Morgunblaðið - 07.04.1993, Page 7
YDDA F47.27/SIA
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1993
7
Morgunblabib
íKringlunni 1
Morgunblabib á nýjum stab
fyrsta dag eftir páska!
I tæp 80 ár hefur Morgunblaðið flutt landsmönnum fréttir og fróðleik af innlendum og
erlendum vettvangi. Þann 13. apríl næstkomandi, fyrsta virkan dag eftir páska, verða
tímamót í sögu blaðsins þegar það flytur í nýtt húsnæði í Kringlunni 1.
Á nýja staðnum í Kringlunni mun öll almenn afgreiðsla og móttaka fara fram á fyrstu hæð
hússins (gengið inn frá Kringlunni). Þar geta þeir sem eiga erindi við Morgunblaðið, jafnt
blaðberar sem aörir viðskiptavinir, gengið greiðlega að öllum upplýsingum.
Nýr stabur - óbreytt símanúmer
Viðskiptavinir okkar þurfa aðeins að leggja nýja heimilisfangið á minnið,
því sömu aðalnúmer verða áfram í fullu gildi.
Ritstjórn - 691100 • Auglýsingar - 691111 • Áskrift - 691122
Allt kapp verður lagt á að áskrifendur verði ekki fyrir óþægindum og fái blaðið sitt skilvíslega
á meðan við erum að koma okkur fyrir í framtíðarheimkynnum Morgunblaðsins.
-kjarni málsins!