Morgunblaðið - 16.03.1993, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1993
51
Aðlögunamámskeið
fyi’ir hreyfihamlaða
SJÁLFSBJÖRG, landssamband fatlaðra, gengst fyrir námskeiði
dagana 16.-18. apríl nk. sem ætlað er hreyfihömluðu fólki. Þetta
er í fjórða sinn sem slíkt námskeið er haldið en þau eru sniðin
eftir finnskri fyrirmynd og hafa gefíð nyög góða raun.
Á námskeiðinu verður fjallað
um félagslegar afleiðingar fötlun-
ar. Fluttir verða stuttir fyrirlestrar
um viðhorf almennings til fötlun-
ar, viðbrögð vina og vandamanna
og viðbrögð einstaklingsins við
nýjum og breyttum aðstæðum. Á
MANNELDISFÉLAGIÐ heldur
almennan fund um aðskotaefni
'og hreinleika innfluttra og inn-
lendra matvæla, þriðjudaginn
í útibúinu verður hægt að sinna
daglegum viðskiptum svo sem að
greiða reikninga, leggja inn,
stofna reikning og skipta ávísun-
um.
Þetta er annað skólaárið í röð
sem nemendur skólans starfrækja
. útibú í samvinnu við bankann og
I er megin tilgangurinn að kynna
nemendum helstu starfsþætti
banka.
námskeiðinu verður einnig fyrir-
lestur um tryggingamál og réttindi
fatlaðra varðandi ýmsa þjónustu
pg starfsemi Öryrkjabandalags
íslands, Sjálfsbjargar og íþrótta-
sambands fatlaðra.
Á námskeiðinu verður unnið í
16. mars klukkan 20.15^ í Lög-
bergi, húsnæði Háskóla Islands.
Athygli fólks um víða veröld
beinist í auknum mæli að verndun
umhverfis. Mengun lofts, sjávar
og jarðvegs kemur fram í fæðu
manna og dýra, auk þess sem
ýmis efni sem notuð eru til að
verja uppskeru eða auka fram-
leiðslu geta einig borist í matvæli.
Hér á landi hafa mælingar á þess-
um efnum eflst stórlega og nú er
svo komið að töluverð þekking er
til staðar á hreinleika íslenskra
matvæla.
Á fundi Manneldisfélagsins
verða meðal annars kynntar niður-
stöður mælinga á aðskotaefnum í
mjóík og mjólkurvörum, kjöti,
fiski, grænmeti og ávöxtum.
Þrír fyrirlesarar flytja erindi,
þau Guðjón Atli Auðunsson, frá
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins,
Olafur Reykdal, frá Rannsókna-
stofnun landbúnaðarins, og Gunn-
laug Einarsdóttir, frá Hollustu-
vernd ríkisins. Fundarstjóri verður
Halldór Runólfsson, frá Heilbrigði-
seftirliti Kjósarsvæðis. Fundurinn
er öllum opinn meðan húsrúm leyf-
ir.
litlum hópum. Þar verða rædd
ýmis mál sem snerta daglegt líf
fatlaðs fólks, bæði mál sem öllum
eru sameiginleg og svo sérstök
vandamál þátttakenda. Hópstjóri
er í hvetjum hópi sem hefur
menntun og reynslu af vinnu með
fötluðu fólki. Hins vegar fer engin
bein líkamleg þjálfun fram á nám-
skeiðinu.
Námskeiðið er einkum miðað
við fólk eldra en 16 ára, sem hef-
ur fatlast af einhveijum orsökum.
Dæmi um slíkt eru mænusköddun,
vöðva- og miðtaugakerfissjúk-
dómar, liðagigt, klofínn hryggur,
helftarlömum, útlimamissir, fólk
með MS-sjúkdóminn og fleira. Auk
hreyfihamlaðra eru aðrir ættingj-
ar, makar og vinir einnig boðnir
velkomnir á námskeiðið.
