Morgunblaðið - 13.02.1993, Blaðsíða 23
22
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1993
MORGUtfj
23
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið.
Draumaveröld verð-
ur að martröð
Efnahagsástandið í Færeyjum
líkist einna helst martröð.
Færeyingar eru enn háðari fisk-
veiðum en íslendingar og er það
því reiðarslag fyrir efnahagslífið
þegar fískstofnamir hrynja. Á
hálfum áratug hefur botnfisk-
veiði eyjarskeggja dregist saman
um nær helming. Á sama tíma
hafa erlendar skuldir Færeyinga
tvöfaldast.
Áhrifín eru ógnvænleg, ekki
bara fyrir færeyskt atvinnulíf,
heldur ekki síður fyrir færeyskar
fjölskyldur. Atvinnuleysi er nú
þegar á þriðja tug prósenta og
því spáð að áður en árið sé liðið
kunni annar hver Færeyingur að
vera án atvinnu. Ráðstöfunar-
tekjur meðalfjölskyldu munu
dragast saman um 300-400 þús-
und krónur milli áranna 1992
og 1993 vegna skattahækkana
og beinna launalækkana. Fjár-
hagsáætlanir þúsunda fjöl-
skyldna eru orðnar að engu. Þær
standa uppi eignalausar og at-
vinnulausar.
Hin sorglegu örlög Færeyinga
eru gott dæmi um hve brigðult
hafíð getur verið. Þjóð sem bygg-
ir alla sína afkomu á sjávarfangi
tekur í raun þátt í sífelldu happ-
drætti. Það er ekki hægt að segja
með vissu fyrir um hver afli verð-
ur næstu tólf mánuði. Hvað þá
næstu tólf ár. Dæmi Færeyinga
sýnir því einnig hversu hættulegt
það er að haga fjárfestingum á
þann veg að sjávarafli verði sí-
fellt að aukast eigi tekjur að
standa undir þeim. Sjávarútvegs-
þjóðir verða að gera ráð fyrir að
það muni skiptast á skin og skúr-
ir, annars er voðinn vís.
íslendingar hafa verið á
hættulegri braut í þessum efnum
á undanfömum áratugum og við
ættum að líta á Færeyjar sem
víti til vamaðar. Þegar sjávarafli
var sem mestur þar um miðjan
síðasta áratug fór þjóðfélagið í
heild sinni á útgjaldafyllerí. Rík-
isvald, fyrirtæki og heimili réðust
í viðamiklar fjárfestingar sem
íjármagna þurfti með erlendum
lánum. Flest þau fyrirtæki sem
lengst gengu í fjárfestingum eru
nú gjaldþrota. Togaramir glæsi-
legu horfnir úr landi og frysti-
húsin tóm. Þúsundir manna em
að missa heimili sín til lánar-
drottna. Eftir standa jarðgöngin,
hafnimar, gervigrasvellirnir,
íþróttahallimar og vegimir, sem
á sínum tíma voru talin til marks
um stórhug og framtakssemi,
sem tákn um óhóflega bjartsýni
og ábyrgðarleysi við meðferð
opinberra ijármuna.
Færeyingar eru smám saman
að vakna upp við þá staðreynd
að þeir hafí lifað í draumaveröld
og að tekjum næstu ára og jafn-
vel áratuga hafi þegar verið ráð-
stafað. Það er ekki auðvelt fyrir
þjóð að horfast í augu við raun-
veruleika af þessu tagi og af
ummælum margra færeyskra
stjómmálamanna má ráða að
þeir hafí ekki enn áttað sig á
alvöru málsins til fulls. Þeir virð-
ast reyna að sannfæra sig og
aðra um að þetta sé nú ekki eins
slæmt og það lítur út fyrir að
vera. Það leikur hins vegar eng-
inn vafí á því í huga almennings
hversu alvarleg staðan er, enda
bitnar kreppan harðast á hinum
almenna borgara.
I grein í Morgunblaðinu síðast-
liðinn sunnudag er vitnað í
starfsmann banka í Færeyjum
sem segir að eitt það versta sém
sé að gerast sé að fólk sé að
missa vonina. „Ég verð æ oftar
var við að fólk gefst einfaldlega
upp þegar það ræður ekki við
dæmið. Það hættir að borga af
lánum og notar peningana í stað-
inn í mat og aðrar nauðsynjavör-
ur. Það kemur svo til okkar og
segir: Héma er húsið ykkar.
