Morgunblaðið - 11.05.1993, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 11.05.1993, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 1993 53 Til sölu Ný, glæsileg, fullbúin 4ra herbergja íbúö til sölu viö Álagranda Ennfremur 3ja og 4ra 1 herbergja íbúöir tilb. undir tréverk við Sporhamra. Upplýsingar í sfma 74040. Jlón Hannesson. Lansinoh „Natures second skin" Graeðandi og mýkjandi áburður á þurra og sprungna húð, svo sem bleyjuútbrot, sprungna fingurgórna, hæla, sólbruna o. s.frv. Áburður fyrir alla fjölskylduna. Fæst í Þumalínu og flestum apótekum landsins. Hringið og fáið ókeypis sýnishorn ÝMUS HF.,sími 91-643607. Við erum ekki aðskotadýr Frá Amal Qase: Tilefni þessarar stuttu greinar eru skrif í aprílblaði Stúdenta- blaðsins þar sem við erlendir námsmenn við Háskóla íslands erum sagðir vera aðskotadýr í skólanum og það sem við erum að læra í háskólanum sé tilgangs- laust. Fyrst og fremst erum við ekki aðskotadýr í Háskóla íslands frekar en íslenskir námsmenn eru í erlendum skólum og mér fyrir mitt leyti finnst námið fyrir er- lenda stúdenta ekki tilgangslaust eins og haldið er fram í fýrr- nefndri grein. Sagt er beinum orð- um að við séum stefnulaus hópur og gefið er sterklega í skyn að við séum á eftir vitsmunalega en þetta segir bersýnilega meira um höfund greinarinnar fremur en erlenda námsmenn almennt. Við Háskóla Islands er sérstakt námskeið fyrir erlenda stúdenta þar sem megin áhersla er lögð á íslenskukunáttu, íslenskar bók- menntir og sögu íslands, bæði fyrr og nú. Flestir erlendir náms- menn eru búsettir_ á íslandi og fýrir þá er Háskóli íslands kjörinn vetvangur til að læra ekki_ bara tungumálið heldur líka um Island og Islendinga, einkenni þessarar þjóðar. Þetta auðveldar okkur að aðlagast þjóðfélaginu og læra um lífshætti þjóðarinnar frekar fyrr en síðar. Sumir hafa lært íslensku í útlöndum og koma hingað til að bæta við sig og þeir eru margir sem hafa áhuga á að kenna ís- lensku í heimalandi sínu að námi loknu. Fleiri eru þó í ævintýraleit og koma til íslands tii að læra framandi tungumál og kynnast annars konar menningu. Mannasiðir eru hins vegar ekki kenndir hjá okkur og þess vegna get ég því miður ekki boðið höf- undi umræddrar greinar í fræð- andi heimsókn til okkar. Amal Qade er frá Sómalíu og er nemi við HÍ. AMAL QASE, Borgartúni 19, Reykjavík. VELVAKANDI ÞÖRF HUGVEKJA ÉG VIL þakka Baldri Her- mannssyni fyrir þáttinn „Þjóð í hlekkjum hugarfarsins". Þetta var þörf hugvekja að fletta ofan af glæpamönnum og sýna hvernig farið var með fátækl- inga og munaðarlaus börn og ungar stúlkur, sem lentu í vist hjá nauðgurum og ef þær urðu ófrískar var þeim hent út með börnin í fanginu. Þær og börnin sultu oft til bana. Ég held að bústólparnir og fleiri geti hætt að gorta af forfeðrunum. Ég bíð með óþreyju eftir næsta þætti. Jónheiður Níelsdóttir. SKÓRNÍR HANS ABULS KASEMS SÁ SEM gæti frætt mig um uppruna sögunnar um Abul Kasem er vinsamlega beðinn að hringja í mig í síma 91-18103. Inntak sögunnar er að Abul Kasem var nískasti maður í Bagdad. Hann var vellauðugur en tímdi ekki að kaupa sér nýja skó. Nískan kom honum í koll og missti hann aleiguna vegna gömlu skónna. TAPAÐ/FUNDIÐ Týnt hjól HVÍTT og fjólublátt, tuttugu og eins gírs flallahjól, hvarf frá Hamrahlíðarskóla föstudaginn 23. apríl. Hafi einhver orðið hjólsins var er hann beðinn að hringja í síma 38998 eða til- kynna lögreglunni í Reykjavík hvar hjólið er niður komið. Barnabílstóll í Öskjuhlíð BRITAX barnabílstóll með Ijós- bláu áklæði og stafamunstri tap- aðist á malarveginum í Ösku- hliðinni sl. fimmtudag. Finnandi vinsamlega hringi í síma 613161. LEIÐRETTIN G AR Fyrsta vínkvöld nýrra eftirlætis- rétta í Morgunblaðinu 6. maí var farið ranglega með dagsetningu á fyrsta vínkvöldi Matreiðsluklúbbs Vöku- Helgafells. Vínkvöldið verður haldið á Litlu-Brekku við Lækjarbrekku í Reykjavík þriðjudaginn 18. mai og hefst klukkan 20.30. Steingrímur Sigurgeirsson, vínráðgjafi klúbbs- ins, mun fræða gesti um helstu vin- héruð í Frakklandi og leyfa þeim að bragða á nokkrum víntegundum. Skráning og nánari upplýsingar eru hjá Vöku-Helgafelli. Fæðingasprengja Morgunblaðinu hefur borist at- hugasemd frá Ástu R. Jóhannes- dóttur, deildarstjóra hjá Trygginga- stofnun ríkisins, vegna greinar í Morgunblaðinu sl. sunnudag um fæðingasprengju í kreppunni. í greininni var íjallað um greiðslur í fæðingarorlofi frá Tryggingastofn- un ríkisins. Nokkurs misskilnings hefur gætt um greiðslu fæðingar- styrks i kjölfar greinarinnar. Greiðslur í fæðingarorlofí frá Tryggingastofnun skiptast í tvennt, annars vegar fæðingarstyrk og hins vegar fæðingardagpeninga. Þær greiðast aðeins þeim sem ekki halda launagreiðslum í fæðingarorlofi. Fæðingarstyrkinn fá allar konur, óháð atvinnuþátttöku, en greiðsla dagpeninganna er háð atvinnuþátt- töku eða námi. Fjöldi kvenna sem halda launum í barnsburðarleyfi hefur haft sambandi við Trygginga- stofnun og talið sig eiga inni um 150 þúsund krónur í fæðingarstyrk, samkvæmt því sem stendur í grein- inni, en svo er ekki eins og sést af framansögðu. Aukin þjónusta! Ný fatadeild Lengdur opnunartími í sumar: Föstudaga k/. 9-19• Laugardaga k/. 9 -16 og sunnudaga kl. 10-16 HAFNARSTRÆTI 5 -REYKJAVÍK • SÍMAR 91-16760 & 91-14800 S5555? Vinningstolur laugardaginn ! KzsHÍ 8. maí 1993. I z l) (2S) VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5aI5 1 6.008.583 O RU5ifl Z. 4af5* 110.177 ' 3. 4af5 160 7.127 í 4. 3ai5 5.258 506 i Heildarvinningsupphæðþessaviku: 10.470.513 kr. Jm m UPPLVSINGAR: SIMSVARI91-681511 LUKKULÍNA991002 Pið fáið falleg hússögn í sumarhúsið hjá okkur og að sjálfsögðu lægsta verðið. BÍLDSHÖFÐA 20 • 112 REYKJAVÍK • SÍMI 91-681199
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.