Morgunblaðið - 15.12.1992, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 15.12.1992, Blaðsíða 13
,:.MQ}jqijiýBMPH> ÞRIDJUDAqU^ 1992 í heimi dægurlaga Bókmenntir Erlendur Jónsson Svavar Gests: Hugsað upphátt. Æviminningar. 292 bls. Fróði hf. 1992. Nafn Svavars Gests er einatt tengt dægurlögum og skemmtiþátt- um. Og víst ber hvort tveggja hátt í þessum æviminningum hans. En bemsku hans i Reykjavík er líka gerð ýtarleg skil. Þau urðu örlög Svavars Gests eins og svo margra barna á fyrri tíð að njóta hvorki föður- né móðurumhyggju. Fólk, sem hafði nóg að bíta og brenna og þar að auki. hjartarúm ærið, tók drenginn að sér og ól hann upp. Þetta voru krepputímar og hvorugt taldist þá til sjálfsagðra hluta, at- lætið né ástríkið. Ef verr hefði far- ið er ólíklegt að efni hefði skapast í þær minningar sem höfundur er nú búinn að færa í letur. Dagar drengsins liðu við þetta venjulega, skólanám, leiki úti við og fjölskyldulíf inni við. Svavar lýs- ir hvoru tveggja með sömu ná- kvæmninni, ærslum krakkanna og uppátækjum, og veisluborðí fóstur- móður sinnar á sunnudögum. »Mér er nær að halda að sunnudagsheim- sóknir hafi verið eina tilbreytingin sem alþýðufólki bauðst á þessum árum,« segir Svavar. Raunar hófst ævi bamsins með talsverðri flækju og sviptingum svo litlu munaði að hlutskipti hans yrði það sem olnbogabömum þjóðfélags- ins bauðst þá verst. Það var meðal annars góðri systur að þakka að drengurinn bjargaðist frá þeim hremmingum. í fyllingu tímans gerði hann svo upp við þetta ævi- skeið með því að klippa son aftan af föðurnafni sínu. Þannig varð til hinn frægi og vinæli Svavar Gests! Sár gróa en — skilja eftir sig ör. Og þau leyna sér ekki heldur í sjálfsmynd þeirri sem Svavar hefur nú dregið upp. En á misjöfnu þríf- ast börnin best. Bam, sem kynnist snemma dökku hliðunum, verður varara um sig þegar það tekur að bera ábyrgð á sér sjálft og geymir því betur í minni að ekki em allir viðhlæjendur vinir. Að öðm leyti vom uppvaxtarár Svavars Gests tími glaðværðrar og góðs samlynd- is. En æskuárin líða, Svavar Gests verður tónlistarmaður, aflar sér til þess góðrar menntunar, leikur í hljómsveitum, stofnar hljómsveit, kynnist bakhlið skemmtanalífsins jafnt og glansandi framhlið þess, tekur fljótlega að starfa fyrir út- varp og er haft fyrir satt að þættir hans hafí verið með alvinsælasta efni sem útvarpið flutti meðan það Jólatónleikar verða haldnir í Selfosskirkju þriðjudaginn 15. desember kl. 21 og á Borg á Mýr- um miðvikudaginn 16. desember kl. 21. A efnisskrá verða: Kvartett fyrir flautu og strengi kv. 285; Dúett fyr- ir fíðlu og víólu kv. 423; Kvintett fyrir klarinettu og strengi kv. 581. Og á þessum rúmlega klukkustund- arlöngu tónleikum gefst tónleika- gestum tækifæri til að hlýða á kammertónlist eftir Wolfgang Amad- eus Mozart við kertaljós. Flytjendur, var eini ljósvakamiðillinn. Þegar árin færðust yfír og tónlist sú, sem Svavar og jafnaldrar léku á dans- leikjum, gekk ekki lengur, hélt Svavar eigi að síður áfram að bæta skap útvarpshlustenda með léttu rabbi jafnframt því að rifja upp dægurlögin frá gömlu