Morgunblaðið - 11.05.1993, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 1993
33
Kartöflubændur hugsa sér til hreyfings
Morgunblaðið/Benjamín
Kartöflubóndinn
SVEINN Bjarnason á Brúarlandi er byrjaður að setja niður kartöflur.
Garðarnir þurrir
og óþarfi að bíða
Ytri-Tjörnum, Eyjafjarðarsveit.
SVEINN Bjarnason, kartöflu-
bóndi á Brúarlandi, er með
þeim fyrstu til að setja niður
kartöflur á þessu vori, en hann
ræktar kartöflur á einum og
hálfum hektara lands.
„Eg sá að það var ekki eftir neinu
að bíða því garðarnir eru orðnir
mjög þurrir, enda hefur verið mikill
sunnanblástur að undanförnu,"
sagði Sveinn og bætti við að útsæð-
ið væri ekki mikið spírað, en aðeins
byrjað að augna, þess vegna er um
að gera að koma þessu sem fyrst í
moldina og vona að hlýindin haldist
áfram.
Vorhlýindi
Agæt vorhlýindi hafa verið að
undanförnu og má búast við að
bændur fari almennt að setja niður
næstu daga. Nokkrir eru þegar farn-
ir að bera á tilbúinn áburð og sauð-
burður er kominn á fullt skrið.
Ráðstefna um atvinnuleysi og aðgerðir sveitarfélaga
Ataksverkefni þykja
hafa gefið góða raun
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Reynir Hugason ræddi um áhrif atvinnuleysis og möguleika til úr-
bóta á ráðstefnu um áhrif atvinnuleysis og sértækar aðgerðir sveitar-
félaga sem haldin var á Akureyri í gær.
„ÞAÐ er ekki bara dýrt að
láta okkur ganga atvinnu-
laus, heldur er það líka stór-
hættulegt," sagði Asgeir
Magnússon framkvæmda-
stjóri Iðnþróunarfélags Eyja-
fjarðar á ráðstefnu um áhrif
atvinnuleysis og sértækar
aðgerðir sveitarfélaga, en
ummæli Ásgeirs voru tilvitn-
un í atvinnulausan mann á
Akureyri.
Á ráðstefnunni var fjallað um
ýmsar hliðar atvinnuleysis og áhrif
þess og þá var einnig greint frá
störfum atvinnumálanefndar Sam-
bands íslenskra samvinnufélaga,
um umsóknir sveitarfélaga um
styrki frá Atvinnuleysistrygginga-
sjóði til sérstakara verkefna og þá
greindu fulltrúar frá Hafnarfirði,
Akureyri og Húsavík frá reynslunni
af atvinnuátaksverkefnum, en hún
er í aðalatriðum mjög góð.
í máli Ásgeirs Magnússonar kom
fram að þegar um 300 manns voru
skráð atvinnulaus á síðasta ári hefði
skráin verið skoðuð og í ljós komið
að hluti fólksins var með skerta
starfsorku, hluti þess bjó við tíma-
bundið atvinnuleysi og í þriðja lagi
væri um að ræða fullfrískt fólk sem
tilbúið væri að taka hvaða starfi
sem byðist. Á síðustu mánuðum
hefðu á milli 400 og 500 manns
verið á atvinnuleysisskrá á Akur-
eyri og væri aðaliega um að ræða
fjölgun í síðasttalda hópnum.
Smáfyrirtæki
Ásgeir greindi einnig frá því að
námskeið hæfíst í dag, þriðjudag,
fyrir atvinnulaust fólk sem hug
hefði á að stofna til eigin atvinnu-
reksturs og væri þess vænst að í
kjölfarið yrðu stofnuð smáfyrirtæki
af margvíslegum toga.
Aðalfundur Félags rækju- og hörpudiskframleiðenda
Þátttaka banka í rekstrí
veldur óeðlilegri samkeppni
Kvótaverð ekki í tengslum við raunveruleikann, segir formaður félagsins
■ PEDROMYNDIR gáfu nú
nýlega barnadeild Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri 50
þúsund krónur, en féð verður sett
í gjafasjóð deildarinnar, en þang-
að renna m.a. áheit og söfnunarfé
af ýmsu tagi. Gjafasjóður er að
mestu nýttur til kaupa á leikföng-
um og er leikfangasafn deildar-
innar að mestu til komið vegna
gjafasjóðsins auk þess sem kven-
félagskonur hafa sinnt deildinni
af mikilli alúð.
BEIN þátttaka viðskiptabanka í félögum sem taka við rekstri
gjaldþrota rækjuverksmiðjum veldur félögum í Félagi rækju-
og hörpudiskframleiðenda áhyggjum og segir í ályktun sem
samþykkt var á aðalfundi þess á Akureyri á laugardag að þessi
hálfbankatryggði rekstur valdi óeðlilegri samkeppni í grein-
inni. Harður slagur er milli verksmiðja um hráefni og hafa þau
sjónarmið komið fram að þær verksmiðjur er bankar standa
að standi betur að vígi þegar kemur að því að bjóða í hráefnið.
Á aðalfundi Félags rækju- og
hörpudiskframleiðenda urðu tals-
verðar umræður um hugsanlegt
samstarf eða samruna við Samtök
fiskvinnslustöðva, en stjórn félags-
ins hefur átt í viðræðum við samtök-
in um þau mál.
Aukið vægi
Á fundinum var einnig vakin at-
hygli á auknu vægi rækjuvinnslu í
íslenskum sjávarútvegi. „Nú er svo
komið að eingöngu þorskur af okk-
ar nytjastofnum skilar meiri verð-
mætum til þjóðarbúsins en rækja.