Gjörið svo vel,“ segir þessi
bankamaður. Þetta er mjög átak-
anleg lýsing enda bendir margt
til þess að Færeyingar séu al-
mennt að missa vonina um betri
tíð framundan.
Marita Petersen, lögmaður
Færeyinga, hefur sagt í samtali
við Morgunblaðið að hún telji að
tíu til fímmtán ár geti Iiðið áður
en færeyskt efnahagslíf nær sér
að fullu á strik á ný. Það er lang-
ur tími, ekki síst fyrir ungt fólk,
sem er að hefja lífsbaráttuna.
Fjölmargir hafa ekki slíka bið-
lund og íhuga að flytja úr landi.
Fyrst fer unga fólkið og þeir sem
hafa einhveija menntun. Á síð-
asta ári fluttu 900 fleiri frá
Færeyjum en til eyjanna.
Það hefur einnig haft sterk
sálræn áhrif á Færeyinga að
færeyskir stjórnmálamenn hafa
í tvígang þurft að fara bónarveg
til Kaupmannahafnar til að fá
fjármagn til að koma í veg fyrir
yfírvofandi hmn bankakerfísins.
Þessum lánveitingum fylgdu
ströng skilyrði sem í raun þýða
að efnahagsstjómin hefur að
mestu verið tekin úr höndum
landstjórnarinnar. Þeir Færey-
ingar sem börðust fyrir sjálf-
stæði viðurkenna nú að slíkt er
fíarlægari draumur en oftast
áður. Af ummælum almennings
í fjölmiðlum má ráða að margir
telja færeyska stjómmálamenn
ekki hafa valdið hlutverki sínu
og því sé ekki hægt að kvarta
yfír að Danir hafí viljað skilyrða
fjárstuðning sinn. Mörgum svíð-
ur sárt að hafa þurft að beygja
sig fyrir Dönum á þennan hátt,
sökin á því liggur hins vegar
ekki í Kaupmannahöfn heldur í
Þórshöfn.
iUAR 1993
Ekki vitað um alvarleg slys í aftakaveðri með þrumum o g eldingum sem olli nokkru tjóni á landinu í gær
Eldingarnar gerðu þre-
falt öryggi dreifikerfis
Landsvirkjunar að engu
Dreifikerfið ætti að standa það
af sér að elding slægi út 1-2 af
línunum þremur en ekki væri
raunhæft að ætla nokru kerfi að
standast það þegar eldingu lysti
niður í allar þrjár línurnar sam-
timis.
Milljón volta spenna
Alls sló 7-8 eldingum niður í lín-
urnar þrjár en þegar það gerist get-
ur spenna í þeim aukist úr 220.000
voltum í 1 milljón volt að sögn Þórð-
ar. Tvær línanna þriggja liggja frá
Búrfelli; önnur að aðveitustöð við
Geitháls -en hin að aðveitustöð við
Hamranes sunnan Hafnarfjarðar.
Loks er þriðja línan sem liggur frá
Brennimel í Hvalfirði og að aðveitu-
stöðinni á Geithálsi. Línurnar rofnð-
uð ekki og ekki var ljóst hvort ein-
angrunarbúnaður hefði skemmst.
Þórður Guðmundsson sagði að
Landsvirkjun hefði kallað út liðsauka
til að manna aðveitustöðvar meðan
verið var að koma kerfmu inn aftur
eins og það er kallað en því var lok-
ið um klukkan sex, eins og fyrr sagði
en nokkru eftir það sló þó enn við
og við niður eldingum í minni línur
kerfísins og sló þær út.
Eftir að tekist hafði að koma raf-
magni inn um landið suðvestanvert
var enn straumlaust á Vestfjörðum
en þar hafði aðveitulínu að Mjólkár-
virkjun slegið út síðdegis af ókunn-
um orsökum.
Morgunblaðið/Kristinn
Stjóriistöðin
í STJÓRNSTÖÐ Landsvirkjunar áttu menn annríkt síðdegis í gær.
Þar eru venjulega tveir menn á vakt en þar voru sex að störfum þeg-
ar ljósmyndari og blaðamaður litu þar inn um það leyti sem rafmagn
var að koma inn.
