veður. Fólk sem statt var hér
í sveitinni var því hríðteppt.
Vegna veðurofsans setti þó
ekki mikinn snjó á vegi. Aflýsa
varð aðventukvöldi sem átti að
vera í Reykjahlíðarkirku á
sunnudagskvöldið. í gærmorgun
var hér þolanlegt veður og var
farið með nemendur í skóla.
Áætlunarbíll kom frá Akureyri
og fór strax til baka. Fljótlega
fór að snjóa og um hádegi var
komin hvöss norðanátt með
skafrenningi og snjókomu.
Hætt er við að færð þyngist
. fljótt á vegum. Ekki hefur enn
frést af vegfarendum hér um
slóðir sem lent hafa í erfiðleikum
í þessum veðraham.
Kristján
Blásarasveit æskunnar
Tónleikar í
Glerárkirkju
BLÁSARASVEIT æskunnar
heldur tónleika í Glerárkirkju
I kvöld, þriðjudagskvöldið 15.
des., og hefjast þeir kl. 20.30.
Á efnisskrá tónleikanna eru
tvær svítur eftir Handel, Vatnas-
víta og Flugeldasvíta, og óbókon-
sert eftir Corelli. Einleikari í óbó-
konsert Corellis er Jacquiline
Simm. Stjómandi Blásarasveitar
æskunnar er Roar Kvam.
Þetta eru fyrstu tónleikar
sveitarinnar eftir komuna heim
frá Zurich í Sviss þar sem hún
vann þriðju verðlaun í 1. flokki
blásarasveita ungs fólks.
Glórulaus bylur í Eyjafirði
Mjúkt er undir og fallið ekki hátt þegar stokkið er af þökunum.
Myndin var tekin við Hjarðarlund.
Vegir ófærir og
skólahaldi aflýst
VON SKUVEÐUR hefur verið í
Eyjafirði síðan á sunudag, skóla-
hald féll víða niður í grunnskólum
vegna þess og samkomum af
ýmsu tagi var aflýst. Mikil ofan-
koma hefur verið og gengið hefur
á með svörtum éljum, þannig að
skyggni hefur á stundum verið
afar slæmt. Reynt var að halda
götum innanbæjar opnum, en oft
skóf jafnharðan yfir. Fáir hafa
verið á ferli og þakka lögreglu-
menn það að útköll vegna veðurs-
ins voru ekki mörg.
Varðstjóri lögreglunnar á Akur-
eyri sagði að miðað við hve veðrið
hefði verið slæmt mætti segja að
færð á götum í bænum væri þokka-
leg. Þá hefði umferð verið fremur
lítið og allir sem gætu héldu sig inn-
andyra. Nokkur umferðaróhöpp
urðu, en öll smávægileg. Úrkoma
var mikil, norðanátt og 6-7 vind-
stig. í dimmustu éljunum var
skyggni á milli 300 og 400 metrar.
Ofært var frá Akureyri út með
firði til Dalvíkur og Ólafsfjarðar, en
lögreglan á Dalvík fór tyær ferðir á
Hámundarstaðaháls sunnan bæjar-
ins og dró bíla sem þar sátu fastir
í skafli á sunnudag. Ekki vildi betur
til í annað skiptið en lögreglubíllinn
fór útaf og kom þá bíll hjálparsveit-
ar á staðinn og dró hann upp. Mik-
ill snjór er á Dalvík og ófært var
sumstaðar innanbæjar seinnipartinn
í gær, en reynt var að halda opnu
á aðalleiðum. Lögreglan ók bömum
heim úr skóla fyrir hádegi í gær.
Svipaða sögu var að segja frá
Ólafsfirði, þar er mjög mikill snjór
og dimm él vom á köflum. Götur í
bænum voru mokaðar og voru aðal-
götur færar. Að sögn lögreglu í Ól-
afsfirði var kolófært utan við bæinn
og glórulaus stórhríð var þar á
sunndag, en fáir á ferli.
Ekki sást á milli húsa á Grenivík
á sunnudag og þar hefur snjóinn
skafið í háa skafla, en snjórinn er
mjög laus í sér. Bæði GrunnskóTan-
um og leikskólanum á staðnum var
aflýst vegna veðurs í gær.
Oskuvitlaust veður hefur verið í
Grímsey síðan á sunnudagskvöld,
mikil ofankoma og skafrenningur.
Illfært er um eynna, veghefill fór
um götur, en í allar slóðir fennti
jafnóðum. Grímseyingar héldu sig
að mestu inni við í óveðrinu og not-
uðu tímann til að huga að undirbún-
ingi jóla.
SMÁSALA
LEIKJATOLVA
Stor 7x7 kristalskján,
Stereo heymartól '
Leikir fylqja .•'r—i QI
Mikið j’ q Q
úrval
leikja
UTSÖLUSTADIR
Verð aðeins
kr. 7.900/
Japis, Kringlunni. Rvk.
Radióhúsið, Skipholti 9, Rvk.
Radióbœr, Armúla 38, Rvk.
Skákhúsiö (vlð Hiemm) Rvk.
Versl. Kassinn, Ólafsvik
Versl. Lltlibær, Stykklshólmi
Pólllnn, isatíröi
Ratsjá, Sauðárkróki
Radiónaust, Akureyri
öryggl, Húsavik
Verslunin Urö, Raufarhötn
Verslunln Skógar, Egilsst.
Versl. Hvammur, Hötn Homaf
Fristund, Keflavik
HEILDSALA
RöDIONAUS
GEISLAGOTU 14 • SIMI; 96-21300 ' 600 ^jUREYRI
FAX; 96-21302 ■