Morgunblaðið - 11.05.1993, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. MAI 1993
Er siðleysi löglegt?
éftir Stefán
Vagnsson
Mig langar í örfáum línum til að
gefa Reykvíkingum smá innsýn í
vinnubrögð þau sem virðast tíðkast
hjá Reykjavíkurborg, og ákveðnir
menn þar á bæ virðast komast upp
með, ár eftir ár.
Ég vil taka fram í byijun að þessi
skrif eiga ekkert skyit við pólitískar
árásir á sjálfstæðismenn í borgar-
stjóm, enda er ég og hef verið
flokksbundinn í Sjálfstæðisflokknum
í ein 14 ár, hversu lengi sem það
nú verður eftir þetta.
Hinn 1. desember 1991 birtist
auglýsing í Morgunblaðinu í nafni
Innkaupastofnunar Reykjavíkur, þar
sem er auglýst til sölu lóðin Bílds-
höfði 1, með þeim húsum sem á
henni standa, en í þeim húsum hefur
verið starfrækt slökkvistöð á vegum
Reykjavíkur.
I þessari auglýsingu er sagt að
NYOG 8C00
FULLKOMNARI
MERKIVÉL
fyrir fyrirtæki,
skrifstofur og heimili
Prentar allt a8 5 línur, 10 leturgerðir,
6 stærðir og strikamerki.
Prentar lárétt, lóðrétt og spegilprentun.j
Prentar Þ og Ð
Betra letur, betri borðar á
zhi
NÝBÝLAVEGI 28, 200 KÓPAVOGUR
SlMI: 44443 & 44666, FAX: 44102
Ný gerö bamabílstóla
* Fyrir böm frá fæðlngu
tll 5 ára aldurs.
* Þægilegar 5 punkta fest-
ingar með axlapúðum.
* Stillanlegur.
* Stólnum má snúa með
bakið fram (->9kg.) eða
aftur (9-18kg.).
* Má hafa frístandandi.
* Vasi á hlið, fyrir leikföng
eða annað.
* Auðvelt að taka áklæðið
t af og þvo það.
* Viðurkenndur.
* Verð kr. 10.998,-
Borgartúni 26
Síml: (91) 62 22 62
Mynds.:(91) 62 22 03
upplýsingar um verðmat og fleira
sé að fá hjá Innkaupastofnun, og
að tilboðum skuli skilað þangað fyr-
ir 10. desember 1991.
Ég undirritaður sá í þessu góðan
kost fyrir mitt fyrirtæki, bæði góð
staðsetning og nokkuð hentugt hús,
ásamt stækkunarmöguleikum
seinna meir.
Ég fór því og kynnti mér hvaða
upplýsingar Innkaupastofnun hefði
um þá eign sem þeir voru að aug-
lýsa. Það eina sem þar var að hafa,
var verðmat, það er Eignamiðlun í
Síðumúla hafði verið fengin til að
verðleggja það sem selja átti, og það
hljóðaði svo.
ig farið hefði, og fékk ég að vita
að aðeins einn aðili hafi verið með
hærra boð, en trúlega væri það til-
boð ómarktækt, vegna þess að í því
kæmi aðeins fram ein tala sem kaup-
verð og aðeins sagt að greiðslur
yrðu samkvæmt útboðsgögnum, sem
engin voru.
Þar sem ég sat þarna, hringdi
síminn, og í honum var sá sem átti
hæsta boð, en það var Bílasala Alla
Rúts og fékk hann uppgefið hvað
ég hafi boðið og hvernig ég ætiaði að
greiða.
Þarna hjá Innkaupastofnun töldu
menn sem sagt að tilboð Alla væri
ógilt, en mitt mjög ásættanlegt.
1. Aðalsalur 101 fm 60.000 kr. pr. fm = 6.060.000 kr.
2. Skrifstofubygging 89 fm 45.000 kr. pr. fm = 4.005.000 kr.
3. Kjallari 151,5 fm 30.000 kr. pr. fm = 4.545.000 kr.
4. Byggingarréttur 314 fm 6.000 kr. pr. fm = 1.884.000 kr.
Samtals 16.494.000 kr.
Ekkert annað, hvorki teikningar
eða afstöðumyndir voru til staðar,
og þess vegna fór ég til byggingar-
fulltrúa borgarskipulags og einnig í
Húsatryggingar, en alls staðar sama
svarið, þessi lóð og hús þau sem á
henni standa voru hvergi til á skrá.
Ég gerði tilboð í þessa eign, og
vegna þess að ég sá hversu mikils
virði væri fyrir mig að fá þarna
gott framtíðarhúsnæði og á góðum
stað ákvað ég að hafa tilboð mitt
það hátt að öruggt væri að ég fengi.
Tilboð mitt hljóðaði upp á
19.550.000 kr., Nítján milljónir,
fimm hundruð og fimmtíu þúsund
krónur.
