Morgunblaðið - 15.12.1992, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 15.12.1992, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1992 37 Dæmt í héraðsdómi Reykjavíkur í málningarfötumálinu Hvor mannanna tveggja fékk fjögnrra ára fangelsi HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær Hallgrím Ævar Másson, 49 ára, og Stefán Einarsson, 44 ára, í fjögurra ára fangelsi hvorn fyrir innflutning í ágóðaskyni á 65,5 kg af hassi til landsins frá því í desember 1985 til nóvember 1987. Mennirnir voru einnig dæmdir til að greiða 500 þúsund króna sekt hvor. í niðurstöðum Sverris Einarsson- ar héraðsdómara kemur fram að við ákvörðun refsingarinnar hafi verið tekið tillit til þess hve lengi hefur dregist að dæma í málinu. Lögmenn beggja mannanna lýstu því yfir þegar dómurinn var upp kveðinn að honum yrði áfrýjað til Hæstaréttar. Morgunblaðið/Garðar Rúnar Sigurgeirsson geta sér „Verst að geta ekki látið vita af sér“ „Það var verst að geta ekki látið vita af sér heim,“ sagði Jón Sveins- son, bóndi á Grund í Borgarfirði eystra, í samtali við Morgunblaðið eftir björgunina í gær. Jón, sem varð veðurtepptur ásamt svissneskri konu í Húsavík fyrir norðan Loðmundar- fjörð á sunnudag, kvað aldrei hafa orðið tvísýnt um þau, en þau voru að vitja hesta á vetrarbeit í Loðmund- arfirði. „Við fórum að heiman í góðu veðri, inn í Stakkahlíð í Loðmundarfirði," sagði Jón, og kvað ætlunina hafa verið að vitja hesta sem voru í vetrar- beit í firðinum. „Svo ætluðum við að fara heim þegar byijaði að rökkva. í rökkrinu byrjaði að mugga og gerði vitlaust veður, svo við fórum út í Húsavík." Aðspurður kvað Jón aldrei hafa verið tvísýnt með þau, en hann er kunnugur á þessum slóðum. í Húsa- vík hafi þau látið fyrirberast um nóttina uns þau urðu vör við varð- skipið morguninn eftir. „Þegar við sáum varðskipið þarna í morgun viss- um við að þeir myndu koma í land, og fylgdumst með þegar þeir settu bátinn frá borði,“ sagði hann. Skömmu síðar hefðu þau verið kom- in um borð, en til Seyðisfjarðar var komið milli klukkan eitt og tvö eftir hádegi. „Sáum ekkert og vissum ekki hvort við rötuðum“ „Það var erfitt að ganga í svona langan tíma,“ sagði Daniela Liöchte, svissneskur dýralæknanemi, sem var í för með Jóni Sveinssyni. „En það var gott þegar hjálpin barst og nú er allt í lagi.“ Aðspurð kvað hún sér hafa fund- ist þau vera í nokkurri hættu um tíma. „Við sáum ekki neitt og vissum ekki hvort við rötuðum rétta leið. Mér leið betur þegar við komum í Húsavík.“ Daniela sagði veðrið hafa verið ágætt þegar þau lögðu af stað frá Stakkahlíð, en uppi í fjöllunum hafí snúið til verri vegar. „Mér leið illa og vissi ekki hvað ég átti að gera,“ sagði hún, en Jón hefði þó ratað rétta leið með þau niður i Húsavík. Daniela, sem er dýralæknanemi, dvaldist hér á landi í þijá mánuði síðastliðið sumar hjá Jóni og foreldr- um hans á Grund í Borgarfirði. Nú er hún hér í þriggja vikna fríi, og ákvað að fara með að vitja hestanna þegar færið gafst. Hún sagðist eiga íslenska hesta í Sviss og þessi reynsla hefði ekki orðið til þess að minnka áhuga hennar á landi og þjóð. í niðurstöðum dómsins er rakið að báðir hafi mennirnir margítrekað játað við yfirheyrslur hjá fíkniefna- deild lögreglunnar að þeir hafi stað- ið að þeim innflutningi, sem þeim var gefinn að sök. Hallgrímur hafi játað fýrir lögreglu og við fyrstu yfirheyrslur fyrir dómi að hafa stað- ið að sölu efnisins hér á landi, að frádregnum 10,7 kg sem lagt var hald á er mennirnir voru handteknir. Stefán hafi við fímm yfirheyrslur hjá lögreglu játað. Þótt þeir báðir hafí fengið skipaða réttargæslumenn hafí þeir ekki óskað eftir að þeir væru viðstaddir yfirheyrslur. Þá er rakið að mennirnir hafi síð- ar dregið til baka játningar sínar og að dómurinn hafni alfarið skýringum þeirra á breyttum framburði og full- yrðingum um að þeir hafi verið þvingaðir af lögreglu til að játa. Ósannað sé með öllu að þeir hafi verið beittir þvingunum og hótunum til að játa það sem