Morgunblaðið - 15.12.1992, Side 33

Morgunblaðið - 15.12.1992, Side 33
 Fyrirhuguð breyting á ríkisbönkum í hlutafélagsbanka Rfldsábyrgð verði í tvö ár frá stofnun þeirra l.júlí 1993 Ríkissjóður yfirtaki áfallnar lífeyrisskuldbindingar bankanna NEFND sú sem Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra skipaði til að gera tillögur um hvernig standa beri að breytingum á ríkisbönkunum, Landsbanka og Búnaðarbanka, yfir í hlutafélagsbanka hefur skilað áliti sinu í skýrslu til ráðherra. Nefndin leggur til að hlutafélagsbank- arnir Landsbankinn hf. og Búnaðarbankinn hf. taki til starfa og yfir- taki starfsemi ríkisbankanna 1. júlí 1993 og jafnframt að ríkisábyrgð verði á innistæðum þeirra og innlendum skuldbindingum i tvö ár frá stofnun. Einnig leggur nefndin til að áfallnar lífeyrisskuldbindingar rikisbankanna vegna stjórnenda og annara starfsmanna miðað við 30. júni verði yfirteknar af ríkissjóði. Þá leggur nefndin til að ítarleg kynning fari fram á næstu mánuðum meðal starfsmanna, viðskipta- vina og annara hagsmunaaðila. Nefndin var skipuð þeim Ágústi Einarssyni prófessor sem var for- maður, Brynjólfi Helgasyni aðstoð- arbankastjóra Landsbankans, Hreini Loftssyni lögmanni og Sveini Jónssyni aðstoðarbankastjóra Bún- aðarbankans. Nefndinni var falið að gera tillögur um aðgerðir sem kynnu að vera nauðsynlegur und- anf ari þess að stofnuð verði hlutafé- lög um rekstur ríkisbankanna, svo sem kynning málsins meðal starfs- manna og viðskiptamanna. Einnig var nefndinni ætlað að leggja mat á væntanleg áhrif breytinganna á íjárhagsstöðu bankanna. í áliti sínu sér nefndin ástæðu til að undir- strika að hlutverk hennar var ekki að færa rök fyrir því hvenær eða hvernig hlutabréf ríkissjóðs í hluta- félagsbönkunum skyldu seld. í helstu niðurstöðu nefndarinnar þar sem m.a. er rætt um tímasetn- ingu, ríkisábyrgð og lífeyrisskuld- bindingar segir einnig að skattaieg réttindi og skyldur ríkisbankana verði yfirfærðar til hlutafélags- bankanna. Ekki verði sett á fót sérstök matsnefnd, eða matsnefnd- ir, til að meta efnahagsliði ríkis- liankanna á yfirtökudegi heldur yfírfærist allar eignir og skuldir ríkisbankanna til hlutafélagsbank- anna á bókfærðu verði miðað við 30. júní 1993. Hlutafé verði ákveð- ið lægra en eigið fé bankanna. Sem fyrr segir er kveðið á um ríkisábyrgð á innstæðum og inn- lendum skuldbindingum en nefndin leggur einnig til að ríkisábyrgð verði á erlendum skuldbindingum hlutafélagsbankanna í samræmi við ákvæði um ríkisviðskiptabanka í lögum um viðskiptabanka í tvö ár frá stofnun þeirra 1. júlí 1993. Rik- isábyrgð haldist á skuldbindingum sem ríkisbankamir hafa stofnað til fram að þeim tíma. Starfsmannamál Hvað starfsmannamál í tengslum við breytinguna varðar leggur nefndin áherslu á að hún skerði ekki áunnin réttindi starfsmanna bankanna. Verði þess ekki gætt má búast við mikilli andstöðu þeirra sem getur hæglega spillt málinu. Bæði era starfsmenn margir, eða um 1.600 