Greiðsluform: kr.
Við samning 2.000.000
5. febrúar’92 1.000.000
5. mars ’92 1.000.000
5. maí’92 1.000.000
5. júlí ’92 1.000.000
5. desember’92 1.000.000
Við útgáfu afsala 1.000.000
Samtals 8.000.000
Eftirstöðvar á verðtryggðu
skuldabréfi til 12 ára, bundið vísi-
tölu með venjulegum bankavöxtum.
Hinn 10. desember eru tilboð opn-
uð, en tilboðsgjöfum ekki heimilt að
vera viðstaddir. Strax þá eftir há-
degi mætti ég til að fá að vita hvern-
Einingastœröir:
40, 50, 60, 80 og lOOcnu
ffitssfc
BÆJARHRAUNI 8. HAFNARFIRÐI, SlMI 651499
STUTTUR AFGRF.IÐSI.UTÍMI
GÓÐ GREIÐSLUKJÖR
Og þá hefst nú Hjörleifs þáttur
Kvaran. Þessi Hjörleifur er víst for-
stöðumaður lögfræðideildar borgar-
innar, og af einhveijum ástæðum
sem verulega væri gaman að fá svar
við, þurfti hann að sjá um þessa
sölu sjálfur, í stað þess að láta Inn-
kaupstofnun, þetta sérhæfða fyrir-
tæki borgarinnar á þessu sviði, gera
það. Ég ásamt fleirum er sannfærð-
ur um að ef svo hefði verið, hefði
sala þessi gengið snurðulaust til mín.
Það er skemmst frá því að segja
að ég var daglegur gestur hjá Hjör-
leifi, og greinilega honum mjög á
móti skapi að svo væri, því það leyndi
sér ekki að ég var að öllu leyti fyrir
í þyssu máli.
í heila viku var því borið við að
ekki næðist í Alla, og að hann léti
ekki heyra í sér. Og þá loksins
mætir hann við annan mann hjá
Hjörleifi, og sá maður hafði sjálfur
boðið í þessa eign í nafni fyrirtækis
sem hann var í forsvari fyrir. Maður
þessi heitir Svanur Þór Vilhjálmsson,
og er bróðir Vilhjálms Þ. Vilhjálms-
sonar, borgarfulltrúa, sem jafnframt
er formaður Skipulagsnefndar
Reykjavíkur.
Þegar svo seinna um daginn Hjör-
leifur tilkynnti mér í votta viðurvist
að hann hafi ákveðið að Alli skuli
fá lóðina, fóru að renna á mig tvær
grímur. Gat það verið að fjölskyldu-
tengsl hefðu eitthvað með þessa
ákvörðun að gera. Nei, nei, nei.
Ekki í þessari fögru borg. En bíðum
nú við. Þetta var ekki allt. Alli skyldi
Sambyggðar
trésmíðavélar
Hjólsagir,
bandsagir,
spónsagir,
Laugawegi29.
Simar 24320 — 24321 — 24322
fá að borga með tveimur íbúðum sem
kona hans átti. Hjörleifur kvað það
hið besta mál, borgin væri alltaf að
kaupa íbúðir. Sem sagt, tvær óséðar
íbúðir voru betri en peningarnir mín-
ir. Þarna fékk ég fullvissu um að
ekki væri allt með feildu, og lái mér
hver sem vill. Ég tilkynnti Hjörleifi
að ég mundi ekki sætta mig við
þessa niðurstöðu hans, og myndi
leita réttar míns hjá löglega kjörnum
fulltrúum borgarinnar.
Að sjálfsögðu talaði ég við þann
mann sem ég hafði alltaf haldið að
væri sanngjarn, sjálfan Markús Örn,
borgarstjóra. í örstuttu máli þá hef
ég komist að sömu niðurstöðu núna,
eins og Ingvi Hrfn lýsir Markúsi sem
útvarpsstjóra, að manninum sé lífs-
ins ómögulegt að taka sjálfstæðar
ákvarðanir.
Ég talaði við mjög marga borgar-
fulltrúa, bæði í meiri- og minnihluta,
og ekki vantaði skilninginn hjá
mörgum sjálfstæðismanninum og
margir af þeim fullyrtu, og gerðu
meira að segja enn daginn áður en
Brimborg var afhent nefnd eign, að
aldrei hafi staðið til að AIIi fengi
þetta.
Það voru margir sem Iögðu á sig
mikla vinnu við að hjálpa mér í þessu
máli, svo sem Siguijón Pétursson
og þó einkum Sigrún Magnúsdóttir
og svo seinna meir Ólína Þorvarðar-
dóttir og kann ég þeim bestu þakkir
fyrir. Sigrún, sem fulltrúi minnihlut-
ans, talaði máli mínu og náði að
hindra að það yrði afgreitt.
