Morgunblaðið - 15.12.1992, Blaðsíða 59
Minning
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1992
59
Guðný Arnadóttir
Fædd 30. júU 1917
Dáin 5. desember 1992
Það er svo skrýtið að maður
heldur alltaf að þeir sem manni
þykir vænst um verði alltaf hjá
manni; verði eilífir og alltaf í kall-
færi. Maður veit að vísu að sú er
ekki raunin, en maður leiðir þessa
vitneskju hjá sér.
Nú þarf ég að kveðja elsku
ömmu mína og veit ekki hvemig
ég á að koma orðum að því, frek-
ar en fyrir nokkrum árum þegar
hún tók utan um mig á spítalanum
og þakkaði mér fyrir allt og alla
daga. Ég hefði frekar átt að þakka
henni en gat ekkert sagt. Nú koma
upp í hugann minningar um langt
sumar, þar sem sólin skein á hveij-
um degi og við fórum saman í
sund og flatmöguðum í þessari
endalausu sól. Við lögðum drög
að ferðalagi út í heim þegar við
yrðum hundrað ára og þá yrði nú
gaman að lifa. í barnslegum ákafa
mínum trúði ég þessum framtíðar-
horfum, svona hálft í hvoru að
minnsta kosti, og enn sé ég fyrir
mér í huganum þá staði sem við
ætluðum að heimsækja.
Onnur minning sem skýtur upp
kollinum er þegar hún stóð inni á
gólfi hjá mér fyrir aðeins einu og
hálfu ári síðan með taubleiu eins
og skýluklút um hárið til að ekki
myndi falla kusk á fyrsta
langömmubarnið hennar, nýfætt.
Hún var komin til að passa, hvað
sem tautaði og raulaði, þótt liðag-
igtin gerði henni erfitt fyrir að
taka þetta litla kríli upp. Ekki
væsti um kútinn hjá langömmu
sinni þrátt fyrir það. Hún kunni
uppvaxtarár allra barnanna og
barnabarnanna utan að og lagði
sitt af mörkum, og vel það, til að
mennta okkur og koma okkur til
þroska.
Það er sárt að hugsa til þess
að geta ekki lengur fengið góð ráð
hjá ömmu sinni um allt milli him-
ins og jarðar. Ótaldar eru stundin-
ar þegar ég fékk að sitja í hásæti
inni í eldhúsi hjá ömmu og afa,
borða bananabrauðsneið og segja
frá viðburðum dagsins og vita að
alltaf var hlustað af athygli.
Hvernig á maður að þakka fyr-
ir allt lífið með henni og horfa
fram á veginn án hennar? Kannski
með því að muna hana eins og
hún var þessi ár sem við áttum
Komið er að kveðjustund.
Æskuvinkona mín Guðný Árna-
dóttir lést 5. þessa mánaðar eftir
löng og erfið veikindi. Hún var
fædd 30. júlí 1917. Foreldrar
hennar voru hjónin Finnbjörg Kri-
stófersdóttir og Árni Pálsson, pró-
fessor, sem bæði eru látin.
Stella, eins og hún var alltaf
kölluð, átti fjögur systkini. Tvö
þeirra eru látin, þau Dagmar og
Guðmundur, en eftir lifa Karen
og Skúli.
Leiðir okkar Stellu lágu fyrst
saman á Grettisgötunni þar sem
við áttum báðar heima. Heimili
foreldra Stellu stóð mér alltaf opið
og þangað fannst mér gott að
koma í heimsóknir. Móðir hennar
var svo ljúf og góð og öll fjölskyld-
an tók mér alltaf einkar val.
Áhugamál og lífsviðhorf okkar
voru að mörgu leyti lík. Stella var
alltaf svo glaðlynd, sérstaklega
prúð og vönduð. Brosið hennar var
svo hlýtt og bjart. Það var engin
furða að ég laðaðist að þessari
stúlku. Við vorum ungar, hraustar
og glaðar þrátt fyrir kreppuna sem
blasti við. Við nutum þess að vera
saman þegar færi gafst og horfð-
um glaðar og bjartsýnar fram á
við.
