Morgunblaðið - 15.12.1992, Side 35

Morgunblaðið - 15.12.1992, Side 35
35 Norður- deildin vinnur á ALLT benti til þess að aðskiln- aðarsinnar á Norður-Italíu, Norð- urdeildin, ynnu góðan sigur í bæjar- og sveitarstjómarkosning- um í gær. Kannanir sem byggð- ust á svömm kjósenda þegar þeir komu út úr kjörklefanum bentu til þess að þeir fengju um þriðj- ung atkvæða. Stjómarflokkarnir, Kristilegir demókratar og Sósíal- istar, töpuðu enn fylgi miðað við þingkosningamar í apríl sl. Myrða fimm lögrefflumenn í Alsír SKÆRULIÐAR strangtrúar- manna í Alsír gerðu árás úr launsátri á lögreglubifreið í hverf- inu Kouba í Algeirsborg í dögun í gær með þeim afleiðingum að fimm lögreglumannanna lágu í valnum og sá sjötti særðist. Skæruliðamir neyddu bílstjórann til að nema staðar með því að fleygja drasli á götuna sem bif- reiðin ók eftir. Litlar undir- tektir í Irak JOHAN Santesson, formaður sendinefndar Sameinuðu þjóð- anna (SÞ), sem kannar eitur- og efnavopnaframleiðslu íraka, sagðist afar óhress með svör sem nefndin hefði fengið í ferð sinni til Bagdad. Fyrir aðeins viku gáfu írakar til kynna að þeir væru reiðubúnir til samstarfs á þessu sviði og var talið að það kynni að leiða til þess að efnahags- þvingunum gegn þeim yrði aflétt. Fokker ferst með 34 manns FOKKER F-27 flugvél fórst í fjalllendi í austurhluta Zaire í gær og var talið að allir farþegamir 30 og fjögurra manna áhöfn hefði beðið bana. Flugvélin átti eftir sex mínútna flug til borgarinnar Goma við landamæri Rúanda er hún fórst. Flugmennimir vom belgískir. Mitsotakis gagnrýndur Konstantín Mitsotakis forsæt- isráðherra Grikklands var ákaft gagnrýndur á þingi í gær fyrir tilslakanir á leiðtogafundi Evr- ópubandalagsins í Edinborg um helgina. Þar hugðist hann reyna að koma í veg fyrir að EB viður- kenndi Makedoníu, sem áður til- heyrði Júgóslavíu. Það var ekki gert en hins vegar samþykkt að veita ríkinu fjárhagsaðstoð að upphæð 50 milljónir ECU, jafn- virði 3,9 milljarða ÍSK. Andstæð- ingar Mitsotakisar sögðu það jafngilda viðurkenningu. Fjöldamorð á filippseyjum STIGAMENN úr röðum múslima á Filippseyjum frömdu ódæði í borginni Zamboanga á laugar- dag. Reiddust þeir er bæjarbúar neituðu að borga þeim vemdar- toll, ráku hóp þeirra inn á íþrótta- völl þar sem þeir létu skothríðina dynja á þeim. Þegar yfír lauk lágu 40 menn í valnum. Utgöngubann á hernumdu svæðunum ísraelsk stjómvöld lýstu í gær yfír útgöngubanni á hemumdu svæðunum. Ástæðan var víðtæk leit að skæruliðum sem tóku á sunnudag í gíslingu ísraelskan lögreglumann. Kreijast þeir þess að leiðtogi skæraliðasamtakanna Hamas, Ahmed Yassin, verði lát- inn laus. MORGUNBIAÐH) ÞIUDJUI)AGUK,I5. DESEMBKR 1992 Ibúar Liechtenstein samþykkja EES Endurskoðun samninga við Sviss nauðsynleg A ekki að valda töfum á gildistöku EES, segir Jón Baldvin Hannibalsson ZQrich. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins. IBUAR Liechtenstein komu öllum á óvart á sunnudag og sam- þykktu aðild að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið (EES) í þjóðaratkvæðagreiðslu. 