Morgunblaðið - 16.03.1993, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1993
t
Eiginmaður minn og faðir okkar,
JÓHANN GUÐMUNDSSON
fyrrverandi forstjóri,
Heigamagrastræti 53,
Akureyri,
lést 14. mars.
Útförin auglýst síðar.
Freyja Jónsdóttir og synir.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
VETURLIÐI GUNNAR VETURLIÐASON
frá Úlfsá,
Stórholti 9,
(safirði,
lést 14. mars.
Hulda Guðmundsdóttir,
Gunnar Veturliðason, Valdfs Friðriksdóttir,
Valdís Veturliðadóttir, Steinþór Steinþórsson,
Veturliði G. Veturliðason, Sveinfrfður Hávarðardóttir,
Ólöf Veturliðadóttir, Guðmundur Einarsson,
Guðmunda Veturliðadóttir, Þórir Sturla Kristjánsson,
Stefán Veturliðason, Helga Kristjánsdóttir,
Jón Veturliðason, Ásta Svana Ingadóttir,
Magni Veturliðason, Harriet Andreassen,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir,
KARLÞÓRÐARSON
frá Hávarðarkoti,
Þykkvabæ,
andaðist 14. mars á hjókfbnarheimilinu Skjóli.
Svava Guðmundsdóttir,
Þórður Kr. Karlsson, Auður Þorsteinsdóttir
og barnabörn.
t
ARNGRÍMUR SIGURJÓNSSON,
Hjallavegi 42,
Reykjavfk,
er látinn.
Guðrún Alda Sigmundsdóttir,
Sigmundur Örn Arngrfmsson, Vilborg Þórarinsdóttir,
Baldur Már Arngrfmsson, Hrafnhildur Sigurðardóttir,
Haraldur Arngrímsson, Dóra Halldórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
Systir okkar, +
ARNDÍS ÞORKELSDÓTTIR
fyrrum starfskona i Miðbæjarskóla,
Fríkirkjuvegi 1,
andaðist 13. mars.
Halldóra Þorkelsdóttir,
Ingunn Þorkelsdóttir.
+ PÁLL BJÖRNSSON, Fagurhólsmýri, lést á Skjólgarði, Höfn, aðfaranótt 15. mars. Vandamenn.
t
Eiginmaöur minn,
JAKOB ÞORSTEINS JÓHANNSSON,
lést á Hrafnistu í Reykjavík 12. mars.
Ingibjörg Hjartardóttir.
+
Elskulegur faðir okkar og fósturfaðir,
KRISTVALDUR EIRÍKSSON,
andaðist 14. mars. Jarðarförin auglýst síðar.
Börn og fósturdóttir.
Minning
Tryggvi Emilsson
Fæddur 20. október 1902
Dáinn 6. mars 1993
Tryggvi Emilsson fluttist til
Reykjavíkur 1947. Hann hafði þá
um alllangt skeið verið formaður
Verkamannafélags Akureyrar og
átti langa sögu þar að baki sem
burðarás verkalýðsbaráttu norðan
heiða. Verkamannafélagið Dags-
brún fékk að njóta starfa hans strax
frá fyrstu tíð hans hér í Reykjavík,
því óðar en Tryggvi hafði komið sér
fyrir, þá í Selásnum með fjölskyldu
sína, gerði hann sér ferð á skrif-
stofu Dagsbrúnar í Alþýðuhúsinu
og gekk í félagið. Næsta ár, 1948,
var hann kosinn í stjórn félagsins.
1954-1961 var hann varaformaður
og ritari frá 1961-64. Tryggvi átti
einnig sæti í ráðum og nefndum
félagsins um árabil og var fulltrúi
félagsins á þingum og ráðstefnum.
Lengst af starfaði Tryggvi hjá
Hitaveitu Reykjavíkur þar sem
hann hafði allra hylli, jafnt sam-
starfsmanna sem yfirmanna. Allt í
fari hans vakti traust. Hann var
einstaklega prúður maður og hátt-
vís og stafaði frá sér manngæsku
og hlýju. Engu að síður var þessi
ljúflyndi fagurkeri, unnandi bók-
mennta og lista, með þeim fremstu
í flokki í vinnudeilum og átökum
um kjör verkafólks í yfir 40 ár.
Baráttuþrek hans var glætt af óbil-
andi réttlætiskennd og sannfær-
ingu.
Komin fast að sjötugu veiktist
Tryggvi hastarlega og hætti þá
störfum hjá Hitaveitunni. Þegar
hann hafði náð nokkrum kröftum
eftir veikindin tók hann til við rit-
störf, sem ávallt höfðu verið honum
hugleikin, en tími lítill eða enginn.
Bækur Tryggva þekkir alþjóð. Með
þeim reisti hann sér og íslenskri
alþýðu og verkalýðshreyfingu þann
bautastein sem blífur.
