Morgunblaðið - 07.04.1993, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.04.1993, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. APRIL 1993 Ný reglugerð Sinubrenn- urbannaðar UMHVERFISRÁÐUNEYTIÐ gef- ur í dag út reglugerð um sinu- brennur og meðferð elds á víða- vangi. Samkvæmt reglugerðinni er innleitt almennt bann við því að brenna sinu. Ábúendur lögbýla geta þó fengið undanþágu hjá sýslumanni óski þeir þess og þá aðeins til 1. maí. Jón Gunnar Ottósson deildarstjóri í umhverfisráðuneytinu sagði í sam- tali við Morgunblaðið að nýja reglu- gerðin væri byggð á lögum frá því í fyrravor. Hann sagði að með lögun- um og reglugerðinni yrði sú megin- breyting að sinubrennur væru nú óheimilar nema á bújörðum og þá aðeins samkvæmt leyfi sýslumanns. Sagði hann að reglumar væru settar í samráði við Búnaðarfélag íslands og væri góð samstaða um þær. Reglugerðin verður í dag send tii allra sýslumanna landsins. Að sögn Jóns Gunnars verður lögð áhersla á að kynna hana sem víðast á næstu dögum en vegna þess hvað langt er liðið á vorið verður erfitt að beita henni af fullri hörku. Ströng skilyrði I reglugerðinni er tekið fram að aldrei megi brenna sinu þar sem almannahætta stafar af eða af getur hlotist tjón á náttúruminjum, fugla- lífí, mosa, lyng- eða tijágróðri og mannvirkjum. Eftir 1. maí er hvar- vetna óheimilt að brenna sinu. Leyfí bænda til sinubruna eru háð ströngum skilyrðum. Með umsókn til sýslumanns þurfa þeir til dæmis að senda vottorð héraðsráðunautar, náttúruverndamefndar eða gróður- verndarnefndar. Með mál út af brotum á reglugerð- inni skal farið að hætti opinberra mála og brotin varða sektum. Breiðþota leig’ð til Benidorm FERÐASKRIFSTOFAN Sam- vinnuferðir-Landsýn tók á leigu breiðþotu af gerðinni Boeing 767 til að flytja far- þega til Benidorm á Spáni nú í morgun. Að sögn Helga Jó- hannssonar framkvæmda- sijóra Samvinnuferða er þetta í fyrsta skipti sem islensk ferðaskrifstofa hefur ieigt flugvél af þessari tegund. Vegna mikillar aðsóknar í páskaferð Samvinnuferða til Benidorm tók ferðaskrifstofan flugvélina, sem tekur 280 manns í sæti, á leigu frá breska flugfé- laginu Brittania. Helgi Jóhannsson sagði, að mikil aðsókn væri í utanlands- ferðir um páskana. Þannig kæmi 230 sæta flugvél frá írlandi í dag til að sækja farþega til Dublin. Morgunblaðið/Sverrir Olíumengunarvörn við höfnina TVEIR 70 tonna kranar sáu um að koma fyrir olíuskilju þvert á aðalstofnræsið við Reykjavíkurhöfn í gær. Að sögn Sigurðar Skarphéðinssonar gatnamálastjóra er það gert til þess að olía sem hugsanlega fer til spillis á hafnarsvæðinu renni ekki um ræsin og út í höfnina. Rennslishraðinn í skiljunni er það lítill að ef olía eða fita er í vatninu situr hún eftir á yfirborðinu. Henni er síðan fleytt eða dælt ofan af og eytt. Póstur og sími verði hlutafélag NEFND sem samgönguráðherra skipaði til að gera tillögur um réttarstöðu Pósts og síma með það fyrir augum að breyta stofn- uninni í hlutafélag hefur lokið störfum. Leggur nefndin til að eitt hlutafélag verði stofnað um reksturinn og verði öll hlutabréf- in í eigu ríkisins nema Alþingi