Morgunblaðið - 15.12.1992, Page 30

Morgunblaðið - 15.12.1992, Page 30
30 íggi naaMaawu ,si huoauuuiihu cikiajhmuohom MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1992 Jón Þorlaksson for sætisráðherra eftir Jónas Haralz Inngangur Á síðustu æfiárum Jóns Þorláks- sonar, í upphafi fjórða áratugar þessarar aldar, tók þróun þjóðmála bæði hér á landi og annars staðar allt aðra og geigvænlegri stefnu en hann hafði vonað. í stað vaxandi frjálsræðis í efnahagsmálum komu höft, innilokun og miðstýring. í stað aukins skilnings og tillitssemi á meðal manna og þjóða kom stétta- rígur, átök og styijaldir. í stað far- sællar stjórnar á grundvelli nýfeng- ins lýðræðis kom upplausn, er víða leiddi til einræðis og kúgunar. Sam- tímamaður Jóns, en mótheiji hans í stjómmálum, Stefán Jóhann Stef- ánsson, segir, að um það leyti sem hann kynntist Jóni í bæjarstjórn Reykjavíkur, fáum árum fyrir and- lát hans, hafi hann staðið „óbifan- legur í straumrótinu, sem hann muni þó hafa haft hugboð um, hvert stefndi, hvað sem skoðunum hans sjálfs leið.“ Vissulega hlaut Jón Þorláksson að hafa haft slíkt hug- boð. Allt starf hans, að verklegum framkvæmdum, að bættum efna- hag, að betra stjórnarfari hafði beinst að því að forðast þær hætt- ur, sem nú riðu yfir. Vonbrigðin hlutu að vera djúp og sár. Við lifum nú nýja og betri tíma. Hildarleikur síðari heimsstyijaldar er langt að baki, langvinnt kalt stríð á milli andstæðra lífsskoðana er loks útkljáð. Ný tækni sameinar heimsbyggðina. Fijálsir viðskipta- hættir ryðja sér allstaðar til rúms. Lýðræðið brýtur sér hvarvetna braut. Allt þetta hefði verið Jóni Þorlákssyni mikið gleðiefni. Hann hefði séð það rætast í lok aldarinn- ar, sem hann hafði vonað að gæti orðið um miðbik hennar. En hann hefði einnig vitað, að enn gæti illa farið, að enn þyrfti næman skilning á mannlegu eðli, tillitssemi á milli manna, stétta og þjóða, samfara heilbrigðum metnaði, virðingu fyrir þeim dyggðum, er bezt hefðu dug- að, ef lýðfijálst samfélag ætti að geta blómgast og dafnað um heims- byggðina. Einmitt þess vegna skipt- ir það miklu máli að rifja nú upp skoðanir, viðhorf og æfístarf Jóns Þorlákssonar, ekki sízt fyrir okkur, er skipum þann flokk, sem hann átti svo ríkan þátt í að móta í önd- verðu. Bók Hannesar Gissurarsonar um Jón Þorláksson kemur því í góðar þarfir á réttum tíma. Hannes á skilið miklar þakkir og heillaóskir okkar allra að þessu mikla verki afloknu. Dauðir hlutir og lifandi samfélag Þegar rætt er um Jón Þorláksson er oft vitnað til þeirra ummæla Árna Pálssonar, prófessors, bekkj- arbróður hans og vinar, að Jón hafi haft „allra lifandi manna mest vit á dauðum hlutum". Þessi um- mæli hafa verið túlkuð sem vísbend- ing um miklar takmarkanir Jóns. Hann hafi verið góður verkfræðing- ur en lítill mannþekkjari. Jafnframt hafi hann verið litt gefinn fyrir að láta tilfinningar sínar í ljósi, jafnvel verið kaldlyndur. í sömu átt hníga ummæli helsta andstæðings Jóns í stjórnmálum, Jónasar Jónssonar frá Hriflu, er hann segir, að Jóni látn- um, að honum hafi verið tamt að álykta út frá föstum lögmálum hinnar dauðu náttúru um mannleg málefni, sem ekki hafi alltaf átt við. Hann hafi litið „á mannfélagið eins og óbrúað fljót, þar sem ein- göngu þyrfti að beita þekkingu á náttúrulögmálunum til að sigra efn- isheiminn“. Þessar skoðanir geta við fyrstu sýn