Morgunblaðið - 11.05.1993, Side 41

Morgunblaðið - 11.05.1993, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. MAI 1993 og að lög voru sett til verndunar Laxár og Mývatns. Vissulega er þetta allnokkuð, enda er ég stoltur af þátttökunni. Um náttúruvernd Ég hefi á liðnum 20 árum unnið verulega að landgræðslu hér í heimalandi eins og margir bændur í sveitinni og vítt um landið. Ekki bendir það til _þess, að ég sé á móti landgræðslu. Ég hefi gagnrýnt ýms- ar aðgerðir Landgræðslu ríkisins og tel að márgt mætti þar betur fara. En gamalt máltæki er að „sá er vin- ur, sem til vamms segir“, og á það við um þetta mál. Bændur í Mý- vatnssveit hafa eins og aðrir mátt þola milli 20 og 25% samdrátt sauð- fjárframleiðslu, en þeir hafa líka stytt mjög beitartíma á afrétti bæði haust og vor og þannig brugðist við kröfum um bætta umgengni við landið. Sjálfur hefi ég síðustu ár haft um þriðjung fjár í heimalöndum. Þetta er hægt vegna þeirra land- græðslustarfa, sem áður getur, og samvinnu við Landgræðsluna síð- ustu 2-3 ár. Þetta eru forstjóranum væntanlega framandi viðbrögð, ef miðað er við það, hvernig hann sjálf- ur bregst við gagnrýni. „Hann (þ.e. undirritaður) hlýtur líka að láta af kröfum um að lax verði fluttur upp í Laxá ofan Laxár- virkjunar." Þessi klausa svo og um- mæli höfundar um sandfok, hauga- kjöt o.fl. verður varla skoðað öðru- vísi en sem marklaust skítkast, sem staðfestir vanþekkingu höfundar. Samningur til lausnar Laxárdeilu var gerður fyrir réttum 20 árum. Þar var kveðið á um byggingu fisk- vegar upp fyrir virkjanir í Laxá, þannig að laxrækt gæti hafist þar. •Rannsóknir 1971-76 sýndu, að fæðuframboð var slíkt í Laxá fyrir fugl og fisk, að engin hætta stafaði af laxi á svæðinu. Hann mundi að- eins auka framleiðslu árinnar. Þegar svo Kísiliðjan hefir starfað í 20 ár, er ástand svæðisins orðið þannig að áliti sérfræðinga, að fæðuframboð takmarkar stærð urriða- og anda- stofna í Laxá, og því ekki talið æski- legt að flytja þangað lax. Forstjórinn þarf engar áhyggjur að hafa af því, að við leitumst ekki við að umgangast náttúruna á ábyrgan hátt. Hitt er þó ofrausn og reyndar misskilningur hans, að ætla okkur hafa fundið upp og innleitt hér varúðarregluna. Það bætast stöðugt nýir liðsmenn þessum ágæta söfnuði, nú síðast ráðherrar iðnaðar- og umhverfismála. Um ieið og þeir kynntu nýtt námaleyfi Kísiliðjunnar, fluttu þeir jafnframt þann gleðiboð- skap, að upp skyldi tekin varúðar- reglan í umgengni við náttúruna hér eins og hjá öðrum vestrænum þjóð- um. Fór þetta fram hjá forstjóranum eða hvað? Vonandi veit hann hvað það merkir. Eða vill hann ekki vita það? Um aðkomufólk Oft höfum við, sem tortryggt höf- um rekstur Kísiliðjunnar, fengið að heyra, að við værum á móti því fólki, sem flust hefur í sveitina. Það væri óvelkomið. Auðvitað er þetta fjar- stæða, enda hafa þessar raddir ekki heyrst um nokkurt skeið, þar til nú að forstjórinn hefur upp þennan söng að nýju. Fróðlægt væri, ef hann gæti nefnt dæmi máli sínu til sönnunar. Ég held að þau finnist ekki utan eitt, en það snertir forstjórann sjálf- an, enda er framganga hans og af- skipti af mönnum og málefnum hér með þeim hætti, að sem betur fer á slíkt sér enga hliðstæðu. Höfundur er bóndi & Arnarvatni og formaður Veiðifélags Laxár og Krákár Dregiö um þrefaldan fyrsta vinning á morgun! Veröurhaim fer.? 41 PHILIPS FARSÍMAR VERÐFRÁKR. ..... itiimiMiimiituiu ^,tl*MlllMIIMIilllllllMiMMIlMllMllMIMIMMI.M INFOTEC FAXTÆKI VERÐ FRÁ KR. MMMiMiMiiiiiMiiMMMiMMMiMMMMMMiiUf / \ PREMIER SÍMSVARAR VERÐ FRÁ KR. ^iMimHiiiiimiiiiiiiiimiiHiimuiiiiiimi MÓTTÖKU BÚNAÐUR GERVIHNATT ''•■•■■■tiiiiMtittftfititttiitfiiiittiiittitititiiitfM'' ^ttaMMMMIMMMMMIMMMIMMMMMMMMMMMM,, í UÓSRITUNAR VÉLAR | VERÐFRÁKR. I SEGULBANDS- STÖÐVAR I VERÐFRÁKR. 8« n TÆKNI- OG TÖLVUDEILD ® Heimilistæki hf. SÆTÚNI 8 • SÍMI 69 15 00

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.