Morgunblaðið - 15.12.1992, Side 69
seei aaaMagag .at agoAautai3W aiOMiMaflOM
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUÐAGUR 15. DESEMBER 1992
69
Opið bréf til Alþingis
o g dómsmálaráðherra
Frá Guðna Á. Haraldssyni:
Á annarri síðu Morgunblaðsins
hinn 1. desember sl. birtist frétt
sem bar fyrirsögnina: „Tveir menn
ógnuðu fólki með haglabyssu“.
Af fréttinni að dæma var að skilja
að mennirnir hefðu verið að krefja
þá er fyrir urðu um greiðslu á
gamalli skuld.
Lýsing á atburðinum er reifara
líkust og frekar í líkingu við það
sem menn eiga að venjast í léleg-
um bandarískum sjónvarpsmynd-
um. Munurinn var bara sá að í
þessu tilviki voru hlutimir að ger-
ast í Reykjavík. Afsöguð hagla-
byssa var notuð til að ógna fólki.
Ung börn stóðu frammi fyrir
byssuhlaupi og tilviljun ein virðist
hafa ráðið að ekki hlutust af
hroðaleg líkamsmeiðsl eða jafnvel
dauði.
Þegar svo ber undir emm við
öll vamarlaus og eigum allt okkar
undir yfírvöldum. Af fréttum að
dæma virðist lögregla og sérsveit
lögreglu hafa unnið mjög fag-
mannlega að handtöku mannanna
og þannig afstýrt frekari hættu.
En hvað gerist svo? Mennirnir em
yfírheyrðir. Málið er sagt upplýst
og í lok fréttarinnar segir: „Þeim
var sleppt úr haldi í gær þar sem
málið var fullrannsakað".
Fyrir hinn almenna borgara era
slík endalok óskiljanleg. Og ekki
er ég viss um að lögreglumennim-
ir er hættu lífí sínu við handtök-
una séu sáttir við þessi málalok.
Samkvæmt fréttinni höfðu ódæð-
ismennimir áður komið við sögu
lögreglunnar. Því getum við allt
eins átt von á því að þeir taki upp
sína fyrri iðju næstu helgi. Og slíkt
er algjörlega óþolandi. Við eigum
ekki að þurfa að þola nærvem
slíkra manna meðan þeim hefur
ekki verið refsað. Hér er um mjög
alvarlegt hegningarlagabrot að
ræða og slíkir menn eiga því ekki
að ganga lausir fýrr en þeir hafa
tekið út þá refsingu er dómstólar
dæma þeim.
En af hveiju gerist þetta? Ef
starfsmenn RLR era spurðir vitna
þeir eflaust í gildandi ákvæði laga
um gæzluvarðhald en þau ákvæði
leyfa ekki gæzluvarðhald ef mál
er að fullu rannsakað. Og ef dóms-
kerfíð er spurt þá er svarið eflaust
að það anni ekki þeim mikla mála-
fjölda sem á það er lagður. Og ef
fangelsismálayfírvöld era spurð
hveiju þetta sæti þá er svarið
eflaust það að stærri fangelsi vanti
þar sem þau sem fýrir era séu full.
En ef að lögin era gölluð og
fangelsin yfírfull eiga þá misindis-
menn að ganga lausir? Og eigum
við að þurfa að þola að bömunum
okkar sé ógnað með afsöguðum
byssukjöftum?
Við erum eflaust öll sammála
um svörin. Því vil ég skora á hið
háa Alþingi og Dómsmálaráðherra
að sjá til þess að hugtakið „réttar-
VELVAKANDI
TYND TIK
PÍLA er lítil sex ára gömul tík,
brún með hvíta bringu, dökk í
kringum munninn með uppspert
eyru og lafandi skott. Píla á
heima norður í Eyjafjarðarsveit.
Hún var í heimsókn í Garðabæ
23. ágúst en slapp þá út og hef-
ur síðan verið á flakki. Hún er
blíðlynd og gegnir nafninu Píla.
Best væri ef ykkur tækist að
handsama hana í rólegheitum og
láta vita í síma 668366 hjá Ninnu
á hundahótelinu að Leirum. Eins
er hægt að hafa samband við
Eirík í heimastma 656004 eða
vinnusima 627222, Ingimar í
heimasíma 37375 eða vinnusíma
685833, Ástu í síma 51031 eða
fara með hana í Dýraspítalann.
HÚFA
DRAPPLITUÐ loðhúfa tapaðist
við Grandaveg fyrir skömmu.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma 625939.
PENINGAR
BLAÐBURÐARDRENGUR var
svo óheppinn að tapa peninga-
búnti á leið frá Lágmúla niður í
Hlíðar síðdegis á fimmtudag.
Þetta var desemberkaupið hans,
um 10 þúsund krónur. Skilvís
finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma 17089.
HERRA EÐA
FRÚ FORSETI?
Ása Bjamardóttir,
Sólheimum 23, Reykjavík:
ÉG VIL koma á framfæri fyrir-
spurn til Ólafs Þ. Þórðarssonar
alþingismanns hvers vegna hann
notar ávalt ávarpið „Herra for-
seti“ einn þingmanna. Mér fínnst
þetta ávarp ekki viðkunnanlegt
þegar þingforseti er kona, og vil
þess vegna spyija þingmanninn
hvers vegna hann notar þetta
ávarp.