stöðugildi, auk þess að neikvæð afstaða þeirra getur haft veraleg áhrif á afstöðu viðskipta- vina og almennings. Varðandi lífeyrismál og starfsör- yggi leggur nefndin eftirfarandi til: „Þeim starfsmönnum ríkisbank- anna sem þiggja laun samkvæmt kjarasamningum bankanna og Sambands íslenskra bankamanna verði boðið að yfirfæra ráðningar- samning sinn með öllum þeim rétt- indum og skyldum sem honum fylgja, svo sem varðandi launalq'ör, til hlutaðeigandi hlutafélagsbanka í stað þess að vera sagt upp og boðin endurráðning. Kjósi starfs- maður að taka ekki við starfí hjá hlutaðeigandi hlutafélagsbanka yf- irfærir hann ekki ráðningarsamn- ing sinn og verður litið á það sem uppsögn af hálfu starfsmannsins sem taki gildi að loknum uppsagn- arfresti hans. Skýrt verði tekið kveðið á um það að starfsaldur hjá ríkisbankanum flytjist óskertur yfir til hlutafélagsbankans þannig að ekki verði um að ræða skerðingu á ýmsum réttindum sem tengjast starfsaldri." Hvað bankastjóra, aðstoðar- bankastjóra, útibústjóra og for- stöðumenn endurskoðunardeilda varðar, sem allir era ráðnir af bank- aráðum ríkisbankanna, gildi sama og greint er hér að framan. Hins- vegar leggur nefndin einnig til hvað þennan hóp varðar að í framvarpinu um breytinguna verði kveðið á um að þrátt fyrir ákvæði í ráðningar- samningum þessara manna gildi tólf mánaða gagnkvæmur uppsagn- arfrestur nema kveðið sé á um skemmri uppsagnarfrest í ráðning- arsamningum. Þessi regla þurfi að gilda þótt ekki sé fyrir hendi skrif- legur ráðningarsamningur. Ríkisábyrgð Nefndin telur að án efa hafí eignahald ríkisins á ríkisbönkunum og ábyrgð þess á skuldbindingum Doktor í haffræði SIGRÚN Huld Jónasdóttir varði doktorsritgerð sína í haffræði 3. sept- ember sl. við State University of New York í Stony Brook, Bandaríkjun- um. Sigrún sérhæfði sig í sjávarlíffræði, en ritgerð hennar nefnist „Chemical composition of food and the reproductive success of the copepods Acartia tonsa, Acartia hudsonica and Temora longicomis". Dómnefnd skipuðu Dr. Elizabeth M. Cosper og Dr. Cindy Lee frá State University of New York, Dr. Michael R. Roman frá University of Maryland og Dr. William T. Peterson frá National Marine Fisheries Service-NOAA. Aðalleiðbeinandi var Dr. Darcy J. Lonsdale. Markmið rannsókna Sigrúnar var að kanna hvort efnasamsetning svif- þörunga gæti skýrt stofnstærðar- sveiflur krabbaflóa í sjó, en krabbaf- lær (áta) era ein mikilvægasta fæða seiða og margra smáfiska. Sigrún mældi m.a. magn eggjahvítu, sykra og fitusýra í þörungum og fylgdist með eggjaframleiðslu þriggja krabbaflóategunda og klaki eggj- anna. Rannsóknin var framkvæmd bæði á sjó og í rannsóknarstofu. Góð fylgni fannst milli eggjaframleiðslu og magns eggjahvítu og hlutfalla nokkurra fitusýra í svifþörungum. Gæði fæðunnar höfðu líka mikil áhrif á klakárangur eggjanna. Rannsókn- irnar leiddu einnig í ljós að þörunga- blómar í sjó leiða ekki alltaf til auk- innar eggjaframleiðslu, en efnasa- metning þörungablómans hefur meg- ináhrif á stjórnun krabbaflóastofn- anna. Sigrún Huld er dóttir hjónanna Guðrúnar Vilborgar Guðmundsdótt- ur og Jónasar Eysteinssonar, kenn- ara. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð vor- ið 1979, B.S. prófi í líffræði frá Háskóla íslands vorið 1983, „honor“ þeirra átt þátt í að byggja upp það traust sem Landsbankinn og Búnaðarbankinn njóta. Nefndin telur ekki rétt að tefla í tvísýnu hvað þetta varðar og að lögbundið verði að innistæður og skuldabréf og víxlar sem gefin verða út af hlutafélagsbönkunum í tvö ár frá stofnun þeirra verði með ríkisábyrgð. Með tilliti til þess að lagt er til að ríkisábyrgð haldist á öllum innstæðum í tvö ár telur nefndin ekki ástæðu til sérákvæða að öðra leyti varðandi bundið og óbundið sparifé. Þó þurfi að taka tillit til húsnæðissparnaðarreikn- inga sem byggist á allt að 10 ára bindingu og skattafslætti. Hvað varðar ríkisábyrgð á er- lendum skuldbindingum bendir nefndin á að afnám hennar geti haft þau óæskilegu áhrif að draga úr framboði á erlendu lánsfé og stytta lánstíma á þeim erlendu lán- um sem standa til boða. Meirihluta- eign ríkisins á bönkunum kynni þó að draga úr þeim áhrifum. Til við- bótar má nefna að bankar annars- staðar á Norðurlöndunum hafa far- ið í gegnum þrengingar á síðustu misseram og ríkissjóðir landanna þurft að koma þeim til aðstoðar. Þetta ástand leiðir til þess að er- lendir aðilar verða varkárari en ella í viðskiptum við íslenska banka. í ljósi þessa telur nefndin rétt að fara varlega í þessum efnum og leggur til að lögbundið verði að hlutafélagsbankamir njóti ríkis- ábyrgðar á erlendum skuldbinding- um í tvö ár frá stofnun þeirra. Fjárhagsstaðan bætt um 3,7 milljarða í umfjöllun nefndarinnar um ijár- hagsstöðu bankanna segir m.a. að nefndin leggi til að ríkissjóður yfir- taki lífeyrisskuldbindingar ríkis- bankanna. Með þessu móti vinnist tvennt, í fyrsta lagi er eytt óvissu starfsmanna og í öðru lagi styrkir þetta ijárhagsstöðu ríkisbankanna. I árslok 1991 hafði Landsbankinn lagt til hliðar 1.765 milljónir kr. til að mæta áætluðum lífeyrisskuld- bindingum að upphæð 2.538 millj- ónir kr. Á sama tíma hafði Búnaðar- bankinn lagt til hliðar jafnháa upp- hæð og nam skuldbindingum hans eða 1.176 milljónir kr. Verði farið að tillögum nefndarinnar og ríkis- sjóður yfírtaki þessar lífeyrisskuld- bindingar mun það bæta fjárhags- stöðu ríkisbankanna sem nemur rúmlega 3,7 milljörðum króna mið- að við stöðuna í árslok 1991. Við mat á ijárhagsstöðu ríkis- Sigrún Huld Jónasdóttir prófi í vatnalíffræði frá Háskóla ís- lands haustlð 1984 og M.Sc. prófi í haffræði frá School of Oceanograp- hy, University of Washington í Se- attle Bandaríkjunum í desember 1986. bankanna leggur nefndin ekki til að skipuð verði sérstök matsnefnd þar sem ætla megi að ársreikningur og árshlutauppggjör gefi rétta mynd af fjárhagsstöðunni. Við breytinguna 1. júlí 1993 leggur nefndin til að til grandvallar verði lagt