Morgunblaðið - 16.03.1993, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.03.1993, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 62.tbl. 81.árg. ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins Afleiðingar fulltrúaþings Rússlands Boða festu af hálfu Jeltsíns Samgöngur tefjast Reuter FANNFERGI sem fylgdi óveðri í Bandarikjunum setti samgöngur úr skorðum. Myndin var tekin í New York þar sem gangandi vegfarendur urðu að yfirstíga hverja hindrunina af annarri. Moskvu. Reuter. ÞESS er nú beðið með eftirvæntingu á hvern hátt Borís Jeltsín Rúss- landsforseti bregst við lyktum fuiltrúaþings Rússlans. Talsmaður for- setans, Vjatsjeslav Kostíkov, sagði í gær að viðbrögðin yrðu jafnákveð- in og í valdaráninu árið 1991. Konstantín Zlobín blaðafulltrúi þingsins vísaði í gær á bug gagnrýni Jeltsíns þess efnis að fulltrúaþingið vildi endurreisa kommúnisma í Rússlandi. Fulltrúaþingið lauk störfum á laugardag og aflýsti þá m.a. þjóðar- atkvæðagreiðslu um stjórnskipan landsins. Jeltsín hyggst ótrauður beita sér fyrir slíkum kosningum en fyrst hann fékk ekki stuðning full- trúaþingsins virðist sem þar verði um nokkurs konar skoðanakönnun að ræða sem ekki hafi lagagildi. Fulltrúaþingið stóð í fjóra daga og hafnaði það öllum tillögum forset- ans og áskildi sér rétt til að setja forsetann af bryti hann gegn stjórn- arskránni. Rúslan Khasbúlatov þing- forseti sleit þinghaldinu á laugardag með þeim orðum að þingmenn skyldu fara til síns heima og vinna að því að öllum ákvörðunum þingsins yrði framfylgt. Mæltist hann til þess að ráð og héraðsþing héldu aukafundi til að ræða niðurstöður fulltrúaþings- ins. Jeltsín og hans menn hafa ráðið ráðum sínum um helgina. Fyrstu við- brögð úr þeim herbúðum komu svo í gærmorgun með yfirlýsingu Vjatsj- eslavs Kostíkovs, biaðafulltrúa for- setans. Þar er fulltrúaþingið sakað um stjórnarskrárbrot og afturhvarf til kommúnisma. „Lokaorð þingfor- setans, R.I. Khasbúlatovs, jafngilda í raun hvatningu til ráðanna um að taka sér miðstjórnarvald og stað- bundin völd.“ „Oveður aldarinnar,“ sagði yfirmaður bandarísku veðurstofunnar 114 láta lífið í fárviðri frá Kúbu til Kanada Boston. Frá Karli Blöndal, fréttaritara Morgunblaðsins. TALIÐ er að 114 manns hafi látið lífið frá Kúbu til Kanada um helg- ina í einhveiju mesta óveðri, sem riðið hefur yfir hér vestanhafs um langan aldur. „Þetta var óveður aldarinnar," sagði Joe Friday, yfir- maður bandarísku veðurstofunnar. Bandarikin urðu verst úti í storm- inum, sem fylgdi víða mikil snjókoma, og hefur Bill Clinton forseti heitið hinum verst stöddu opinberri aðstoð. Vindhraðinn náði rúm- lega 100 mílum á klukkustund í verstu hryðjunum og hæstu skaflar mældust fimm metrar. Engin leið er að meta Ijónið að svo stöddu, en víst er að það nemur milljónum dollara. Veðrið var að mestu gengið yfir í gær, en víða fylgdi mikill kuldi í kjölfar þess. í gær var ekki vitað hvar 56 ungmenni í Norður-Karólínu voru niðurkomin og átti að bjarga hundrað táningum og leiðbeinend- um, sem voru tepptir í sæluhúsum og tjöidum í fjöllum í Tennessee. Flutningaskip sökk í miklum sjó- gangi í gærmorgun undan ströndum Nova Scotia í Kanada með þeim afieiðingum að einn drukknaði. 