Morgunblaðið - 07.04.1993, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 07.04.1993, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. APRIL 1993 31 Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra Treystum byggðina og fækkum sveitarfélögum Jóhanna Sigurðardóttir fé- lagsmálaráðherra mælti í gær fyrir frumvarpi til laga um breyt- ingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 8/1986. Frumvarpið er byggt á tillögum svonefndar sveitafé- laganefndar. Félagsmálaráð- herra hefði persónulega viljað ganga lengra í sameiningu sveit- arfélaga en frumvarpið gerði ráð fyrir en hún sætti sig við þá nið- urstöðu sem góð og breið sam- staða hefði tekist um. Umdæmdanefndir Frumvarp það sem félagsmála- ráðherra mælti fyrir í gær byggir í öllum aðalatriðum á tillögum svo- nefndrar sveitarfélaganefndar og fulltrúaráðs Sambands íslenskra sveitarfélaga. Meginmarkmið frum- varpsins er að láta á það reyna í sem flestum sveitarfélögum hver afstaða almennings sé til samein- ingar sveitarfélaga. Frumvarpið gerir ráð fyrir að bæta við bráð- birgðaákvæðum við sveitarstjórnar- lögin og verði byggt á þeim í stað 10. kafla laganna sem varðar að- draganda, undirbúning og fram- kvæmd sameiningar sveitarfélaga. í frumvarpinu er m.a. gert ráð fyrir að stjórnir landshlutasamtak- anna skulu fyrir 1. júní á þessu ári kjósa fímm til tíu manna nefndir. Þessar umdæmisnefndir skulu gera tilllögur að nýrri skiptingu hvers landshluta í sveitarfélög í samráði við viðkomandi sveitarstjórnir. Til- lögur umdæmisnefnda skulu vera tilbúnar fyrir 15. september næst- komandi. Tveimur umræðum í sveitarstjórnum um tillögurnar skal lokið innan sex vikna frá framlagn- ingu. Almennri atkvæðagreiðslu skal lokið innan tíu vikna frá sama tíma. Hljóti tillaga umdæmanefndar meirihluta greiddra atkvæða í öllum þeim sveitarfélögum sem málið varðar skulu sveitarstjórnir þær sem hlut eiga að máli taka ákvarð- anir um fjárhagsmálefni sveitarfé- laganna, íjölda fulltrúa í nýrri sveit- arstjórn, nafn hins sameinaða sveit- arfélags o.s.frv. Hljóti tillaga umdæmanefndar ekki samþykki í öllum hlutaðeig- andi sveitarfélögum en þó meiri- hluta greiddra atkvæða í a.m.k. 2A þeirra er viðkomandi sveitarstjóm- um heimilt að ákveða sameiningu þeirra sveitarfélaga sem samþykkt hafa sameininguna enda hamli ekki landfræðilegar ástæður. Ef ekki verður af sameingu sveit- arfélaga samkvæmt fyrrgreindu er gert ráð fyrir að umdæmanefnd sé heimilt að leggja fram nýja tillögu. Skal það gert fyrir 15. janúar. Gilda sömu tímareglur og ákvæði um ákvarðanir í framhaldi af almennri atkvæðagreiðslu. I frumvarpinu er einnig kveðið á um að félagsmálaráðherra skuli fyrir 1. júní 1993 skipa sérstaka samráðsnefnd um sameiningarmál sveitarfélaga. Starfstími nefndar- innar verði til ársloka 1994. Sam- ráðsnefnd þessi skal skipuð fulltrú- um tilnefndum af þingflokkum á Alþingi, Byggðastofnun, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og félags- málaráðuneyti. Nefndin skal m.a. vera umdæmanefndum til ráðu- neytis. Hreppar sjálfs- þurftarbúskapar í sinni framsöguræðu var Jó- hönnu Sigurðardóttur ekki nein launung á þeirri yfírlýstu skoðun sinni að: „Núverandi skipting lands- ins í sveitarfélög er orðin ein helsta hindrun þess að unnt sé að gera þær skipulagsbreytingar sem óhjá- kvæmilegar eru ef við eigum að geta tryggt hagsæld íbúannna óháð því hvar þeir kjósa að búa á land- inu. Nauðsynleg framþróun at- vinnulífs og aukin verðmætasköpun til að standa undir velferðarþjón- ustunni og til að tryggja fólkinu örugga atvinnu kallar á umbætur í sveitarstjórnarmálum.