góðu árun- um. Yfír heildina litið er létt yfír þess- um æviminningum þótt ýmsa skugga hafí borið fyrir á ævi höf- undar. En jafnvel björtustu dagar eiga sér upphaf og endi í myrkri nætur. Hér eru sólskinsstundirnar svo.miklu fleiri. Svavar Gests hefur fengið að njóta hæfíleika sinna, verið þjóðkunnur, vinsæll og hepp- inn. Hann hefur verið fundvis á samstarfsmenn og næmur fyrir stemmningu líðandi stundar á hverjum tíma. Hann hefur hvorki bakað sér öfund né óvild en áunnið sér þakklæti margra. Og hvers er Ármann Helgason, Hallfríður Ólafsdóttir, Hildigúnnur Halldórs- dóttir, Gréta Guðnadóttir, Guðmund- ur Kristmundsson og Sigurður Hall- dórsson, eru við tónlistarstörf í Sinf- óníuhljómsveit íslands og víðar, en koma nú saman aftur í fyrsta sinn eftir langskólanám í tónlistarháskól- um erlendis. í fréttatilkynningu segir að sömu flytjendur verði með jólatónleika í Sólon íslandus á Þorláksmessu. Einnig eru fyrirhugaðir fleiri tónleik- ar milli jóla og nýárs. Jólatónleikar á Sel- fossi o g í Borgamesi Flytjendur á jólatónleikunum. veggjum og ræðst ógjarnan framan að þeim sem hún telur sig ekki ráða við. Hitt er ef til vill gleymt að Svav- ar Gests er líka gamall rithöfund- ur. Þó ritstörf hans hafí fallið í skuggann af öðrum umsvifum og sjálfur geri hann minna en lítið úr skáldskapariðkunum sínum leynir sér ekki að æviminningar þessar eru í letur færðar af manni sem vanur er að setja saman skrifaðan texta. Að Svavar Gests hætti fljót- lega að þenja Pegasus má hafa helgast af því að ritstörf útheimta í raun einveru og innilokun og hefðu því illa samrýmst þátttöku hans í skemmtanalífinu. Því Svavar Gests hefur verið maður andartaksins, lif- að fyrir líðandi stund og sem slíkur sett svip á þjóðlífið. Að sameina þjóðina, þótt ekki sé nema stund og stund í senn fyrir framan út- varpstækið, er hreint ekki svo lítið þegar öllu er á botninn hvolft. I skemmtiþáttunum frægu, sem Svavar Gests stjórnaði á árum áð- ur, talaði hann um allt nema sjálfan sig. Hafí einhver saknað þess bætir hann úr því nú með þessum ævi- minningum. Svavar Gests þá framar hægt að óska sér? Ekki er hann laus við að vera pólitískur, að vísu. Og fyrir hefur komið að púðurskotum hafí verið beint að honum þeirra hluta vegna. Aldrei hefur þó verið reynt að salla hann niður. Þar hefur hann notið sinnar almennu hylli. Pólitíkin læðist með AUKAHLUTIR UM JOLIN TOYOTA GOTT ER BLESSAÐ VERÐIÐ! Ef ástkær maki þinn eöa elskulegir foreldrar eru í hópi þeirra fjölmörgu sem hafa mikið dálæti á Toyotunni sinni (þaö minntist enginn á bíladellu) geturöu hætt að brjóta heilann um hvaö þú eigir aö gefa þeim í jólagjöf. • Ljóskastarasett frá.kr.'4.312 • Drullutjakkar........kr.5.782 • Verkfæratöskur 100 stk. ...frá kr.6.988 • Dráttartóg........frá kr.1.441 • Armbandsúr...frá kr.1.470 - 5.488 • Lyklakippur.......frá kr.372 • Leikfangabílar.........kr.998 • Húddhlífar........frá kr.4.675 • Ljósahlífar......frá kr. 4.635 Aukahlutur - aðalgjöfin handa T oyotaeigandanum! TOYOTA Aukahlutir NÝBÝLAVEGI6-8 KÓP. SÍMI634400
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.