Morgunblaðið - 17.06.1993, Side 47

Morgunblaðið - 17.06.1993, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1993 47 Kveðja Halldór Pierrot Hostert Halldórsson Fæddur 31. mars 1940 Dáinn 8. júní 1993 Með þessum fátæklegu orðum langar mig að kveðja þig, elsku Bóbó minn. Þegar ég hugsa til baka, streyma fram minningar um okkar kynni. Þú varst svo mikill persónu- leiki og þegar fólk hafði einu sinni hitt þig þá gleymdi það þér ekki. Alltaf þegar við hittumst talaðir þú um börnin þín og sagðir mér hvað þú værir stoltur af þeim, þú sagðir mér sögur af þeim frá því að þau voru lítil og hvað þig langaði að gera fyrir þau. Þú elskaðir öll börn og það sýndir þú í allri umgengni við barnabörn þín. Alltaf varst þú tilbúinn að hjálpa öðru fólki og rétta því hjálparhönd. Ég hef kynnst fáum sem búa yfir jafn fallegum persónu- leika og þú hafðir. Það var orðið svo sárt að sjá þig á hveijum degi markast meira og meira af þeim sjúkdómi sem þú þjáð- ist af og dró þig til dauða. Þegar við hittumst síðast var eins og við vissum bæði að það væri stutt í að Guð tæki þig til sín. Þú talaðir til mín eins og þú værir að kveðja mig og svo varð að Guð tók þig í sína arma. Hjá honum líður þér loksins vel og þjáningar þínar eru á enda. Elsku Grétar minn og Sirrý mín og aðrir ættingjar, ég bið Guð að styrkja ykkur í ykkar miklu sorg. Minningin lifir um yndislegan mann. Guð gefi mér æðruleysi til þess að sætta mig við það, sem ég fæ ekki breytt. Kjark til þess að breyta því, sem ég get breytt og vit til þess að greina þar á milli. Anna Bentína Hermansen. Á hinu rangláta og óhreina til- verusviði jarðlífsins er þó hægt að finna bjartar myndir, en þær eru að mestu leyti frá bernskunnar dögum niður við Grímsstaðavör þar sem Halldór heitinn átti ásamt okkur leikfélögunum bjartar og áhyggju- lausar stundir, jafnt á fögrum vor- degi sem á sólríku sumarkvöldi þar sem allt iðaði af skemmtilegu lífs- mynstri. í dag er sú breyting orðin á, að fyrir után lygnbláan Skeijafjörðinn er það umhverfi að öðru leyti þög- ult og tómlegt, en minningar um skemmtilegar persónur, ömmu hans, Jósefínu Eyjólfsdóttur, og fósturföð- ui;, Halldór Sigurðsson, og margar aðrar minnisstæðar persónur munu lifa áfram á tilverusviði minning- anna. Vaktmaður eða vaktkona í fanga- geymslu lögreglunnar við Hverfis- götu sem opnar þar klefahurð til þess að hleypa illa förnum einstakl- ingi út í gráan hversdagsleikann, hann eða hún ber enga ábyrgð á því sem getur óvænt gerst. Ábyrgð- in hvílir frekar á þeim sem með áfengisvandamálin fara, en það má segja að þar sé margt sem hægt er að lagfæra til þess að koma í veg fyrir leiðinleg atvik. Ég votta eftirlifandi skyldfólki og kunningjum Halldórs heitins hlut- tekningu mína. Blessuð sé minning hans-. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlauztu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. (V. Briem) Þorgeir Kr. Magnússon. 