Morgunblaðið - 17.06.1993, Side 22

Morgunblaðið - 17.06.1993, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1993 ENN ER hægagangur víðast í laxveiðiánum, en þó hefur komið dálítill lífsneisti í Þverá í Borgarfirði. Þannig veiddust 12 laxar í ánni á þriðjudagsmorgun. Veiðin datt aftur niður eftir hléið, en svo komu aftur 7 laxar þar á land í morgun og megn- ið af laxinum sem veiðst hef- ur síðustu daga hefur verið grálúsugur fiskur sem bendir auðvitað til þess að einhveij- ar göngur séu á ferð. Menn vonast nú til þess að með vaxandi straumi næstu daga glæðist veiðin til muna, en skilyrði mega nú heita að vera orðin ágæt víðast hvar. 16 punda fiskur úr Þverá Óli Hrútfjörð kokkur í veiði- húsinu að Helgavatni við Þverá sagði veiðimenn sjá talsvert líf í ánni þessa daganna og til betri frétta teldist einnig, að laxinn er nú farinn að veiðast víðar á svæðinu en verið hefur. „Lengst af hefur þetta litla sem hefur komið á land veiðst á tiltölulega fáum stöðum,“ sagði Óli. Hópur- inn sem veiddi 12 laxa að morgni þriðjudagsins fór heim með 33 laxa. Nýr hópur í ánni náði eng- um fiski fyrstu vaktina, en tók svo sjö fiska í gærmorgun. Enn sem komið er, er um vænan tveggja ára lax úr sjó að ræða og á þriðjudagsmorguninn veidd- ist m.a. einn 16 punda, sem er stærsti lax sem Mrogunblaðið hefur haft spurnir af það sem af er. Það var Hörður Jónsson sem veiddi laxinn, sem var hrygna, á maðk í Símastreng. Alls voru um miðjan gærdag komnir 62 laxar á land, 50 úr Þverá, 12 úr Kjarrá. Enn rólegt í Norðurá Það eru enn rólegheit í Norð- urá og að gefnu tilefni verður að taka fram, að fregnir af veiði í ánni í blaðinu í fyrradag skoluð- ust því miður til. Haft var eftir viðmælanda í veiðihúsinu, að þá um morguninn hefðu 9 laxar veiðst, en um var að ræða tveggja daga veiði. Það holl hélt heim með 14 laxa og stóð vel undir nafni sínu „Laxavinafélag- ið“. Eftir hádegi í fyrradag byij- aði nýr hópur og fékk aðeins einn fyrstu vaktina. Fjóra síðan til viðbótar í gærmorgun og voru þá komnir alls 64 laxar á land af aðalsvæðinu. Glæðist hægt í Kjósinni Ásgeir Heiðar leiðsögumaður í Kjósinni sagði að engar stökk- breytingar hefðu orðið á veið- inni. Þetta gengi enn hægt, en þó hefði það gerst í gærmorgun, að fyrsti laxinn veiddist fyrir ofan Laxfoss, 12 punda fiskur. Það var einn þriggja laxa sem veiddist á morgunvaktinni. Alls voru þá komnir 20 laxar á land. Menn sjá dálítið af físki, en enn sem komið er, vantar allan kraft í göngurnar. Veiðimaður rennir neðst í Myrkhyl í Langá, en veiði hófst þar í vikunni. # # # Morgunblaðið/Kristinn Undirritun samnmga SKÚLI Guðmundsson, Vilhjálmur Jónsson, Davíð Ólafsson, Sverrir Hermannsson bankastjóri og Tómas Tómasson yfirverkfræðingur ístaks sjást hér staðfesta samningana. Landsbanki fjármagn- ar byggingn aldraðra LANDSBANKI íslands mun annast fjármögnun og ráðgjöf við bygg- ingu íbúðarhúss sem verður í eigu hluthafa í Skildinganesi hf. en það er félag eldri borgara. Jafnframt því voru í vikunni undirritaðir samn- ingar við verktakafyrirtækið ístak um framkvæmdir við byggingu íbúðarhússins sem rísa á við Þorragötu nærri Reykjavíkurflugvelli. Sverrir Hermannsson skrifaði undir samninginn og kvað það ánægjulegt að Landsbankamenn ættu samstarf við Skildinganes og aðstoðuðu félagið við að koma yfir sig húsi. Hann kvað þennan samning traustan enda hefði bankinn góða reynslu af samstarfí við eldri borg- ara. Að sögn aðstandenda Skildinga- ness ríkir af þeirra hálfu mikil ánægja með samninginn og þeir benda á að með tryggri fjármögnun náist hagkvæmari samningar við verktakafyrirtækið. Þegar hafa 18 hinna 38 íbúða hússins verið seldar en að sögn að- standenda Skildinganess hf. hefur sdla íbúðanna gengið vel að undan- fömu. Aðeins þeir sem eru 63 ára og eldri eiga kost á að festa kaup á íbúð og gerast hluthafar en það verða þeir sjálfkrafa við kaupin. Verklok í desember 1994 Framkvæmd verksins mun sam- kvæmt samningi undirrituðum á þriðjudag verða í umsjón ístaks hf. og munu hún hefjast bráðlega. Fyrsta áfanga verður lokið um næstu áramót en verklok eru áætluð 15. desember 1994. Heildarkostnað- ur er áætlaður um 440 milljónir króna á verðlagi í mars síðastliðnum. Laugardals völlur Reykja víkurleikarnir Reykjavíkurleikarnir eru vígslumót hinnar nýju og bættu frjálsíþróttgaðstöðu á Laugardals- velli. Borgarstjórinn í Reykjavík, Markús Örn Antonsson, mun setja leikana kl. 17.00 að viðstöddum forseta íslands, frú Vigdísi Finnbogadóttur, ásamt fjölda boðsgesta. Sjaldan eða aldrei hafa jafn margir fræknir íþróttamenn tekið þátt í frjálsíþróttamóti á íslandi. Um 40 erlendir íþróttamenn verða á leikunum ásamt flestum af bestu frjálsíþrótta- mönnum íslands, þar á meðal spjótköstur- unum Einari Vilhjálmssyni og Sigurði Einars- syni, kúluvarparanum Pétri Guðmundssyni og kringlukastaranum Vésteini Hafsteinssyni. Meðal erlendu keppendanna eru núverandi ólympíumeistari í kringlukasti, Romas Ubartas, fyrrverandi ólympíumeistari í hástökki, Carlo Tránhardt, og margir af bestu frjálsíþrótta- mönnum Norðurlanda auk nokkurra af bestu spretthlaupurum Kanada. Keppnin stendur yfir frá kl. 17.00 til 19.00, aðgangur er ókeypis. KEPPNISGREINAR: KONUR Hlaup 100 m grind 100 m 800 m 3000 m Hástökk KARLAR Hlaup 110 m grind 100 m 400 m Kringlukast Spjótkast Hástökk Alþjóðlegt mót í frjálsíþróttum 17. júní 1993 ■w/jaiHa FIRR ■BBnOB

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.