Morgunblaðið - 17.06.1993, Blaðsíða 10
10
mi IMUt .VI fllIOA’tHJTMMI'? QtlQAiiaRUÖflOM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1993
Elísabet Haraldsdóttir
Myndlist
Eiríkur Þorláksson
Það er ætíð freistandi, þegar
fleiri en ein sýning er í gangi á
listaverkum sem unnin eru í sama
miðil, að leggjast í hreinan saman-
burð; eitt er betra, annað er lak-
ara. Þannig standa nú yfir í
Reykjavík a.m.k. tvær einkasýn-
ingar leirlistamanna, þ.e. sýning
Elísabetar Haraldsdóttur í Geysis-
húsinu við Vesturgötu og Rögnu
Ingimundardóttur á Kjarvalsstöð-
um. En þegar sýningarnar hafa
verið skoðaðar, hverfa slíkar hug-
myndir sem betur fer oftast út í
veður og vind, því sjálfstæði við-
fangsefna, vinnubragða og fram-
setningarmáta gerir slíkt með öllu
óraunhæft.
Elísabet Haraldsdóttir er gagn-
menntuð í myndlistinni. Eftir að
hafa stundað nám við Myndlista-
og handíðaskóla íslands á árunum
1967-71 hélt hún til Vínarborgar,
þar sem hún var í fjögur ár í fram-
haldsnámi við „Hochschule fúr
angewandte Kunst“, og var síðan
gestanemandi þar eitt ár enn; loks
hlaut hún styrk og vinnuaðstöðu
á vegum Vínarborgar 1978. Heim-
komin kom hún sér upp vinnuað-
stöðu við Bændaskólann á Hvann-
eyri, þar sem hún hefur búið frá
1978. Nú er um áratugur liðinn
síðan Elísabet hélt einkasýningu í
Reykjavík, og því forvitnilegt að
sjá hvað hún hefur verfð að fást
við.
Á sýningunni í Geysishúsinu
getur að líta íjörutíu verk, og af
þeim er ljóst að listakonan hefur
undanfarið unnið mikið út frá
kúluforminu, opnað það, flatt út,
teygt eða klofið; bylgjan og það
línuspil sem henni fylgir kemur
einnig sterkt fram í nokkrum verk-
um, og loks notar hún leirinn
hreinlega sem efnivið í malerískar
veggmyndir, þar sem áferð, línur
og litir vinna saman til að skapa
eina myndræna heild.
Það eru möguleikar abstrakt
myndmálsins sem heilla listakon-
una í vinnu hennar. Kúlan er t.d.
skorin eða opnuð á fjölbreyttan
hátt í verkunum, jafnframt því sem
litun gripanna skiptir sköpum um
þau sjónhrif, sem verða til. Þannig
er mildur liturinn áberandi þáttur
í verkum eins og „Mosakúla" (nr.
3) og „Bláskurn“ (nr. 11), en form-
ið ræður hins vegar meiru í stærri
verkum eins og „Eggrún“ (nr.
14), sem er afar skemmtilegur
gripur.
I nokkrum veggmyndum hefur
Elísabet skapað sterkar bylgjur,
þar sem form leirsins og hrynjandi
litanna vinna vel saman. Þannig
eru t.d. „Strengir" (nr. 16) og
„Straumar" (nr. 28), en í hinu síð-
arnefnda er biái liturinn afar sterk-
ur og mótandi þáttur verksins.
Listakonan notar leirinn stund-
um líkt og léreft, og byggir þann-
ig upp óhlutbundna myndheima,
sem þó vísa í mörgum tilvikum til
náttúrunnar í litum og formum.
Þannig eru stór verk eins og „Vik-
ursvipir" (nr. 24), en ekki síður
samsetningar smærri mynda eins
og „Leirsveipir“ (nr. 29-33) og
„Heiðardrög" (nr. 5), sem er eink-
ar lífleg og fjölbreytt samsetning,
þar sem hver smámynd nýtur sín
vel í sambandi við umhverfi sitt.
Hér er á ferðinni sýning frá
hendi ágætrar listakonu, þar sem
vönduð vinnubrögð sitja í fyrir-
rúmi. Formrænir möguleikar efn-
isins eru kannaðir á fjölbreyttan
hátt, þannig að Ijóst verður að leir-
inn getur þjónað margvíslegum
metnaði í myndlistinni.
Sýning Elísabetar Haraldsdótt-
ur í Geysishúsinu við Vesturgötu
1 stendurtil sunnudagsins 20. júní.
Ara-leikhúsið
Píanótónleikar í
Norræna húsinu
SÆNSKI píanóleikarinn Carl
Pontén heldur tónleika í Norræna
húsinu laugardaginn 19. júní og
hefjast þeir kl. 16.