Tryggvi Emilsson var nefndur til
bókmenntaverðlauna Norðurlanda-
ráðs og er okkur sagt að einu at-
Guðbjartur Benedikts-
son - Minning
Fæddur 8. ágúst 1938
Dáinn 7. mars 1993
Hann Bjartur afi er dáinn. Aldrei
aftur kemur hann til dyra þegar
við komum til Stínu ömmu og seg-
ir: „Komiði sæl og velkomin."
Að vera boðinn og búinn voru
- hans kjörorð. Leika við yngstu kyn-
slóðina og spjalla við þá eldri, að
sækja f Snæfellsnesrútuna eða
keyra heim á kvöldin. Hjálpa til við
flutninga á nýtt heimili, fegra það
og bæta. Ógleymanlegar grillveislur
í Garðabæ og jólaheimsóknir vestur.
Það er gott að eiga minningar,
þær streyma fram í hugann þegar
rætt er um þá sáru staðreynd að
afi er horfinn okkur.
Við biðjum góðan Guð að styrkja
elsku Stínu ömmu, dætur Bjarts
afa og barnabörnin hans sem hann
var svo stoltur af.
Særún, Halldór, Sigríður Lára,
Kristín, Sindri, Fanney, Heiðrún,
Gunnar, Halldór og Olöf Rut.
+
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og mágkona,
NANNA SNÆDAL,
Álfaskeiði 44,
Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 17. mars
kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Krabbameinsfélagið.
Jakob Bjarnar Grétarsson, Steinunn Ólafsdóttir,
Atli Geir Grétarsson, Nanna Elísa Jakobsdóttir,
Stefán Snær Grétarsson, Guðlaug Elísa Kristinsdóttir.
í þœgilegu umhverfi með góðri þjónustu.
GUesilegt kaffihlaðborö á hóflegu verði.
Almenna auglýsingastoían hf.
Rauöarárstíg 18
® 62 33 50
.........iiiiiiiii 11 ...........
GRÁSTEINN
ILÁGRÝTI.LIPARIT
GABBRÓ.MARMARI
G R A N í T
.HELGASON HF STEINSMHMA
SKEMMUVEGI 48 KÓPAVOGI SÍMI: 91 76677
kvæði hafi munað að hann fengi.
En bókmenntaverðlaun Dagsbrún-
ar, þau einu hingað til sem veitt
hafa verið, fékk hann og var jafn-
framt kjörinn heiðursfélagi Dags-
brúnar á fundi í Iðnó 1977 fyrir
troðfullu húsi.
Með einlægum söknuði og trega
kveðjum við félaga okkar og sam-
starfsmann. Þakklætisskuld okkar
er stærri en svo að hún verði nokk-
urn tíma greidd.
Dætrum Tryggva Emilssonar og
fjölskyldum þeirra vottum við inni-
Iega samúð.
F.h. stjórnar Dagsbrúnar
Hjálmfríður Þórðardóttir.
Laugardaginn 6. mars sl. lést
Tryggvi Emilsson, verkamaður og
rithöfundur, á 91. aldursári.
Tryggvi fæddist í Hamarkoti við
Akureyri 20. október 1902. Foreldr-
ar hans voru Emil Petersen, bóndi
og búfræðingur, og kona hans Þur-
íður Gísladóttir. Hann var alinn upp
í mikilli fátækt og missti móður
sína sex ára gamall. Eftir það var
hann oft hjá vandalausum tímunum
saman, stundum við misjafna að-
búð. Uppvaxtarárum sínum lýsir
hann meistaralega í fyrstu bók
ævisögu sinnar „Fátækt fólk“.
Tryggvi hlaut litla skólamenntun
í æsku en meðfædd fróðleiksþrá
hans og skarpar gáfur bættu þar
um, svo að ýmsir meira skólagengn-
ir hefðu mátt teljast fullsæmdir af.
Ungur að árum réðst hann sem
vinnumaður til afa míns Jóns Jó-
hannessonar, bónda að Ámesi í
Tungusveit í Skagafirði. Sú dvöl
varð honum mikið örlagaspor því
að þar kynntist hann Steinunni
Guðrúnu, dóttur Jóns bónda, sem
varð kona hans. Þar kynntist hann
einnig föður mínum Jóhannesi Erni
Jónssyni, bróður Steinunnar, og
tengdamóður sinni Gróu Sveins-
dóttur, sem síðar dvaldist hjá þeim
hjónum þar til hún lést. Við allt
þetta fólk bundust ævilöng vináttu-
bönd.
Tryggvi og Steinunn munu hafa
hafið búskap í Bakkaseli í Öxnadal
en fluttu þaðan í Fagranes, nokkru
utar í dalnum, og bjuggu þar ásamt
foreldrum mínum í eitt ár. Þaðan
lá leiðin til Akureyrar, þar sem þau
dvöldust á nokkrum stöðum næstu
árin en lengst á Flúðum, nýbýli sem
ERFIDRYKKJUR
Verð frá kr. 850-
P E R L A N sími 620200
MUMfl!
Minningarkort Styrktarfélags
krabbameinssiúkra barna
Seld í Garðsapóteki,
sími 680990.
Upplýsingar einnig veittar
í síma 676020.