Morgunblaðið - 17.06.1993, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1993
43
uðu, sagaði og heflaði borð.
Kristinn lést 9. apríl 1976, en
Bjamey í mars 1993. Hann langaði
alltaf til að verða íslenskur bóndi
og hafði yndi af að umgangast
sauðfé og stunda fjármennsku.
Hafði hann því sett sig vel inn í
starf bóndans þótt annað ætti fyrir
honum að liggja um ævina.
Á Húsavík starfaði hann um ára-
bil i Rótarýklúbbnum þar. Var og
liðtækur hjá bridsfélaginu og
skemmti sér vel við spilaborðið.
Kristinn hikaði ekki við að ráða
unga pilta í vinnu hjá fyrirtækinu,
m.a. skólapilta, og kom sér vel við
þá. Gott þótti að vinna undir hans
stjórn, hann var jafnan lipur og
sanngjarn, hjálpsamur og greiðvik-
inn, rólegur og athugull við störf.
Hann var ósérhlífinn við sjálfan sig
meðan hann hafði fulla heilsu.
I
I
I
I
Kristinn var jafnan glettinn og
gamansamur. Gat verið neyðarleg-
ur í tilsvörum. Honum var tamt að
nota ýmis orð til áherslu máli sínu
sem aðrir „vildu ei flíka nema svona
í hálfum hljóðum". Framsagnar-
mátinn og tóntegundin slæfði gróf-
yrðin sem ei að síður fengu sinn
sérstæða kraftbirtingarhljóm af
vörum Kristins. Höfðu menn jafnan
gaman af orðfæri Kristins og tals-
máta. Minnisstætt er þeim er þess-
ar línur ritar og vann sem skólapilt-
ur nokkur sumur undir stjórn Krist-
ins þegar verið var að byggja versl-
unarhús K.Þ. á Húsavík. Hafði ver-
ið beðið leyfis fyrir mig til að standa
vakt um borð í ensku flutningaskipi
sem skömmu eftir stríðslok kom frá
Póllandi með sement til Húsavíkur
og átti síðan að fara til Bretlands.
Um borð voru þrír laumufarþegar
frá Póllandi sem ætluðu sér að að
komast til Englands. Þegar þeirra
varð vart um borð komu boð frá
dómsmálaráðuneytinu íslenska að
vaktmenn skyldu vera um borð í
íslenskum höfnum þar sem skipið
átti leið. Kristinn kom til mín og
sagði: „Þú ert víst hámenntað helv.
kvikindi," glotti við og sagði mér
frá erindinu. Leyfið var góðfúslega
veitt. Var mér heldur betur skemmt
því að ég þekkti orðaleppa Kristins.
Á efri árum Kristins var hann
eitt sinn spurður hvort hann hefði
aldrei iðrast þess að setjast að í
Þingeyjarsýslu og starfa þar. Hann
svaraði: „Nei, mig hefir ekki iðrað
þess en einhvern veginn er það svo,
líklega veldur æskan því, að ég met
alltaf norðursýsluna meira en suð-
ursýsluna."
Kristinn og Bjarney eignuðust
fimm börn, en misstu eitt í barn-
æsku. Þau sem upp komust eru:
Karólína, gift Sigvalda Sigurðssyni,
rakarameistara á Akureyri, og eiga
þau fjögur börn; Kristgerður, gift
Siguijóni Guðjónssyni, lyfsala í
Reykjavík, eiga fjögur börn; Hauk-
ur dr. í efnafræði, búsettur í Sviss,
var kvæntur grískri konu, Kookie
Spoliopulu, þau skildu en eignuðust
tvo drengi; Bjarni, kaupmaður í
Reykjavík, kvæntur Guðrúnu Garð-
arsdóttur, búsett í Reykjavík, og
eiga fjögur börn.
Sigurjón Jóhannesson.
1 svo að enn mætti ýmislegt upp telja.
í eftirmælum eftir Óskar, en hann
lést í janúar 1953, tæplega sextugur
að aldri, segir Björn Ólafsson svo
um hann: „Hann var starfsmaður
mikill, útsjónarsamur og fylginn
sér. Fyrri ár ævinnar var hann oft
bjartsýnn um of og sást lítt fyrir
enda voru það að ýmsu leyti mikil
baráttuár. En af þeim lærði hann
margt og meðal annars þá varfærni
og aðgæslu, sem einkenndi rekstur
hans síðari árin, enda famaðist hon-
um vel.“
Kynni okkar Óskars hófust aðal-
lega þegar hann tók sæti í stjórn
Fiskifélagsins á fimmta áratugnum,
en þar sat hann í nokkur ár. Þótti
mér gott að vinna með honum. Var
mér fljótt ljóst að þar fór enginn
miðlungsmaður, enda hafði hann
sýnt það á ferli sínum. Vinfastur
var hann og gleðimaður, sem gaman
var að vera samvistum við.