55,8% kjósenda greiddu atkvæði með aðild og 44,2% á móti. Þátttaka var góð, eða 87%. Um 14.000 manns hafa kosningarétt í Liechtenstein. Island og Liechtenstein verða hugsanlega einu EFTA-ríkin í EES eftir að Noregur, Sví- þjóð, Finnland og Austurríki ganga í Evrópubandalagið (EB). Sviss og Liechtenstein hafa ver- ið saman í tollabandalagi síðan 1923. Samkvæmt samningnum um það getur Liechtenstein ekki gert fríverslunarsamninga við önnur ríki óháð Sviss. Það er því nauðsynlegt að gera breytingar á tollasamningnum áður en þingið í Liechtenstein getur fullgilt samn- inginn um EES. Jean-Pascal Dela- muraz, viðskiptaráðherra Sviss, lýsti því yfír á ráðherrafundi EFTA-ríkjanna í Genf á föstudag að Sviss væri reiðubúið að endur- skoða samninginn tafarlaust ef Liechtenstein færi'fram á það. Viðræður munu hefjast nú í vik- unni. Liechtenstein fór í áratugi að dæmi Sviss í flestu. Svisslendingar sjá um vamir landsins og hafa að miklu leyti farið með utanríkismál þjóðarinnar. En smáríkið hefur farið eigin leiðir í auknum mæli að frumkvæði Hans-Adams II fursta. Þjóðin gekk til dæmis í Sameinuðu þjóðirnar um svipað leyti og Svisslendingar felldu til- lögu um það. Talið var víst að íbúar Liechten- stein myndu fella tillöguna um aðild að EES fyrst Svisslendingar gerðu það. En neikvæð viðbrögð erlendis við niðurstöðu þjóðarat- kvæðagreiðslunnar í Sviss, óánægja í Sviss eftir að úrslitin lágu fyrir og sjónvarpsávarp furst- ans nokkrum dögum fyrir kosn- ingar eru talin hafa sannfært meirihluta íbúa smáríkisins um að þeim væri betur borgið í EES en með Svisslendingum utan við það. Furstinn og ráðherrar ríkisins sögðu fyrir kosningar að EES- samningurinn gæti komið í stað aðildar að EB og sambandið við Sviss myndi ekki breytast mikið við hann. Nágrannaþjóðirnar þurfa nú að semja um það. Pró- fessor í viðskiptaháskólanum í St. Gallen sagði í gær að samninga- viðræður gætu dregist á langinn, jafnvel svo lengi að Sviss yrði til- búið að endurskoða afstöðu sína til EES þegar Liechtenstein full- gildir EES-samninginn. Jón Baldvin Hannibalsson utan- ríkisráðherra segir að á ráðherra- fundi EFTA í Genf í síðustu viku, hafi forsætisráðherra Liechten- stein lýst því yfír ásamt utanríki- sviðskiptaráðherra Sviss, að tví- hliða samningar landanna um breytingar á tollabandalagi myndu ekki valda töfum á gildistöku EES-samningsins. Fjallhá flóðbylgja rústar fiskíbæjum Maumere, Indónesíu. Reuter. FJALLHÁ flóðbylgja lagði heilu byggðarlögin á eynni Flores í austurhluta Indónesíu í rúst á laugardag eftir að öflugur jarð- skjálfti skók land. í gær var vitað um l.GOO látna og var talið að sú tala ætti enn eftir að hækka. Embættismenn sögðu í gær að lík 1.584 manna hefðu fundist og hundruða væri enn saknað. Eftir- skjálftar skækju eyna á tveggja stunda fresti og því fylgdi mikil hræðsla meðal þeirra sem komist hefðu af. Jarðskjálftinn mældist 6,8 stig á Richterkvarða og voru upptök hans á sjávarbotni 30 km undan bænum Maumere, stærsta bæ eynnar Flores. Hús og mannvirki hrundu eða löskuðust mikið. í gær var fólk varað við því að fara inn í byggingar sem enn stóðu uppi. JARÐSKJÁLFTINN í INDÓNESÍU Látlaust brúðkaup Brúðkaup Onnu Bretaprinsessu og Timothys Laurence, skipherra í breska sjóhernum, fór