“ Félagsmálaráðherra viðurkenndi það sem sögulega sinnaðir hafa bent á í umræðum um breytta skip- an sveitarfélaga að núverandi skipt- ing landsins í sveitarfélög, hreppa, á sér hátt í 1000 ára sögu og hefur að mestu staðið óbreytt frá þjóð- veldisöld. En Jóhanna Sigurðardótt- ir sagði: „Rætur sveitarfélagaskip- anarinnar liggja því í samfélagi sjálfsþurftarbúskaparins þar sem hver og einn var sjálfum sér nógur að mestu leyti. Meginviðfangsefni þeirra var að sinna framfærslu þeirra sem ættingjar gátu ekki séð um. Og ekki má gleyma fjallskilun- um eða eftirlitinu með fjármörkum. Ástæða er til að ítreka að sveitarfé- lagaskipanin sem við búum við í landinu í dag er sprottin af þessu bændasamfélagi sem er löngu liðið undir lok.“ Framsögumaður dró upp aðra mynd af þeim þjóðfélagsveruleika sem hún sagði blasa við nú: „Efna- hagslíf nútímans krefst hreyfanlegs vinnuafls sem ekki má vera njörvað niður á þröngum atvinnusvæðum. Hagræðing í fískveiðum og vinnslu krefst sérhæfíngar fyrirtækjanna og samstarfs sem spannar mun stærri svæði.“ Hún benti á að at- vinnureksturinn í landinu þarfnað- ist oft mikilla fjárfestinga sem væru mörgum smærri sveitarfélögum of- viða. „Fjárfestingar í undirstöðuat- vinnugreinum' mega ekki lúta ein- angruðum hagsmunum tiltekinnar byggðar án tillits til heildarhags- muna á stærri svæðum. Þá er hætt við offjárfestingu, ofnýtingu auð- linda og óarðbærum rekstri sem kippir grundvellinum undan byggð- inni.“ Félagsmálaráðherrasagði: „„Það er því óhjákvæmilegt að stækka sveitarfélögin til þess að treysta byggð í landinu. Með því skapast skilyrði fyrir markvissari fjárfestingu, aukinni sérhæfíngu fyrirtækja, hagstæðari rekstrarað- MMHCI stæðum, öflugri vinnumarkaði og sterkari fjárhagslegum bakhjarli byggðanna." Undir lok sinnar ræðu lagði fé- lagsmálaráðherra að þessu máli yrði vísað til félagsmálanefndar. Hún fagnaði þeirri góðu og breiðu samstöðu sem nú hefði loks tekist um sameiningu sveitarfélaganna. Hún hvatti til þess að þetta fengi afgreiðslu á þessu vorþingi. Vildi lengra Umræður í þinginu virtust um flest staðfesta orð félagsmálaráð- herra um að nokkur samstaða hefði myndast um að leiða þetta mál til lykta. Lýstu þingmenn fylgi við meginstefnu frumvarpsins um fækkun sveitarfélaga og atkvæða- greiðslur þar um. Þingmenn bentu þó á að skipan sveitarfélaga væri mörgum tilfínningamál og til þess yrðu menn, stjórnmálamenn sem aðrir, að taka tillit. Jón Kristjánsson (F-Al) þótti félagsmálaráðherra hafa í sinni framsöguræðu hafa lagt alltof mikið upp úr efnahags- legum ávinningi af sameiningu sveitarfélaga. Jóni taldist svo til að yfirbygging og stjómunarkostnað- ur og rekstur margra minni sveitar- félaga næmi nú ekki þeim stórupp- hæðum. Hann varaði og félags- málaráðherra við því að slíkur mál- Jóhanna Sigurðardóttir flutningur væri vísasta leiðin til að draga þetta mál inn í pólitískar dægurumræður og þrætubók. I umræðunni mátti félagsmála- ráðherra sætta gagnrýni fyrir að hafa unnið að sameiningu sveitarfé- laga með nokkru ofurkappi og full- miklu stjórnlyndi. Jóhanna Sigurð- ardóttir félagsmálaráðherra vísaði þessu á bug en viðurkenndi að hún hefði gjarnan viljað ganga lengra en þetta frumvarp gerði ráð fyrir. En hún sætti sig við þessa lausn sem svo góð samstaða virtist hafa tekist um. Fyrstu umræðu um frumvarp félagsmálaráðherra lauk um kl. 22 í gærkvöldi en atkvæðagreiðslu var frestað. Var þá tekið til umræðu næsta mál, frumvarp félagsmála- ráðherra til laga um heimild til að hefja undirbúning að stofnun reynslusveitarfélaga. Stuttar þingfréttir Sérstök greiðslumörk sauðfjárbænda Halldór Blöndal landbúnaðar- ráðherra hefur lagt fram frumvarp um breytingu á búvörulögum. Frumvarpið gerir ráð fyrir að Landbúnaðarráðherra verði heimilt að semja við Stéttarsamband bænda um önnur fráviksmörk við greiðslumark sauðfjárafurða en lögin kveða á um. Markmið þeirra viðræðna sem landbúnaðarráðherra fer fram á lagaheimild verði veitt fyrir eru: Að sauðfjárbændur á skilgreindum svæðum, þar sem talin er þörf á sérstökum gróðurverndar- eða landgræðsluaðgerðum, verði leyst- ir undan þeirri kvöð að framleiða a.m.k. 80% upp í greiðslumark sitt til að eiga rétt á fullum beingreiðsl- um. Landbúnaðarráðherra