Mér er ljúft að minnast þessa
vinar míns og brautryðjanda á sviði
sjávarútvegsins nú þegar liðin eru
100 ár frá fæðingu hans.
Davíð Ólafsson.
Áslaug Friðriksdóttir, fráfarandi
landsgildismeistari, og Aðalgeir
Pálsson, nýkjörinn landsgildis-
meistari.
Landsgildisþing
St. Georgs-gilda
Aðalgeir
Pálsson
landsgildis-
meistari
HALDIÐ var landsgildisþing St.
Georgs-gilda á íslandi 24. apríl
sl. St. Georgs-gildin eru alþjóð-
legur félagsskapur eldri skáta
og velunnara þeirra. Eitt af
markmiðum gildanna er að
styðja við bakið á skátastarfinu
í landinu.
Að þessu sinni var þingið haldið
í Reykjavík í umsjón gildisins
Straums. Aðalræðumaður þingsins
var Ólafur Ásgeirsson, varaskáta-
höfðingi, og ræddi hann um rætur
skátahreyfingarinnar og hve það
væri nauðsynlegt að hyggja að for-
tíðinni þegar framtíð skal byggja.
Markmið skátahreyfingarinnar
hefðu lítið breyst í tímanna rás. Þau
byggja enn á manngildinu, að koma
hveijum einstaklingi til aukins
þroska, ekki síst félagsþroska.
Mörg mál voru til umræðu en
mestur tími fór í umræður um
hvernig gildin gætu sem best orðið
skátastarfinu að liði. Mörg gildanna
hafa mikið samstarf við skátastarf-
ið en alltaf má gera betur.
Þeir eldri skátar eða velunnarar
þeirra sem áhuga hafa á starfi gild-
anna geta fengið upplýsingar um
það hjá stjórnarmeðlimum lands-
gildisstjórnar en hana skipa: Aðal-
geir Pálsson, Akureyri, landsgildis-
meistari; Hörður Zophaníasson,
Hafnarfírði, vara landsgildismeist-
ari; Garðar Fenger, Reykjavík,
gjaldkeri; Sonja Kristensen, Kefla-
vík, ritari; Fanney Kristjánsdóttir,
Akureyri, meðstjómandi; Jón
Bergsson, Hafnarfirði og Hilmar
Bjartmarz, Garðabæ.
RENAULT 19
Frískur og faiegur
fólksbfll s finu verði
í Renault 19 er áherslan lögö á gæöi, langan endingartíma og fallegt útlit.
Renault 19 RT er frískur, fallegur og vel búinn fjölskyldubíll.
Hann er búinn lúxus innréttingu, 95 hestafla vél, vökva- og veltistýri,
rafdrifnum rúöum, fjarstýrðum samlæsingum, fjarstýrðum speglum, lituðu
gleri, samlitum stuöurum, þokuljósum, 4 gíra rafstýröri sjálfskiptingu
(aukabúnaður), niðurfellanlegu aftursæti, fjölstillanlegu bílstjórasæti,
olíuhæöarmæli, 460 lítra farangursrými og höfuöpúöum á aftursæti.
Renault 19 RN er á fínu veröi eöa frá kr. 1.099.000,- og í boöi eru
greiðslukjör til allt að 36 mánaða.
Beröu saman verd og búnaö
.. áöur en þú kaupir annaö
Formula I
WILLIAMS -RENAULT
HEIMSMEiSTARI 1992
RENAULT
..fer á kostum
RENAULT
QuUna..&tvn&
1991
1992
1993
Bílaumboðið hf.
Krókhálsi 1-110 Revkiavík - Sími 686633
Iceland Review á lesendur í meira
ICELAND REVIEW er andlit íslands gagnvart tugþúsundum fólks um
víða veröld. í ritinu kynnist það náttúru landsins, sögu, menningu og
þjóölífi. ICELAND REVIEW hefur alltaf hlotiö lof fyrir vönduö
vinnubrögð og glæsibrag og þykja Ijósmyndir í ritinu einstakar aö
gæöum.
Það er gaman að fræða fólk í fjarlægð um ísland.
Farðu aö dæmi þúsunda annarra íslendinga - sendu vinum þínum
erlendis gjafaáskrift að ICELAND REVIEW!
en 90 löndum.
Gjafaáskrift að ICELAND
REVIEW er fyrirhafnarlítil
og ódýr leið til að treysta
vináttuböndin.
WllOUNB
Muy
lceiand
Review
Höfðabakka 9, Reykjavik.
Brautryðjatidastarf t 30 ár.
HVtTA HÖSIO .'