Eitt aðaláhugamál okkar á
þessum árum var leikfimi í fim-
leikadeild Ármanns en þar stund-
uðum við fimleika í nokkur ár. Á
sumrin fórum við út úr bænum
og skoðuðum landið okkar. Á vet-
urna voru það skautarnir. Við
syntum, dönsuðum og spjölluðum
um heima og geima. Við vorum
svo miklar „samlokur" eins og oft
er um stúlkur á unglingsárum. Já
allt var svo skemmtilegt og lífið
svo létt þegar við gátum verið
saman. Þetta eru minningar sem
ég á um hana, svo margar, dýr-
mætar og ljúfar. Ég er henni inni-
lega þakklát fyrir þær allar.
Stella varð gagnfræðingur frá
Menntaskólanum í Reykjavík.
Alltaf fannst mér að hún hefði átt
að ganga menntaveginn áfram því
að hún var miklum námshæfileik-
um gædd og sérstaklega list-
hneigð.
Eftir að Stella lauk gagnfræða-
prófi fór hún að starfa í Gler-
augnaversluninni Týli. Þar kom
sér vel nákvæmni hennar og sam-
viskusemi. Á þessum árum kom
ungur maður til starfa við verslun-
Minning
Pétur Jónsson
Gamall heimilisvinur, Pétur
Jónsson, lést 7. desember sl.
Pétur var fæddur 28. febrúar
1912 og varð því liðlega 80 ára.
Pétur ólst upp að .mestu á Reyni-
stað hjá foreldrum sínum sem þar
voru í vinnumennsku, ungur að
árum missti hann föður sinn. Hann
fluttist síðan til Reykjavíkur á
unglingsárum og tók bílpróf fljót-
lega eftir að hann kom suður.
Pétur réðst í vinnumennsku að
Korpúlfsstöðum og var m.a. bíl-
stjóri á staðnum, sá um að aka
mjólk til borgarbúa meðan það var
heimilt og einnig sá hann um
margvísleg innkaup fyrir búið og
Ðlóm Skreytingar Gjafavara
Kransar Krossar Kistuskreytingar
Opið alla daga frá kl. 9-22
Fákafeni 11
s. 68 91 20___________
Thor Jensen og hans fjölskyldu.
Þegar starfi hans á Korpúlfsstöð-
um lauk hóf hann rútubifreiða-
akstur, síðan réðst hann til vinnu
hjá Stilli hf. og hjá Vita og hafnar-
málastofnun við vélaviðgerðir.
Þegar Vélaverkstæðið Kistufell
var stofnað fyrir 40 árum varð
Pétur einn af fyrstu starfsmönnum
verkstæðisins og vann þar uns
hann lét af störfum fyrir um 8
árum. Pétur var traustur og góður
starfsmaður. Hann bjó hjá foreldr-
um mínum í mörg ár og var sem
einn af fjölskyldunni.
Pétur hafði gaman af söng og
starfaði í mörg ár með kirkjukór
Langholtskirkju og kynntist þar
góðu fólki sem hann hafði lengi
samband við.
Pétur hafði mikinn áhuga á
stjómmálum og þótti honum gam-
an að ræða stjórnmál og hafði
mjög ákveðnar skoðanir á mönn-
um og málefnum. Pétur var barn-
góður þó ekki hafi hann eignast
sjálfur börn. Þótti honum vænt
um börnin í fjölskyldunni og var
duglegur að spila við þau og raula
ÁíÍMmUstUboð!
sem gildir út desember!
Slípivélar - borvélar!
Slípi- og bónvél TXE150
Verð áður: 20.774 kr.
Verfi nú: 16.498 kr.
Verð áður: 10.416 kr.
Verfi nú: 7.998 kr.
ina. Þar voru örlög þeirra ráðin.
Hamingjan vitjaði þeirra beggja,
þau felldu hugi saman. Þessi ungi
maður var Þorsteinn Davíðsson.
