Morgunblaðið - 17.06.1993, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1993
29
Kambódía
Ný stjórn
til bráða-
Phnom Penh. Reuter.
LEIÐTOGAR tveggja helstu
stjóminálaflokka í Kambódíu fund-
uðu í gær með Norodom Sihanouk
prins og þjóðhöfðingja landsins,
og að tillögu hans hafa leiðtogarn-
ir fallist á að mynda bráðabirgða-
stjóm, uns búið er að koma saman
stjórnarskrá.
Sihanouk prins ritaði leiðtogunum
bréf þar sem hann hvatti þá til að
samþykkja tillögu að bráðabirgða-
stjórp sem iyti forsæti tveggja leið-
toga, syni hans, Norodom Ranariddh,
sem gigraði í kosningum sem Samein-
uðu þjóðimar skipulögðu í síðasta
mánuði; og Hun Sen, starfandi for-
sætisráðherra. Flokkur Ranariddh
vann 58 sæti á þjóðþinginu, en flokk-
ur Sen fékk 51. Alls eiga 120 fulltrú-
ar sæti á þinginu.
Sihanouk prins sagði í útvarpsá-
varpi til þjóðarinnar, að hann myndi
ekki taka við embætti forsætisráð-
herra í bráðabirgðastjóm. Hann yrði
þó áfram þjóðhöfðingi. Fyrri hug-
mynd hans um bráðabirgðastjórn,
sem gerði ráð fyrir honum sem for-
seta, forsætisráðherra og yfirmanni
heraflans, var harðlega mótmælt af
stuðningsmönnum Ranariddh. Þing-
fulltrúar hafa þijá mánuði til þess að
koma saman stjómarskrá og síðan
verður mynduð ríkisstjóm. Þeir hafa
nú þegar lagt blessun sína yfír Si-
hanouk prins sem þjóðhöfðingja, en
ekki er búist við að hann muni hafa
vald yfir leiðtogum bráðabirgðastjóm-
arinnar.
Nýr vitnisburður tveggja kvenna í Palme-málinu vekur mikla athygli
birgða
Hollywoodstj örnurnar
tapa á húsunum sínum
Fasteignaverð í Beverly Hills hefur hrapað um meira en 40%
New York. The Daily Telegraph.
STJÖRNURNAR í Hollywood hafa verið að
iippgötva það að undanförnu, að verð á fast-
eignum, jafnvel á glæsivillunum í Beverly Hills,
heldur ekki endalaust áfram að hækka. Það
er þess vegna, sem fjöldinn allur af frægu
fólki, þar á meðal Michael J. Fox, Cher og
Eddie Murphy, hefur tapað eða er í þann veg-
inn að tapa milljónum dollara á því að selja
húsið sitt.
A síðustu þremur árum hefur fasteignaverð í
Beverly Hills fallið um meira en 40% og sem dæmi
má nefna, að Cher, söngkonan og leikkonan kunna,
mun tapa að minnsta kosti 1,25 milljónum dollara,
næstum 79 milljónum kr., á húsinu sínu í Malibu,
það er að segja, takist henni þá að selja það. Fyrir
þremur árum keypti hún það á 390 milljónir kr. en
nú vill hún ekki lengur búa í Kalifomíu og býður
húsið á 311 millj.
Úr 500 í 370 miiy.
Fyrir þremur árum keypti Eddie Murphy húsið,
sem Cher átti þá í Beverly Hills, fyrir næstum 380
millj. kr. en fyrir tveimur árum reyndi hann að selja
það og setti fyrst á það rúmar 500 millj. Nú er
hann kominn niður í 370 millj. en það er varla, að
nokkur sýni villunni, sem er í marokkönskum stíi,
hinn minnsta áhuga. Þá tapaði leikarinn Michael J.
Fox rúmum 88 milljónum kr. á húsi, sem kostaði
hann upphaflega 250 millj.