þeim er gefið að „Það kemur ekki til greina út frá verndunarsjónarmiði að Hótel Vík verði rifið," sagði Margrét Hall- grímsdóttir í samtali við Morgun- blaðið. „Húsið er eitt af fallegri hús- unum, sem varðveitt eru frá timbur- húsatímabilinu í Reykjavík. Sigurður Jónsson smiður reisti húsið árið 1884 og það var síðan stækkað í áföngum, sem er einkennandi fyrir timburhús frá þessu tímabili í kringum aldamót- in. Fullri stærð náði það 1919 og var því verið að stækka það í rúm 30 ár. Húsið er hins vegar háð ákvæðum 36. greinar þjóðminjalaga, þótt það hafi ekki náð fullri stærð fýrr en eftir aldamót." í 36. grein þjóðminjalaga er kveð- ið á um að sé hús reist fyrir árið 1900, sé eigendum þess skylt að til- kynna minjaverði eða húsafriðun- arnefnd ríkisins með góðum fyrir- vara ef þeir hyggist breyta húsinu, flytja það eða rífa. Húsafriðunar- nefnd skal þá innan þriggja vikna tilkynna viðkomandi aðilum hvort hún telji ástæðu til að friða húsið. Margrét sagði Hótel Vík einnig merkilegt hús af því að þar hefði verið rekið bakarí samfleytt frá 1895, þar af undir nafni Björnsbak- arís frá 1901. „Húsið var stórglæsi- legt þegar það var upp á sitt bezta, með timburskrauti á svölum og við gluggana, sem talið er að Stefán sök. „Ákærðu höfðu báðir aðgang að réttargæslumönnum sem þeir gátu leitað til ef þeir teldu sig [beitta] harðræði. Það gerði hvorugur þeirra og ákærði Hallgrímur Ævar stað- festi allt það sem ákærðu er gefið að sök í tveim dómsyfírheyrslum í desember 1987. Sá framburður ... er í samræmi við framburð ákærða Stefáns í fímm yfirheyrslum hjá lög- reglu. Þá styrkir það framburð ákærða Hallgríms Ævars og lögre- gluframburð ákærða Stefáns að ákærði Stefán var jafnan í Belgíu nokkrum dögum áður en sendingam- ar níu voru sendar til landsins," seg- ir í niðurstöðum dómsins. Tölvuborðabraskið ótrúverðugt Þá segir að saga Stefáns Einars- sonar um að hann hafi stundað gjald- eyrisbrask sem falist hafi í því að flytja inn og út úr landinu tölvuborð í því skyni að mynda hagnað til að braska með sé ótrúverðug. Mikil fjár- Eiríksson myndskeri hafi skorið út,“ sagði Margrét. „Það mætti gjarnan gera húsið upp í upprunalegri mynd, þannig að það nyti sín enn betur. Það einkennir Grófartorg og Ingólfs- torg að þar er tiltölulega heilleg timburhúsabyggð, sem setja mun svip sinn á það umhverfi og um hana þarf að standa vörð. Nú stend- ur til að lífga upp á Ingólfstorg og Reykjavíkurborg mun koma til með að hvetja til þess að gömul hús við torgið verði löguð til samræmis við upprunalega gerð. Þá er ekki endi- lega miðað við árið, sem húsið var upphaflega byggt, heldur þann tíma þegar það var enn i þeim stíl, sem tilheyrir húsinu og getur teygt sig yfir langan tíma,“ sagði borgar- minjavörður. Margrét segist hafa bent Pósti og síma á ákvæði þjóðminjalaga og gert athugasemdir við áform um að rífa húsið. Að sögn Þorgeirs Þor- geirssonar, framkvæmdastjóra um- sýsludeildar Pósts og síma, bíður stofnunin eftir skriflegum athuga- semdum borgarminjavarðar. Hann segir húsið ekki eldra en frá aldamót- um. „Þetta er byggt alveg um alda- mótin og eiginlega ekki tekið í notk- un fyrr en eftir aldamótin í elztu gerð,“ sagði Þorgeir í samtali við Morgunblaðið. „Húsið er ekki talið upp í lista húsfriðunarnefndar yfir ráð hans skýrist ekki af framtöldum tekjum hans á þessum árum. Öðrum skýringum Stefáns er hafnað og einnig skýringum Hallgríms um að í upphafi hafi verið flutt málning með engu hassi inn í tilraunaskyni en henni hent fýrir Vogastapa. I ákærunni var mönnunum gefið að sök að hafa flutt inn til landsins '67-70 kg af hassi með níu sending- um en við handtöku þeirra lagði lög- regla hald á 10,7 kg af efninu. í ákæru sagði að þorra efnisins hefði verið dreift að miklu leyti fýrir milli- göngu nafngreindrar konu, en sú var fyrr á þessu ári dæmd fyrir aðild að dreifíngu á 6,5 kg af hassi fyrir Hallgrím Ævar og segir í dóminum að ekki verði því slegið föstu að konan hafi haft milligöngu um sölu á