Morgunblaðið - 11.05.1993, Síða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 1993
Hestadagar Fáks og Sunnlendinga í Reiðhöllinni
Og þá var kátt í höllinni
Signrður Sæmundsson og Sokki snúast hér í kringum ærnar, þótt Sigurður hafi verið upptekinn af
verkefninu gaf hann sér tíma til að segja nokkrar skemmtisögur.
_________Hestar______________
Valdimar Kristinsson
ÞRIÐJU og síðustu hestadagar
ársins voru haldnir í Reiðhöllinni
um helgina. Hestamannafélagið
Fákur og sunnlenskir hestamenn
stóðu saman að sýningunni nú í
annað sinn. Boðið var upp á þrjár
sýningar og var að heita má troð-
fullt öll kvöldin og mikil stemm-
ing meðal sýningargesta. Aðsókn
að þeim hestadögum sem haldnir
hafa verið helgina sem sýning
stóðhestastöðvarinnar er haldin
hefur alitaf verið vel sótt enda
kemur mikill fjöldi hestaunnanda
utan af landi á stöðina og fer þá
gjaman á laugardagssýninguna.
Líkast til hafa margir farið
ánægðir heim að loknum sýningun-
um eftir að hafa barið augum mik-
ið gæðingaval þar sem stóðhestarn-
ir stálu senunni. Það voru venjuleg-
ir útreiðarkallar úr Fáki sem riðu
á vaðið með hópsýningu en segja
má að þeir Kolfinnur frá Kvíarhóli
og Hektor frá Akureyri hafi gefið
tóninn með stórglæsilegum dúett.
Er hreint ótrúlegt gangrýmið í Kolf-
inni á.tölti auk þess sem hann er
prýðilega vakur og Hektor með sína
kappreiðaferð á brokki. Sigurður
Sæmundsson brást ekki venju frem-
ur þegar hann sýndi nýútskrifaðan
smalahund sinn, hann Sokka, smala
nokkrum ám, sem hann kom einnig
með sér austan úr Holtsmúla og
að ógleymdum nýjum vinnumanni
sem er all nokkru hærri en Sigurð-
ur. Virtist sem Sigurður sem er
tæplega meðalmaður á hæð næði
honum rétt ríflega í nafia. Og með-
an Sigurður og Sokki sýndu listir
sínar sagði Sigurður nokkrar
skemmtisögur að eigin hætti. Þá
var Sigurbjöm Bárðarson með tvö
atriði; í hinu fyrra mætti hann með
hindrunarstökksgarpinn Hæring
Kolfinnur frá Kvíarhóli og Vignir
Siggeirsson sýndu afburðagóð til-
þrif áöllum sýningumendaklárinn
hátt dæmdur fyrir hæfileika og í
góðu formi og Vignir snjall knapi.
sem nú er kominn á efri ár og
sýndi hann í hlutverki lögreglu-
hests eins og tíðkast erlendis. Sá
gamli reyndist taugasterkur með
afbrigðum og lét sér hvergi bregða
þó skotið væri úr haglabyssu rétt
fyrir framan nefið á honum. í seinna
atriðinu var hann á Vídalín frá
Sauðárkróki, athygliverðum Gáska-
syni. Sýndu þeir létta fimiæfinga-
sveiflu samanfléttaða við ágæta
tölt- og brokksýningu og góðan
skeiðsprett í lokin.
Stóðhestarnir Náttfari frá Ytra-
Dalsgerði og Ófeigur frá Flugumýri
komu fram með afkomendum sín-
um. Sýndir voru þrír ættliðir undan
Ófeigi en Náttfari mætti með
nokkrum hraðfleygum vekringum
og fór mikinn sjálfur 23 vetra gam-
all. Eru nú líklega að fullu þagnað-
ar þær raddir að honum hafi verið
ofgert á Vindheimamelum ’74 þeg-
ar hann sló svo eftirminnilega í
gegn. Ekki er hægt að skilja svo
við sýningaratriðin að ekki sé getið
framlags átta Fákskvenna sem voru
með vel útfærða töltsýningu sem
Hafliði Halldórsson hafði sett sam-
an og stjórnaði. Þar voru saman-
komnir góðir töltarar og fagrar
konur sem kunna að höndla slíka
glæsifáka. Á síðustu sýningunni var
þeim öllum afhentir blómvendir í
sellofanpappír sem þær verðskuld-
uðu vel en þegar þær riðu af stað
og byijaði að skijáfa í pappírnum
var eins og handsprengju hefði ver-
ið hent inn í hópinn og allt varð
vitlaust en þá sýndu þessar elskur
Stóðhestastöðin í Gunnarsholti
Svartur með hæstu
einkunn frá upphafí
f DÆMIGERÐU stóðhesta-
stöðvarveðri, rigningu og roki,
var árleg sýning stöðvarinnar
haldin á laugardag þar sem
fímmtán hestar af stöðinni
komu fram en átján voru dæmd-
ir á þriðjudag í síðustu viku.