ELDIN G A VEÐRIÐ lék dreifikerfi
Landsvirkjunar grátt því elding-
um sló niður í allar þrjár 200 Kw
línur kerfisins með þeim afleið-
ingum að straumlaust varð á
svæði frá Selfossi vestur um höf-
uðborgarsvæðið og allt Reykjanes
og allt vestur til Akraness klukk-
an 17.05 í gær. Tólf mínútum síð-
ar komst straumur á til Álversins
í Straumsvík og um klukkan sex
var straumur kominn á alls staðar
að nýju. Engar skemmdir urðu á
aðveitustöðvum Landsvirkjunar
og ekki var í gær vitað til að nein
önnur mannvirki hefðu skemmst
en ekki verður endanlega unnt
að ganga úr skugga um það fyrr
en í dagsbirtu í dag. Þórður Guð-
mundsson, rekstrarstjóri Lands-
virkjunar, sagði að segja mætti
að þrefalt öryggi hefði brugðist.
Hrrr
ÁTVR opið
fram yfir sex
ÚTSÖLUM Áfengis- og tóbaks-
verslunar ríkisins er alltaf lokað
í rafmagnsleysi. Nú fór rafmagnið
af á versta tíma, á síðasta klukku-
tímanum fyrir lokun á föstudegi.
40 manns voru inni í útsölu ÁTVR
í Miklagarði þegar rafmagnið fór af.
Þorgeir Baldursson útsölustjóri sagði
að sjóðsvélamar hefðu orðið óvirkar
og auk þess var talið ráðlegt af ör-
yggisástæðum að loka. Varð að af-
greiða fólkið sem var inni án aðstoð-
ar kassanna og tókst það þótt seint
gengi.
Fyrir utan beið fólk í biðröð og
þegar rafmagnið komst á þijár mín-
útur fyrir sex var öllum sem þá biðu,
um 120 manns, hleypt inn. Sagði
Þorgeir að orðið hefði að hafa opið
til 18.15 eða 18.20 til að allir kæm-
ust að.
Vestfirðir síma-
sambandslausir
ERFITT var með símasamband
við Vestfirði og Vesturland frá
því klukkan rúmlega 17 í gær og
fram eftir kvöldi. Starfsmaður á
mælaborði Landsímans sagðist
seint í gærkvöldi að vonast væri
til að síminn kæmist fljótlega í
lag. Þá var víða sjónvarpslaust og
um tíma voru truflanir á símasam-
bandi við útlönd.
Örbylgjusambandið milli Vatns-
enda og Girðisholts í Borgarfirði bil-
aði og olli það því að nánast útilokað
var á ná símasambandi við Vestfírði
og stóran hluta Vesturlands. Síma-
samband var innan svæðanna. Sam-
kvæmt upplýsingum Sigurðar Egg-
ertssonar á mælaborði Landsímans
var örbylgjusambandið með suður-
ströndinni í lagi og einhveijir Ijósleið-
arar voru einnig í Iagi og var því
samband við Norðurland og aðra
Iandshluta. Sigurður sagði um klukk-
Nokkrir brutu
bein í óveðrinu
Lét á sjá
MÓTTÖKUSKERMUR fyrir
gervihnattasendingar við Út-
varpshúsið við Efstaleiti lét á sjá
í veðrinu. Járnplötur flettust neð-
an af honum, eins og sést á mynd-
inni.
Nokkrir þurftu að leita á slysadeild
Borgarspítalans síðdegis í gær og í
gærkvöldi vegna meiðsla sem þeir
höfðu hlotið vegna óveðursins sem
gekk yfír suðvesturhluta landsins.
Samkvæmt upplýsingum læknis á
slysadeild varð þó enginn fyrir alvar-
legum meiðslum en nokkrir sem
höfðu fokið í rokinu hlutu minni
háttar beinbrot.
Morgunblaðið/Sverrir
Örtröð við „ríkið“
NOKKUR óróleiki var orðin meðal fólks sem beið fyrir utan „ríkið“
í Miklagarði þegar nálgaðist lokun í gær.
an 23 í gærkvöldi að vonast væri til
að símasamband kæmist fljótlega á.
Truflanir voru á símasambandinu
við útlönd síðdegis. Rofnaði sam-
bandið gjarnan en landið varð aldrei
alveg sambandslaust. Tókst fljótlega
að kippa þessari bilun í liðinn.
Víða voru truflanir á sjónvarps-
sendingum vegna bilunarinnar í ör-
bylgjusambandinu, sérstaklega á
Vesturlandi, Vestfjörðum og Norður-
landi vestra.