SMÁFUGLAR -
HRÍSGRJÓN
VEGNA lesendabréfs Erlings
Þorsteinssonar læknis „Sól-
skríkjusjóður og fuglafóður",
sem birtist laugardaginn 5. des-
ember og hvatningar í Morgun-
blaðinu 6. desember um að muna
eftir smáfuglunum, hafa nokkrir
haft samband og talið að hrísgjón
væru smáfuglun hættuleg. Haft
var sambnd við Þorstein, sem
hefur veitt Sólskríkjusjóðnum
forstöðu um árabil, vegna þessa
máls. „Það virðist vera útbreidd-
ur misskilningur að smáfuglar
þoli ekki hrísgijón, fólk heldur
að þau þenjist út í maga þeirra
og drepi þá,“ sagði Þorsteinn.
„Hér er um misskilning að ræða,
smáfuglum stafar engin hætta
af hrísgijónum. Ef til vill er þessi
misskilningur til kominn vegna
þess að einu sinni var haldið að
hafragjón væru hættuleg smá-
fuglum en þau þenjast mikið
meira út þegar bleytt er í þeim
en hrísgijón. Ég held að þetta
sé einnig á misskilningi byggt
og á örugglega ekki við um
hafran\jöl. Ég hef áratugum
saman gefið smáfuglum hrís-
gijón og haframjöl og aldrei orð-
ið var við að þeim yrði meint af
því.“
ÁKEYRSLA
KEYRT var á bláan Suzuki bíl á
bílaplani við Háaleitisbraut laug-
ardagsnóttina 5. desember milli
kl. 0.30 og 2 og skemmdist bif-
reiðin mikið. Sá sem tjóninu olli
eða vitni að árekstrinum eru vin-
samlegast beðin að hringja í síma
30319.
ríki“ sé framvegis í hávegum haft
hér á landi, því það er of seint að
iðrast eftir að tekið hefur verið í
gikkinn.
GUÐNI Á. HARALDSSON
Ljósalandi 22,< Reykjavík
LEIÐRETTIN G AR
Fyrrverandi
formaður
í myndatexta á blaðsíðu 6 í Morg-
unblaðinu á sunnudag var Almar
Grímsson apótekari rangtitlaður for-
maður Krabbameinsfélags íslands.
Hann er fyrrverandi formaður, en
núverandi formaður er Jón Þorgeir
Hallgrímsson yfírlæknir á kvenna-
deild Landspítalans.
Rangar upplýs-
ingar í verð-
könnun
Rangar upplýsingar frá Neyt-
endasamtökunum ollu því að vitleys-
ur slæddust inn í könnun samtak-
anna á verði brauðgerðarhúsa á bls.
32 í laugardagsblaðinu. í dálki yfír
„Skorin brauð“ í töflu 1 var röng
tala hjá Sveini bakara, þar var talan
1.080, en átti að vera 957. Samtals-
talan var því 2.964, en átti að vera
2.841. Þá var talan 746 í dálkinum
„Smábrauð" frá Sauðárkróksbakaríi
einnig röng, en þar átti að standa
747. Þar með breyttist og talan
hæsta verð, sem var 2.964 í 2.851
og mismunur á hæsta og lægsta
verði breytist þar með úr 47% í 41%.
Niðurstaðan er því að hæsta verðið
er hjá Sauðárkróksbakaríi, en ekki
Sveini bakara.
Nokkrar villur slæddust einnig inn
í töflu 2. { dálkinum „Gróf brauð“
átti að standa talan 278-318 við
Borgarbakarí og 230-303 hjá Sveini
bakara. Þá átti talan 272-279 að
standaj sama dálki við Brauðgerð
KEA. í dálkinum „pylsubrauð" átti
að standa talan 404 við Brauðgerð
kaupfélagsins Fram á Neskaupstað
og í dálkinum „harðar kringlur" átti
talan 593 að standa við Kristjáns-
bakarí"á Akureyri.
SXS: lídes. 1992
FJÖLDl
VINNINQSHAFA
1.
2.
3.
J5Z
5.154
upphæoAhvehn
VINNINGSHAFA
-2-289.906
104.232
8.016
5g9
Heildarvinningsupphæð þena v#ui:
11.790.480 kr.
UPPlVSINGAH:SllllSVARl91-681511 LUKXUUNA991002
Fer inn á lang
flest
heimili landsins!
Nýjir ítalskir hælaskór
úr gæðaleðri m/leðurfóðri
Teg. 490
Stærðir: 36-41 7,5 cm hæll.
Litir: Svart leður og rúskinn,
flöskugrænt, rautt og
mógrátt (taube) leður.
Verð kr. 5.250,-
Staðgreiðsluafsláttur-Póstsendumsamdægurs. BÚ^
SKÆDI MÍLANÖ
Kfí/NGLUA/M 8-12 S. 689345
LAUGAVEGI 61-63, SÍMI 10656
FJARSTÝRÐIR
TORFÆRUBlLAR
Kr. 6.295.
Kr. 5.370.-
Kr. 4.295.- Kr. 3.995.-
Póstsendingarþjónusta
LEIKBÆR
HAFNARFIRÐI MJÓDD KJÖRGARÐI
i s; 5 44 30 s; 7 91 11 s; 2 60 45,2 63 44
VEUIÐ ÞAÐ BESTA
VEUIÐHÖ
Ifö HREINLÆTISTÆKI
- SÆNSK GÆÐAVARA
FASTI BYGGINGAVÖRU-
VERSLUNUM UM LAND ALLT.