Auk þeirra komu fram nokkrir
hestar sem ekki teþ'ast stöðvar-
hestar en hafa verið í tamningu
og þjálfun hjá tamningamönn-
unum þeim Eiríki Guðmunds-
syni og Þórði Þorgeirssyni.
Þrátt fyrir leiðindaveður komu
folamir ótrúlega vel fyrir og skil-
uðu vel sínu hlutverki. Af frammi-
stöðu margra þeirra má fullyrða
að ekki hafi verið ofgefið á þriðju-
dag en dómurinn var opinn sem
kallað er á laugardeginum og
hækkuðu nokkrir þeirra í einkunn
fyrir hæfileika.
Svartur frá Unalæk hlaut hæstu
einkunn að þessu sinni, 8,44, og
er þar með kominn í hóp hæst
dæmdu hesta landsins en þetta er
hæsta aðaleinkunn sem gefin hef-
ur verið á stöðinni frá upphafi.
Hlaut hann 9,0 fyrir skeið, stökk
og vilja en 8,5 fyrir önnur atriði.
Fyrir byggingu hlaut hann 8,18
en þar standa allar einkunnir í
átta nema 8,5 fyrir háls, herðar,
bóga og hófa. Stóðhestar með svo
jafnar og góðar einkunnir eru
verðmætir fyrir ræktunina og kall-
ast með réttu kynbótagripir. Af
þeim níu fimm vetra hestum sem
komu fram eru flestir mjög álitleg-
ir. Gassasonurinn Gnýr frá Hrepp-
hólum, rúmur og hágengur töltari
með sömu byggingareinkunn og
Svartur, varð í öðru sæti með 8,14.
Hlaut hann meðal annars 9,0 fyrir
tölt. Gumi frá Laugarvatni varð
þriðji, einnig með 8,18 fyrir bygg-
ingu, fékk 9,0 fyrir háls og herðar
og fótagerð en 7,5 fyrir höfuð og
réttleika. Þess má til gamans geta
að meðan þeir Gumi og Svartur
voru að spóka sig á brautinni í
Gunnarsholti kastaði Glíma frá
Laugarvatni, móðir Guma, folaldi
undan Svarti. Einnig má nefna
Ljórasynina þá Dug frá Mos-
fellsbæ og Blæ frá Kjarnholtum
en þeir eru báðir mjög álitlegir.
Hálfbróðir þeirra, Fengur frá
Stokkseyri, fékk geldingadóm
þegar dómarar gáfu honum 6,5
fyrir réttleika. Snældu-Blesason-
urinn Bokki frá Akureyri hækkaði
sig í 8,5 fyrir fegurð í reið.
Svartur hækkaði sig úr 8,5 í 9,0 fyrir skeið á sýn-
ingunni á laugardag, knapi er Þórður Þorgeirsson.
Þorri frá Þúfu fetaði í fótspor föður síns og stóð
efstur fjögra vetra hesta, knapi er Eiríkur Guð-
mundsson.
Gnýr frá Hrepphólum fékk 9,0 fyrir tölt sem er
býsna gott þjá fimm vetra hesti, knapi er Eiríkur
Guðmundsson.
Galdur frá Sauðárkróki sýndi góð skeiðtilþrif enda
vel rúmur og hörku viljugur með 9,5 fyrir vilja,
knapi er Eiríkur Guðmundsson.
hagstœð kjör, langur lámtimi, sveigjanlegt lánshlutfall, margir gjaldmiðlar L:l'H IÐNÞROUNARS JOÐUR
S r Kalkofnsvegi 1 150 Reykjavík sími: (91) 69 99 90 fax:62 99 92