Morgunblaðið - 15.12.1992, Qupperneq 62
fólk í
fréttum
308
VAKORT
Eftirlýst kort nr.:
4507
4507
4543
4543
4548
4548
4548
4300
4300
3700
3700
9000
9000
9018
0004
0014
0005
0007
0039
0042
0029
4817
8568
1246
3075
8729
4962
3011
kort úr umferö og sendið VISA íslandi
sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000,-
tyrír að klófesta kort og visa á vágest.
WsMVISA ÍS L A ND
Höföabakka 9 • 112 Reykjavík
Slmi 91-671700
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1992
S9P1 flHHMMSaa .St flUDAnUlfliHri qi«A.18VlU05I0M
VARORTALISTI
I Dags. 15.12.1992. NR. 113
5414 8300 1130 4218
5414 8300 1326 6118
5414 8300 3052 9100
5421 72**
5422 4129 7979 7650
5221 0010 9115 1423
Ofangreind kort eru vákort,
sem taka ber úr umferð.
VERÐLAUN kr. 5000.-
fyrir þann, sem nær korti
og sendir sundurklippt til
Eurocards.
KREDITKORT HF„
Ármúla 28,
108 Reykjavík,
sími 685499
Morgunblaðið/Úlfar
Hermann Björnsson ásamt Aslaugu Jónsdóttur konu sinni. Við hlið Hermanns stendur núverandi
slökkviliðssfjóri, Þorbjörn Sveinsson, en hann er níundi slökkviliðssljórinn sem Hermann starfar með.
Næst Áslaugu stendur Bergmann Ólafsson, formaður félags slökkviliðsmanna á ísafirði.
SLÖKKVISTARF
Enginn eldur, aðeins
söngur og veisluföng
tsafirði.
þegar fjölmennt lið slökkviliðs-
manna ruddist í. salinn vopnað
blómum í stað axa og bruna-
slangna.
Slökkviliðsmennirnir voru þama
til að heiðra samstarfsmann sinn
og félaga, en Hermann er enn
starfandi í slökkviliðinu og á reynd-
ar 52 ára starfsafmæli í febrúar.
Þegar Hermann hóf störf hjá
brunaliðinu á ísafírði 1941 átti lið-
ið einn bíl, Ford, árgerð 1929, en
hann hafði verið keyptur upptekinn
og búinn til brunastarfa 1938. Það
ár var brunaliðið endurskipulagt
og fært til nútímalegra horfs og
nafni þess breytt í Slökkviliðið.
Bíllinn er ennþá til taks á slökkvi-
stöð ísafjarðar og akstureiginleik-
ar í góðu lagi, en brunadælan er
orðin úr sér gengin. Hermann
minnist þess þegar bíó- og sam-
komuhúsið við Hrannargötu brann
1930. Þá voru 230 menn í brunalið-
inu, sem var búið 200 strigafötum,
einni véldælu, sem ekki fór í gang
og einni handpumpu, sem átta
menn þurfti við. Sú pumpa er
reyndar enn til taks ef vélarnar
brygðust.
Hann sagði það hafi verið
ógleymanleg sjón að sjá á þriðja
hundrað brunaliðsmanna í tvö-
faldri röð handlanga fullar föturn-
ar úr fjörunni að eldinum þar sem
sjónum var stökkt á bálið án nokk-
urs sjáanlegs árangurs, enda brann
húsið til kaldra kola með öllu sem
í því var.
Þrátt fyrir 75 árin mætir Her-
mann enn í öll útköll og á allar
æfingar. Hann er að vísu hættur
að keyra bflana og berjast við sjálf-
an eldinn, en situr við fjarskipta-
búnaðinn og símann á stöðinni og
sér oft einn um þau mikilvægu
. boðskipti sem þar fara fram.
Þegar slökkviliðsmennirnir voru
búnir að ávarpa afmælisbarnið og
óska því til hamingju með daginn
hóaði Hermann saman öðrum hópi
sem hann kom saman fyrir þrem
árum þama á Hlíf og sungu þau
fyrir gestina undir stjóm Agústu
Þórólfsdóttur.
