Morgunblaðið - 15.12.1992, Blaðsíða 49
in um gróf mannréttindabrot ættu
þeir að horfa á staðreyndir í réttu
samhengi og forðast stórar alhæf-
ingar og sleggjudóma.
Fyrir rúmum mánuði báðu
Bandaríkjamenn Rússa að styðja
ásakanimar með áþreifanlegum
dæmum. Það hafa Rússar ekki
getað gert enn. í stærsta dagblaði
Lettlands, Diena, voru nokkrir
sendiherrar erlendra ríkja spurðir
álits á ásökunum um mannrétt-
indabrot í landinu. Enginn þeirra
var tilbúinn að taka undir þær.
Borgararéttindi tengjast almenn-
um mannréttindum vafalaust á
einhvem hátt en Andreas Odahl,
sendiherra Svía í Lettlandi, benti
á að „ríkisborgararéttur er ekki
nauðsynlega hluti mannréttinda".
Kristine Biering, sendiherra Dan-
merkur, lét í ljósi þá von að „lett-
neskum stjómvöldum mætti lánast
að semja raunhæfa löggjöf um
borgararéttindi í landinu".
í þessari margslungnu stöðu
verður Lettland, byggt ólíku fólki
sem er þar á afar ólíkum forsend-
um, að leita raunhæfra lausna og
horfa fremur til framtíðar en for-
tíðar. En undan því verður samt
ekki skorist að horfast í augu við
söguna, slíkt væri mjög í anda
Sovétríkjanna sálugu (eftir bylt-
inguna ákváðu Sovétmenn t.d. að
hætta að borga erlrendar skuldir
keisarans). Við eigum skuld að
gjalda þeim tugum þúsunda Letta
sem fluttir voru nauðugir í burtu
eða pyntaðir og drepnir. Við krefj-
umst ekki refsinga yfir þeim sem
frömdu þessa glæpi gagnvart þjóð-
inni, en við ætlum svo sannarlega
ekki að horfa framhjá fortíðinni
þegar við leysum úr okkar vanda-
málum.
Lettland er eitt aðildarríkja
RÖSE (Ráðstefnu um öryggi og
frið í Evrópu) og hefur tekið á sig
þá ábyrgð og skyldur varðandi
mannréttindi sem því fylgir. En
menn verða að skilja að nú þegar
Letta höndla sitt nýfengna frelsi
verða þeir að gera upp við 50 ára
sögu kúgunar og undirokunar. Það
verður að gera greinarmun á metn-
aði stórveldis og baráttu smáþjóðar
fyrir tilvist sinni.
Nýlegir atburðir í stjórnmálum
heimsins sýna okkur ljóslega að
of miklar einfaldanir við lausn
vandamála geta raskað jafnvægi
og fyrr eða síðar brjótast stað-
reyndirnar upp á yfirborðið.
í fyrsta sinn í sögunni býr frjálst
Lettland í nábýli við frjálst Rúss-
land, þar sem veikburða lýðræði
skýtur nú rótum við hlið afla sem
sæta færis að uppræta það og
hverfa aftur til tíma alræðis.
Aðstoðar utanríkisráðherra
Rússlands hefur sagt að „hvemig
sem spumingamar varðandi borg-
araréttindi verða leystar verða allir
íbúar Lettlands að hafa jöfn efna-
hagsleg, félagsleg og menningar-
leg réttindi“. Undir þetta hafa
Lettar tekið mótbárulaust.
Beri stjórnmálamennimir gæfu
til að finna skynsamlega og stjóm-
kænskulega leið, sem tekur mið
af siðferðilegum og raunhæfum
andstæðingum, þá eiga þeir heiður
skilinn. Einfeldnisleg hugsun í
stjómmálum er háskaleg í margsl-
ungnum heimi. Hún getur leitt til
yfírborðskenndra lausna sem iðu-
lega eru stórveldum heimsins í hag.
Hvað skyldum við leita óvinar-
ins? Þar sem bjartast er og auð-
veldast að fást við hann eða í þeim
skúmaskotum þar sem hann raun-
vemlega dylst?
Höfundur er fri Lettlandi og
stundar nám við Háskóla íslands.
-MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1992
49
Verslun Tékk-
-Kristalls í
Fákafeni
Tékk-Kristall hefur opnað sína þriðju versl-
un og er hún í stóru og rúmgóðu húsnæði
við Fákafen. Sú verslun selur sömu vöm
og verslanimar við Laugaveg og í Kringl-
unni, en býður að auki vömr frá þekktum
fyrirtækjum á Ítalíu. Þar er um að ræða
margar gerðir teborða, smáborða, blómas-
úla, borðlampa og spegla. Verslunin á
Laugavegi 15 verður lögð niður eftir jól
og mun því Tékk-Kristall reka tvær versl-
anir eftir það. Hjónin Erla Vilhjálmsdóttir
og Skúli Jóhannesson hafa átt og rekið
fyrirtækið frá upphafi, eða í 21 ár.
BILALEIGA
Úrval 4x4 fólksbfla og station bfla.
Pajero jeppar ó.fl. teg. Pickup-bllar
með einf. og tvöf. húsi. Minibussar og
12 sæta Van bílar. Farsímar, kerrur f.
búslóðir og farangur og hestakerrur.
Reykjavík 686915
iníerRent
Europcar
BILALEIGA
AKUREYRAR
Fáðu gott tilboð!
KODDAHJAL
HÖFUÐ & HERÐARIFULLK0MINN1HVÍLD
DUNL0PILL0 hágæða LATEX koddarnir eru sérlega þægilegir,
formsteyptir úr náttúrugúmmíi sem ekki tapa lögun sinni við langvarandi notkun
LATEX koddarnir þola þvott, eru ekki ofnæmisvaldandi, safna ekki í ryki
og í þeim þrífast ekki sýklar eða bakteríur.
NATURELLE
Lúxus heilsukoddi,
framleiddur úr 100%
náttúrugúmmíi, LATEX.
Formsteyptur þannig
að hann gefur réttan stuðn-
ing við höfuð og herðar.
SERENITY
Þunnur og mjúkur LATEX
koddi fyrir þá sem vilja hafa
lítið undir höfðinu.
SUPER COMFORT
Þykkur meðalstífur LATEX
koddi. Notalegur og sívinsæll
fyrir þá sem vilja hafa
hærra undir höfðinu.
BRJÓSTAGJAFAPÚÐI
Hvílir móður og barn, veitir
stuðning og hjálp
við bijóstagjöf.
•é
LYSTADUN-SNÆLAND hf
Skútuvogi 11 12 4 Reykjavík S í m i 8 1 4 6 5 5 / 6 8 5 5 8 8
Sendum í póstkröfu um land allt.