100 ár frá fyrstu útskrift Stýri- mannaskólans í Reykjavík STÝRIMANNASKÓLANUM 40 ára útskriftarafmæli FJÓRIR fyrstu nemendur varðskipadeildar frá 1953 héldu ugp á 40 ára útskriftarafmæli. Talið f.v.: Garðar Pálsson, skipherra, Arni E. Valdimarsson, sjómælingamaður, Guðjón Ármann Eyjólfsson, skóla- meistari, Guðmundur Kærnested, skipherra, og Hörður Þórhallsson, yfirhafnsögumaður. Dávaldsmenntun ekki verri en læknamenntun THE American Society of Clinical Hypnosis (Samtök bandarískra dávalda í heilbrigðisþjónustunni) eru læknasamtök. Því er eðlilegt að þau viðurkenni ekki aðra dávalda en læknisfræðilega menntaða segir Friðrik Páll Ágústsson, dáleiðslumeðferðaraðili, og vísar til bréfs sam- takanna, sem sagt var frá í blaðinu á þriðjudag. Sjálfur segist hann eiga aðild að félögum þar sem læknar, sálfræðingar, geðlæknar og viðurkenndir dáleiðslumeðferðaraðilar starfi saman. Reykjavík var slitið við hátíðlega athöfn í hátíðasal Sjómannaskól- ans föstudaginn 21. maí sl. Þetta voru 102. skólaslit Stýrimanna- skólans en jafnframt var þess minnst að 100 ár eru Iiðin síðan fyrstu nemendur luku prófi frá skólanum í mars árið 1893. Athöfnin hófst með því að Dagný E. Arnalds lék á píanó lagið Minn- ingar eftir Tsjajkovskíj. í skólaslitaræðu minntist Guðjón Ármann Eyjólfsson skólameistari fyrri nemenda skólans og frammá- manna í sjávarútvegi sem hafa látist frá því skólinn var settur 1. septem- ber sl., en óvenju margir hafa and- ast á liðnum vetri. Sérstaklega var minnst 10 sjómanna sem höfðu drukknað frá því skólinn var settur sl. haust; margir þeirra voru ungir menn í blóma lífsins. Haustprófum í desember luku 77 nemendur, en Stýrimannaskólinn er annaskiptur bekkjaskóli, þó með sér- stökum áföngum innan hvers stigs skipstjórnarnámsins. A skólaárinu luku 68 skipstjórnar- prófum. Skipstjórnarprófi 1. stigs, sem veitir 200 rúmlesta réttindi á skip í innanlandssiglingum luku 27. Hæstu meðaleinkunn hlutu Róbert Hafliðason, Grindavík, og Þorsteinn Örn Andrésson, Reykjavík, 9,21, sem er ágætiseinkunn. Skipstjórnar- prófi 2. stigs, sem veitir ótakmörkuð réttindi á fiskiskip og undirstýri- mannsréttindi á kaupskip af hvaða stærð sem er með ótakmarkað far- svið, lauk 31 og voru hæstir og jafn- ir Gísli Snæbjörnsson, Patreksfirði, og Jóhann Steinar Steinarsson, Reykjavík, með 9,0 í meðaleinkunn sem er ágætiseinkunn. Skipstjórnar- prófi 3. stigs (farmannaprófi) luku 10 og fékk Martin Harris Avery, Vestmannaeyjum, hæstu einkunn, 8,68, sem er há 1. einkunn. Skipstjórnarstig 4. stigs var ekki haldið þennan vetur, en mikill áhugi er hjá nemendum sem luku 3. stigi, bæði nú og í fyrra, að fara í 4. stig sem verður haldið á næsta skólaári. Auk þess hafa nokkrir stýrimenn Landhelgisgæslunnar óskað eftir skólavist svo að nú á vordögum lítur út fyrir að nægilega margir nemend- ur fáist í deildina að hausti. (ílr fréttatilkyimingu.) Friðrik segir að The American Society of Clinical Hypnosis séu að- eins ein samtök dávalda af mörgum þúsundum og auðvelt sé að benda á önnur sem viðurkenni menntun sína. Eitt þeirra sé t.a.m. National Guild of Hypnosis, virt og fjölmennt félag dáleiðslumeðferðaraðila, stofnað árið 1951. Félagið gefi út titilinn C. Ht. og sé sá titill löggildur sam- kvæmt bandarískri stjórnarskrá. Titlar Tvær skammstafanir eru í titili Friðriks. Sú fyrri er R.P.H. og er hún frá Cincinnati School of Hypnos- is í Ohio. Hin er C. Ht. og fékk Friðrik þann titil frá I.M.D.H.A. sem eru alþjóðleg félagasamtök dá- leiðslumeðferðaraðila. Hann stundar nú nám til doktorsprófs í dáleiðslu- meðferð við A.I.H. í Kaliforníu. Bæði áðurnefndir skólar og menntun þeirra