Morgunblaðið - 29.12.1992, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1992
Kaupþing Norðurlands
Mikil sala hluta-
bréfa í lok ársins
Bréf í ÚA og Sæplasti eftirsótt
SALA hlutabréfa hefur verið lífleg hjá Kaupþingi Norðurlands að
undanförnu og búist við að svo verði það sem eftir lifir árs. Aukin
eftirspurn er eftir hlutabréfum í Sæplasti og Útgerðarfélagi Akur-
eyringa og þá hefur mikið selst af hlutabréfum í Hlutabréfasjóði
Norðurlands. Reiknað er með að hlutabréf sem Kaupfélag Eyfirð-
inga setti á markað í byrjun mánaðarins klárist fyrir áramót.
Jón Hallur Pétursson fram-
kvæmdastjóri Kaupþings Norður-
lands sagði að fjölmargir hefðu
komið skömmu fyrir jól og keypt
hlutabréf og eins var mikið að
gera við hlutabréfasölu í gær.
„Við eigum von á að það verði
áfram mikil umferð hér hjá okkur
þá daga sem eftir eru af árinu,
en við ætlum að hafa opið til kl.
14 á gamlársdag,“ sagði Jón Hall-
ur.
Hann sagði að um væri að ræða
einstaklinga sem væru að kaupa
hlutabréf nú fyrir árslok til að fá
skattaafslátt, en ef keypt væru
hlutabréf fyrir 100 þúsund krónur
fengju menn endurgreiddar 40
þúsund krónur í formi lækkaðra
skatta næsta ár á eftir.
Mikið hefur verið keypt af
hlutabréfum í Hlutabréfasjóði
Norðurlands að undanfömu og
sagði Jón Hallur að raunávöxtun
bréfanna hefði verið góð á árinu
samanborið við önnur hlutabréf.
Þá væri aukin eftirspurn eftir
hlutabréfum í Útgerðarfélagi Ak-
ureyringa og Sæplasti á Dalvík,
en eitthvað væri til af hlutabréfum
í þessum fyrirtækjum. Gengi Sæ-
glastsbréfanna er nú 3,35 og á
ÚA-bréfunum 3,75, en það hefur
Hvalveiðar
verði hafnar
næsta sumar
Á AÐALFUNDI Sjómannafé-
lags Eyjafjarðar sem haldinn
var í gær var samþykkt ályktun
þar sem skorað er á stjómvöld
að taka á ný upp hrefnuveiðar
svo og aðrar hvalveiðar á kom-
andi sumri.
Félagið vill að strax verði hafn-
ar rannsóknir á hvala- og sela-
stofnum í hafínu umhverfís landið
og áhrifum þeirra á stofna nytja-
físka okkar og í framhaldi af því
verði skipulagðar veiðar á þessum
stofnum.
„Það er engin hemja að fískveið-
ar okkar séu skertar í samræmi
við fjölgun þessara stofna. Rann-
saka þarf hvemig nytja má selaf-
urðir, nú þegar Greenpeace-liðið
virðist vera með allt niður um sig
í málefnum selveiða, eftir að þeir
urðu að biðja Grænlendinga afsök-
unar á gerðum sínum. Einnig þarf
nú þegar að rannsaka arðsemi
hákarlaveiða og vinnslu þeirra af-
urða með tilliti til útflutnings,"
segir í ályktun sem samþykkt var
á fundi Sjómannafélags Eyjafjarð-
ar.
farið heldur hækkandi að undan-
fömu.
Þá sagði Jón Hallur að búist
væri við að hlutabréf sem Kaupfé-
lag Eyfírðinga setti á markað 1.
desember síðastliðinn myndu klár-
ast fyrir áramót, en samkvæmt
útboði verða seld hlutabréf yfír
50 milljónir króna að nafnverði.
Jón Hallur sagði að eftir væri að
selja KEA-hlutabréfin fyrir á bil-
inu 2 til 2,5 milljónir króna að
nafnvirði eða tæpar 5 milljónir að
söluverðmæti, en þau em seld á
genginu 2,25.