Morgunblaðið/Sverrir
Afklæddist bárujárninu
BÁRUJÁRN flettist af nýlega klæddum gafli á húsi Granda við Norðurgarð í Reykjavík. Björgunarsveitir komu á staðinn til að hinda að járnið fyki,
Erill hjá lögreglu og björgunarsveitum á Suðvesturlandi
Víða þurfti aðstoð en ekki
vitað um stórtjón eða -slys
LÖGREGLUNNI í Reykjavík, Kópavogi og
Hafnarfirði bárust alls 54 tilkynningar um
foktjón og beiðnir um aðstoð á um tveggja
klukkustunda tímabili í gær meðan suðaustan
hvassviðrið gekk yfir. Björgunarsveitir á
svæðinu voru kallaðar út og sinntu meðlimir
þeirra hjálparbeiðnum ásamt lögreglumönn-
um en laust eftir klukkan átta var viðbúnaður
þeirra blásinn af. Mest varð tjón á svæðinu
eftir því sem næst verður komist á húsi í eigu
Granda vestur á Grandagarði. Þar flettist hluti
bárujárnsklædds gafls af í rokinu. f Keflavík
féll auglýsingaskilti af húsvegg og skemmdi
tvo bíla. Á Keflavíkurflugvelli munu báru-
járnsplötur einnig hafa fokið af nýju flug-
skýli Flugleiða. í uppsveitum Árnessýslu var
enn rafmagnslaust í gærkvöldi, sem og á Eyr-
arbakka og í Flóanum en þar höfðu raflínur
slitnað. Annars varð ekki umtalsvert tjón eft-
ir þvi sem næst verður komist.
Víða um höfuðborgarsvæðið fuku stillansar
niður og grindverk og skjólveggir létu undan veðr-
inu, auk þess sem hemja þurfti þakplötur sem
fuku og ýmislegt annað lauslegt sem ekki hafði
verið gengið nægilega tryggilega frá.
Basl á heiðinni
Meðan veðurhamurinn var mestur var fólki
ráðlagt að halda sig inni því ekki var stætt. Á
slysadeild Borgarspítalans fengust þær upplýs-
ingar að nokkuð hefði verið um að fólk leitaði
þangað vegna beinbrota og áverka sem það hlaut
við fall eftir að vindhviðurnar sviptu því til.
Rúta til Selfoss var 40 mínútum lengur á leið-
inni austur yfír fjall en venjulega vegna hvassviðr-
is og bílar áttu í nokkru basli á Heiðinni meðan
mest gekk á en ekki hlutust af teljandi vandræði,
eftir því sem lögreglan á Selfossi hafði komist næst.
Morgunblaðið/Þorkell
Hópur unglinga hélt til í kirkju
UM 200 unglingar höfðu safnast saman í Fella- og Hólakirkju síðdegis
í gær þegar veðurofsinn gekk yfir en þau ætluðu að halda af stað á mót
á vegum æskulýðsráðs þjóðkirkjunnar í Vatnaskógi í gærkvöldi.
Ovenjulegar
þrumur
AÐ sögn Einar Sveinbjörnssonar
veðurfræðings á spádeild Veður-
stofu Islands var þrumuveður af
því tagi sem gerði um landið sunn-
an og vestanvert síðdegis í gær
fremur fátítt. Þar sem þrumuveð-
ur verði megi yfirleitt rekja það
til stakra bólstraskýja annað
hvort á heitum sumardögum eða
í mjög köldum útsynningi að vetr-
arlagi en sjaldnar beri það til sem
nú gerðist að þrumur og eldingar
bresti á þegar skil ganga yfir
landið.
í dag gekk kröpp en ekki ýkja
djúp lægð fyrir vestan landið og var
verulegur hitamunur milli hlýja lofts-
ins sem fór fyrir skilunum og hins
kalda sem fylgdi í kjölfarið. Við slík
skilyrði verður mikið uppstreymi og
því fylgja eldingar sem myndast er
kalt loft þrengir sér inn undir hlýja
loftið og lyftir því upp á nokkurra
tuga kílómetra breiðu beiti. Því
Iengra sem líður frá því að elding
sést og þar til þruma heyrist, því
lengra í burtu er þrumubeltið.
Einar sagði að sig minnti að síð-
_i-_
ast hefði veður af þessu tagi gert
hérlendis daginn sem stormflóð reið
yfir á Stokkseyri og Eyrarbakka í
ársbyijun 1989.
Einar Sveinbjörnsson sagði að
hérlendis væri enginn búnaður til
sem mælir styrk ljósagangs og
þrumuveðurs en slíkt væri eflaust
til erlendis þar sem veður af þessu
tagi væri algengara.
Margir sem Morgunblaðið ræddi
við í gær höfðu hins vegar orð á því
að þeir hefðu sjaldan heyrt jafn-
háværar þrumur og séð jafnskærar
eldingar á himni hérlendis.