virst skarplegar og raunsæjar. Við nánari athugun verður þó ann- að uppi á teningnum. Jón Þorláks- son var vissulega góður verkfræð- ingur, en verkfræðingar hafa ekki áhuga á dauðum hlutum nema vegna samhengis þeirra hluta við mannlega tilveru. Þar að auki var Jón Þorláksson ekki aðeins verk- fræðingur. Hann hafði lagt sig fram um að skilja og skýra eðli og lög- mál mannlegs samlífs meir en flest- ir, ef ekki allir, samtíðarmenn hans höfðu gert. Hann hafði komist að þeirri niðurstöðu að þetta samlíf yrði að vaxa og þröskast eftir eigin lögmálum. Það væri líkt tré eða öðrum gróðri, sem hlúa yrði að með því að búa honum hæfileg skilyrði til vaxtar, en ekki líkt vél, sem taka mætti sundur og setja saman eftir vild. í stað orða Árna Pálssonar um vit á dauðum hlutum væri réttara að segja, að Jón Þorláksson hefði haft manna dýpstan skilning á lif- andi mannlegu samfélagi. Það voru hins vegar andstæðingar hans, sem trúðu því, að hugmyndasmiðir gætu hannað og smíðað hið fullkomna samfélag, þar sem „um réttmæta skiptingu náttúrugæðanna verði ekki deilt fremur en gang himin- tungla og hreyfingu skriðjökla“, eins og Jónas Jónsson komst að orði. Þegar allt kemur til alls er það einmitt skilningur Jóns Þorláksson- ar á lífrænu eðli mannlegs samlífs, sem er undirrót ásakana um að mannúð hans hafi verið ábótavant. Samkvæmt skilningi Jóns Þorláks- sonar felast umbætur í að hlúa að gróðri, sem sprettur á löngum tíma. Því eru þröng takmörk sett, hversu miklum árangri má ná og sá árang- ur næst ekki nema eftir þeim leið- um, sem framþróunin sjálf vísar á. Tilraunir til að fara aðrar leiðir og til að hraða ferðinni, af hversu mikl- um mannkærleika sem þær kunna að vera sprottnar, leiða ekki til gæfu heldur til ófarnaðar. Stuðningur við atvinnuvegi Þessi grundvallarskoðun Jóns Þorlákssonar kemur skýrt fram í afstöðu hans til stuðnings við ís- lénskan landbúnað. í miklum um- ræðum, sem urðu um þau mál á Alþingi árið 1925, minnir Jón Þor- láksson á að hann sé af bænda- bergi brotinn. „Vér fulltíða menn- irnir,“ segir hann, „sem langflestir erum aldir upp í sveit, höfum þá ást á sveitamenningunni, sem er æskumenning okkar sjálfra, að vér viljum með engu móti horfa upp á neina hnignun hennar, ef vér fáum við ráðið.“ Jón vildi efla sveitirnar til þroska með því að bæta starfs- skilyr^in, einkum með aukinni öflun lánsíjár er bæri eðlilega vexti, en ekki með styrkjum eða gjöfum, sem hann taldi misbjóða virðingu bænda. Stofnun nýbýla væri einnig til óþurftar, þar sem næg verkefni væru óunnin á eldri býlum. Hann segir: !Það er reynsla allra tíma, að engin menning þrífst meðal þeirra, sem aldir eru til langframa á ölmusugjöfum... Menningin bygg- ist á því, að menn beiti sínum eigin kröftum fyrst og fremst, og leiðin til að efla ræktun og byggingu í sveitunum.er sú að kalla á starfs- vilja manna með því að skapa þeim hagstæðari skilyrði en nú eru til árangurs af eigin starfsemi, m.a. með útvegun iánsfjár, þar sem notkun þess á við.