meira magni. Þá hafði Hallgrímur verið ákærður fyrir að selja nafngreindum manni 2 kg af hassi en sá var dæmdur fyrir viðskipti við Hallgrím með 1 kg af hassi og er sú tala lögð til grundvall- ar. Sakfelling fyrir innflutning á alls 65,5 kg af hassi var byggð á játn- ingu Hallgríms fyrir dómi á misferli með það magn um það leyti sem gæsluvarðhaldi hans lauk í desember 1987, en fyrr hafði Stefán játað inn- flutning á 70 kg af efninu. „Þykir varðveitt hús og í núgildandi deili- skipulagi er gert ráð fyrir að það megi rífa húsið og byggja hús í svip- uðum stíl á lóðinni. Þetta staðfesti formaður skipulagsnefndar, Vil- I ályktuninni segir m.a.: „Ljóst er að ráðstöfunartekjur almennings í landinu munu lækka verulega á næst- unni frá því sem verið hefur um leið og atvinna dregst saman og atvinnu- leysi eykst. Möguleikar húsbyggjenda og kaupenda til að standa í skilum vegna íbúða sinna versna því mjög af þeim sökum. Skerðing vaxtabóta breytir aðstæðum þeirra enn til hins verra.“ Húsnæðismálastjórn ályktaði einn- rétt að miða við framburð ákærða Hallgríms Ævars í þessu efni ákærðu til hagsbóta og verður því slegið föstu, að magnið hafi verið sem næst 65,5 kg en ekki 67-70 kg“, segir í dóminum. Þá segir að það þyki verka til þyngingar refsinga ákærðu að þeir séu báðir fulltíða menn og standi saman að því að flytja inn og koma í sölu mjög miklu magni fíkniefna í von um stórfelldan hagnað. Aðferð sú sem þeir hafí beitt við brot sín hafi verið þrauthugsuð og þyki hlut- ur þeirra í brotunum jafn þótt ástæða sé til að ætla að hugmyndin að fram- kvæmd þeirra hafi verið komin frá Stefáni en Hallgrímur hafi staðið að þeim og notið hagnaðarins. Ekki sé ljóst hver hagnaður mannanna hafi verið en ætla megi að hann hafi verið verulegur. Á hinn bóginn var tekið tillit til þess hve lengi það dróst að dæma í málinu en á þeim drætti hafi mennirnir tveir enga sök átt. Auk fyrrgreindrar refsingar, fjög- urra ára fangelsis og greiðslu 500 þúsund króna sektar, voru mennirnir dæmdir til að greiða lögmönnum sín- um, Gísla Gíslasyni og Jóni Magnús- syni, 160 þúsund krónur hvorum f málsvamarlaun og óskipt til greiðslu alls sakarkostnaðar. hjálmur Þ. Vilhjálmsson, við okkur skömmu áður en við keyptum hús- ið.“ Þorgeir sagði að Póstur og sími hefði ekki beðið um að húsafriðunar- nefnd skoðaði málið. ig um jöfnun húsnæðiskostnaðar og bendir á að ekki hafi verið fyrir hendi sá samfélagslegi stuðningur við leigj- endur sem vaxta- og húsnæðisbætur hafa verið húsbyggjendum og kaup- endum. „Því hvetur húsnæðismála- stjórn til þess að hraðað verði laga- setningu um húsaleigubætur eða hús- næðisstyrki og er í því efni vísað til stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar," segir í ályktuninni. Borgarminjavörður Oheimilt er að rífa Hótel Vík Póst og síma greinir á við minja- vörð um byggingartíma hússins MARGRÉT Hallgrímsdóttir borgarminjavörður segir að Pósti og síma sé óheimilt að rífa Hótel Vík við Ingólfstorg. Stofnunin festi kaup á húsinu fyrir skömmu og sagði Ólafur Tómasson póst- og símamála- stjóri frá því í samtali við Morgunblaðið að fyrst um sinn yrðu skrif- stofur í húsinu, en síðan stæði til að rífa það og byggja nýtt hús á lóðinni. Borgarminjavörður segir hins vegar að þjóðminjalög heimili ekki niðurrif hússins án umsagnar húsafriðunarnefndar og minjavarð- ar, þar sem það sé eldra en frá aldamótum. Framkvæmdasljóri umsýsludeildar Pósts og síma telur húsið hins vegar ekki eldra en frá aldamótum í sinni elztu gerð. Hótel Vík árið 1910. * Alyktun húsnæðismálastjórnar Skerðing vaxtabóta eykur vanskil við byggingasjóði Á FUNDI húsnæðismálastjórnar nýlega var samþykkt ályktun þar sem varað er við afleiðingum fyrirhugaðrar skerðingar vaxtabóta hjá efnalitlum fjölskyldum með lág eða meðallaun. Þessar fjölskyldur séu þegar á mörkum þess að ráða við skuldbindingar sínar og skerð- ing vaxtabótanna hjá þeim muni auka vanskil við byggingasjóði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.