Morgunblaðið - 29.12.1992, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1992
Fangaplássum fjölgað úr 117 í 139
Byggt við Litla-
Hraun og fangelsi
reist í Reykjavík
Hegningarhús og Síðumúlafangelsi aflögð
ÞORSTEINN Pálsson dómsmála-
ráðherra hefur ákveðið á grund-
velli álits framkvæmdanefndar að
fangelsið á Litla-Hrauni verði
stækkað og hús fyrir gæsluvarð-
hald og skammtímaafplánun
verði byggt í Reykjavík. Hegning-
arhúsið við Skólavörðustíg, Síð-
umúlafangelsið og ríkisfangelsið
á Akureyri verða lögð niður. Með
þessum breytingum fjölgar fan-
gaplássum úr 117 í 139.1 fjárlög-
um næsta árs er gert ráð fyrir
30 milljónum kr. til þessara fram-
kvæmda og verður þeim varið til
undirbúnings byggingarfram-
kvæmda sem ráðgert er að hefjist
í lok næsta árs.
Fangeisismálanefnd skilaði sl. vor
dómsmálaráðherra skýrslu þar sem
hún lagði m.a. til verulegar breyting-
ar á húsakosti og starfsemi fang-
elsa, að því er segir í frétt frá ráðu-
neytinu. Lagt var til að fangelsum
yrði fækkað úr sex í fjögur, byggt
yrði eitt nýtt fangelsi en Hegningar-
húsið við Skólavörðustíg, Síðumúla-
fangeslið og ríkisfangelsisdeildin í
lögreglustöðinni á Akureyri yrðu
tekin úr notkun, auk lakasta hluta
Litla-Hrauns. í framhaldi af starfi
fangelsismálanefndar var skipuð
framkvæmdanefnd til að vinna að
framgangi tillagnanna. Nefndin
lagði m.a. mat á það hvort það
myndi leiða til óhagkvæmni að stað-
setja nýtt fangelsi utan Reykjavíkur
og bárust nefndinni erindi frá
hreppsnefnd Eyrarbakkahrepps,
bæjarráði Njarðvíkurbæjar, bæjar-
stjórn Dalvíkurbæjar og bæjarráði
BÍönduósbæjar, þar sem þessir aðilar
settu fram óskir um staðsetningu
fangelsisbygginga í sinni heima-
byggð. Meirihluti framkvæinda-
nefndarinnar taldi hagkvæmnisrök
fangelsismálanefndar gild hvað
varðaði staðsetningu 85 manna
fangelsis á höfuðborgarsvæðinu.
Almannavarnanefnd Hveragerðis á fundi.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson.
Snarpur jarðskjálftakippur í Hveragerði
Skjalfmui skaut folki skelk
í bringu en oHi ekki tjóni
Snlfnsdi
Selfossi.
SNARPUR jarðskjálfti, 4,2 stig á Richter, reið yfir Hveragerði um
hádegisbil á sunnudag. Slqálftinn, sem átti upptök tvo kílómetra norð-
austur af Ilveragerði, fannst mjög víða, á höfuðborgarsvæðinu, vestur
í Dölum, í Vík og í Vestmannaeyjum, mjög greinilega á Selfossi en
þó mest í Hveragerði og nágrenni. Engar skemmdir urðu af völdum
skjálftans en hann skaut mörgum skelk í bringu. í kjölfar skjálftans
komu fjölmargir litlir kippir og var sá stærsti 2,5 stig. Aðfaranótt
mánudags mældust einnig margir smákippir. Almannavarnanefnd
Hveragerðis var kölluð saman í kjölfar skjálftans.
Úr Síðumúlafangelsinu. Það
verður nú lagt niður.
Hvergerðingar eru vanir smá-
skjálftum eða hverakippum en þeir
sem rætt var við voru sammála
um að skjálftinn á sunnudag hefði
verið óvenjulangur og einkennst
af stöðugum titringi. Myndir
skekktust á veggjum og eitthvað
var um að munir féllu úr hillum.