Carl Pontén er búsettur á Ítalíu,
en hann lauk námi frá tónlistarhá-
skólanum í Flórens haustið 1992 og
er þetta í fyrsta skipti sem hann
kemur hingað til lands. Hann hefur
haldið tónleika víða um Evrópu og
hlotið lof áheyrenda og gagnrýn-
enda.
í júní 1991 vann Carl Pontén 1.
verðlaun í alþjóðlegu tónlistarkeppn-
inni „Nova Milanese" í Mílanó. Á
efnisskránni eru .verk eftir Chopin,
Stenhammar og Liszt.
íslandsbanki styrkir komu hans
hingað til lands. Allir eru velkomnir
og er aðgangur ókeypis.
FÖSTUDAG kl. 20.30. í Straumi:
ARA-leikhúsið. „Experimental
Workshop Theatre World Per-
formance." Höfundur: Jón Friðrik
Arason. Leikstjóri: Rúnar Guð-
brandsson. leikarar: Árni Pétur
Guðjónsson, Steinunn ólafsdóttir
o.fl. Frumsýning.
Klúbbur listahátíðar: Tríó
Björns Thoroddsen ásamt gestum.
FÖSTUDAG kl. 20.30.-3.01: Tón-
leikar og tískusýning í Faxaskála.
Hljómsveitir: Púff, Heiða (trúbad-
or), Yukatan, Dawn of the dead,
Tjalz Gissur, Texas Jesus, Slip,
Niður, SS span, Kolrassa krókríð-
andi.
Birgir Thor, Gunnar Rúnar og
Börn fremja gjörning. Ásta Guð-
rún, Silja Dögg og Kolbrá Braga
sýna föt.
Streymi ’93
ARA-Ieikhúsið sýnir Streymi
’93 á Listahátíð í Hafnarfirði
1993, að Listamiðstöðinni í
Straumi rétt fyrir utan Hafnar-
fjörð dagana 18. júní (frumsýn-
ing), 20., 23., 24. og 29. júní.
I fréttatilkynningu segir: Ara-
leikhúsið fer ótroðnar slóðir við
vinnslu þessa verks. Hefðbundin
verkaskipting og tímasetning leik-
húsvinnunnar er brotin upp á
þann hátt að allir helstu aðstand-
endur sýningarinnar; rithöfundur,
leikstjóri og leikarar, taka þátt í
vinnuferlinu frá upphafi. Þetta er
opið samvinnuverkefni þar sem
hver og einn hefur ákveðið frum-
kvæði, en fær jafnframt hug-
myndir og innblástur frá öðrum.
Aðstandendur og þátttakendur
leikverksins Streymi ’93 eru Jón
Friðrik Arason rithöfundur, Rún-
ar Guðbrandsson leikstjóri, Árni
Pétur Guðjónsson leikari og leik-
aramir Steinunn Ólafsdóttir,
Harpa Arnardóttir, Björn Ingi
Hilmarsson og Anna E. Borg
ásamt fjölda aukaleikara.
911 Rfl 91 97fl LÁRUS Þ' VALDIMARSS0N framkvæmoastjori
■ I I DU't I 0 / w KRISTINN SIGURJ0NSS0N, HRL. ioggilturfasteignasali
Nýkomnar til sölu - eignir sem vekja athygli
Séríbúð - nýendurbyggð
3ja herb. íb. á neðri hæð 81,8 fm nettó v. Bústaðaveg. Öll eins og ný.
Hiti sér, inng. sér. 40 ára húsnlán fylgja rúmar 3,0 millj. Skipti möguleg
á einb- eða raðhúsi í nágrenninu.
Fyrir smið eða laghentan
rúmg. og sólrík 3ja herb. íb. á efri hæð 86,4 fm nettó v. Mjóuhlíð.
Ris hússins fylgir. Sérhiti. Góður bílsk. 28 fm fylgir. Sanngj. verð.
Glæsileg eign á úrvalsstað
Einbhús - steinhús ein hæð 171,2 fm v. Selvogsgrunn, mikið endurn.
Góður bílsk. 27 fm. Glæsil. trjágarður. Verð aðeins kr. 15,0 millj.
Glæsileg sérhæð - frábært útsýni
Efri hæð 6 herb. 149,6 fm vestast í Rauðagerði. Þrfbýli. Allt sér. Góð-
ur bílsk. Tvennar svalir. Ræktuð lóð. Vinsæll staður.
2ja herbergja íbúð öll eins og ný
f lyftuh. inni við Sund á 6. hæð. Nýendurbyggð. Rúmg. sólsvalir. Fráb.
útsýni. Laus strax.