Forskot á sæluna
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Þau voru að taka forskot á sæluna, börnin fyrir
utan flugeldasölu Hjálparsveitar skáta í Lundi í gær
og greinilegt að þau kunnu vel að meta fjölbreytt
úrval ýmiss konar flugelda sem á boðstólum eru.
Hjálparsveit skáta á Akureyri selur að venju flug-
elda fyrir áramótin og er með útsölustaði á fjórum
stöðum í bænum, en auk þess selja íþróttafélögin
KA og Þór flugelda fyrir áramótin.
Aðalfundur Sjómannafélags Eyjafjarðar
Siðleysi að draga kostnað vegna
kvótakaupa frá launum sjómanna
TILLAGA um að segja upp kjarasamningi frá og með 1. janúar næst-
komandi var samþykkt á aðalfundi Sjómannafélags Eyjafjarðar sem
haldinn var í gær og þá var stjórn og trúnaðarmannaráði félagsins
veitt heimild til verkfallsboðunar. Guðmundur Hallvarðsson, formaður
Sjómannafélags Reykjavíkur og alþingismaður, var gestur fundarins
og fræddi hann fundarmenn um gang mála á Alþingi og þau mál sem
þar eru til umfjöllunar um málefni sjómanna.
„LIÚ hefur gert því skóna að
sjómenn taki þátt í fyrirhuguðum
fáránlegum álögum á útgerðina.
Að því er virðist hafa verið teknar
ákvarðanir um að fyrirsjáanleg
gjaldþrot margra illa rekinna frysti-
húsa, annarra fískverkunarfyrir-
tækja og útgerða í formi aukinnar
kostnaðarhlutdeildar. Þessu mót-
mælir aðalfundur Sjómannafélags
Eyjafjarðar alfarið og ætlast til að
Sjómannasamband íslands taki til
hendinni með afdráttarlausum að-
gerðum, ef annað dugir ekki,“ seg-
ir í ályktun sem samþykkt var á
fundinum.
Þá var mótmælt harðlega „því
siðleysi einstakra útgerðarmanna
að draga kostnað vegna kvóta-
kaupa frá launum sjómanna", eins
og segir í ályktun. Þar kemur einn-
ig fram að félagið geri sér grein
fyrir því að ástandið í íjármálum
þjóðarinnar orsakist af áralangri
óráðsíu stjómvalda, bæði opinber
og einkafyrirtæki um landið hafí
farið út í offj árfestingu. eða rangar
fjárfestingar. „Mörg fyrirtæki í
sjávarútvegi sem hafa fengið millj-
arða króna á silfurfati sér til bjarg-
ar hafa misnotað þetta fé á ýmsan
hátt. Ekki hefur verið skipt um
stjócnendur þessara fyrirtækja, sem
þó ætti að teljast eðlilegt, en þessi
fyrirtæki tröllríða nú sjávarútvegin-
um og þar með þjóðinni allri. Þess-
ir skussar ætlast nú til að sjómenn
taki á sig aukakjaraskerðingu fram
yfír aðra landsmenn til viðbótar
þeirri kostnaðarhlutdeild sem þeir
greiða nú þegar og ekki þekkist í
öðmm atvinnugreinum, enda sið-
laus með öllu.“
Úttekt verði gerð á
vinnuaðstöðu skipverja á
frystitogurum
Þá var á fundinum einnig sam-
þykkt ályktun þar sem mótmælt
er fækkun í áhöfnum fískiskipa,
hún hafi í för með sér aukið vinnu-
álag og leiði af sér stóraukna slysa-
hættu, sem þó sé ærin um borð i
fískiskipum. Fækkun í áhöfnum
gefi litlar tekjur til undirmanna og
valdi auk þess umtalsverðum út-
gjöldum hjá útgerðarmönnum. Tek-
ið er dæmi af togara þar sem fækk-
að var í 13 menn í áhöfn og afla-
verðmæti miðað við 190 milljónir á
ári. Ráðstöfunartekjur skipstjóra
hækkuðu um hálfa milljón króna,
fyrsta stýrimanns um 400 þúsund,
en háseta um 136 þúsund krónur.