Námskeiðið er haldið á vegum
Sjálfsbjargar, landssambands fatl-
aðra, í húsi Styrktarfélags lam-
aðra og fatlaðra, í Reykjadal,
Mosfellsbæ. Námskeiðsgjald er
5.200 kr. og er fæði, gisting og
námskeiðsgögn innifalin. Ferða-
kostnaður er greiddur fyrir fólk
af landsbyggðinni.
Tilkynnið þátttöku fyrir mánu-
daginn 5. apríl til Lilju Þorgeirs-
dóttur á skrifstofutíma.
(Fréttatilkynning)
.................
Tónleikar í
Logalandi
Tónleikar verða haldnir í
Logalandi í Reykholtadal í
kvöld á vegum Tónlistarfélags
Borgarfjarðar.
Bergþór Pálsson, óperusöngv-
ari, syngur við undirleik Jónasar
Ingimundarsonar. Flutt verða verk
eftir innlenda og erlenda höfunda.
Tónleikamir heíjast klukkan
21.00.
Fundur um aðskota-
efni í matvælum
Útibú íslands-
banka í FG
NEMENDUR í verslunarfræði í
i Fjölbrautaskólanum í
Garðabæ mun opna útibú í sam-
vinnu við Islandsbanka miðviku-
daginn 17. mars kl. 11.30. Úti-
búið verður opið á miðvikudög-
um og föstudögum út aprílmán-
uð. Fjölbrautaskólinn er stað-
settur við Lyngás 7-9.
Gunnar Sæmundsson bóndi í Hrútatungu
Kvíði því að ekki verði
endumviun í bændastétt
GUNNAR Sæmundsson,
I bóndi I Hrútatungu í V-Húna-
J vatnssýslu og fulltrúi á Bún-
aðarþingi, segir að án þess
| verið sé með mikinn barlóm
þá sé samdrátturinn í búvöru-
framleiðslunni býsna alvar-
I legt mál, sem enn sé ekki að
fullu komið í ljós þar sem
bændum hafi ekki fækkað
mjög mikið enn sem komið
er, og samdrátturinn ekki að
öllu leyti kominn fram í tekj-
um manna. „Menn hafa ekki
að annarri atvinnu að hverfa,
þannig að við stöndum
frammi fyrir minnkandi tekj-
um, en fólkið er áfram í sveit-
unum. Það sem ég kvíði, og
kannski er einna alvarlegast,
er að endurnýjun í bænda-
stétt eigi sér ekki stað. Meðal-
. aldur bænda er nokkuð hár
* og þannig mun fækka veru-
lega í stéttinni,“ segir hann.
■ Gunnar sagðist gera sér grein
" fyrir því að það muni einhveijar
jarðir og jafnvel heilar byggðir fara
| í eyði á næstunni, en það væri þó
" nokkuð mikið sagt, eins og t.d.
kæmi fram í nýlegri skýrslu
Ryggðastofnunar um byggðaáætl-
un næstu ára, að jafnvel heilar sýsl-
Gunnar Sæmundsson í Hrúta-
tungu.
ur verði ekki með á kortinu.
„Það er einnig annað sem blasir
við okkur og það er að við erum
að fara inn í nýtt umhverfi hvað
varðar innflutning. Þá er það stóra
spurningin fyrir okkur bændur
hvort okkur verður skapað rekstrar-
umhverfí sem jafnast á við það sem
bændur erlendis hafa og eru að
keppa við okkur,“ sagði Gunnar.
Hann sagðist telja að stjómvöld
gerðu sér ekki grein fyrir því hvert
stefndi varðandi breytingarnar í ís-
lenskum landbúnaði, eða þá að þau
vilji ekki taka tillit til þess.