Hrunið á fasteignamarkaðinum í Beverly Hills er
dálítið ýkjukennd mynd af því, sem gerst hefur í
Kaliforníu síðan harðna fór á dalnum í ríkinu fyrir
þremur árum. Fasteignasalarnir reyna hins vegar
að bera sig vel og auglýsa grimmt, að nú sé hægt
að gera kjarakaup, glæsivillurnar séu næstum því
á útsöluprís.
Losnar ekki við húsið
EDDIE Murphy er búinn að lækka húsverðið
um 130 millj. kr. en samt er áhuginn enginn.
Styður framburð annarra vitna
SÆNSKA lögreglan hefur nú fengið nýjar vísbendingar í Palme-mál-
inu. Tvær ungar finnskar konur, sem voru staddar á morðstaðnum,
hinn 28. febrúar 1986 nokkrum mínútum áður en Olof Palme, forsætis-
ráðherra Svíþjóðar var myrtur, segjast hafa séð Finna, sem hún kannað-
ist við, á staðnum. Stóð hann á götuhorni klæddur leðuijakka og hafði
jafnt talstöð sem skammbyssu innan á sér.
Önnur konan kannaðist við mann- ég að gera?“. Svaraði þá maðurinn í
inn úr líkamsræktarmiðstöð í bænum talstöðinni: „Ekki láta þá á þig fá.
Upplands Vásby og gekk fram til Gerðu það sem þú átt að gera.“
hans og spurði á finnsku hve mikið Konunum leist ekki á biikuna og
klukkan væri. Hann svaraði ekki en héldu áfram göngu sinni. Skömmu
virtist verða bilt við. Á meðan konurn- «íðar heyrðu þær skothvelli. Þegar
ar stóðu við bílinn sagði einhver í þær lásu í blöðunum daginn eftir að
talstöð mannsins á finnsku „nú koma Palme hefði verið skotinn voru þær
þau“ og svaraði hann þá: „Það er sannfærðar um að þar hefði maðurinn
búið að ljóstra upp um mig. Hvað á verið að verki. Þær voru hins vegar
svo óttaslegnar að þær ákváðu að
segja ekkert fyrr en maðurinn væri
kominn bak við lás og slá. Töldu þær
öryggi sitt vera mikilvægara en verð-
launaféð upp á um hálfan milljarð
íslenskra króna, sem þeim var heitið,
sem leyst gat gátuna.
í nóvember í fyrra sagði hins veg-
ar önnur þeirra kunningja frá þessu
í trúnaði og hann hafði samband við
blaðamann á Dagens Nyheter í Sví-
þjóð gegn því að hann myndi ekki
skrifa neitt um málið. Blaðamaðurinn
skýrði síðan yfirvöldum frá vitnis-
burðinum en fyrst var skýrt frá mál-
inu í sænskum fjölmiðlum um helgina.
Sænska iögreglan hefur í samvinnu
við þá finnsku reynt að bera kennsl á
manninn. Segir yfirmaður rannsóknar-
innar, Hans Ölvebro, við Svenska
Dagbladet í gær að enn sé ekki vitað
hver maðurinn sé. Annar lögreglumað-
ur sagði hins vegar að lögreglan teldi
tvo menn sérstaklega athyglisverða í
þessu sambandi. I báðum tilvikum
væri um að ræða sænskumælandi
Finna, búsetta í Stokkhólmi.
Lögreglan telur vitnisburð stúlkn-
anna athyglisverðan enda komi hann
heim og saman við margt annað sem
vitni hafa sagt um morðkvöldið árið
1986.
Kravtsjúk
skipar efna-
hagsmála-
nefnd
LEONID Kravt-
sjúk, forseti
Ukraínu, til-
kynnti síðdegis
í gær að hann
hefði ákveðið að
skipa sérstaka
nefnd til þess að
takast á við
efnahagsvand-
ann í landinu.