fram í lítilli kirkju í Crathie í Skotlandi á laugardag og er þetta í fyrsta sinn sem meðlimur í bresku konungsfjölskyldunni giftist í annað sinn frá Hinrik VIII fyrir flórum öldum. Brúðkaupið var látlaust eins og prinsessan hafði óskað eftir. Amma hennar, Elísabet drottningarmóðir, foreldrar hennar og þrír bræður voru viðstödd athöfnina. Um 500 manns stóðu klukkustundum saman við veginn að kirkjunni og fögnuðu brúðhjónunum þegar þeim var ekið til og frá kirkju. Hundruð blaðamanna komust ekki að kirkjunni og ljósmyndarar blaðanna voru á bílastæði í grenndinni en náðu ekki myndum af konungs- fjölskyldunni vegna þess að lögreglubfl var lagt fyrir framan kirkj- una. Anna prinsessa réð ljósmyndara og myndbandsupptöku- manna til að taka myndir af athöfninni sem fjölmiðlarnir gátu keypt. Á myndinni ganga brúðhjónin út úr kirkjunni, en hún var tekin af sjónvarpsskjá. í gær var ekkert vitað um af- drif um 750 íbúa lítillar eyju, Babi, undan Maures en óttast er að þar hafí svo til allir drukknað er flóð- bylgjan reið yfír. Lýsingar manna sem komust lífs af eru ótrúlegar. „Það skullu þijár flóðbylgjur á byggðinni," sagði sjómaður sem bjargaðist í útjaðri Maures. „Önnur bylgjan var Qallhá og sjóðheit, eins og hraunstraumur, skall á kofunum og hrifsaði okkur með sér eins og risastór krumla,“ bætti hann við. Æskuvinur Clintons skrif stofustjóri Hvíta hússins Litlakletti. Reuter. The Daily Telegraph. BILL Clinton verðandi Bandaríkjaforseti setti í gær tveggja daga ráðstefnu I heimabæ sínum þar sem rúmlega 300 kaupsýslumenn, verkalýðsleiðtogar, hagfræðingar og aðrir sérfræðingar skegg- ræddu um bandarísk efnahagsmál. Clinton sagðist vonast til þess að ráðstefnan yrði til þess að auð- velda honum að auka velmegun í Bandaríkjunum. „Ástæðan fyrir því að við fóram út í þennan slag, fyr- ir því að almenningur veitti mér umboð til þess að reyna að ná land- inu út úr erfíðleikum, eru efnahags- málin,“ sagði Clinton í setningar- ræðunni. Um helgina skipaði Clinton Ron Brown formann Demókrataflokks- ins í starf viðskiptaráðherra. Er hann fyrsti blökkumaðurinn sem skipaður er í svo hátt embætti í Bandaríkjunum. Brown er 51 árs og er jafnframt fyrsti blökkumaður- inn sem velst til forystu í stóram stjómmálaflokki í Bandaríkjunum en hann var kosinn leiðtogi Demó- krataflokksins árið 1989. Þá skipaði Clinton æskuvin sinn Thomas McLarty, kaupsýslumann í Arkansas, í starf skrifstofustjóra Hvíta hússins. Hann er 46 ára og kemur útnefningin á óvart þar sem hann stjórnar stórfyrirtæki sem skráð er í kauphöllinni í New York. Hét McLarty því að selja hlut sinn allann í fyrirtækinu fyrir árslok til þess að verða ekki vændur um hagsmunagæslu. Með því færir hann fjárhagslegar fórnir. Stjómmálaskýrendur þykjast sjá að Hillary Clinton verðandi forset- afrú hafi mikil áhrif á mann sinn er hann velji menn til æðstu emb- ætta. Þannig fékk hún hann til að velja góða vinkonu sína, Donnu Shalala, í starf heilbrigðisráðherra. Þtjár aðrar konur hafa verið valdar til áhrifamikilla starfa og er Hillary Clinton sögð standa á bak við val þeirra. Thomas McLarty

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.