Fukuundir
Hafnarfjalli
ENGINN meiddist er tveir bílar
fuku út af veginum undir Hafnar-
fjalli síðdegis í gær. Þar var veg-
urinn talinn ófær vegna veðurs
framundir kvöld.
Bílamir fengu á sig vindhviður
norðan við Hafnará. Jeppi þurfti að
stöðva vegna þess að vindurinn
ruglaði þurrkurnar. Þegar hann ætl-
aði að halda af stað að nýju setti
vindurinn hann á hliðina utan vegar.
Síðar fauk lítill vörubíll út af og
hafnaði á toppnum.
Var hætt við ferðina vegna veðurs
og héldu krakkarnir til í kirkjunni
fram á kvöld og höfðu þar kvöldvöku
þar til veður fór að lægja. Sneru þá
flestir aftur til síns heima en nokkr-
ir unglinganna sem höfðu komið frá
Selfossi og Grindavík í gærdag fengu
að gista í kirkjunni í nótt.
Vakt hjá
Almanna-
vöraum
ALMANNAVARNIR ríkisins
höfðu vakt fram eftir kvöldi í gær
vegna óveðursins og sendu út við-
varanir til almennings.
Hafþór Jónsson, fulltrúi hjá Al-
mannavömum ríkisins, sagði í gær
að þegar sýnt hefði þótt hvert stefndi
með veðrið síðdegis í gær hefði ver-
ið ákveðið að hafa áfram vakt í
stjómstöð Almannavarna og geVa
almannavamanefndum á óveðurs-
svæðinu viðvart, það er nefndunum
á Suðvestur- og Vesturlandi. Al-
mannavamanefndirnar á hvetjum
stað ákveða síðan hvernig best sé
að bregðast við á hveijum stað. í
Reykjavík kallaði lögreglan til full-
trúa björgunarsveitanna og setti upp
stjómstöð til að sinna hjálparbeiðn-
um fólks í vanda.
Þá vom sendar út viðvaranir til
almennings, meðal annars um að
vera sem minnst á ferli og viðbrögð
vegna eidinga.
70hnútarí r
hviðum í
Reykjavík
IjÆGÐIN sem olli hvassviðrinu á
landinu í gær herjaði fyrst með
suðaustan hvassviðri eða stormi
en í kjölfar skilanna fylgdi suð-
vestan aftakaveður á mjóu belti
Um klukkan 23 var veður að
versna mjög á Vestfjörðum og að
sögn Veðurstofu bentu líkur tij
að þar yrði versta veðrið.
Þá hafði mestur vindur mælst á
Gufuskálum en klukkan 21 í gær
voru þar 11-12 vindstig og litlu
minna veður á ýmsum stöðum í
Húnavatnssýslum og Skagafírði.
Klukkan 18 í gær, þegar þetta belti
gekk yfir Reykjavík, voru þar 10-11
vindstig en allt að 70 hnúta vindur
í hviðum.
Að sögn Einars Sveinbjömssonar,
veðurfræðings á spádeild Veðurstofu
íslands reyndist erfítt að fylgjast
með lægðinni áður en hún kom að
landinu, enda engar athugunarstöðv-
ar suður af landinu og allt suður að
Hvarfi.
Dagfari í
snælduvit-
lausu veðri
með 500 tonn
af loðnu
„ÞAÐ er snælduvitlaust veður og
er búið að vera síðan seinnipart-
inn í dag,“ sagði Guðmundur
Garðarsson skipstjóri á loðnuskip-
inu Dagfara ÞH í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi en skip-
ið var þá statt 13 sjómílur austu’r
af Reykjanesi á leið í land með
fullfermi eða 500 tonn af loðnu í
tíu vindstigum.
Guðmundur sagði að engin vand-
kvæði hefðu þó hlotist af völdum
veðursins en þeir færu mjög rólega
yfír og sigldu á sex mílna ferð. Átti
hann von á að skipið kæmi inn til
Reykjavíkur upp úr miðnætti. Dag-
fari hafði þá verið tæpan sólarhring
á leiðinni til lands frá loðnumiðunum
út af Skaftárósi.
Tæplega 200 skip á sjó ±
Alls voru hátt í 200 skip á sjó í
gær þegar óveðrið gekk yfír og höfðu
flest hver siglt í var eða á leið til
lands í gærkvöldi en tilkynninga-
skyldunni höfðu ekki borist fregnir
um að neinn hefði lent í umtalsverð-
um erfiðleikum og flestir minni bát-
anna virtust hafa sloppið undan
óveðrinu.