„Þetta er í fyrsta skipti sem ég
hef lagt af stað til dyranna," sagði
Bragi Einarsson í Eden. „Þetta var
dálítið mikið og ég ætlaði að hlaupa
út,“ sagði Hrafnhildur Heimisdótt-
ir starfsstúlka í Eden sem sagði
að mikill hávaði hefði fylgt skjálft-
anum. Við titringinn hrundi mikið
lauf af tijánum í gróðurskálunum
í Eden, svo borð og gólf voru þak-
in laufi.
„Þetta er sá harðasti sem ég
man eftir. Það hrundi úr hillum
og það hefur ekki gerst hjá mér
áður. Maður hugsar auðvitað út í
hvort þetta geti verið eitthvað stórt
en mér fannst þetta samt vera
„heimaskjálfti", sagði Sigurður
Jakobsson tæknifræðingur. „Eg
sat inni í stofu og ætlaði að vera
róleg en skjálftinn var svo langur
að ég hljóp af stað út en Sigurður
sagði mér að vera róleg,“ sagði
Ragnheiður Þórarinsdóttir kona
Sigurðar.
„Mér fínnst gert of mikið úr
þessu í fréttum. Fólkið manns hélt
að maður lægi hér í einhveijum
rústum," sagði Brynhildur Jóns-
dóttir sem búið hefur í Hveragerði
í 50 ár. „Ég varð auðvitað hrædd
og datt Suðurlandsskjálftinn í hug.
Ég opnaði útihurðina eins og ég
geri alltaf þegar skjálftar koma
og fór út á stétt. Þetta var öðru-
vísi en áður, það var enginn und-
Á hádegi á sunnudag brast á jarð-
skjálfti, að styrkleika 4,2 stig á
Richter, um 2 km NA af Hveragerði.
Um kvöldið komu svo tveir skjálftar
um 2,5 stig að styrkleika. Á þessu
svæði eru skjálftar af þessari
stærðargráðu nokkuð algengir.
UR DAGBÓK
LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK:
Fremur rólegt hefur verið hjá
lögreglunni það sem af er jólum.
Á tímabili þurfti einungis að vista
14 einstaklinga í fangageymslun-
um, tilkynnt var um 11 innbrot,
8 þjófnaði, 8 líkamsmeiðingar, 4
umferðarslys, 61 árekstur, 1
nauðgun og 4 voru staðnir að því
að aka undir áhrifum áfengis.
Alls eru 471 færslur í dagbókina
vegna ýmissa atviþa frá því á
Þorláksmessu.
Um kl. 18.00 á Þorláksmessu
var komið að menni þar sem hann
var að reyna að fara inn í skála
í Skálafelli. Maðurinn, sem er
kunnugur meðal lögreglumanna,
var færður í Síðumúlafangelsi
þangað sem hans hafði verið
vænst.
Um kl. 16.30 á aðfangadag var
tilkynnt um reykskynjara í gangi
í húsi í Gerðunum. Þar virtist
enginn vera heima þegar að var
komið og þurftu lögreglumenn að
skríða inn um glugga á íbúðinni.
Þá kom í Ijós að jólasteikin var
farin að eldast í ofninum og hafði
reykurinn af rústunum sett skynj-
arann í gang.
Handtaka þurfti mann um þijú-
leytið aðfaranótt jóladags eftir að
hafa brotið rúðu í verslun við
Skólavörðustíg. Þegar lögreglan
kom á staðinn var maðurinn önn-
um kafinn við að klæða gínu í
sýningaglugganum úr dýrindis
kjól, sem hann ætlaði reyndar
öðrum en sjálfum sér til nota.
Aðfaranótt sunnudags þurfti
að flytja mann á slysadeild úr einu
vínveitingahúsi borgarinnar eftir
að hafa verið skorinn með flösku
í andlitið og á háls. Þar voru að
verki tveir menn, en þeir voru
farnir af staðnum þegar lögreglu-
menn komu á vettvang. Vitað var
hveijir mennirnir voru. Að mati
kunnugra mátti litlu muna að illa
færi því skurðurinn var við slagæð
á hálsinum. Þurfti að sauma all-
mörg spor í manninn, en að því
búnu fékk hann að fara heim.
Á sunnudagsmorgun var til-
kynnt um að stór rúða í sýningar-
glugga verslunar í Bankastræti
hefði verið brotin og úr honum
stolið dýrum ljósmynda- og mynd-
bandstækjum. Þetta er í annað
sinn á stuttum tíma sem umrædd-
ur sýningagluggi er brotinn og
úr honum teknir verðmætir munir.