endurskoðað árshlutauppgjör 30. júní 1993 og að hlutafé verði ákveðið lægra en eigið fé bank- anna. „Með því móti er myndaður nokkur varasjóður auk þess sem arðgreiðslur verða lægri heildarfj- árhæð en ef hlutaféið samsvaraði öllu eigin fé,“ segir í áliti nefndar- innar. „Það gerir hlutafélagsbönk- unum betur kleift að styrkja fjár- hagslega stöðu sína ef stefnt er acf því að efla starfsemina eða ef hagn- aður er ekki nægjanlegur til að við- halda eiginfjárhlutfalli. Þegar kem- ur að sölu hlutabréfa í hlutafélags- bönkunum verði þau verðmetin rétt eins og gert hefur verið við sölu á eignarhlut ríkissjóðs í öðram fyrir- tækjum.“ Sala hlutabréfa Nefndin telur afar biýnt að reynt verði að skilja á milli breytingarinn- ar í hlutafélagsbanka annarsvegar og sölu á hlutabréfum í eigu ríkis- sjóðs hinsvegar. Til að undirstrika þetta leggur nefndin til að aðskilin framvörp verði flutt um þessa tvo þætti. I öðra þeirra verði einungis ljallað um breytingu á ríkisbönkum í hlutafélagsbanka og það væntan- leg lagt fram í upphafí næsta árs og í hinu síðara, sam lagt verði fram á Álþingi þegar stjórnvöid telja að aðstæður hafi skapast til að selja hlutabréfin, verði ráðherra veitt heimild til að selja hlutabréfin og kveðið á um skilyrði ef um slíkt verður að ræða. Þrátt fyrir tvískiptingu málsins telur nefndin afar mikilvægt að í athugasemdum með framvarpinu um breytingu á ríkisbönkum í hluta- félagsbanka komi fram megin- drættir í stefnu stjórnvalda um sölu á hlutabréfunum. í því sambandi nefndir nefndin einkum eftirfarandi atriði: „Aðgerðir til að koma í veg fyrir samþjöppun fjármálavalds, svo sem með reglum um að einstakir aðilar eða íjárhagslega tengdir aðilar megi ekki kaupa nema tiltekið há- mark af hlutum í bönkunum. I samþykktum hlutafélagsbank- anna verði kveðið á um að einstak- ir innlendir eða erlendir aðilar eða fjárhagslega tengdir aðilar megi ekki fara með nema tiltekið hlut- fall af atkvæðum á hluthafafund- um. Að mati nefndarinnar mætti þetta hlutfall ekki vera hærra en 20%. Starfsfólki bjóðist hlutabréf á sérstökum greiðslukjöram eins og gert hefur verið við sölu á hlutabréf- um ríkissjóðs í öðrum fyrirtækjum að undanförnu.“ Greinargerð Sveins Jónssonar Með skýrslu nefndarinnar fylgir sérstök greinargerð frá einum nefndarmanna, Sveini Jónssyni, sem m.a. telur að tillögur nefndar- innar um áætlaða sölumeðferð hlutabréfanna gangi of skammt og hann telur af þeim sökum ekki tíma- bært að festa tímasetningar um framvindu málsins eins og gert er í skýrslu nefnarinnar. Sveinn varpar fram eftirfarandi spurningum: „Verður stefnan í sölu hlutabréfa miðuð við að ná sem mestri sam- stöðu um málið meðal starfsmanna, viðskiptamanna og annarra hags- munaaðila í bönkunum þannig að viðskiptatrausti bankanna og mark- aðsstöðu verði ekki teflt í tvísýnu? Munu fjárþörf ríkissjóðs og að- £33 stæður á hlutabréfamarkaðinum ráða ferðinni í þessu efni fremur en framangreind sjónarmið? Kemur til greina að