ákveði að selja hluta þeirra. Halldór Blöndal samgönguráð- herra skipaði í ágúst 1991 nefnd til að fara yfir rekstrarform Pósts og síma. Lárus Jónsson fyrrverandi al- þingismaður var formaður nefnd- arinnar og auk hans var hún skipuð æðstu embættismönnum Pósts og síma og embættismönnum úr sam- gönguráðuneytinu. Nefndin skilaði áliti fyrir helgina. Ráðherra lagði nefndarálitið fyrir ríkisstjómarfund í gær og hugðist síðar um daginn kynna hana fyrir starfsmönnum Pósts og síma og fjöl- miðlum. Hann sagði að á fundinum hefðu einstakir ráðherrar beðið sig um að bíða með að kynna skýrsluna þar til eftir næsta ríkisstjórnarfund og hefði hann orðið við því. Því voru kynningarfundir ráðherrans í gær afboðaðir. Stjórn sjúkrastofnana Reykjavíkur og sj álfseignar stofnunar St. Jósefsspítala Stefnt að sameimngu Borgar- spítala og Landakots 1997 STJÓRN sjúkrastofnana Reykjavíkurborgar og yfirstjórn sjálfseignarstofnunar St. Jósefsspítala hafa skrifað undir yfir- lýsingu þess efnis að þær taki nú þegar upp nána samvinnu um rekstur Borgarspítala og St. Jósefsspítala og stefni að sameiningu þessara stofnana við árslok 1996. Viljayfirlýsingin gerir m.a. ráð fyrir að öldrunarþjónusta verði aukin á Landa- koti. Þar verði lögð áhersla á þjónustu við biðlista- og ferli- sjúklinga og stefnt verði að flutningi barnadeildar á Borgar- spítala sem fyrst. Logi Guðbrandsson, framkvæmdastjóri spít- alans, segir að talið sé að deildin verði betur sett á Borgarspít- ala, nærri slysadeild, en hún verði ekki flutt á þessu ári. Árni Sigfússon, formaður stjórn- ar sjúkrastofnana Reykjavíkur- borgar, las upp úr viljayfirlýsing: unni á blaðamannafundi í gær. í henni segir m.a. að tilgangur sam- vinnunnar sé að nýta sem best fjár- magn til spítalanna og efla faglegt starf þeirra. Þá segir að spítalarnir skuli, til ársloka 1996, reknir sem tvær sjálfstæðar stofnanir í því formi sem þeir séu nú án þess þó að það hindri tilfærslu ákveðinna starfsþátta eða deilda. „Telja stjórnirnar það ekki bijóta í bága við skipulagsskrá Sjálfseignar- stofnunar St. Jósefsspítala þótt til- flutningur verkefna verði á milli spítalanna á meðan rekstrarform St. Jósefsspítala er óbreytt og hann rekinn í samræmi við kröfur heil- brigðisyfirvalda," segir í viljayfir- lýsingunni. í henni segir að notkun B-álmu Borgarspítala til bráðaþjónustu krefjist þess að öldrunarþjónusta verði aukin á Lándakoti. „Þá skal stefnt sem fyrst að flutningi Barna- deildar á Borgarspítala. Á Landa- koti verði lögð áhersla á þjónustu við biðlista- og ferlisjúklinga. Með sameiginlegum stjórnunarverkefn- um skal leita leiða til enn frekari hagkvæmni í faglegum rekstri. Augljós hagræðing ætti að vera samrekstur ýmissa þjónustudeilda og skal að honum stefnt sem fyrst.