Morgunblaðið - 15.12.1992, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ VlÍAKlPl'l/AIVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1992
P.þ popr vmnwmn -t wtioAfi'tumM 'rtHfMMWKS'rwvwn
Tölvur
Styttist í framtíðarstefnu
um tölvumál borgarinnar
Unnið að því að „kortleggja“ tölvumál borgarstofnana
STARFSHÓPUR sem borgar-
stjóri skipaði til að endurskoða
tölvu- og upplýsingamál
Reykjavíkurborgar mun vænt-
anlega skila niðurstöðu sinni um
framtíðarstefnu borgarinnar í
tölvumálum í janúar/febrúar
Fundur
hjá Decus
DECUS, samtök Digital tölvu-
notenda, halda fjórða félags-
fund vetrarins í dag, þriðjudag-
inn 15. desember.
Fundurinn er haldinn hjá íslensk-
um aðalverktökum á Keflavíkur-
flugvelli þar sem tölvuwkerfi
þeirra verður kynnt. Farið verður
með rútu frá Rafmagnsveitu
Reykjavíkur, Suðurlandsbraut 34,
kl. 16.00 og komið til baka um
kl. 20.00. Þátttaka tilkynnist til
Þórunnar Þórisdóttur í síma
687220.
Lyfjaframleiðsla
næstkomandi. Verkefni hópsins
hefur m.a. verið að „kortleggja"
tölvumál borgarstofnana og
kanna framtíðaráform, þ.á.m.
um rekstur og framtíðar-
markmið SKÝRR.
Að sögn Guðmundar Tómasson-
ar tölvuráðgjafa Reykavíkurborg-
ar og aðstoðarmanns starfshóps-
ins hefur verið haft samband við
aðila innan borgarkerfisins sem
fara með tölvumál viðkomandi
borgarstofnana og þeir beðnir um
að skila skýrlu um ástand, upp-
byggingu og þróun tölvu- og upp-
lýsingamála þeirra. Þessa könnun
á að nota til að gera heildar-
skýrslu um ástand tölvumála
Reykjavíkurborgar en ekki verður
ráðins í stórvægilegar breytingar
í tölvumálum borgarinnar fyrr en
starfshópurinn hefur lokið störf-
um.
„Verkefnið er mjög umfangs-
mikið þar sem um er að ræða
endurskoðun á öllum tölvumálum
borgarinnar og -einnig á samskipt-
unum við SKÝRR. Eins og er
stendur á svörum frá borgarstofn-
um en þær áttu að skila þeim inn
þann 15. nóvember sl. en ekki er
ekki að mynda framtíðarstefnu
fyrr en ljóst er hvemig ástandið
er nú,“ sagði Guðmundur.
Starfshópurinn var skipaður af
borgarstjóra í september sl. og í
honum eru Hjörleifur B. Kvaran
framkvæmdastjori lögfræði-_ og
stjómsýsludeildar, Óskar G. Ósk-
arsson borgarbókari og Birgir
Finnbogason frostöðumaður end-
urskoðunardeildar.
Iðnaðarráðuneyti
Styrkveit
ingar til
nýjunga í
smáiðnaði
IÐNAÐARRÁÐUNEYTIÐ hef-
ur veitt 30 fyrirtælgum styrki
vegna nýjunga í smáiðnaði og
var heildarfjárhæðin um 10
milljónir króna. Styrkirnir voru
á bilinu 150-700 þúsund krónur
að sögn Arna Þorsteins Arna-
sonar skrifstofustjóra í Iðnaðar-
ráðuneyti.
Delta hf. aðili að undir-
búningsfélagi íRússlandi
Húsgagnaverslun
Hugbúnaður
Morgunblaðið/Þorkell
GJAFAVARA — Á myndinni em eigendur verslunarinnar
Júnik hf., Þuríður Steinþórsdóttir og Jóel Fr. Jónsson innan um gjafa-
vöra úr smíðajárni sem þau hafa sjálf hannað og framleitt.
Ný íslensk húsgögn
hjá Júnik hf.