segir að hér sé eingöngu verið að tala um valkost til handa bændum, ekki sé um það að ræða að þeir verði þvingaðir til fjárfækkunar. Þeir sem hins vegar vildu taka slíku tilboði yrðu jafnframt að undir- gangast kvaðir um nokkurt vinnu- framlag til gróðurverndar eða upp- græðslu. Einnig telur landbúnaðarráð- herra skynsamlegt að metið verði að gefa rosknum bændum eldri en 67 ára og öryrkjum rýmri hendur hvað varðar neðri mörk framleiðslu heldur en 80% eins og nú er. Landsdómur í gær fór fram kosning átta manna og jafnmargra varamanna til sex ára, frá 18. mars 1993 til jafnlengdar 1999 í Landsdóm. Aðalmenn eru: Ólína Ragnarsdótt- ir, húsfrú, Grindavík. Helgi ívars- son, bóndi, Hólum. Halla Aða- steinsdóttir, bóndi, Kolsholti. Jón Hjartarson, skólameistari, Sauðár- króki. Margrét Kristinsdóttir, húsfrú, Akureyri. Adda Bára Sigf- úsdóttir, veðurfræðingur, Reykja- vík. Lára V. Júlíusdóttir, fram- kvæmdastjóri, Reykjavík. Salome B. Guðmundsdóttir, Gilsárteigi, Eiðaþinghá. Varamenn voru kosnir: Hörður Pálsson, bakarameistari, Akranesi. Björg Einarsdóttir, rithöfundur, Reykjavík. Már Pétursson, héraðs- dómari, Hafnarfirði. Kristjana Þor- fínnsdóttir, húsfreyja, Vestmanna- eyjum. Svava Jakobsdóttir, rithöf- undur, Reykjavík. Ari Hallgríms- son, verkamaður, Vopnafirði. Drífa Kristjánsdóttir, Torfastöðum, Biskupstungum. Samkvæmd lögum um Lands- dóm frá 1963 fer Landsdómur með og dæmir mál þau er Alþingi ákveður að höfða gegn ráðherrum útaf embættisrekstri þeirra. Landsdómur hefur aldrei verið kallaður saman. Morgunblaðið/Árni Sœbcrg Kaldar kveðjur ÞVÍ hefur löngum verði haldið fram að íslendingar séu afbrags gestgjafar og taki þjóðum betur á móti þeim útlendingum sem vilja setjast að í landinu. Af skilaboðunum á þessum bíl má-hins vegar fremur ráða að um þjóðsögu sé að ræða og a.m.k. suma skorti eitt- hvað af þeirri gagnkvæmu virðingu sem svo nauðsynleg er í sam- skiptum fólks. Samskiptaörðugleikar hjá Stóra leikhúsinu í Gautaborg Hörð gagnrýni á Garðar Cortes frá starfsfólki Gautaborg. Frá Sverri Gudmundssyni, fréttaritara Morgunblaðsins DEILUR hafa risið upp milli starfsfólks Stóra leikhússins i Gautaborg og Garðars Cortes, sem er listrænn stjórnandi óperunnar. Það kemur fram í grein í Göteborgs-Posten, stærsta blaði Vestur-Svíþjóðar. Blað- ið heldur því fram að stór hluti starfsmanna óperunnar krefjist mik- illa breytinga, sem blaðið túlkar sem vantraust á Garðar Cortes. Ástæða óánægjunnar er, að sögn blaðsins, sú að mörgum starfsmönn- um óperunnar fínnst skipulagning verkefna í hinu nýja óperuhúsi ganga hægt. Að sögn eins starfs- manns er Garðar Cortes ekki nógu ákveðinn í að fá það fjármagn sem til þarf. Þeirri gagnrýni vísar Garðar á bug: „Við höfum ekki fengið þá pen- inga sem okkur var lofað í upphafi, vegna hins slæma efnahagsástands sem ríkir,“ segir hann við Morgun- blaðið. „Af þeirri ástæðu er erfitt að gera áætlanir," segir hann. Erfiðir þröskuldar Áætlað er að flytja í nýja óperu- húsið haustið 1994, en að sögn Garð- ars geta fjárframlög sett þar strik í reikninginn. Ákvörðunin um að byggja nýtt óperuhús í Gautaborg vafðist lengi fyrir ráðamönnum. Ákvörðun um staðsetningu hússins og kostnaður við byggingu og rekst- ur þess voru erfiðir þröskuldar sem leystist með samkomulagi um að reksturinn yrði ekki dýrari en í gamla húsinu. Ýmis teikn eru nú á lofti varðandi þetta atriði, en ekki er auðvelt að fá ríkisvaldið til að hlaupa undir bagga með leikhúsinu við þær aðstæður sem nú ríkir í Svíþjóð. Göteborgs-Posten skýrir einnig frá samstarfsörðugleikum sem, að sögn blaðsins, stafa af stjórnunar- stíl Garðars Cortes. Blaðið hefur eftir einum fulltrúa starfsmanna að Garðar hafí ekkert samstarf við neinn í Stóra leikhúsinu. Starfs- mennirnir krefjast að þar verði breyting á. Það túlkar Göteborgs- Posten sem ósk um að hann verði látinn hætta.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.