í því ljósi skorar fundurinn á Haf-
rannsóknarstofnun og Rannsóknar-
stofnun fiskiðnaðarins að leggja
meiri áherslu en nú er gert á haf-,
veiðarfæra- og vinnslurannsóknir í
þágu rækjuveiða og rækjuvinnslu,“
segir í ályktun fundarins.
Þá tekur aðalfundurinn undir til-
lögur tvíhöfðanefndar um að heim-
ilt verða að skrá kvóta á fiskvinnslu-
stöðvar og telur að með því fáist
eðlilegra jafnvægi milli veiða og
vinnslu en verið hefur undanfarið.
Mesti aflinn
I máli Halldórs Jónssonar for-
manns félagsins kom fram að
rækjuaflinn á síðasta ári var sá
mesti frá upphafi rækjuveiða við
Island, en í fyrra voru veidd um
46.200 tonn og er það 20% aukning
frá árinu á undan. Á yfirstandandi
kvótaári má veiða 47.300 tonn af
rækju auk þess sem 6.200 tonn
voru flutt af síðasta kvótaári, eða
samtals 53.500 tonn. Sagði Halldór
að ef sá afli næðist yrði slegið met
í rækjuveiðum á íslandsmiðum.
Búið er að veiða 19.600 tonn af
úthafsrækju á fyrstu 8 mánuðum
kvótaársins, eða 42,5% af heildar-
kvótanum og sagði Halldór frekar
Rætt um vaktavinnu hjá Fiskvinnslu KEA í Hrísey
Gæti skapað 60 ný störf
VERÐI tekin upp vaktavinna í Fiskvinnslu KEA í Hrísey verða
um 60 ráðnir til starfa þar í sumar eða nánast jafnmargir og
starfa þar nú. Starfsfólkið samþykkti á fundi í gær með 27
atkvæðum gegn 21 að skoðað verði hvort fcaka eigi upp vakta-
vinnufyrirkomulag í frystihúsinu.
Ari Þorsteinsson, framkvæmda- að vinna hæfíst í frystihúsinu kl. 4
stjóri Fiskvinnslu KEA í Hrísey,
sagði að í framhaldi atkvæðagreiðsl-
unnar yrði kannað á hvem hátt best
yrði staðið að málum og samningur
um vaktavinnufyrirkomulag lagður
fyrir starfsfólkið síðar, en stefnt
væri að því að taka slíkt fyrirkomu-
iag upp síðustu viku maímánaðar.
Ari sagði að gert væri ráð fyrir
að morgni og unnið yrði á tveimur
átta tíma vöktum til kl. 20.30 að
kvöldi. Verði fyrirkomulagið sam-
þykkt gerði hann ráð fyrir að ráðnir
yrðu um 60 til starfa í frystihúsinu
í sumar, en miðað við óbreytt fyrir-
komulag yrðu um 25 ráðnir til sum-
arafleysinga.
Fjöldi fyrirspura
Fjölmargar fyrirspurnir hafa bor-
ist um sumarvinnu í frystihúsinu og
sagðist Ari ekki vera hræddur um
að fá ekki nóg af fólki til starfa. Þá
sagði hann að nægt hráefni ætti að
vera til vinnslunnar í sumar. í frysti-
húsinu hefur áhersla verið lögð á að
pakka fiski í neytendaumbúðir. „Við
höfum lokað á þessar fljótunnari
pakkningar, en einbeitum okkur að
því að pakka hráefninu þannig að
það skili okkur meiri verðmætum,"
sagði Ari.
litlar líkur á að heildarkvótinn
næðist þegar miðað væri við veiði
í fýrrasumar. „Er því ljóst að það
kvótaverð sem menn eru að greiða
í dag er ekki í neinum tengslum
við raunveruleikann. Verða rækju-
framleiðendur því að ná niður verði
leigukvóta nú þegar,“ sagði Hall-
dór.
■ FYRIRKOMULAGI á póst-
dreifíngu í Svarfaðardalshreppi
og Árskógshreppi var breytt 1.
maí sl. í tengslum við það var
ákveðið að taka þar í notkun nýtt
póstnúmer sem er 621 Dalvík.
Póstáritun íbúa í framangreindum
hreppum breytist því í samræmi
við þetta.
Því að leigja, ef hægt er að bæta 11.400 krónum
við mánaðargreiðsluna og eignast húsnæðið?
Skrifstofuhúsnæði
170 m
LEIGA KR: 66.000 Á MÁNUÐI eða
KAUP KR. 77.400 Á MÁNUÐI**
**Innifalið í upphæð: Fasteignagjald tólfti hluti og mánaðarleg af-
borgun og vextir af jafngreiðsluláni (annuitet), sem er til 13 ára
með 7,5% ársvöxtum. Leiga á mánuði á m2 er kr. 388 en sambæri-
legur kostnaður miðað við kaup er 455 kr. (17% viðbót við leigu).
Leiga og lán eru verðtryggð. Kaupverð á m2 er kr. 40.600.
Húsnæðið er nýlega innréttað og má því flytja beint inn
án nokkurra breytinga eða endurbóta.
♦ I-ýsing, vönduð niðurhengd ljós.
♦ Tengingar, rafmagns- og tölvulagnir í veggstokkum.
♦ Áfastir nokkrir lengdarmetrar af fráleggsborðum,
álrimlagardínur fyrir öllum gluggum.
♦ Bjart húsnæði, útsýni út fjörðinn, rúmgóð kaffistofa, steypt
skjalageymsla með hillum.
♦ Húsnæðið er á 2. hæð í Tryggvabraut 22, Akureyri.
Góð aðkeyrsla að sunnan og norðan og næg bílastæði.
Nánari upplýsingar veita Valtýr í síma 96-11780
og Gunnar í sírna 96-26600.