„Ég held að ennþá geri ráðamenn
almennt sér ekki grein fyrir hvað
frumframleiðslan í landbúnaði
skapar mörgum atvinnu. Þama
þurfum við auðvitað að standa sam-
an, fólkið í landinu sem er að vinna
úr þessari vöru og við að veija okk-
ar hag í harðnandi samkeppni við
innflutning, og eins þurfum við að
skapa hér góða ímynd á þeirri vöm
sem við emm að framleiða.“
Gunnar sagði brýna þörf á ákveð-
inni uppstokkun í félagskerfi
bænda, en hann óttaðist að bændur
væru í vaxandi mæli að fara sitt í
hvora áttina, og þetta kæmi einna
helst fram í harðnandi samkeppni
innbyrðis í kjötgreinunum.
„Ég var að vona að á þessu Bún-
aðarþingi yrði gerð sú breyting að
inn á Búnaðarþing kæmu fulltrúar
frá Stéttarsambandi bænda, en það
var ekki gengið frá því máli núna.
Ég tel óhjákvæmilegt að það eigi
sér stað breytingar á félagskerfinu,
og ég hefði viljað sjá ákveðnar
breytingar á Búnaðarþingi, en kerf-
ið er hins vegar nokkuð þungt í
vöfum,“ sagði hann.
IJD n&RRÓK
LÖGREGLUJNIIMAR í REYKJAVÍK:
12. -15. mars 1990
Umferðarátak lögreglunnar á
Suðurnesjum og á höfuðborgar-
svæðinu beindist sérstaklega að
því að hafa upp á ölvuðum öku-
mönnum um helgina. Á meðal
þeirra ökumanna, sem lögreglan
hafði afskipti af, em á þriðja
tug grunaðir um að hafa verið
undir áhrifum áfengis. Auk
þeirra vom 178 ökumenn ýmist
kærðir eða áminntir fyrir ýmis
umferðarlagabrot í Reykjavík.
Sex reyndust vera ökuréttinda-
lausir í akstri.
Ölvað fólk nýtti sér óvenju-
gott veður á föstudagsnótt og
var mikið á ferli. Margir dmkku
ótæpilega og mátti glögglega
sjá það á fótaburðinum, þ.e.
þeirra sem enn gátu staðið í
fæturnar. Næturvaktin var
annasömj stöðugt annríki alla
nóttina. I dagbókina eru skráð
yfír 100 verkefni, aðallega ölv-
unartengd. Fátt óvenjulegt kom
upp á og ber dagbókin með sér
hefðbundna flóm af misgjörðum
borgaranna.
Snemma á laugardagskvöld
kom ölvaður maður inn á veit-
ingahús í miðborginni. Sá hafði
uppi hótanir við starfsmann og
veifaði hnífi, sem hann hafði
haft með sér. Að því búnu hafði
maðurinn sig á brott. Vitað var
hver maður þessi er og var hann
handtekinn á öðm veitingahúsi
síðar um kvöldið. í framhaldi
af því fékk hann gistingu í
fangageymslu lögreglunnar.
Aðfaranótt sunnudags var
bifreið mæld á 112 km hraða á
Sæbraut við Kringlumýrarbraut
þar sem leyfður hámarkshraði
er 60 km/klst. Ökumaðurinn var
færður á lögreglustöðina og
sviptur ökuréttindum. Skömmu
síðar var bifreið í Ártúnsbrekku
mæld á 109 km hraða. Ökumað-
ur þeirrar bifreiðar var einnig
sviptur ökuréttindum. Alls voru
38 ökumenn kærðir fyrir að aka
of hratt um helgina.
Á sunnudagskvöld stöðvuðu
lögreglumenn bifreið í miðborg-
inni. Hún var eftirlýst í tengsl-
um við innbrot í hljómtækja-
vöruverslun kvöldið áður.
Skömmu síðar var piltur hand-
tekinn og viðurkenndi hann inn-
brotið.
Um kvöldið hafði einn góð-
kunningja lögreglunnar brugðið
sér úr bifreið sinni við hús eitt
og skyldi vélina eftir í gangi. í
því átti annar góðkunningja lög-
reglunnar leið framhjá. Sá
stóðst ekki freistinguna þegar
hann sá mannlausa bifreiðina í
gangi, enda virtist hún beinlínis
vera þarna í hans þágu. Hann
tók sér því bessaleyfí, settist
undir stýri og ók spölkorn aftur
á bak. Þá vildi ekki betur til en
bifreiðin lenti á mannlausri bif-
reið þar fyrir aftan. Ökumaður-
inn gafst þá upp og hljóp á brott.