Skorað er á yfirvöld að leyfa
ekki vinnslu um borð í skipum sem
ekki hafa kojur og rými fyrir alla
skipvetja og.eins að ef fjölgað er
kojum í slíkum skipum verði það
gert í samræmi við vinnulöggjöf og
heilbrigðiseftirlit. „Það getur varla
talist annað en afturhvarf þegar
sjómenn þurfa að deila svefnstað
með öðrum í allt að 30 daga útiver-
um og myndi hvergi líðast nema á
sjó. Þessu verður að linna,“ segir í
ályktun um þetta efni. Þá er skorað
á útgerðarmenn frystiskipa að láta
gera úttekt á vinnuaðstöðu skip-
veija sem miði að því að fækka
veikindafjarvistum vegna rangra
vinnuskilyrða.
Loks má nefna að á fundinum
kom fram stuðningu við þá stefnu
að allur fiskur verði seldur á físk-
mörkuðum, en fiskverð tengt raun-
hæfu markaðsverði þar sem því
verður ekki við komið.
Kennarar
Vegna forfalla vantar kennara við Grenivíkurskóla frá ára-
mótum. Aðalkennslugreinar enska og samfélagsfræði.
Upplýsingar gefur Björn Ingólfsson, skólastjóri, í síma
96-33118 eða 96-33131.
Oll jólatré seldust upp
og fengu færri en vildu
ÖLL JÓLATRÉ seldust upp á Akureyri fyrir jól og giskar fram-
kvæmdastjóri Skógræktarfélags Eyfirðinga á að um 100 heimili
hafi vantað jólatré. Auk félagsins voru fjórir aðrir sölustaðir í
bænum og nágrenni hans með jólatréssölu og einnig voru seld jóla-
tré i Skógrækt rikisins i Vaglaskógi. Skógræktarfélagið lagði upp
með 200 fleiri tré en í fyrra.
Hallgrímur Indriðason fram-
kvæmdastjóri Skógræktarfélags
Eyfírðinga sagði að jólatré hafi
ekki selst upp svo langt sem hann
muni, en hann hefur starfað hjá
félaginu um árabil. „Við reynum
alltaf að vera örugg í þessum efn-
um og vorum með mun fleiri tré
í sölu en í fyrra, eða 200 fleiri. Á
síðasta ári áttum við eftir um 70
tré þegar salan hætti og helst
viljum við eiga eftir um 50 tré,“
sagði Hallgrímur.
Auk þess sem Skógræktarfélag
Eyfírðinga seldi jólatré á tveimur
stöðum voru jólatré seld í blóma-
skálanum Vín, í blómabúðunum
Akri og Blómahúsinu og þá seldi
íþróttafélagið Þór einnig jólatré
fyrir þessi jól. Jólatrén seldust upp
á öllum stöðum. Hallgrímur sagði
að hér áður fyrr, þegar menn
hafí séð fram á mikla sölu, hafí
jólatré verið send frá Hallorms-
staðaskógi til Akureyrar. Nú hafí
bæði verið reynt að fá tré þaðan
og eins að sunnan, en þar var hið
sama upp á teningnum, enginn
var aflögufær með jólatré.
„Ég held að skýringin á þess-
ari miklu sölu núna sé auglýsinga-
herferð skógræktarinnar og við
urðum mikið vör við það að fólk
bað um íslensk tré. Eg trúi því
að þetta hafi náð eyrum fólks og
það hafi haft sitt að segja um
mikla jólatréssölu. Það hafa
margir keypt jólatré fyrir þessi jól
sem ekki hafa gert það áður.“
Hallgrímur sagði að þegar ljóst
var á Þorláksdag að trén myndu
seljast upp hafi lítið verið hægt
að gera. „Það var ekkert hægt
að gera, það var svo mikill snjór
að erfítt var að komast að trján-
um, ég fór á aðfangadagsmorgun
og var um hálftíma að grafa upp
eitt tré.“
Sagði Hallgrímur að fyrir
næstu jól yrði eflaust bætt ríflega
við, það væri auðvitað ekki metn-
aður félagsins að eiga einhvern
lager eftir, en það vildi geta sinnt
öllum sínum viðskiptavinum og
því hefði verið ósköp leiðinlegt að
svona skyldi hafa farið nú.