“ . Hliðstæð þessu var afstaða Jóns Þorlákssonar til atvinnumála bæj- anna. Þegar hann varð borgarstjóri í Reykjavík á kreppuárunum upp úr 1930 vildi hann umfram allt bægja atvinnuleysinu frá. En hann vildi ekki gera það með auknum opinberum rekstri og var andsnúinn bæjarútgerð, sem þá var sums stað- ar upp tekin. „Ef togaraútgerð get- ur ekki borið sig styrklaust, getur bæjarútgerð ekki bjargað þeim út- veg,“ voru orð hans. í stað þeás vildi hann efla útgerð smærri báta með því að búa þeim betri hafnarað- stöðu, bryggjur og verbúðir, og út- vega fé til byggingar báta. Með Jónas Haralz Allt þetta hefði verið Jóni Þorlákssyni mikið gleðiefni. Hann hefði séð það rætast í lok ald- arinnar, sem hann hafði vonað að gæti orðið um miðbik hennar.“ þessu móti gætu ungir dugnaðar- menn ráðist í bátaútgerð, einir sér eða fleirí saman, enda þótt þeir ættu ekki yfir miklu fjármagni að ráða. Þetta væri „sjálfstæðismál sjómannastéttarinnar" eins og hann komst að orði. Enn fremur vildi hann sem fyrst, og þá einmitt á meðan kreppan heijaði, hefja fram- kvæmdir við hin miklu mannvirki Sogsvirkjunar og hitaveitu. I þessari afstöðu Jóns Þorláks- sonar sem borgarstjóra kom fram sá skilningur á hlutverki opinberra aðila, sem hann hafði hvað eftir annað lýst löngu fyrr. Opinberir aðilar ættu að gæta hófs. Þeir ættu vissulega að stuðla að samgöngu- bótum og auðvelda aðgang að lánsfé, en þeir ættu ekki að reka atvinnufyrirtæki. Greiðari aðgang- ur að lánsfé ætti heldur ekki að fela í sér lægri vexti en aðstæður bentu til. „Ef reynt er að þrengja vöxtunum niður fyrir það, sem ástand peningamarkaðarins út- heimtir, þá þverra peningalindirnar og kyrkingur kemur í allar fram- kvæmdir," eins og hann segir í þingræðu árið 1925. Þjóðarmetnaður Jón Þorláksson var af þeirri kyn- slóð íslendinga, sem kom til mann- dóms um aldamótin, og hafa verið nefndir aldamótamenn. Hannes Gissurarson segir i bók sinni, að meginstef þessara manna hafí verið „áköf framfaralöngun, sú hugmynd að íslendingar yrðu að spretta úr spori og komast jafnfætis grann- þjóðunum". Þessa löngun átti Jón Þorláksson í ríkum mæli, eins og kemur fram í greinum hans og ræðum bæði fyrr og síðar. Það sem hins vegar greindi hann frá mörg- um samtíðarmönnum hans var raunsæið og kunnáttan. Hann var maður hinna vinnandi vega. Þessu hefur hann best lýst sjálfurí greina- flokki um járnbrautarmálið, sem birtist í Lögréttu um áramótin 1914-15. Hann tekur líkingu af mönnum, sem standa frammi fyrir Grettistaki, steini, sem virðist svo stór og þungur, að hann sé óviðráð- anlegur mennskum mönnum. Sumir mannanna myndu sitja kyrrir og segja, að enginn gæti lyft slíku bjargi. Aðrir myndu hlaupa til at- lögu og stritast unz þeir örmögnuð- ust. En til væru þeir menn, sem myndu fyrst fara og skoða steininn, mæla stærð hans og reikna út þyngd, útvega sér hæfilegar trönur og lyftitæki, koma fyrir festum, og að lokum vinda bjargið á loft upp. Undirtektir þjóðarinnar gætu sömu- leiðis orðið á þessa þijá vegu. Hún gæti látið hendur fallast. Hún gæti anað undirbúningslaust að verkefn- inu. En þriðji kosturinn væri að íhuga vandlega, hvemig nota mætti nútímatækni til að leysa verkefnið, rannsaka, undirbúa og framkvæma síðan af fullri fyrirhyggju. Raunsæi Jóns Þorlákssonar fylgdi ríkur þjóðlegur metnaður: „í öllum þeim atvinnugreinum, sem vér stundum eða þurfum að stunda, verðum vér að komast svo langt, að þar stöndum vér öðrum jafnfæt- is,“ segir hann í þessum sama greinaflokki. Þessi metnaður kom einnig fram í skoðunum Jóns á fjár- málum og peningamálum. íslend- ingar urðu að sýna sig vera menn til að stjórna þeim málum áf fullri ábyrgð. Landssjóður má ekki lenda í vanskilum. „Þetta má ekki verða endirinn