Umráðamaður bifreiðarinnar,
sem sá undir iljarnar á söku-
dólginum, hafði samband við
lögregluna. Lögreglumenn, sem
sendir voru á vettvang, lögðu
lykkju á leið sína og handtóku
sökudólginn þar skammt frá.
Þegar þeir komu loks á staðinn
hafði umráðamaður bifreiðar-
innar ekki annað fram að færa
en kvartanir um það hversu
lengi lögreglumennimir hefðu
verið á staðinn eftir að hann
tilkynnti atburðinn. Þeir væru
ekki svona lengi á staðinn þegar
hann væri að gera eitthvað af
sér.
Lögreglan var nokkrum sinn-
um kölluð í heimahús þar sem
unglingar stóðu fyrir sam-
kvæmum. Yfírleitt voru það
nágrannar, sem kvörtuðu síðla
nætur. Fullorðnir voru víðs
fjarri í öllum tilvikum.
Síðdegis á sunnudag var til-
kynnt um mannlausan gúmmí-
bát með mótor á reki rétt norð-
an Geirsnefs á Elliðavogi. All-
margar tilkynningar bárust um
bátinn, en sem betur fer hringdi
eigandinn og kvaðst hafá misst
hann frá sér. Hann myndi fylgj-
ast með hvar hann bæri að landi.
Lítið var um innbrot og þjófn-
aði um helgina. Fólk var dug-
legt við að tilkynna það sem því
fannst grunsamlegt. Þannig
tókst að handtaka tvo innbrots-
þjófa, en þrír aðrir, sem tilkynnt
var um að væru að skríða inn
um glugga íbúða, gátu gert
grein fyrir ferðum sínum. Þeir
voru allir húsráðendur á við-
komandi stöðum, en höfðu notað
þá aðferð að skríða inn um
glugga heima hjá sér eftir að
hafa lokast úti.
—efþú spilar til að vinna!
10. ieikvika -13. mars 1993
Nr. Leikur: Röóm:
1. Coventry - Arsenal - - 2
2. Everton - Nott Forest 1 - -
3. Leeds - Man. City 1 - -
4. Middlesb. - Liverpool - - 2
5. Norwich - Oidhjtm 1 - -
6. Q.P.R. - Wimbledon - - 2
7. SouthampL - Ipswich 1 - -
8. Bristol R. - Woives - X -
9. Cambridge - Portsm. - - 2
10. MUhraU - Derby 1 - -
11. Notts C.- West Ham 1 - -
12. Swindon - Newcastle 1 - -
13. Tranmere Leicester 2
Heildarvinningsupphæðin:
131 milljónir króna
13 réttir: 432.170 | kr.
12 réttir: (_ 10.600 | kr.
llréttir: 950 kr.
10 réttir: 280 kr.
[
10. leikvUu -14. man 1993
Nr. Leikur:________________Röóin:
1. Ancona - Parma - X -
2. Brcscia - Juventus 1 - -
3. CagUari - Sarapdoria - - 2
4. Fiorentina - Pescara 1 - -
5. Genoa - Foggia - X -
6. Inter-Roma - X -
7. Lazio - AC Milan - X -
8. Napoli - Udlnese 1 - -
9. Torino - Aíalanta - X -
10. Lecce - Cosenza - X -
11. Modena - Pisa - X -
12. Piacenza - Reggiana - X -
13. Verona - Cremonese 1 - -
Heildarviiuiingsupphæðin:
18,0 milljónir króna |
13 réttir: 962.240 kr.
12 réttir: (_ 18.930 | kr.
11 réttir: 1.440 kr.f
lOréttir: 410 kr.