32 skipveija er enn leitað. Flórída verst úti Flórída varð verst úti í óveðrinu og var manntjón þar meira en þegar fellibylurinn Andrew reið yfir í ág- úst. Þá létu 16 manns lífið, en nú er talið að 31 hafi látist í Flórída um helgina. Neyðarástandi var lýst yfir í Flórída þegar á laugardag. Ekki bætti kuldinn úr skák fyrir Flórídabúa. í Orlando mældist hitinn aðeins um frostmark á sunnudag. Óveðrið myndaðist á fimmtudag og föstudag yfir Mexíkóflóa og á laugardag náði það yfir alla austur- strönd Bandaríkjanna ásamt Kúbu fyrir sunnan og Kanada fyrir norð- an. Fjórir létust í Kanada og að minnsta kosti þrír á Kúbu. í Alabama snjóaði meira á einum degi en nokkurn tíma áður á heilum vetri. Vissu ráðamenn þar ekki hvernig þeir áttu að bregðast við því að víðast hvar var engin snjó- moksturstæki að finna. Það gæti orðið bið á því að snjórinn bráðni í Alabama því frost fór niður í 20 gráður. Viðbúnaður var betri eftir því sem norðar dró. í New York-borg var fólki þó ráðlagt að nota almennings- samgöngur og fara ekki á bílum sín- um til vinnu vegna hálku. í Boston voru margir skólar lokaðir, en götur voru auðar. Skaflar á gangstéttum báru hins vegar dugnaði þeirra, sem ruddu götur, vitni. Þetta er mannskæðasta vetrar- veður í Bandaríkjunum frá árinu 1966 þegar 165 manns létu lífið. Rafmagnslaust varð hjá þremur milljónum manna og þúsundir urðu að láta fyrirberast í neyðarskýlum, sem yfirvöld opnuðu fyrir fórn- arlömb flóða og vinda. Dauðsföll margskonar Dauðsföll bar að með ýmsum hætti. í Alabama fraus maður í hel á meðan hann beið eftir strætis- vagni og annar varð úti í skafli fyr- ir utan skemmtistað í Suður-Karól- ínu. Margir létu lífið í umferðarslys- um og í Georgíu og Flórída varð fólk undir tijám, sem vindurinn reif upp með rótum. Nokkur dauðsföll voru rakin til eldsvoða á heimilum þar sem kveikt hafði verið á kertum vegna rafmagnsleysis. Nokkrir fengu hjartaáfall er þeir voru að moka snjó. Nokkuð kvað að því að menn dóu úr hjartaslagi vegna þess að háir skaflar komu í veg fyrir að hjálp bærist í tæka tíð. Snjókörl- um rænt í Flórída Boston. Frá Karli Blöndal, fréttarit- ara Morgunbladsins. STÓRHRÍÐINNI á austur- strönd Bandaríkjanna um helgina var misjafnlega tek- ið. Flestum þótti nóg um, en börn á suðlægari slóðum fengu sjaldséð tækifæri til að leika sér í snjó og búa til snjókarla. Börn í Pensacola í norður- hluta Flórída fá hins vegar ekki að fylgjast með snjókörl- unum sínum bráðna því að þrír menn á pallbíl óku þar um í ránshug. Fjarlægðu þeir snjó- karla úr görðum fólks og sögðu sjónarvottar að þeir hefðu haft að minnsta kosti tylft snjó- karla á palli sínum. Lögregla ráðlagði fólki að greiða ekki lausnargjald fyrir snjókarlana: „Þeir eru sennilega allir bráðn- aðir.“ FAO vill aflakvóta og veiði- leyfi vegna ofveiði á úthöfum Róm. Reuter. MATVÆLA- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) birti í gær skýrslu stofnunarinnar þar sem sagði að vegná ofveiði á úthöfunum væru margir fiskistofnar í útrýmingarhættu, þar á meðal þorskur, ýsa, flyðra, rækja, Atlantshafslax og vissar túnfisk- tegundir. „Vegna ofveiði eru ýmsir stofn- ar á mörkum þess að geta end- urnýjað sig sjálfir," sagði í skýrslu FAO. Þar segir að heildarfískafli hafi aukist um þriðjung á níunda áratugnum og numið 86 milljónum tonna árið 1989. „Margar fisktegundir eru of- veiddar og í alvarlegri hættu. Þarf betri veiðistjórnun að koma til,“ segir ennfremur og eru framan- greindar fisktegundir sérstaklega nefndar í því sambandi. Lagt er til að á alþjóðavettvangi verði tak- mörkun fiskveiða íhuguð. „Frjáls aðgangur að miðum getur haft mjög skaðlegar afleið- ingar, gengið verður enn frekar á stofnana og hætta er á átökum þeirra sem nýta auðlindina," segir í skýrslunni sem unnin var á veg- um fiskveiðinefndar FAO. Þar er lagt til að veiðistjórn sem byggir á veiðileyfum og aflakvótum verði tekin upp í því skyni að koma í veg fyrir ofveiði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.