“ Sparnaðarráðstafanir endurskoðaðar Þegar spurst var fyrir um spam- að vegna samvinnu spítalanna sagði Árni Sigfússon að stefnt hefði verið að því fyrir árið 1992 að spara 200 milljónir á árinu en með flutningi bráðavakta frá Landakoti í Borgar- spítala hefði náðst varanlegur spamaður upp á 273 milljónir eða 6%. Þannig hefði náðst betri árang- ur en stefnt hefði verið að og nauð- synlegt væri að setjast niður að nýju til að setja annað markmið. Logi Guðbrandsson sagði að nán- in samvinna spítalanna hefði verið kynnt fyrir læknaráði, deildarstjór- um og hjúkrunarstjórum en al- mennur kynningarfundur yrði hald- inn með stárfsfólki á næstunni. Hann sagði að viljayfirlýsingin hefði verið kynnt fyrir St. Jósefssystmm og hefðu þær ekki gert athuga- semdir við hana. Þess má geta að til ársloka 1996 starfar samstarfsnefnd skipuð for- mönnum stjórna, framkvæmda- stjómm, formönnum læknaráða og hjúkrunarforstjórum. Skal hún vinna að þessu samstarfi og sam- runaferli og gera um það tillögur til hvorrar spítalastjórnar fyrir sig. Hrafn óskar eftir úttekt „ÉG mun senda Ríkisendur- skoðun bréf í dag og óska eftir því að gerð verði úttekt á mínum fjárhagsviðskiptum við Sjónvarpið meðan ég hef starfað þar,“ sagði Hrafn Gunnlaugsson í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. Hrafn sagðist hafa ráðfært sig við föður sinn, Gunnlaug Þórðarson hrl, um það hvemig hann gæti brugðist við þeim áburði sem á hann hefði verið borinn í tengslum um óeðlileg viðskipti við Sjónvarpið. Sjá fréttir á bls. 22 Dagskrá Ríkissjónvarpsins um páskana í dag Kjörbörnum þrælað út ? Við málflutning í forræðismáli Miu Farrow og Woddy Allen hefur því verið haldið fram að Farrow þræli kjörbörnum þeirra út 25 öldrunardeild á Akureyri Öldrunardeild á Fjórðungssjúkrahús- inu þykir gefa góða raun 30 Dó úr alnæmi 10 ára____________ Rétt eftir að Jacob Svárding fæddist varð hann fyrir blóðmissi og var gefið blóð. Fjórum árum síðar kom í Ijós á blóðið var HlV-smitað i2 Leiðari Húsbréf og vaxtastig 26 Úr verinu ► Mikil verðlækkun á þorski ytra í marz - Offramleiðsla á skreið í Noregi - Meira af blokk í vinnslu vestan hafs - Gífurleg velta í fiskeldi í heiminum Myndasögur ► Drátthagi blýanturinn - Páskaungi - Páskaliátíðin - Umsjónarmenn - Pennavinir - Randaspil - Páskaeggjamotta - Myndir ungra listamanna - Mótmæli Krisljáns breyttu dagskránni RÍKISSJÓNVARPIÐ hefur fallið frá auglýstum áformum um að sýna viðtalsþátt við Kristján Jóhannsson á skírdag og verður hann syndur á annan dag paska. Sigmundur Örn Arngrímsson, starfandi dagskrárstjóri Sjónvarpsins, sagði að í ljós hefði komið að Krislján Jóhannsson hefði talið sig hafa fengið vilyrði frá Sjónvarpinu um að viðtalið yrði ekki sýnt fyrr en að loknum sýningum Stöðvar 2 á tveimur þáttum sem stöðin hefur unnið að um feril söngvarans. Sjónvarpið hafi fallist á tilmæli Kristjáns um að færa viðtalsþáttinn til í dagskránni. Að sögn Sigmundar Arnar fór Valgerður Matthíasdóttir til New York til að taka við Kristján viðtal fyrir Litróf. Síðar hafí verið ákveð- ið að gera úr þessu efni sérstakan þátt og sýna á skírdag. Eftir þá ákvörðun hafí komið í ljós að Kristján hafí talið sig hafa fengið vilyrði frá Sjónvarpinu um að þetta efni yrði ekki sýnt fyrr en lokið væri sýningum á þætti þeim sem Stöð 2 hefur undanfarið unnið að um feril Kristjáns og verður sýndur í tvennu lagi, á föstudaginn langa og páskadag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.