Morgunblaðið - 11.05.1993, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 1993
39
mitt tilboð, og breytti greiðsluformi
á þá leið að ég bauðst til að hækka
útborgun úr átta milljónum á árinu,
og uppí 12 milljónir, ásamt því að
stytta eftirstöðvar. En, þessu kosta-
boði mínu var hafnað, Alli og félag-
ar höfðu einkarétt á að ákveða sig
eftir á hvernig þeir vildu greiða.
I þessu viðtali á Bylgjunni kallaði
Vilhjálmur mig svo réttilega sjálf-
skipaðan fulltrúa réttlætis og heiðar-
leika í Reykjavík. Ég er ekki bara
sammála heldur hreykinn og vil líta
svo á að þannig sjái Vilhjálmur mig.
Eftir að hafa kynnst vinnubrögð-
um hans svo náið kýs ég að nefna
hann sjálfskipaðan fulltrúa hags-
munapots í eigin þágu vina og
vandamanna.
Það er umhugsunarefni fyrir
Reykvíkinga að hér í borg skuli vera
tveir borgarstjórar, og hvorugur
skuli heita Markús.
Um leið og ég harma að hafa
þurft að kynnast vinnubrögðum sem
þessum, fer ég fram á að fá svar
við eftirfarandi spurningu:
1. Er borgarstjóri sáttur við að
starfsmenn borgarinnar taki sér
vald, einsog Hjörleifur Kvaran gerði,
taki eignir úr sölu hjá sérhæfðri
stofnun eins og Innkaupastofnun og
ráðstafi að eigin geðþótta?
2. Kannast borgarstjóri við að stjórn
Innkaupastofnunar hafi fundað um
þetta mál og alfarið hafnað svona
vinnubrögðum, talið tilboð Alla ógilt
og hafnað því að óséðar íbúðir væru
teknar sem greiðsla?
3. Hvers vegna sagðist borgarstjóri
ætíð í samtali við mig að hann væri
algerlega bundinn af samþykkt
borgarstjórnar og gæti á engan hátt
breytt henni, sama hvað ég vildi
kaupa umrædda eign á, en þegar
kom að því að láta Brimborg hafa,
var þetta honum ekkert mál?
4. Mega Reykvíkingar reikna með
því, að ef þeir bjóða í eignir borgar-
innar, þá þurfi þeir að kljást við ein-
staka starfsmenn og persónulega
duttlunga þeirra, líkt og ég hef
mátt gera í þessu máli, eða mun
Innkaupastofnun sjá um sölur hér
eftir?
Frá versluninni.
Ný forn-
verslun
OPNAÐ hefur á Hverfisgötu
46, Reykjavík, antik og forn-
verslun, Gamlitíminn.
í versluninni eru eingöngu seldir
gamlir notaðir munir, t.d. gamlir
skartmunir, húsgögn, rafmagns-
tæki, hljómplötur, geisladiskar og
margt fleira. Einnig taka aðstand-
endur verslunarinnar að sér alhliða
hreingerningar, kísilhreinsun á
vöskum og böðum. Upp í hrein-
gerningarnar er tekið gamalt dót
sem fólk er hætt að nota.
Verslunin er opin frá kl. 11-18
virka daga og í Kolaportinu um
helgar. Rekstraraðilar eru Elías
Leósson og Guðvarður Birgisson.
3M
Sólarfilma
5. Finnst borgarstjóra það eðlilegt
að formaður Skipulagsnefndar skuli
geta aukið verðgildi eignar eftir að
hún hefur verið boðin út sem ákveð-
in stærð, og eftir að í ljós kemur
að bróðir hans á boð í sömu eign,
og á í samstarfi við annan hæstbjóð-
andi og mánuði síðar greiði því at-
kvæði að bróðirinn fái? Það skal tek-
ið skýrt fram að borgarstjóri vissi
allan tímann af þessum tengslum.
Spurning til Vilhjálms Þ. Vil-
hjálmssonar, formanns Skipulags-
nefndar:
1. Vissi hann ekki af þessari stækk-
un, og ef svo var, finnst honum
ekki að hann hefði átt að láta aðra
borgarfulltrúa vita, svo hægt væri
að stöðva alla umfjöllun og atkvæða-
greiðslur, vegna þess að allar for-
sendur væru breyttar? Það hefði ég
getað, og orðið að sætta mig við.
Nei, þess í stað reyndir þú að koma
eign þessari í hendur þeirra félaga,
í fullri þögn um aukið verðgildi og
seinast með því að greiða því at-
kvæði að þeir fengju þetta keypt.
ÁLFABAKKA12, SÍMI72400
B
®®®®®®®
®®®®®®®®
®®®®®®®®
Höfundur er framkvæmdastjóri.
MINOLTA SP 3500 og SP 3000 LASER-PPENTARAR
í nýlegum prófunum sem þekkt PC-tímarit í Frakklandi
og Þýskalandi gerðu lenti SP 3500 laser-prentarinn frá
MINOLTA í efsta sæti.
f Nú getur þú prófað, því við höfum fengið þessa frábæru
prentara til sölu, ásamt SP 3000, sem er búinn flestum
sömu eiginleikum.
Meðal fjölmargra kosta SP 3500 eru:
► Hann er samhæfður bæði fyrir PC og Maclntosh tölvur
► Hann prentar 10 blöð á mínútu
► Hann er búinn RlSC-örgjörva
► Hann er með 35 True Type leturgerðum, auk 14 Laser Jet lll-leturgerða
og 8 Intellifont leturgerða.
► í honum er samhæfð póstskrift (MicrosoftTme Image), Laser Jet III (PCL5),
IBM Pro-Printer XL24e og EPSON FX-850.
► f honum er MINOLTA Fine-ART (Advanced Resolution Technology),
sem tryggir myndgæði er jafnast nánast á við 600 punkta prentun.
► Hann er með 2 MB minni, sem er stækkanlegt upp í 10 MB.
► Hann er með 250 blaða pappírsskúffu (stækkanlegri).
SKRIFSTOFUBÚNAÐUR ► Hann skiptir sjálfvirkt á milli raðtengingar, hliðtengingar og "Apple Talk".
síðumúu 14,108 reykjavík, sImi 813022 ► Hann skiptir sjálfvirkt um prentham .
MINOLTA
pMPFEHLUNG
1 DER
REDAKTíON
AUGUST1992