Morgunblaðið - 11.05.1993, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 1993
19
Síðastí Móhíkaninn
eftirÞorgrím Starra
Björgvinsson
Maður er nefndur Friðrik Sig-
urðsson. Hann kom hér í þessa sveit
fyrir ári síðan og sýnir ekki á sér
fararsnið, enda í vellaunaðri stöðu.
Manninn þarf ekki að kynna,
hann hefur séð um það sjálfur.
Þegar orðinn þjóðkunnur, dögum
oftar í fjölmiðlum af öllum sortum,
enda forstjóri Kísiliðjunnar hf. við
Mývatn.
Hinn mikli fræðari
Friðrik þessi er bráðgjör um
margt. Vart voru gestanætur hans
liðnar þegar hann taldi sig vita allt
um menn og málefni þessarar sveit-
ar í nútíð og fortíð, og það betur
en þeir, sem átt höfðu hér heima
um langa ævi. Hygg ég þó að hann
hafi verið bláókunnugur þessu öllu,
er hann bar hér að garði. Og ekki
lét hann dragast úr hömlu að miðla
þjóðinni af þessum fróðleik sínum,
og er enn að.
Öll þessi fræði hans miða að því
að sýna þjóðinni fram á ágæti Kísil-
iðjunnar, svo hún megi lengi lifa.
Þar kennir margra grasa og furðu-
legustu kenningar og fullyrðingar
fram settar. Þær hafa verið marg-
hraktar af þeim, sem betur vita, svo
þar hef ég fáu við að bæta nema
því, að allt þetta bull hefur verið
vegið og léttvægt fundið af þeim,
sem þekkingu hafa og vald í þessum
rhálum, og vík ég að því síðar.
Samhliða því að vera fjölfróður
er hann fjölhæfur til flestra verka.
Hann er líffræðingur að mennt, en
einhverra hluta vegna hefur hann
ekki fengið starf út á þau fræði.
Líffræðingar eru þekktir að því að
vara við þeim athöfnum, sem valdið
„Líffræðingar eru
þekktir að því að vara
við þeim athöfnum, sem
valdið geta spjöllum á
náttúrunni. Það kallast
náttúruvernd.“
geta spjöllum á náttúrunni. Það
kallast náttúruvernd. En Friðrik er
ekki síður fær um að sitja hinum
megin við borðið. Nú starfar hann
að því að veija fyrirtæki fyrir nátt-
úruverndinni, fyrirtæki, sem er
mjög tortryggilegt í hennar augum.
Að ieggja út af tilvitnunum
Ein af skýringum Friðriks á hinni
miklu hnignun silungsveiði í Mý-
vatni hin síðari ár er ofveiði, sem
stafaði af peningagræðgi veiði-
bænda. Því til sönnunar vitnar hann
til ummæla undirritaðs í viðtali við
Þjóðviljann 1959.
Ég tel mér skylt, þótt seint sé,
að gefa hér nokkra skýringu á, og
að henni fenginni væri Friðrik
sæmst að draga þessa ofveiðikenn-
ingu til baka.
Mjög góð veiði hafði verið vetur
og vor 1959, mokveiði á nútíma-
mælikvarða. Ný veiðarfæri komin
til sögunnar, lagnet úr gerviefnum,
sem voru svo veiðin, að stór hætta
var á, að væru engar hömlur á
veiðisókn, yrði afleiðingin ofveiði.
Starf veiðifélagsins var á þessum
tíma í algjörri lægð, engar hömlur,
veiðisóknin skefjalaus. Slíkt leyfði
ég mér að kalla peningagræðgi.
Viðtalið er tekið seint í júní eða
fyrst í júlí. Þá var lægð í veiðinni,
sem oft vildi verða á þeim árstíma
og á sínar skýringar. Veiði mun svo
hafa orðið mjög góð, þegar lengra
lei á sumarið, og kjöráta fyrir silung
fyllti vatnið, enda var heildarársafli
1959 47.500 silungar. Slík tala
hefur ekki sést á blaði síðan Kísiliðj-
an fór að láta að sér kveða. Ótti
minn við ofveiði, ef fram héldi sem
horfði með óhefta veiðisókn, var
eðlilegur og orð í tíma töluð. Ég
og aðrir sama sinnis sluppum með
skrekkinn, enda var hér brátt tekið
í taumana. Veiðifélagið endurreist
og ströng stjórn höfð á veiðisókn-
inni. Það er álit fiskifræðings okk-
ar, að ofveiði hafi ekki verið stund-
uð í Mývatni.
Skömmu eftir þetta hófst hér ný
nýting á botni Mývatns, Kísiliðjan.
Hún var frá upphafi tortryggð, og
margir óttuðust skaðleg áhrif af
hennar völdum á lífríkið. Því hefði
mátt ætla, að farið yrði með gát.
Forráðamenn verksmiðjunnar ráku
hana þvert á móti ætíð með fullum
afköstum án þess að líta til hægri
né vinstri. Engar hömlur á þeirri
veiðisókn.
Peningagræðgi, eða hvað?