á okkar sjálfstæðissögu,“ segir hann í hinu alvöruþrungna erindi um fjárstjórn íslands í árs- byijun 1924. íslenzka krónan má heldur ekki verða kotungskróna, verðminni en fullgildar krónur hinna Norðurlandanna, augljóst merki þess, að íslendingar hafi ekki viljað leggja á sig þá þrekraun, sem hinar þjóðirnar höfðu gert til þess að koma myntinni í löglegt horf. í erindi um úrlausn gengismálsins í febrúar 1929 segist hann leggja hina ríkustu áherzlu á það, „að úrlausn gengismálsins verði aldrei á þann veg, að nokkur maður geti með sanni sagt, að við höfum ekki sýnt okkur fyllilega sjálfstæðinu vaxna“. Jafnframt því sem íslendingar sýndu sig færa um að bera fulla ábyrgð á málum sínum, hlutu þeir að ætlast til þess að aðrar þjóðir, og þá ekki sízt önnur Norðurlönd, viðurkenndu þá sem fullgilda aðila í sínum hópi. Þessi afstaða Jóns Þorlákssonar kom fram, skýr og ákveðin, í tillögu hans um, að Al- þingi skyldi minnast þúsund ára afmælisins 1930 með því að sam- þykkja aðild íslands að gerðardóms- samningum á milli Norðurland- anna. Það mál hafði vedð undirbúið í forsætisráðherratíð Jóns, en þá mætt andstöðu danska utanríkis- ráðuneytisins. Nú, á hátíðaári, gerði sú andstaða sig ekki gildandi, og aðildin var staðfeSt. Þetta var mikil- vægt skref til endanlegrar viður- kenningar íslands sem fullvalda rík- is og fullgilds þátttakanda í nor- rænu samstarfi. Fjárstjórn Það hefur viljað brenna við, að litið væri á fjárstjóm Jóns Þorláks- sonar á árunum 1924-27 sem ein- hliða viðleitni til sparnaðar, sem heft hafi framfarasókn landsins með mikilli skerðingu útgjalda, jafnt til menningarmála sem til opinberra framkvæmda. Við þessa skoðun er þó ýmislegt að athuga. í þeirri nákvæmu úttekt, sem Jón Þorláksson tók sjálfur saman árið 1923 um fjárstjórn íslands allt frá 1874 til 1922, hafði komið í ljós, að mikill tekjuhalli hafði myndast frá árinu 1916. Þetta hafði gerzt eftir að ráðherrum fjölgaði og tekið var að stofna til útgjalda án þess að sjá um leið fyrir tekjum. Örðug- leikar í efnahagsmálum á síðustu árum styijaldarinnar höfðu einnig haft sitt að segja. Þá hafði gerð landreikninga verið breytt svo að niðurstaða þeirrra sýndi ekki lengur rekstrarafkomu heldur breytingar á sjóði, auk þess sem sérstökum lið- um, einkum þeim, er snertu þá Landsverzlun, sem stofnað hafði verið til, var haldið utan reikning- anna. Samanlagður halli áranna 1917-22 reyndist því miklum mun meiri en menn höfðu gert sér í hugarlund. Lánstraust landsins var á þrotum og fjár vant til daglegra og mánaðarlegra útgjalda. Jón Þor- láksson taldi, að vanskil landssjóðs væru á næsta leiti og það hlyti að verða aðalverkefni þess þings, sem saman kom snemma árs 1924, að finna ráð til viðreisnar fjárhagsins. Þetta er baksvið þeirra sparnað- araðgerða, sem framkvæmdar voru á þinginu 1924 og munu vera þær ströngustu, sem um getur í fjár- málasögu landsins. Stofnun íhalds- flokksins var bein afleiðing þessa ástands og í yfirlýsingu um stofnun hans segir, að fyrsta verkefni flokksins sé að beitast fyrir viðreisn á fjárhag landssjóðs. Því markmiði verði að ná með því að fella burtu ónauðsynleg útgjöld og leggja niður eða færa saman stofnanir og fyrir- tæki, sem þjóðin geti án verið eða minnkað við sig. Þessar aðgerðir tókust vonum framar, ekki sízt vegna staðfestu hins nýja fjármála- ráðherra. Það kom svo