Steini, eins og ég kallaði hann
alltaf, og Stella voru samhent hjón
og hamingjusöm. Þegar Steini
hafði verið verslunarstjóri í Týli
um árabil stofnuðu þau hjónin eig-
in verslun, Snyrtivöruverslunina
Mirru. Stella og Steini áttu yndis-
legt heimili í Faxaskjóli 16 í
Reykjavík. Þar uxu og döfnuðu
börnin þeirra þrjú í öryggi og
hlýju. Börn þeirra eru: Björg,
myndlistarmaður, Davíð Örn,
menntaskólakennari, ög Halldóra,
bókavörður.
Eftir að við Stella giftumst báð-
ar og fómm að sinna heimilum
og börnum urðu samverustundirn-
ar okkar ekki eins margar og áður
hafði verið. Aldrei slitnaði þó sam-
band okkar, til þess var það of
sterkt. Fjölskyldur okkar áttu
margar ánægjulegar stundir sam-
an. Alltaf var jafn gaman að heim-
sækja Stellu og Steina í Faxaskjól-
ið eins var með heimsóknir þeirra
til okkar hjóna og vel fór á með
mönnum okkar enda báðir öðlings-
menn.
„Gína mín,“ þannig ávarpaði
Stella mig alltaf með sérstakri
áherslu. Þetta ávarp finnst mér
ég ennþá heyra hana segja með
sinni mjúku rödd. Já, margs er
að minnast og margs er að sakna.
Að lokum sendi ég innilegar
samúðarkveðjur til Steina, barna
þeirra, tengdabarna og barna-
bama, systkina hennar og annarra
aðstandenda. Vinkonu minni bið
ég fararheilla á nýrri vegferð.
Blessuð sé minning hennar.
Regína Rist.
með þeim og höfðu þau gaman
af heimsóknum hans.
Með Pétri er genginn ljúfur og
traustur heimilisvinur. Þökkum við
honum sámfylgdina og vottum
skyldmennum hans samúðar.
Lilja Guðmundsdóttir
og fjölskylda.
Borvél SBE 500 R
Verð áður:9.562 kr.
Verð nú: 7.998 kr.
Verð áður:30.353 kr.
Verð nú: 25.498 kr.
BRÆÐURNiR
.___________________
Lágmúla 8-9. Sími 38820
MOTTAKA SORPS
um jól og óramót
Móttökustöð SORPU í Gufunesi
verður opin sem hér segir!9. des.-2 jan.:
opið:
gjaldskrá:
19. des.
21. des.
22. des.
23. des.
24. des.
25. des.
26. des.
27. des.
28. des.
29. des.
30. des.
31. des.
1. jan.
2. jan.
laugardag 7:30
mánudag 6:30
þriðjudag 7:30
Þorláksmessu 7:30
aðfangadag
jóladag
annan dag jóla
sunnudag
mánudag
þriðjudag
miðvikudag
gamlársdag
nýjársdag
laugardag
6:30
7:30
7:30
7:30
-17:00 m. 20% álagi
-19:00 venjuleg *
■19:00 venjuleg *
■ 19:00 venjuleg *
lokaö
lokaö
lokaö
lokaö
-19:00 venjuleg *
-19:00 venjuleg *
-19:00 venjuleg *
lokað
lokað
-17:00 m.20%álagi
Gámastöðvar SORPU verða opnar
sem hér segir um jól og áramót:
24. des. aðfangadag, opið 10:00-14:00
25. des. jóladag, lokaö
26. des. annandag jóla, opið 12:00-18:00
31. des. gamlársdag, opið 10:00-14:00
1. jan. nýjársdag, lokaö
Alla aöra daga veröa gámastöðvarnar opnar
eins og venjulega frá kl. 10:00 til 22:00
* Venjuleg gjaldskrá= tfmastýrö gjaldskrá:
Tímastýring gjaldskrár, allir flokkar nema eyðing trúnaðarskjala.
80% af gjaldskrá gildir til kl. 10:00,100% gjaldskrá kl. 10:00 -15:30
120% gjaldskrá gildir frá kl. 15:30 - lokunar.
S0RPA
SORPEYÐING HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS bs
Gufunesi, 112 Reykjavík, sími 67 66 77