beina sölu á bréfum ríkissjóðs, að minnsta kosti í fyrsta áfanga, að ákveðnum mark- hópum meðal viðskiptavina bank- anna um allt land? Kemur til greina að auk starfs- manna fái tilteknir aðrir markhópar sérstök greiðslukjör við kaup hluta- bréfanna? ~ Verður þess jafnan gætt að sala á hlutabréfum ríkisins raski ekki áformum væntanlegra hlutafélags- banka um útboð nýs hlutafjár þegar slík útboð teljast nauðsynleg?" Það er álit Sveins að á þessu stigi málsins eigi ekki að festa tíma- setningar í þessu máli, þ.e. að fram- varp verð lagt fram strax í upphafi næsta árs og að breytingin taki gildi 1. júlí 1993, fyrr en það liggur betur fyrir. Tímasetning eigi að ráðast af nauðsynlegum undanfar- andi þáttum eins og að hefja kynn- ingu meðal starfsmanna ekki fyrr en skýr stefnumörkun liggi fyrir um sölu hlutabréfa í bönkunum. Ekki eigi að skipta máli hvort fram- varp verður lagt fyrir Alþingi í jan- úar 1993 eða mars 1993. Það eigi heldur ekki að skipta máli hvort hlutafélagsbankar yfirtaki starf- semi ríkisbankanna til dæmis 1. janúar 1994 eða 1. júlí 1994 í stað 1. júlí 1993 eins og mælt er með í nefndarálitinu. Ath. Mikið úrval góðra bif- reiða á lágmarksverði. Greiðslukjör við allra hæfi. Nissan Pick Up diesel '87, VSK-bíll, 5 g., ek. 90 þ. Gott eintak. V. 495 þús. stgr. Honda Legend V-6 '88, sjálfsk., m/öllu, ek. 56 þ. V. 1350 þús. stgr. Isuzu Trooper LS '88, 5 g., ek. 109 þ.f 7 manna, rafm. í öllu of.l. V. 1150 þús., skipti. VANTAR GÓÐA BÍLA Á STAÐINN Nissan Prairie 4x4 '88, 5 g., ek. 59 þ., 2 dekkjag. o.fl. Gott eintak. V. 850 þús. Mazda 323 LX ’89, 5 g., ek. 52 þ. V. 490 þús. stgr. Mazda 929 GLX '87, steingrár, sjálfsk., ek. 56 þ., ABS, rafrúöur o.fl. V. 890 þús., sk. á ód. G.M.C. Jimmy S-15 6.2 diesel '84, sjálfsk., óvenju gott eintak. V. 980 þús. Nissan Sunny GTi 2000 '91, 5 g., ek. 30 þ. Fallegur bíll. V. 1040 þús. Chevrolet Crew Cap Stepside „Z-71 4x4 '92, hvítur, 8 cyl. (350), sjálfsk., ek. 26 þ. Mikiö af aukahl. V. 2.5 millj. (sk. á ód). Suzuki Samurai Hi Roof '88, rauöur, 5 g., ek. 62 þ., mikið breyttur (lækkuð hlut- föll, heitur knastás, flækjur o.fl.). Gott ein tak. V. 790 þús. Ford Explorer Eddi Bauer '91, sjálfsk., ek. 21 þ., m/öllu. V. 2.8 millj., sk. á ód. Toyota Corolla Touring GLi 4x4 ’91, 5 g., ek. 31 þ. V. 1320 þús. Lada Sport '88, 5 g., léttistýri, ek. 41 þ. Gott útlit. V. aðeins 270 þús. stgr. MMC Colt GL ’91, grásans, 5 g., ek. 19 þ. V. 750 þús. stgr. MMC Lancer GLX 4x4 station ’91, 5 g ek. 40 þ. V. 1050 þús. sk. ód. MMC Pajero langur '88, bensin, 5 g., ek. 84 þ. Gott eintak. V. 1490 þús., sk. á ódN Bílamarkadurinn Smiðjuvegi 46E v/Reykjanesbraut, Kópavogi, sími 671800 Mazda 323 1.5 GLX Sedan '87, blár, sjálfsk., ek. 72 þ. Toppeintak. V. 390 þús. Nissan Sunny SGX Coupé '87, rauður, 5 g., ek. 95 þ. V. aðeins 390 þús. stgr. Nissan Patrol 6 cyl., '87, hvítur, 5 g., ek. 56 þ., 33“ dekk o.fl. V. 1080 þús. stgr.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.