einnig til, að árferði fór mjög batnandi. Það myndaðist því tekjuafgangur á ár- inu 1924, sem jókst verulega á ár- inu 1925. Á tveimur árum voru skuldir landssjóðs greiddar niður um einn þriðja hluta. Þegar þessum árangri var náð, og landssjóður ekki lengur í hættu, gátu almenn sjónarmið Jóns Þor- lákssonar um fjármálastjórn gert sig gildandi, og hann gerir grein fyrir þeim í þingræðum á árunum 1925 og 1926. Jón er þeirrar skoð- unar, að einstaklingar kunni betur að ávaxta fé en opinberir aðilar. Skattar eigi því að haldast lágir og takast fyrst og fremst af eyðslu- eyri. Þetta því fremur sem lágir skattar innheimtist betur en háir. Á hinn bóginn þurfi hið opinbera að sjá fyrir þörfum, sem einstakl- ingar geti ekki tekið að sér, bæði að því er snertir almenna þjónustu og framkvæmdir, sem atvinnuveg- unum komi að gagni. Það sé þó öllum til hagsbóta, að þeim fram- kvæmdum sé haldið í skefjum í góðærum en þær auknar, þegar atvinna rými. Jón var því reiðubú- inn til að auka framkvæmdir og reka landssjóð með nokkrum greiðsluhalla árin 1926 og 1927, þegar árferði fór aftur versnandi. Skoðanir Jóns Þorlákssonar á notkun fjárlaga til jöfnunar hag- sveiflna eru einkar eftirtektarverð- ar og voru settar fram allmiklu fyrr en slíkar hugmyndir hlutu al- menna viðurkenningu. Þær bera vott um „óvenjulega þekkingu Jóns á því viðfangsefni, sem hann fékkst við á þessum tíma“, eins og Gísli heitinn Blöndal komst að orði í dokt- orsritgerð sinni um fjármálastjórn á íslandi. Sú ríkisstjórn, sem tók við stjórnartaumum 1927, fylgdi þó ekki fordæmi Jóns Þorlákssonar og reynslan hefur orðið sú, bæði hér á landi og annars staðar, að þótt ekki sé vandkvæðum bundið að auka útgjöld og lækka skatta, þegar á bjátar, sé ekki heiglum hent að draga saman seglin í góð- ærum. Gengismál En það voru ekki aðeins fjármál þjóðarinnar, sem farið höfðu úr lagi og þui-fti að rétta við upp úr 1920. Hið sama átti við um peningamálin. Jón Þorláksson kynnti sér þau mál af mikilli kostgæfni og gerði grein fyrir niðurstöðum sínum í ritinu Lággengið, er kom út seint á árinu 1924, þegar hann fyrir nokkru var orðinn fjármálaráðherra. Hann fer ekki dult með, að hann líti á þessi mál fyrst og fremst sem sjálfstæðis- mál. „Einnig í peningamálum verð- um vér sjálfír að sjá oss farboða." En það getur ekki lánast nema all- ar ákvarðanir byggist á sem full- komnastri þekkingu og sem gleggstum skilningi á samhengi orsaka og afleiðinga í þessari rás viðburðanna. í bók sinni gerir Jón Þorláksson nákvæma grein fyrir þeim megin- skoðunum sem þá voru uppi um skipan peningamála að loknu um- róti og verðbólgu styijaldaráranna, þegar hvarvetna hafði orðið að hverfa frá gullmyntfæti. Annars vegar voru þeir, sem vildu smá- hækka gengið, þar til hinu fyrra gullgengi var náð, en þetta hefði haft í för með sér lækkun verðlags og kauplags og samdrátt atvinnu- lífsins um nokkurt skeið. Hins veg- ar voru þeir, þeirra á meðal flestir hagfræðingar, sem töldu að gengis- hækkun upp i hið fyrra gullverð myndi verða atvinnuvegunum of- raun. Þeir vildu því viðurkenna orð- inn hlut og festa hið nýja gull- gengi, sem Jón Þorláksson nefndi lággengið. Það fer ekki á milli mála, að það er hækkun gengisins upp í fullt gullverð, sem er Jóni Þorlákssyni mest að skapi. Hún er sú leiðin, sem

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.