Á sunnudag vöknuðu grun-
semdir hjá íbúum fjölbýlishúss í
vesturbænum að ekki væri allt
með felldu í einu geymsluherbergi
hússins. Var fenginn fagmaður
til þess að opna herbergið, en svo
virtis sem hefðbundinn lykill íbú-
anna gengi ekki lengur að
skránni. Þegar inn var komið kom
í ljós að fiktað hafði verið við
tengibox Pósts og síma. í því var
að sjá að tengdur hafði verið
kapall við vírvirkið og var hægt
að rekja hann úr boxinu yfir í
herbergi þar nálægt. Þar höfðu
verið að verki aðilar, kunnugir af
lögreglunni, sem aðstöðu hafa
haft í herberginu.
Um leið og lögreglan í Reykja-
vík óskar landsmönnum öllum
gleðilegra jóla og ánægjulegra
áramóta með von um hamingju-
ríkt og friðsamt nýtt ár vill hún
hvetja þá hina sömu að gæta hófs
í drykkju áfengis. Hóflega drukk-
ið vín getur (það þarf ekki að
gera það) glatt mannsins hjarta,
en óhóflega drukkið vín getur
kramið það svo um munar. Skorað
er á alla að ganga nú hægt um
gleðinnar dyr um áramótin.
Brynhildur Jónsdóttir við úti-
dyrnar á húsi sínu.
anfari og þetta var ekki líkt hvera-
kippunum," sagði Brynhildur.
„Þetta var líkast því að stór
trukkur keyrði á húsið. Stofuskáp-
urinn kipptist við og stytta datt
út úr honum. Þetta var dálitla
stund að fjara út og satt að segja
þá var ég á leiðinni út,“ sagði
Ágústa Þorgilsdóttir á Núpum II.
Ljóst er að margir í Hveragerði
brugðust við eins og boðað er í
leiðbeiningum almannavarna,
ýmist með því að fara út úr húsum
eða að gera eins og ein 11 ára
stúlka gerði, að standa í opnum
dyrum á meðan skjálftinn reið yfir.
I Hveragerði var dagatal, sem
björgunarsveitin gefur út, borið í
hvert hús en á bakhlið þess eru
prentaðar leiðbeiningar til fólks um
viðbrögð við jarðskjálftum.
Ekki óeðlilegur skjálfti
Samkvæmt upplýsingum frá
jarðeðlisfræðideild Veðurstofunnar
fylgdi töluverð skjálftavirkni í kjöl-
far þessa skjálfta sem náði há-
marki um kvöldmatarleytið er tveir
stórir skjálftar mældust á sama
stað. Reyndust þeir 2,5 stig á Ric-
hter en síðan fjaraði skjálftavirkn-
in út.
Páll Einarsson jarðeðlisfræðing-
ur segir að upptök skjálftans séu
á þekktu jarðskjálftasvæði og í
sjálfu sér ekkert óeðlilegt við hann
þótt skjálfti af þessari stærðargr-
áðu hafi ekki orðið á svæðinu um
allnokkurt skeið. „Hann vakti at-
hygli af því hann átti upptök ná-
lægt byggðu bóli en að jafnaði
verða um 10 skjálftar af þessari
stærð á landinu árlega," segir Páll.
Sig. Jóns.
A-Í.
Ábondlngar frá
LÖGREGLUNNI:
Farið varlega með flugelda
Lögreglan vill vekja athygli fólks á að fara varlega í meðferð
flugelda og blysa um ármótin.
Fullorðið fólk þarf að hafa vit fyrir börnunum og gæta þess
að þeim stafi ekki hætta af blysum og flugeldum. Börnin eru
stundum áköf og vilja gleyma sér við spennandi aðstæður og
ganga þá lengra en æskilegt getur talist. Slysin gera ekki boð
á undan sér.
Lesið leiðbeiningar sem fylgja flugeldum og blysum og farið
eftir þeim. En umfram allt; farið varlega.
Lögreglan óskar öllum gleði, farsældar og friðar á nýju ári.