Hermann er mjög ánægður með
það framtak sitt að stuðla að stofn-
un kórsins, sem hann segir að
gangi undir nafninu Kór aldraðra
á Hlíf. Ágústa hefur haft kór-
stjórnina með höndum alla tíð og
segir Hermann hana vera frábær-
an stjómanda. Æft er einu sinni
í viku og segir Hermann að þetta
sé eina tómstundastarfið af mörg-
um á Hlíf þar sem aldrei vanti
mann.
Úlfar.
Domus Medicu,
Egilsgötu 3,
18519
simi
Kringlunni,
Kringlunni 8-12,
sími 689212
Toppskórinn,
Veltusundi,
sími 21212.
Glæsilegur sparifatnaður
nýkominn
Silki — viskos — ull.
Sokkabuxur og fylgihlutir í úrvali.
Stórar stœrðir.
Hár^.
ði
FATAPRYÐI
Bommmium,
I. HÆÐ, SÍMI32347
Póstsendum samdægurs. 5% staðgreiðsluafsláttur
____STEINAR WAAGE _
r SKÓVERSLUN
Kúrekaskór
Verð kr.
5.995,
Stærðir: 36-41.
Litur: Brúnn.
Hermann Björnsson, fyrrver-
andi slökkviliðsstjóri á
ísafirði, hélt upp á 75 ára afmæli
sitt með pompi og pragt í sam-
komusalnum á Hlíf síðastliðinn
laugardag. Reynir Ingason og
Ágústa Þórólfsdóttir vora að
syngja fyrir afmælisbamið við und-
irleik Messíönnu Marzellíusdóttur
Depardieu eldri og yngri. Það
er vonandi að Guiliaume sonur
Gérards læri ekki það sem fyrir
honum er haft.
BANDARÍKIN
Depardieu
laus höndin
Franski leikarinn Gérard Depardi-
eu hefur verið ákærður fyrir
að ráðast á mann sem í mesta sak-
leysi lék á píanó á hóteli í New York.
Depardieu var staddur í matsal hót-
elsins ásamt syni sínum en þeir voru
að halda upp á frumsýningu myndar-
innar Allir heimsins morgnar, sem
þeir feðgar leika báðir í. Mun Dep-
ardieu eldri, sem er fyrrverandi box-
ari, hafa ráðist á píanóleikarann þar
sem honum féll ekki alls kostar
hvemig hann lék. Hefur slagsmála-
hundurinn Depardieu sér það eitt til
málsbóta að maðurinn var alger
áhugamaður um píanóleik.
Keith Meinhold skellir sér glaður
í bragði í einkennisbúning banda-
ríska sjóhersins. Hann er fyrsti
yfirlýsti homminn innan raða
hersins.
HERMENNSKA
Aftur til
starfa
Tólf ára flekklausum her-
mennskuferli Bandaríkja-
mannsins Keith Meinholds lauk
skyndilega síðasta vor þegar hann
kom fram í sjónvarpi og lýsti því
yfir að hann væri hommi. Hann hafði
þar með brotið gegn reglum banda-
ríska hersins, sem banna hommum
að gegna herþjónustu. Meinhold fór
í mál við herinn og viti menn, hann
vann málið og varð í síðasta mánuði
fyrsti homminn sem bandaríski her-
inn viðurkennir innan sinna raða.
Meinhold er hermaður af lífi og
sál og reiðubúinn að láta lífið fyrir
föðurlandið. Um 1.400 hommar eru
árlega reknir úr hernum og segist
Meinhold hafa fyllst örvæntingu
vegna þess hversu illa herinn hafí
komið fram við samkynhneigða. Þeir
hafí verið sviptir borgaralegum rétt-
indum sínum og hann hafí einfald-
lega ekki getað setið þegjandi hjá.
Dómurinn mun án efa draga dilk
á eftir sér, m.a. hafa Meinhold borist
nafnlausar hótanir. Þá má ekki
gleyma kosningaloforði Bills Clint-
ons, verðandi forseta, um að leyfa
hommum að gegna herþjónustu en
það hefur það mætt geysilegri and-
stöðu innan hersins og er ekki talið
víst að Clinton geti efnt loforðið.