HÚSGAGNAVERSLUNIN Júnik hf. í Reykjavík hefur hafið sölu
á húsgögnum sem eru framleidd sérstaklega fyrir verslunina hér
á landi. Er þar um að ræða bæði sófasett og borðstofuhúsgögn
og eru þau hönnuð af eigendum fyrirtækisins.
Júnik hf. hefur jafnframt á boð-
stólum íslenskar gjafavörur úr
smíðajárni, t.d. lampa, kertastj-
aka, blómasúlur o.fl. Þessar vörur
era framleiddar af fyrirtækinu
Forn-ný sem er í eigu sömu aðila.
Vörurnar voru kynntar á vörasýn-
ingum í París fyrr á árinu og hef-
ur þegar náðst nokkur árangur í
útflutningi, að því er fram kemur
í fréttatilkynningu frá Júnik.
Eigendur Júnik eru þau hjónin
Þuríður Steinþórsdóttir og Jóel Fr.
Jónsson en þau keyptu heimil-
isvöradeild GKS hf. á Hesthálsi í
maí sl. Verslunin var opnuð í nýju
húsnæði í Mörkinni 1 í ágúst og
hefur auk íslensku framleiðslunn-
ar lagt áherslu á innflutt húsgögn
og gjafavöru frá Ítalíu, Þýska-
landi, Bretlandi og Danmörku.
DELTA hf., lyfjaframleiðslufyrirtækið, hefur stofnað undirbún-
ingsfélag ásamt tveimur rússneskum aðilum um uppbyggingu lyfja-
versmiðju í Rússlandi. Áður hefur komið fram í Morgunblaðinu
að Delta muni hugsanlega aðstoða Rússa við að reisa lyfjaverk-
smiðju en undirbúningsfélagið var stofnað til að hægt sé að taka
ákvörðun um hvort hagkvæmt sé að byggja upp verksmiðjuna.
Delta á þriðjungshlut í undirbúningsfélaginu að sögn Ottós B.
Ólafssonar forstjóra fyrirtækisins.
Verkefni undirbúningsfélagsins
er hefja markaðssetningu á vöram
frá Delta í Rússlandi og afla betri
upplýsinga um lyfjamarkaðinn í
Rússlandi. Ákvörðun um uppbygg-
inu verksmiðjunnar mun væntan-
lega liggja fyrir í mars eða apríl
á næsta ári en einnig á eftir að
kanna fjármögnunarmöguleika í
tengslum við verksmiðjuna. Gert
er ráð fyrir að uppbygging hennar
kosti um hátt í einn milljarð króna.
Delta hefur gert samning við
aðila á Kýpur um tækniaðstoð við
að byggja upp verksmiðju til lyfja-
framleiðslu. Áð sögn Ottós sténdur
uppbygging verksmiðjunnar nú
yfir og gengu hún mjög vel. Verk-
smiðjan mun væntanlega hefja
starfsemi sína í ágústmánuði á
næsta ári.
í júní sl. auglýsti iðnaðarráðu-
neytið eftir umsóknum um styrki
vegna nýjunga í smáiðnaði. Fýrst
og fremst var miðað við að greiða
fyrir tæknilegum undirbúningi,
hönnun, stofnsetningu og mark-
aðssetningu ekki síst hjá þeim sem
þegar höfðu skýrt mótuð áform
um að hefja slíka starfsemi og
höfðu lagt til eigið áhættufé. Alls
bárast 68 umsóknir víðsvegar að
af landinu.
Mikil fjölbreytni var í umsókn-
um og komu fram margar góðar
hugmyndir. Sem dæmi má nefna
nýjungar á sviði framleiðslu minja-
gripa og matvæla, ferðaþjónustu
og framleiðslu er lýtur að um-
hverfísvemd.
JOLATILBOÐ
15% afsláttur
af sturtuklefum, hreinlætistækjum,
stálvöskum og blöndunartækjum
Verðdæmi:
Salerni, hvítt með setu, frá kr. 13.165
Sturtubotn, hvítur, 80x80, frá kr. 6.244
Baðker, 170x73, hvítt, frá kr. 12.423
Blöndunartæki f. handlaug frá kr. 2.543
Eldhústæki frá kr. 2.858
Heilir sturtuklefar, 80x80, frá kr. 37.315
Einnig stálvaskar o.fl. á frábæru verði
VATNSVIRKINN HF.