eur viðurkennd af yfirvöldum í fylkjunum tveimur segir Friðrik og leggur þannig áherslu á að ranglega sé talað um að engin lög gildi um dáleiðslu í landinu í bréfi American Society of Clinical Hypnosis. Hann getur þess líka að með æðra menntastigi eigi fulltrúi sam- takanna eflaust við læknismenntun. Menntun dáleiðslumeðferðaraðila sá að sjálfsögðu ekki slík menntun. Hún sé önnur en þurfi alls ekki að vera eitthvað verri. ERFIDRYKKJUR Sími 11440 Nýstúdentar NÝSTÚDENTAR frá Fjölbrautaskóla Vesturlands voru 64 að þessu sinni. 64 brautskráðir frá Fjölbraut á Akranesi FJÖLBRAUTASKÓLA Vesturlands á Akranesi var slitið í 15. sinn á dögunum. Þá voru brautskráðir 64 nemendur frá skólanum, 40 stúdent- ar, 13 nemendur af iðn- og verknámsbrautum, 8 með verslunarpróf og 3 nemendur af uppeldisbraut. Þá voru kvaddir 2 skiptinemar sem voru i skólanum veturinn 1992-1993, stúlka frá Ítalíu og piltur frá Bóliv- íu. 33 hinna brautskráðu eiga heima á Akranesi en 31 utan Akraness. Viðurkenningu fyrir bestan náms- árangur stúdenta svo og iistaverð- laun Nemendafélags FVA hlaut Anna Björk Nikulásdóttir. Einnig hlaut Anna námsstyrk Akraneskaup- staðar sem Steinunn Sigurðardóttir, forseti bæjarstjórnar Akraness, af- henti í þriðja sinn. Styrkurinn nemur liðlega 270.000 krónum og er veittur einum nemanda á ári sem brautskrá- ist frá FVA með góðum árangri og hyggur á framhaldsnám. Sex aðrir nemendur hlutu viðurkenningu fyrir góðan árangur í ýmsum greinum: Guðbjörg Ingveldur Ragnarsdóttir, Anna Lilja Valsdóttir, Anna Leif Elí- dóttir, Brandís M. Hauksdóttir, Hreiðar Bjarnason og Ólöf Elísabet Þórðardóttir. Camilla Fosso skipti- nemi frá Ítalíu fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur í íslensku. 770 nemendur skráðir Þórir Ólafsson, skólameistari, flutti annál skólaársins og kom þar meðal annars fram að um 740 nem- endur voru skráðir til náms við upp- haf haustannarinnar á 3 stöðum á Vesturlandi í dagskóla og öldunga- deild. Til viðbótar reglulegu skóla- haldi sóttu nokkur hundruð manns námskeið á vegum Farskóla Vestur- lands. Kennt var á Akranesi, Hellis- sandi og í Stykkishólmi. + Hjartans þakkir til allra þeirra, sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug vegna fráfalls GUÐMUNDAR BJARNA BALDURSSONAR, sem lést 4. júní. Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks á hjartadeild Borgarspítalans. Guð blessi ykkur öll. Fyrir mína hönd og annarra aðstandenda, Brynja Breiðfjörð Herbertsdóttir. + Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, bróður, mágs og afa, LÁRUSAR HAFSTEINS ÓSKARSSONAR, Vatnsendabletti 102, Kópavogi. Jóna Ósk Lárusdóttir, Kristján Rafn Hjartarson, Sigmar Hafsteinn Lárusson, Sigurður Óskar Lárusson, Guðbjörg Magnúsdóttir, Lárus Ingi Lárusson, TrineTranvág Ören, Unnur Óskarsdóttir, Kari Jóhannsson og barnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, BRYNHILDARINGIBJARGAR JÓNASDÓTTUR Ijósmóður. Þórunn Haraldsdóttir, Þórmundur Þórarinsson, Elsa Haraldsdóttir, Sigurður Guðjónsson, Jóna Haraldsdóttir, barnabörn # og Valdimar S. Jónsson. Lokað Lokað verður hjá Samhjálp hvítasunnumanna, Hverfisgötu 42, föstudaginn 18. júní, frá kl. 14.00, vegna jarðarfarar HALLDÓRS HOSTERT. Samhjálp.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.