Verð frá kr. 5,3 millj.
nokkrar 3ja og 4ra herb. íb. m.a. við: Stóragerði, Kleppsveg, Njáls-
götu, Hverfisgötu og Ásgarð. Nokkrar með miklum og góðum lánum.
Ein bestu kaup á markaðnum í dag. Nánari uppl. aðeins á skrifstofunni.
• • •
Opið í dag kl. 10-13.
Ath. breyttan opnunartima.
Gleðilega þjóðhátfð.
Opiðá laugardaginn. LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370
ALMENNA
FASHIMASALA N
Ljóðas^ning
BrRgSL Olafssonar
Á KJARVALSSTÖÐUM verður
sýning á ljóðum eftir Braga Ólafs-
son opnuð laugardaginn 19. júní
kl. 14.
Bragi Ólafsson er fæddur 1962
og eftir hann hafa komið út þijár
ljóðabækur: Dragsúgur 1986, Ánsj-
ósur 1991 og Ytri höfnin 1993. í
fréttatilkynningu segir: „Flest ljóð
Braga eiga sér stað í borgarum-
hverfí með ýmsum neysluhlutum og
sjónarhorn borgarbúans ríkir. Mörg
ljóðanna eru staðsett erlendis og flest
ljóð hans vitna um þann sem víða
hefur ratað, þau eru ekki bundin ís-
lensku sviði eða sérstökum tíma, en
þessum ferðalögum um lönd og borg-
ir fylgir óvissa og undrun. Ljóðin
virðast byggjast á eigin reynslu eða
endurminningum en veruleiki þeirra
er samt óháður stað og stund.
Ljóðasýningar Kjarvalsstaða, sem
unnar eru í samvinnu við Ríkis-
útvarpið-Rás 1, hafa verið fastir liðir
á dagskrá safnsins síðan 1991. Með
þeim hafa opnast nýir möguleikar
fyrir íslensk skáld í rými sem áður
var helgað myndlistinni, en jafnframt
vekja sýningamar spurningar um
stöðu Ijóðlistarinnar í dag.
Bragi Ólafsson.
Tískutímaritið „0“
Tímarit og tvöfaldur
geisladiskur gefin út
ANNAÐ tölublað tískutímarits-
ins „0“ er væntanlegt næstkom-
andi föstudag. I tilefni
útgáfunnar hefur
breska tískublaðið i-D
ákveðið að senda full-
trúa sína til landsins
og kynna sér skemmt-
analíf íslendinga. Ætl-
un þeirra er að skrifa
grein í júlíhefti blaðs-
ins um strauma í tón-
Iist og tísku hérlendis.
Þcir munu m.a. kynna
sér útgáfuhátið tíma-
ritsins „0“-sins og tvö-
falda geisladisksins
Núll & nix.
Tímaritið „0“ er gefíð út af
Máli og menningu og kom fyrsta
tölublað út um síðustu jól. Að þessu
sinni verður einnig gefinn út geisla-
diskur, Núll & nix, og
mun hann fylgja fyrstu
eintökum blaðsins. Disk-
• urinn inniheldur það
helsta sem er að gerast
neðanjarðar í íslensku
tónlistarlífi um þessar
mundir. Mikill fjöldi
hljómsveita prýðir
geisladiskinn og þótti
því best að halda tvenna
tónleika til þess að
kynna hann. í gærkvöldi
voru rokktónleikar í
Tunglinu þar sem 12
hljómsveitir af Núlli &
nixi komu fram og í þeim hópi má
nefna Kolrössu krókríðandi, Yukat-
an, Curver, íslenska tóna og Dr.
Gunna.
Síðari tónleikarnir verða í Tungl-
inu á föstudaginn og verða þeir
einnig útgáfuhátið tímaritsins „0“.
Að sögn Þorsteins Gunnarssonar
mun breski plötusnúðurinn Baby
Ford, sem af mörgum er talinn
guðfaðir danstónlistar í Bretlandi,
heimsækja ísland og leika listir sín-
ar á hátíðinni, en ásamt honum
mun mikill fjöldi íslenskra dans-
sveita flytja tónsmíðar sínar.
Nýverið birtist opnuviðtal við
Björk Guðmundsdóttur í breska
tímaritinu i-D og prýddi hún einnig
forsíðu blaðsins. Þorsteinn segir að
hjá aðstandendum i-D hafi kviknað
áhugi á íslandi í kjölfar viðtalsins
og nú sé von á ritstjóra blaðsins,
Matthew Collin, ásamt fylgdarliði
til þess að skrifa stóra grein um
tónlist og skemmtan Islendinga. I
samtali við Þorstein kom fram að
í för með blaðamönnum i-D verður
útsendari japanskrar módelskrif-
stofu sem ætlar að kynna sér ís-
lenskar fyrirsætur með störf í Jap-
an í huga.