Hinn 10. febrúar fór ég síðan
aðra ferð á skipulagsdeild borgarinn-
ar til að athuga í annað sinn hvort
virkilega væri ekkert til um þessa
lóð, og viti menn. Þar fékk ég afhent-
ar afstöðumyndir og skjal þar sem
fram kemur að skipulagsnefnd hafi
samþykkt tillögu borgarskipulags.
Þar kemur fram að búið er að
stækka byggingarrétt á nefndri lóð,
úr 314 fm í hvorki meira né minna
en 1.820 fm. Og samkvæmt áður
nefndu mati Eignamiðlunar hækkar
verð á byggingarrétti úr 1.884.000
kr. og upp í 10.920.000 kr.
Það gæti verið fróðlegt fyrir mig
og hinn almenna borgara að vita
hvort formaður skipulagsnefndar
hefur nokkuð vitað um þessa sam-
þykkt og þá jafnframt hvers vegna
lét hann ekki aðra fulltrúa vita um
þessa breytingu.
Nei takk, þess í stað greiddi þessi
sami maður því atkvæði sitt hinn
16. febrúar að Alli Rúts, og bróðir
sinn sem samstarfsmaður að ein-
hverju leyti, fengi þessa eign, eins
og ekkert hefði breyst.
Fyrir þann borgarráðsfund hinn
16. febrúar, afhenti ég Sigrúnu þetta
bréf og þegar hún kynnti þessa
stækkun á byggingarréttinum kom
í ljós að enginn borgarfulltrúa vissi
um hana, nema ef vera skyldi for-
maður skipulagsnefndar, en fyrir
það verður hann að svara sjálfur.
A þessum fundi var einnig fellt á
jöfnu að ég fengi keypt, og það voru
þeir sömu sem sáu til þess.
Stefán Vagnsson
„Það er síðan kunnara
en frá þurfi að segja,
að hinn 1. apríl var
Brimborg afhent þessi
sama eign á hálfvirði.“
Þegar menn sáu hverslags klúður
sjálfstæðismenn voru búnir að koma
sér í kom borgarstjóri með þá tillögu
á borgarstjórnarfundi 20. febrúar
sl. að falla frá öllum tillögum, og
bjóða lóðina út aftur.
Síðan hef ég marg talað við borg-
arstjóra, og bæði falast eftir að fá
lóðina keypta, og eins að reka á
eftir því að hún sé boðin út aftur.
Hvað útboðið snertir var tímaskorti
borið við (það hlýtur að vera tíma-
frekt að auglýsa), og að ég fengi
keypt án útboðs var af og frá, enda
menn bundir af fyrri samþykkt borg-
arstjórnar.
Það er síðan kunnara en frá þurfi
að segja, að hinn 1. apríl var Brim-
borg afhent þessi sama eign á hálf-
virði og þá þvældist samþykkt borg-
arstjórnar ekki fyrir mönnum. Og
það var svo sem vel við hæfi að sú
gjörð skyldi fara fram á þessum við-
urkennda degi lyga og blekkinga.
Undanfarna daga hefur verið all
nokkur umræða um þessi mál, á
Bylgjunni, m.a. viðtal við mig þar
sem ég reyndi að rekja gang mála,
og einnig var viðtal við Vilhjálm Þ.,
þar sem hann varpaði fram þeirri
spurningu, hvers vegna ég teldi mig
eiga meiri rétt en aðrir, til að fá
þessa eign, með auknum byggingar-
rétti. Því er til að svara að hann er
enginn, og ef Vilhjálmur skyldi nú
hitta borgarstjóra á förnum vegi,
þá ætti hann að geta staðfest, að
ég hef boðist til að hækka mitt til-
boð, en ekki mátt, enda samþykkt
í borgarstjórn að bjóða út aftur.
Og þar sem ég veit að Vilhjálmur
hefur mjög góðan aðgang að Hjör-
leifi Kvaran, ætti Hjörleifur að geta
staðfest það að eftir að hann til-
kynnti mér að hann liti á tilboð Alla
sem fullgilt, þá fór ég fram á að fá
að sitja við sáma borð og Alli og
vildi hækka mitt boð. Nei, það var
af og frá, en þá sendi ég þeim Hjör-
leifi og borgarstjóra viðauka við
Stofnfundur
Rauða kross deildar í Bessastaðahreppi
verður haldinn þriðjudaginn 11. maí kl. 20.30
í íþróttamiðstöðinni í Bessastaðahreppi.
Dagskrá:
Starfsreglur og nafn deildarinnar.
Stjórnarkjör.
Kynning á starfi RKÍ.
Ólafur Oddsson, erindreki, segirfrá
helstu verkefnum RKÍ og deilda.
4. Forgangsröðun verkefna deildar-
innar.
5. Önnur mál.
Allt áhugafólk um málefni Rauða kross-
ins velkomið.
Undirbúningsnefndin.