Morgunblaðið - 15.12.1992, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 15.12.1992, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DBSEMBER 1992 53 Divinsky þéssi hefur einnig skrifað bók með Keene þar sem þeir raða skákmeisturum allra tíma upp í styrkleikaröð eftir ein- hverskonar stærðfræðiformúlu. Þeir telja Kasparov mesta skák- mann sögunnar, en Aljekín má sætta sig við átjánda sætið, m.a. á eftir Polugajevskí og Geller og næst á undan Andrei Sokolov og Boleslavskí. Ósparlega er vitnað í þessar kenningar í „alfræðibók" Divinskys. Þessi kanadíski pró- fessor hefur greinilega sínar eigin skoðanir á skáksögunni og væri fróðlegt að sjá þær settar fram og rökstuddar. Þær eiga hins veg- ar ekki heima í riti sem gefur sig út fyrir að vera alfræðibók fremur en orð eins og „hæpið“, „að hluta“ og „virðist". Það er hrein móðgun við skáklistina og sögu hennar að bera svona lagað á borð. Vönduð íslensk alfræðibók Sumir lesendur skákþáttar Morgunblaðsins hafa tekið eftir því að hér hefur oft verið vitnað til Alfræðibókarinnar um skák, A-Ö, eftir dr. Ingimar Jónsson. Það er ekki að ástæðulaúsu, það ágæta rit kemst mjög vel frá sam- anburði við þau erlendu. Bókin er 357 bls. að stærð og hana prýðir fjöldi ljósmynda og stöðumynda. Erlendum stórmeisturum og stór- mótum eru gerð góð skil, en aðals- merki bókarinnar er mikil og vönd- uð vinna sem lögð hefur verið í að fjalla um íslenska skákhreyf- ingu og skákmenn. Þá er skákbyij- unum og afbrigðum gerð sérlega góð skil og mörg gömul og ný skákorð og orðatiltæki útskýrð. Eftir þriggja ára notkun bókarinn- ar hef ég ekki orðið var við stað- reyndavillur. Þeir sem mesta þekk- ingu hafa á skáksögu okkar gefa bók dr. Ingimars sömu einkunn. í tilefni af endurkomu Bobby Fischers hefur mikið verið vitnað í skáksöguna undanfarna mánuði. Staðreyndirnar hafa þá stundum skolast til eins og gengur. Það er fyllsta ástæða til að benda skák- áhugamönnum á að leita ekki langt yfír skammt ef þá vantar ___________Brids Umsjón Arnór G. Ragnarsson Paraklúbburinn Sl. þriðjudag voru 4-6 umf. spil- aðar í sveitakeppninni og er staða efstu sveitanna þannig: Sv. Guðrúnar Jóhannesdóttur 121 Sv. Drafnar Guðmundsdóttur 120 Sv. Hjördísar-Hjördísar 102 Sv. Anna-Makar-Ljósbrá 101 Sv. Kristínar Guðbjörnsdóttur 98 Næsta spilakvöld félagsins verð- ur 12. jan. ’93. Húnvetningafélagið Síðastliðinn miðvikudag lauk tveggja kvölda einmenningskeppni félagsins. Spilað var í tveimur 16 manna riðlum og spiluð 30 spil á kvöldi. handhæga alfræði- og uppfletti- bók um skák. Hraðmót á Spáni Jóhanni Hjartarsyni gekk ekki sérlega vel á hraðmóti í Oviedo á Spáni um síðustu helgi. Hann varð rétt neðan við 20. sæti með 8 v. af 11 mögulegum, eftir að hafa tapað vænlegri skák gegn Camp- ora frá Argentínu í síðustu um- ferð. Gavrikov frá Litháen sigraði með 9*/2 v. Mikill fjöldi stórmeist- ara tók þátt í mótinu. Athygli vakti að hinn 17 ára gamli Kramn- ik, sem hefur hlotið 14‘/2 v. úr 16 skákum fýrir rússneska landsliðið í ár, varð að sætta sig við 7 Vi v. Umhugsunartíminn var 45 mín- útur. Jóhann vann m.a. ungan og efnilegan rússneskan alþjóða- meistara, Konstantin Sakaev (2.540), í fjörugri skák: Hvítt: Konstantin Sakaev Svart: Jóhann Hjartarson Kóngsindversk vörn 1. d4 - Rf6 2. c4 - g6 3. Rc3 - Bg7 4. e4 - d6 5. f3 - 0-0 6. Be3 - Rc6 7. Rge2 - a6 8. h4 - Hb8!? Fischer lék ávallt 8. — h5 gegn Spasskí. 9. h5 - b5 10. hxg6 — fxg6 11. cxb5 - axb5 12. Rf4 - e5 13. dxe5 - Rxe5 14. Bxb5 - c6 15. Ba4 - Hxb2 16. Bb3+ - Kh8 17. Bd4? 17. - Rfg4! 18. Rce2 - Da5+ 19. Kfl - Hd2 20. Dcl - Hxf4! 21. Dc3 - Dxc3 22. Bxc3 - Rxf3 23. Bxg7+ - Kxg7 24. gxf3 - Ba6 25. Bdl - Hxf3+ 26. Kel - Hb2 27. Hgl - Re5 og hvítur gafst upp. Úrslit urðu þannig: Eggert Einarsson 489 Anton Sigurðssoh 482 Aðalsteinn Helgason 473 BjörnÁrnason * 461 Ólafur/Snorri Guðmundss. 461 Pétur Veturliðason 457 Hæsta skor yfir kvöldið: A-riðiðll Björn Árnason 240 Aðalsteinn Helgason 236 Eggert Einarsson 234 B-riðill Ólafur Ingvarsson 259 Þorleifur Þórarinsson 242 SævarJónsson 225 Meðalskor 210 Næsta miðvikudag verður spilað- ur eins kvölda jólatvímenningur. Skráning er á staðnum, Húnabúð, Skeifunni 17, 3 hæð. Spilamennsk- an hefst kl. 19.30 og eru menn beðnir að mæta tímanlega. Blítt og strítt eftir Vilhjálm Hjálmarsson Vilhjálmur Hjálmarsson fyrrverandi ráðherra hefur hér skráð tíu mannlífsþætti um ólík efni - úr lífi fólksins í landinu, í blíðu og stríðu. Hann segir t.a.m. frá meinlegum örlögum og óhappaatburðum, mannfundum og félagsstarfi og rekur þjóðsögur. Vilhjálmi er einkar lagið að segja frá með alþýðlegum og glettnum hætti. Metsölubækur hans, Frændi Konráðs —. föðurbróðir minn og „Hann er sagður bóndi", bera því glöggt vitni. Blítt og strítt er skemmtileg og fróðleg bók! ÆSKAN! ) I i ÍC-yfíf^] EYJASLÓÐ 7*101 REYKJAVÍK• S. 91-621780
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.