Ármúla 21, símar 68 64 55 - 68 59 66
Hótel Loftleiðir tekur
nýtt hirgðakerfi ínotkun
NÝLEGA undirrituðu Hótel Loftleiðir og Altak-hugbúnaður samning
um alhliða tölvuvæðingu hótelsins á aðföngum til þess. Með henni
hyggst hótelið ná fram hagræðingu í allri veitingastarfsemi sinni með
aukinni sjálfvirkni og auknu eftirliti.
Hugbúnaðurinn sem Hótel Loft-
leiðir hyggst taka í notkun byggir í
meginatriðum á tveimur þáttum, ann-
ars vegar hráefniskerfi og hins vegar
barkerfi. Það fyrmefnda á að sýna
stjómendum fyrirtækisins rekstrar-
kostnað hráefnis hverrar deildar hót-
elsins eins og hann er hveiju sinni.
Segja má að fylgst sé með hráefninu
frá því að það kemur í hús þar til
það hefur verið unnið í gómsæta rétti
á borðum hótelgesta og starfsmanna.
Með kerfinu er hægt að fylgjast með
innkaupum, hvar þau eru hagstæð-
ust, sjá má hráefniskostnað á unnum
matvörum í eldhúsi hótelsins til sam-
anburðar við aðkeypt hráefni sem
aftur sýnir framlegð samsettra rétta.
Þá er í kerfinu tilboðakerfi þar sem
hægt er að raða saman hinum ýmsu
réttum sem hver um sig byggir á
uppskrift sem búið er að skrá í kerf-
ið og þannig kostnað þeirra til grund-
vallar tilboðs.
Barkerfið byggir á því að hvenær
Fyrirtæki
sem er má framkvæma talningu á
börunum til að fylgjast með rýmun.
Það tengist beint því kassakerfi sem
hótelið hefur í notkun og sér um að
halda utan um sölu á hverri tegund.
Pantanir inn á barina eru gerðar beint
frá kassa til birgðavarðar, sem af-
greiðir út á barina samkvæmt þessum
pöntunum. Þannig mun sjálfkrafa
safnast upp öll sala og innkaup á
barina í gegnum kassakerfið. Bar-
kerfið sér síðan um að halda utan
um þessar færslur auk talningar og
útprentunar á ýmsum listum, s.s.
rýmunarlistum, sölulistum, kostnað-
arlistum o.fl. Telja má bæði með
gömlu aðferðinni, það er að telja flö-
skumar, og einnig með því að vigta
flöskumar. Kerfið þekkir þyngd heill-
ar og tómrar flösku, fjölda sjússa í
flösku og reiknar því talninguna út
frá vigtuninni. Þessi aðferð er einföld
því eingöngu þarf að lesa strikamerk-
ið af flöskunni með þar til gerðum
lesara.
Hlutafélag stofnað um
hótelrekstur erlendis
STOFNAÐ hefur venð almenmngshlutafélag um hótelrekstur í Eng-
landi með það að markmiði að eiga hlut í Manor House hótelinu í
Torquay á suðurströnd landsins á móti Magnúsi Steinþórssyni. Jafn-
framt er áformað að félagið taki þátt í að kaupa hótel í miðborg Lond-
on og jafnvel víðar.
Á stofnfundi félagsins sem haldinn
var þann 25. nóvember voru á þriðja
hundrað manns en á sjötta hundrað
manns hafa skráð sig fyrir hlutafé
fyrir hátt á þriðju milljón króna.
Félagið hefur opnað skrifstofu í
Borgartúni 33 og gefst fólki ennþá
kostur að kaupa hlutabréf.
í stjóm félagsins voru kosnir þeir
Guðmundur Jónsson, hrl. formaður,
Sigurður G. Steinþórsson, gullsmiður
og Ólafur K. Sigtryggsson, fram-
kvæmdastjóri. Varamaður í stjóm
er Magnús Steinþórsson en fram-
kvæmdastjóri félagsins er Katrín
Guðjónsdóttir.