Þar með hyggst
hann binda endi á deilur við Leo-
nid Kúsjma, forsætisráðherra, um
stjórn landsins. Kravtsjúk gaf út
yfirlýsingu þess efnis að hann
væri sjálfur leiðtogi stjórnarinnar,
en forsætisráðherrann, Kúsjma,
fengi fijálsar hendur varðandi
verkfall námamanna og efnahags-
umbætur.
*
Urslitum frest-
að í Nígeríu
KJÖRSTJÓRN í Nígeríu tilkynnti
í gær þá ákvörðun sína að fresta
um óákveðinn tíma birtingu á
niðurstöðum úr forsetakosningun-
um sem fram fóru í landinu á laug-
ardaginn. Forseti kjörstjórnarinn-
ar sagði þetta gert í ljósi undanfar-
inna atburða, en stjórnmálamenn
hafa reynt að ógilda kosningarn-
ar, og framlengja um íjögur ár
stjórnarsetu Ibraim Babangida,
hershöfðingja, sem setið hefur að
völdum í tíu ár.
Nálar finnast
í gosdósum
FRÉTTIR af dularfullum sprautu-
nálum sem hafa fundist í Pepsí
gosdósum hafa borist víða um
Bandaríkin og hafa komið tilkynn-
ingar um slíkt frá átta fýlkjum.
Bandaríska matvælaeftirlitið segir
þó að í mörgum tilvikum geti ver-
ið um gabb að ræða. Fulltrúar
Pepsí-fyrirtækisins segja að það
sé óhugsandi að nálarnar hafi
komist í dósirnar á framleiðslu-
stigi, en hafa boðist til að innkalla
framleiðsluna. Matvælaeftirlitið er
þó mótfallið slíkum aðgerðum, þar
eð þær gætu tafið fyrir rannsókn
málsins, og auk þess hefði ekkert
komið fram sem benti til þess að
hætta væri á ferðum.
Kravtsjúk
Kosningar í Malaví
63% kjósa
fjölflokka-
lýðræði
TVEIR þriðju kjósenda í Malaví
vilja fjölflokka lýðræði sam-
kvæmt úrslitum þjóðaratkvæða-
greiðslunnar sem fram fór sl.
mánudag. Alls voru tæpar fimm
milljónir íbúa á kjörskrá, eða
rúmlega helmingur íbúanna.
Kosningaþátttaka var 67%.
Úrslit kosninganna eru mikið
áfall fyrir Hastings Banda sem
ríkt hefur einráður í landinu sl.
30 ár. Lýðræðisflokkarnir, sem
fóru með sigur af hólmi, hafa kraf-
ist þess að þjóðstjórn verði mynduð
innan viku, ný stjórnarskrá samin
og fijálsar kosningar undirbúnar.
Banda hefur ekki tjáð sig opin-
berlega eftir að úrslitin voru gerð
heyrinkunn. Óttast er að hann
kunni að véfengja kosningaúrslitin
og draga valdaafsal sitt á langinn
til að sundra lýðræðisöflunum í
landinu.
FEGRIÐ GARÐINN OG BÆTIÐ
MED SANDI OG GRJÓTI
SANDUR
SIGURSTEINAR
VÖLUSTEINAR HNULLUNGAR
Þú færö sand og allskonar grjót hjá okkur.
Viö mokum þessum efnum á bíia eöa
í kerrur og afgreiðum líka í smærri
einingum, traustum plastpokum sem
þú setur í skottiö á bílnum þínum.
Þú getur lika leigt kerru og
hjólbörur hjá okkur.
BJÖRGUN HF.
SÆVARHÖFÐA 33
SÍMI: 68 18 33
Atgreiöslan viö Elliðaár er opin:
Mánud.-fimmtud. 7.30-18.30.
Föstud. 7.30-18.00.
Laugard. 7.30-17.00.
Opið í hádeginu nema á laugardögum.