Morgunblaðið - 07.04.1993, Side 52

Morgunblaðið - 07.04.1993, Side 52
ÓSKAfcLÍFEYRIR ab Jtínn vali! ------------m Simi 91-692500 / MORGUNBLAÐIÐ, AÐALSTRÆTI 6, 101 REYKJAVÍK StMI 691100, StMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1993 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR. Morgunblaðið/Sverrir Stórtækur í fuglafóðrun MARGIR borgarbúar gefa öndunum og svönunum á Tjöminni brauðmola. Sumir eru þó stórtækari en aðrir, eins og þessi maður sem í gær mætti niður að Tjörn með stóran plastpoka fullan af brauði. Hann hefur áreiðan- lega séð mörgum fuglinum fyrir matarskammti dagsins. Kauptilboð frá Chile í loðnuskipið Hilmi NK171 Alls fást 650 milljónir fyrir skip og kvótann EIGENDUM loðnuskipsins Hilmis NK 171 hefur borizt kauptilboð í skipið frá Chile. Boðnar eru 260 milljónir króna í skipið, en á því hvíla 480 milljónir, þar af um 400 í Fiskveiðasjóði. Hilmir er með ein- hvern stærsta Ioðnukvóta íslenzkra skipa, tæp 5% af heildinni, en sú hlutdeild er talin seljanleg á allt að 280 miHjónir króna. Rækju- og grálúðukvóti skipsins er metinn á um 63 milljónir. Þá á útgerðin rétt á 50 milljóna króna greiðslu úr úreldingasjóði, (74 milljónum verði tillögur nefndar um mótun sjávarútvegsstefnu að lögum) þar sem skipið verður selt úr landi. Söluverð skipsins er þannig 260 miHjónir, verðmæti kvóta er 343 milljónir króna og úreldingarstyrkur 50, eða samtals 653 milljónir króna. Að greiddum áhvílandi skuldum standa því eftir 173 milljónir króna að frátöldu lausafé. Eigendur skipsins eru Hilmir hf., Jóhann Antoníusson og Síldarvinnsl- an í Neskaupstað, sem keypti helm- ing hlutfjár í Hilmi hf. í vetur. Því standa Síldarvinnslunni tveir kostir ,til boða, að ganga inn í kauptilboðið eða selja skipið með Jóhanni. Kvótinn seldur Jóhann Antoníusson staðfesti í samtali við Morgunblaðið að kauptil- boð að utan hefði borizt í Hilmi NK. Það væri verið að skoða ýmsa hluti. Jóhann vildi ekki tjá sig um upphæð- ir, en sagði að þetta væri reiknings- dæmi og gengi meðal annars upp á því, að selja kvóta skipsins innan lands. Finnbogi Jónsson, framkvæmda- stjóri Síldarvinnslunnar og stjórnar- formaður Hilmis hf., staðfestir að tilboð hafi borizt í skipið. „Verið er að skoða leiðir til að hagræða í rekstri útgerðarinnar. Það er ekki auðvelt að selja skip úr landi og þegar upp koma slíkir möguleikar er eðlilegt að menn skoði þá vel áður en þeim er hafnað. Við höldum eftir kvóta skipsins. Annað loðnu- skip Síldarvinnslunnar hefur ekki verið gert út á loðnu á síðustu árum og gæti komið inn í loðnuveiðina. Þó ér trúlegt, að ef af þessari sölu verður, að hluti af loðnukvótanum verði seldur,“ segir Finnbogi. Ríkisstjóm gefur ekki svör fyrr en á lokastigum samninga Aðíld BSRE að kjara- sátt skilyrði aðgerða RÍKISSTJÓRNIN gerir það að skilyrði fyrir aðgerðum í ríkisfjármál- um að aðilar vinnumarkaðarins nái samkomulagi um kjarasátt, sem nái einnig til opinberra starfsmanna. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins ætlar stjórnin ekki að svara af eða á um atvinnuskapandi aðgerðir, lækkun virðisaukaskatts og fleira fyrr en Bandalag starfs- manna ríkis og bæja er tilbúið að gerast aðili að kjarasáttinni, en þá hyggst ríkisvaldið koma inn í samningagerðina á lokastigi. ASÍ og VSÍ ræddust við í allan gærdag í húsakynnum ríkissátta- semjara. Undir miðnættið í gær hafði þó enn ekki náðst samkomulag um deilu verkalýðsfélaga við ís- lenzka álfélagið, en Alþýðusamband- ið setur sem skilyrði fyrir heildar- samningum að hún leysist. Þokast lítið í ÍSAL-deilu Fundað var í hópum. í einum hópnum var fjallað um ÍSAL-deiluna og þokaðist þar lítið áfram. Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ, sagði að ekki kæmi til greina að gangast inn á neitt sem veikti samkeppnisstöðu álfélagsins á erfið- um tímum í greininni. Flest verka- lýðsfélög starfsmanna álversins í Straumsvík greiddu atkvæði um verkfallsboðun í gær, en atkvæði verða ekki talin fyrr en í kvöld. Enn er óljóst hvað ríkisstjórnin er tilbúin að gera til að greiða fyrir samningum. Svör við kröfum um tveggja milljarða króna framlag til atvinnuskapandi framkvæmda, tímasetningu á lækkun virðisauka- skatts á matvæli og endurgjalds- lausa úthlutun veiðiheimilda Hag- ræðingarsjóðs höfðu enn ekki verið gefin í gærkvöldi. Innan stjórnar- flokkanna eru miklar áhyggjur af stöðu ríkissjóðs, jafnvel þótt aðgerð- ir vegna samninga kæmu ekki til, og vilja stjórnarliðar tryggja að opin- berir starfsmenn gangi að sömu kjarasátt og launþegar á almennum vinnumarkaði. RLR rannsakar fjárdrátt í útibúi íslandsbanka við Gullinbrú í Grafarvogi Starfsmaður dró sér 10-11 miHjónir króna STARFSMAÐUR útibús íslandsbanka við Gullinbrú í Grafarvogi hefur orðið uppvís að fjárdrætti, að fjárupphæð sem nemur 10 til 11 milijónum króna. Samkvæmt upplýsingum Kristjáns Oddssonar, framkvæmdastjóra Is- landsbanka, hætti starfsmaðurinn, sem gegndi starfi þjónustustjóra, störfum þann 1. mars síðastliðinn. Starfsmaðurinn var kærður til Rannsóknarlögreglu ríkisins í gær. Að sögn Kristjáns hefur hann þegar gengist við broti sínu. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins á málið sér nokkuð langan aðdraganda, en það var ekki fyrr en eftir að maðurinn hætti störfum, eða í lok marsmánaðar, sem á daginn kom að hann hafði dregið sér fé af bankabókum ákveðins fjölda viðskiptavina bankans. Kristján Oddsson sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær að síðdegis í gær hefði starfsmaður- inn verið kærður til RLR. „Það er ekki vitað hversu lengi þessi fjárdráttur hefur átt sér stað, en í lok marsmánaðar vöknuðu grunsemdir um að ekki væri allt með felldu í útibúinu, þar sem starfsmaðurinn var þjónustustjóri," sagði Krist- ján.-„Þá fórum við að kanna málið, og í ljós kom að hann hefur dregið sér fé út úr bókum nokk- urra viðskiptamanna. Það lítur út fyrir að hér sé um 10 til 11 milljóna króna fjárdrátt að ræða.“ Viðskiptamenn verða ekki fyrir Ijóni „Bankinn mun bæta viðskiptavinunum fjár- dráttinn að fullu, og er reyndar þegar búinn að því, þannig að viðskiptamenn íslandsbanka sem lentu í þessu, verða ekki fyrir neinu tjóni,“ sagði Kristján. Kristján sagði að starfsmaðurinn hefði hafið störf hjá Iðnaðarbankanum árið 1966, þannig að hann hefði samtals starfað í 27 ár í banka - fyrst í Iðnaðarbanka, síðan í íslandsbanka. Að- spurður hvort ljóst væri að hér væri um fyrsta brot starfsmannsins að ræða, sagði Kristján: „Það er best að fullyrða ekkert um það, þótt við teljum að svo sé. Nú verður þetta allt saman skoðað og farið ofan í kjölinn á því hversu lengi þessi fjár- dráttur hefur átt sér stað.“ Kristján sagði að nú eftir að málið væri komið til Rannsóknarlögreglu ríkisins, væri ekki meira um það að segja að svo stöddu. Kristján Ashkenazy Kristján og Ashkenazy á Listahátið KRISTJÁN Jóhannsson óperu- söngvari hefur þekkst boð um að koma fram sem sérstakur heiðurs- gestur á Listahátíð í júní á næsta ári. Vladimir Ashkenazy hefur einnig þekkst boð um að halda einleikstónleika á hátíðinni. Valgarður Egilsson formaður framkvæmdanefndar sagði að ekki hefði verið ákveðin dagsetning á ein- söngstónleika Kristjáns, en sennilega yrðu þeir haldnir undir lok Listahá- tíðar, nálægt þjóðhátíðardeginum, 17. júní.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.