Heittrúarsöfnuðurinn
Andstöðuna gegn Kísiliðjunni
skilgreinir Friðrik svo, að þar sé
um fámennan hóp heittrúarmanna
úr röðum bænda við Mývatn og
Laxá að ræða. Undirrót þeirra sé
rótgróinn sveitarrígur, sem nærist
á ö/und og illgirni.
Ég kann ágætlega við mig í þeim
félagsskap. Þar er til dæmis að
finna alla líffræðinga landsins utan
einn, sem er forfallaður, eins og
áður er um getið. Þá má ekki
gleyma tveimur ráðherrum ríkis-
stjórnarinnar, þeim sem þessi mál
heyra undir, svo og miklum fjöida
manna, lærðra sem leikra, utan
lands og innan, er láta sig náttúru-
vernd varða.
Þorgrímur Starri Björgvinsson
Dómurinn genginn í málinu
Hvað er að frétta af athöfnum
þessara skaðræðismanna?
Það, að áðurnefndir ráðherrar
hafa gefið út námaleyfi til Kísiliðj-
unnar, sem felur í sér, að Mývatn
sunnan Teigasunds er endanlega
lokað fyrir kísilgúrnámi, þrábeiðni
Friðriks og kumpána að fá að sót-
ast þar um í botninum, enda lægju
þar fimmtíu milljarðar innan seil-
ingar, var neitað.
Ekki nóg með það, fýrirtækinu
var aðeins leyft að hirða innan-
sleikjur í Ytri flóa, verka upp eftir
sig. Þeim var leyft að dútla við
þetta í 17 ár, en auðvitað guðvel-
komið að hætta fyrr, ef þeim leidd-
ist. Svo mættu þeir bæta sér í
munni með því að pota undir hraun-
ið, sem fýllti nyrsta hluta Ytri flóa
fyrir nær tvöhundruð og sjötíu
árum. En árið 2010 skyldi verk-
smiðjan vera búin að pakka saman
og afmá sem mest af því, sem
minnti á veru hennar hér. Þetta
gerðu ráðherrarnir allt í nafni nátt-
úruverndar.
Köttur úti í mýri setti upp á sig
stýri, úti er ævintýri.
Karlmennska forstjórans
Einhveijum hefði nú brugðið við
slík málalok í sporum Friðriks. En
gulleitarmenn eru ætíð viðbúnir
vonbrigðum.
Við skulum ekki víla hót
varla léttir trega
Það er þó alltaf búningsbót
að bera sig karlmannlega.
Þannig hljóðar gamall húsgang-
ur, og Friðrik er þessa minnugur.
Hann er hinn borubrattasti og þyk-
ist jafnvel fara með sigur af hólmi.
Trygg framtíð segir hann í niður-
lagi greinar sinnar í Degi. Þessi
mannalæti hans vekja hlátur hjá
þeim, er líta raunhæft á málið. En
þrátt fyrir þau skringilegheit á hann
langt í land að verða eftirsóttur
skemmtikraftur. Hann mun hins
vegar skapa sér þann heiðurssess
að verða síðasti Móhíkaninn í hópi
æruverðugra Kísiliðjuforstjóra.
Höfundur er bóndi i Garði í
Mývatnssveit.
Fjárstoð hf.
Endurskipulagning fjármála, skuidbreytingar,
samningaumleitanir við kröfuhafa, aðstoð á greiðslu
stöðvunartíma, nauðasamningar, lögfræðiráðgjöf,
______ Borgartúni 18, sími 629091
Atlasklúbbsins
I Parlsar á aðeins
29.900 kr!
3 daga/nátta ferð, 5 stjörnu hótel og skoðunarferð!
I maí skartar París sínu fegursta og þá gefur Atlas-
klúbburinn félögum sínum færi á að sækja heim þessa
háborg menningar, lista og tísku á hreint seiðmögnuðu
verði - aðeins 29.900 kr.
Gist verður á Hotel Concorde Lafayette, sem er
5 stjörnu hótel skammt frá Sigurboganum og Champs-
Élysées. Fararstjóri verður Laufey Helgadóttir list-
fræðingur og stýrir hún m.a. skoðunarferð um borgina.
Innifalið í verði: Gisting í tvíbýli, akstur til ogfrá flugvelli erlendis, farar-
stjóm, skoðunarferð, skattar og gjöld.
' ■ ■■ '■:__
V ' ^
.
■gl x,
/ \ "
:
______
skynsemio r*ður ferðinn//
Þessar ferðaskrifstofur taka við pöntunum: Alís, s. 91-65 22 66 • Ferðabær, s. 91-62 30 20 • Ferðamiðstöð Austurlands, s. 91-67 85 45 • Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar, s. 91-68 32 22
Feröaskrifstofa íslands, s. 91-62 33 00 • Ferðaskrifstofa Reykjavíkur, s. 91-67 74 44 • Ferðaskrifstofa stúdenta, s. 91-61 56 56 • Ratvís, s. 91-6415 22 • Samvinnuferðlr - Landsýn, s. 91-691010
Söluskrifstofur Flugleiða, s. 91-690100 • Úrval - Útsýn, s. 91- 699 300